Alþýðublaðið - 07.03.1961, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 07.03.1961, Blaðsíða 2
I mtstjörar: Gísll J. Astþórsson (áb.) og Benedikt uróndal. — Fulltrúar rit- i otjömar: Sigvaldi Hjálmarsson og IndriSi G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri: BJBrgvin GuBmund. son. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími 14 906. — ASsetur: AlþýSuhúsið. — PrentsmiSjá AlþýðublaSsins Hverfls- (götu S—10. — Askriftargjald: kr. 45,00 á mánuðl. í lausasölu kr. 3,00 eint. : fDtgefandi: Alþýðuflok..urínn. — Framkvæmdastjóri: Sverrir Kjartansson. SIGUR 'I IÐJU j STJÓRNARFLQKKARNIR unnu stórsigur í j Iðju, félagi verksmiðjufólks í Reykjavík. Þeir juku fylgil sitt í trésmiðafélaginu, voru endur- Ikjörnir án andstöðu í rafvirkjafélaginu, bættu við sig í múrarafélaginu. Þessi þróun er mjög athyglisverð. Vitað var, að ráðstafanir viðreisnarinnar mundu fyrst í stað valda nokkrum erfiðleikum í byggingaiðnaði og ! verksmiðjuSðnaði, og hefur óneitanlega farið svo, j að vinna hefur verið minni á þessum sviðum en j áður. Samt sem áður nær stjórnarandstaðan engum j árangri í skipulagðri sókn sinni til að hafa gott : af þessum erfiðleikum. Kommúnistar hafa aldrei ! eytt meiri orku í stjórnarkosningar þessara verkalýðsfélaga en nú. Framsóknarmenn hafa ■aldrei unnið svo gersamlega með kommúnistum .sem nú. Árangurinn er verri en enginn- Ekki verður lijá því komizt að draga þá ályktun af þessum staðreyndum, að verkafóikið skilji þörf þeirra ráðstafana, sem gerðar hafi verið, vilji að minnsta kosti eira þeim enn um sinn, og í hafni því með öilu hónorði stjórnarandstöðunnar. j f»etta eru góð tíðindi fyrir ríkisstjórnina, sem | gefa til kynna að hún eigi miklum skilningi að j fagna meðal almennings, og þjóðin sé vissulega 1 búin að fá nóg af verðbólguskrúfu undanfarinna \ ára. Um síðustu helgi var landhelgiísmálið dregið inn 1 Iðjukosninguna og reynt eins og unnt var | að æ'sa fólk út af lausn þess. Einnig því var hafn- i að. í viðkvæmasta tilfinningamáli þjóðarinnar á ! eíðari árum hefur skynsemin ráðið. j Allt eru þetta slæmar fregnir fyrir kommún- I ista og Framsóknarmenn. Þeir hafa komið fram : ssmkvæmt venju stjómarandstæðinga á íslandi, j heift, ofsa og algem ábyrgðarleysi. En fólkið : hafnar slíkum vinnubrögðum. FYLKINGIN RIÐLAST j APLAKÓNGUR í stórri verstöð, sem er yfirlýst- | ur kommúnisti, stendur með lausn landhelgisdeil- j unnar. Framsóknarmenn upp undir forustulið ; flokksins í Reykjavík, í sveitum og kaupstöðum, I 'standa með lausninni/. Þannig hafa fylkingar i stjórnarandstæðinga riðlazt í málinu, og fjöldi ifiokksmanna þeirra neitar að taka þátt í andstöðu við málið. Það leynir sér ekki. Yfirgnæfandi meirihluti | þjóðárinnar telur, að ríkisstjórnJn hafi gert rétt j og gætt hagsmuna þjóðarinnar vel. þjóðarlíkamanum grefur um sig ÉG MINNTIST á þaff um dag- inn af öðru tilefni, aff yfirmenn á bátaflotanum hefðu í upphafi deilu sinnar við reiðara, borið fram kröfu um það, að þeim yrðu greiddar fjögur hundruð krónur fyrir hvern landlegudag. Ég benti á þetta til þess að vekja athygli á því hve langt við vær- um komnir frá upphafj okkar og í þveröfuga átt en rétt vaeri, og af slíkum mór.al gæti þjóðar- heildinni stafað stórhætta. — Mér fannst að ég sæi í þessari kröfu váboða um það, að sú hugsun ykist með þjóðinni, að fá sem allra mest fyrir ekki neitt. AÐ VÍSU var þetta ekki fyrsti váboðinn. Hann hefur áður gert vart við sig og vísir hans ligg- ur í takmarkalausum uppbótum, styrkjum til allra skapaðra hluta, vinnusvikum, jafnvel lög- giltum vinnusvikum — og alls- konar svindli og basli, sem þjóð in hefur verið tröllriðin af jiúna um tveggja ára skeið, að minnsta kosti. — Ég býst við að einhverjir muni segja, að upp- bætur hafi verið lífsnauðsynleg- ar á vissum tíma — og þá af því að misræmi var á athöfnum þjóð arinnar og lítil stjórn á fjár- Tnálum hennar. Það má vera, en það er að minnsta kosti hörmu- legt, ef þjóðarheildin fær þá skoðun, að uþpbætur séu til frambúðar. ÉG SÉ, að haldið er áfram á sömu braut og yfirmenn báta- flotans reyndu að knýja fram. Það virðist vera orðin re#a að borga fyrir ekkj neitt, að við- urkenna, sem verðmæti það sem ekki er verðmæti — og það er sama sem að kasta verðmæti á glæ. Mundi það vera talið heil- brigt uppeldismeðal að gefa u;ng ling gæði án þess að hann hefði á nokkurn hátt unnið til þeirra eða lagt nokkuð á sig til þess að afla þeirra? Það hefur að minnsta kosti ekki verið talin góð latína, var ekki og er ekki. NÚ HAFA tekizt samningar við verkafólk í Vestmannaeyj- um og langri og hörmulegri deilu er lokið. Ég fagna því að verkafólkið ber heldur meira úr býtum en það áður gerði og er það út af fyrir sig sjálfsagt og drógst of lengi að mæta kröfum þess. En hvernig er bætt um fyrir verkafólkinu? Það er gert með því að borga því kaup fyrir vinnu, sem það lætur ekki í té. Það fær borgað — jafnvel tvö- falt kaup, fyrir stundir, sem það vinnur ekki. ÉG ÁFELLIST EKKI verka- fólkið fyrir það að taka við þess ari kjarabót. En það er sama. Eðli hennar og innihald er fyrir neðan allar hellur. Þetta er mein semd, sem hlýtur að grafa um sig í þjóðarlíkamanum — og á eftir að þjá hann í marga ára- tugi. Hvers vegna var ekki þvi, sem svarar til greiðslunnar fyr ir tímann, sem ekki er unnið, bætt ofan á kaup þeirra tíma, sem verkafólkið er að starfi. Vitanlega eru krónurnar, sem verkafólkið fær nú fyrir ekkert starf því jafn mikils virði og þó að þeim hefði verið bætt of- an á dagkaupið. Aðferðin er bara allt önnur og ég vona að lesendur mínir skilji eðlismun- inn — og sjái hættuna. ÞETTA GREFUR UM SIG. Meinsemdin á ekki upptök sín hjá yfirmönnum á bátaflotan- um eða í sambandi við launa- deilurnar í Vestmannaeyjum. Á það hef ég minnst. Hún grefur um sig í atvinnurekstrinum í Reykjavík. Verkamannaskýlð er stunda setur þar, neita vinnu nema á alveg ákveðnum timum. Þeir grípa handtak í eina klst. — og gera kröfu um greiðslu fyrir hálfan dag. Ég er ekki a£5 áfellast verkamennina. Ég er aS vekja athygli á því, að við er- um að eyðileggja starfsmóral þj óðarheildarinnar. Einstakling ar skifta hér ekki máli, heldur. ekki stéttir. Hér skiftir öllu máli að við erum að rækta nýja teg- und krabbameins í líkama okk- ar, sem hlýtur að ríða okkur aS fullu fyrr eða síðar. FORMAÐUR Á BÁT, sem heimtar greiðslur fyrir landlegu dag, verkamaður, sem heimtar borgun fyrir tíma, sem hann ekki vinnur, prestlingur, sem hrifsar laun sín án þess að láta sjá sig í prestakallinu, opinber- ir starfsmenn, sem mæta ekki til starfs síns. — Allir þeir, sem taka laun fyrir ekki neitt, eru að rækta þennan geigvænlega sjúkdóm í þjóðarlíkamanum. Þetta er mergurinn málsins. Ef við göngum ekki undir upp- skurð sjálfviljuglega og vitandi vits um hættuna, sem stafar af þessum sjúkdómi, þá hlýtur hann að leggja okkur í gröfina sem þjcð áður en langur tími líður. ÁSTÆÐAN er einfalkálega sú, að við lifum aðeins á því, sem náttúran veitir okkur fyrir strit okkar og starf. Á öðru getum við ekki, og munum ekki, lifa. Ilannes á horninu. Gerum við bilaða Krana og klósett-kassa Valnsveifa Reykjavíkur Símar 13134 og 35122 2 L marz 1961 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.