Alþýðublaðið - 07.03.1961, Page 3
London, 6. marz.
(NTB-Reuter).
FRAKKLAND, Ítalía og Belg
ía munu ekki hækka gengi gjald
miðla sinna þótt Þýzkaiand og
Holland hafi gert það. Var lýst
yfir því í dag. Tveir aðrir ná-
grannar Þjóðverja, Sviss og
Danmörk, hafa neitað orðrómi
um að þcssi lönd hyggist fylgja
fordæmi Þjóðverja og Hollend-
inga. Danski viðskiptamálaráð-
herrann, Kjeld Philip, liefur
skýrt Reuter fréttastofunni frá
því, að Danir kynnu að hækka
gengi krónunnar ef Bretar
stíga skref með sinn gjaldmiðil,
Hollenzki fjármálaráðherr-
ann, prófessor Jelle Zijlestra,
skýrði þinginu frá því á mánu-
daginn, að gyllinið hefur hækk
að um 4,75 prósent. Góð heim-
ild í Haag hefur skýrt frá
því að vegna hinna miklu verzl
unar Hollendinga og Þjóðverja
hefði hækkað þýzkt mark haft
óþolandi áhrif á hollenzka gyll
inið og efnahag Hollands ef gyll
inið hefði ekki verið hækkað
jafnframt markinu.
í Hollandi var álitið í kvöld
að stjórn Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins í Washington myndi
koma saman í kvöld til að ræða
hækkunina.
Talið er víst, að brezkir bíl-
ar muni seljast stórum betur
í Danmörku hér eftir vegna
hækkaðs verðs á þýzkum bíl-
um. Er talið að innflutningur
Þjóðverja muni yfirleitt
minnka svo verulega að mögu-
leikar annarra þjóða aukizt
mjög.
Talsmaður belgíska þjóðbank
ans skýrði frá því í dag, að Belg
Ungfrú Danmörk
viðriðin barnsrán
ar gætu ekki hækkað gengi belg
íska frankans nú sem stæði, -
jafnvel þótt það kynni að vera
talið nausynlegt, þar sem þing
ið hefði verið leyst upp vegna
komandi kosninga og gæti því
ekki samþykkt lög um nýtt
gengi.
í Sviss lýsti opinber talsmað-
ur yfir því, að enginn fótur
væri fyrir fréttum um gengis-
breytingu svissneska frankans.
í Frakklandi er því spáð, að
hækkun þýzka marksins og hol
lenzka gyllinsins verði til að
auka mjög franskan útflutning
og gera færar tollalækkanir,
sem stjórn landsins hefur nú í
bígerð. Hið hækkaða þýzka
mark var í dag selt á lægra
gengi í frönskum bönkum en
hið opinbera gengi þess er.
í Austurríki spáði fjármála-
ráðherrann, dr. Eduard Heiling
Framh. á 14. síðu.
París, 6, marz.
(NTB-AFP).
ILI,SEí BODIN, Ijósliærð
fegurðargyðja sem var kjör-
in Ungfrú Danmörk 1960 og
var síðan einn þátttakandinn
í „Miss World“-keppninni
frönsku lögreglunni.
Fegurðardrottningin, sem
liefur verið sett í varðhald af
er þekkt sem sýningardama
og fyrirsæta, var liandtekin
ásamt fimm öðrum mönnum
vegna hins fræga og umtal-
aða barnsráns á sonarsyni
Pengeot bílakóngs í vor. —
Nefnist hann Eric og var
rænt 12. apríl en var látinn
laus 56 klukkustundum eftir
að greitt hafði verið lausn-
argjald fyrir hann að upp-
hæð tæpar 6 milljónir ísl.
kr. Ungfrú Bodin var hand-
tekin í Megeve, vetrar-
skemmtistað í frönsku Ölpun
um, ásamt félaga sínum ein
um„ Tvö önnur skötuhjú
voru einnig handtekin vegna
barnsráns þessa. Áttu þar m.
a. í hlut læknisnemi einn
og kvikmyndadís ein sem
jafnframt hefur verið nekt-
arleikkona.
ÖIl voru þau handtekin eft
ir langa skemmtidvöl í Meg-
eve.
Hafa þau skemmt sér þar
á ýmsum skennntistöðum,
eytt óhemju fé og vakið
mikla athygli fyrir. Lög-
reglan komst á spor þessa
fólks vegna bréfa sem barns
ræningjarnir sendu föður
barnsins forðum, en ætlað
er að einn karlmaðurinn í
umgctnum hópi hafi átt rit-
vél þá er bréfin voru rituð
Elisabeth Taylor
hættulega veik
LONDON, 6. marz
(NTB-REUTER)
KVIKMYNDASTJARNAN
Elizabeth Taylor, sem lrggur
mjög hættulega sjúk á sjúkra
húsi i London, fékk í kvöld
blóðgjöf. Filmdísin, sem er 29
ára gömul, fékk innflúenzu fyr
ir um það bil viku síðan,
skömmu eftir að hún kom trl
London til að halda áfram leik
sínum í myndinni Kleopatra. Á
laugardaginn var liún lögð inn
á sjúkrahús og þá með lungna
bólgu.
Síðari hluta dags í dag var
tilkynnt að líðan hennar væri
nokkru skárri og var því bætt
við, að vonast væri eftir því
að batinn myndi aukast jafnt
og þétt. Hún fær nú fljótandi
fæðu sem sprautað er inn í
æð í öklanum. Hitinn minnkar
nú og henni er hjálpað með
öndun af ekktrónískum lunga.
Síöustu fréttir
SEINT í kvöld var það til
kynnt að ástandið væri mjög
alvarlegt og mættr telja að
leikkonan lægi fyrir dauðan
um. Talsmaður sjúkrahúsins
livað allt verða gert er í mann
legu valdi stendur til að
bjarga lífi hennar. Læknar
hennar munu halda fund
með sér síðar í kvöld.
Sparkað úr
samveldinu?
London, 6. marz.
(NTB-Reuter).
FORSÆTISRÁÐHERRAR
brezku samveldislandanna áttu
í dag einkaviðræður til undir-
búnings liinni sögulegu ráð-
stefnu þeirra er á að taka af-
stöðu til þess hvort S.Afríka
verður É^'ram samveldisland
eftir að það er orðið lýðveldi
31. maí næstkomandi. Ráðstefn
an liefst á miðvikudag.
Harold Macmillan forsætis-
ráðherra hefur undanfarna
daga átt viðræður við starfsfé-
laga sína frá Malaya, Pakistan,
Nýja-Sjálandi, Ceylon, Nigeríu
og Ástralíu um ráðstefnuna og
málefni hennar. Hefur þá fyrst
og fremst verið rætt um af-
stöðuna til S.-Afríku.
Dr. Hendrik Verwoerd, for-
sætisráðherra S.-Afríku er kom
inn til London og þefur notað
fimm undanfarna daga til að
ræða við sendinefndir hinna
samveldislandanna uoa afstöð-
una til lands hans. Vill hann
að landið verði kyrrt innan sam
veldisins.
Fulltrúar Malaya, Pakistans
Ceylon og Nigeríu létu ljós sitt
skína í London um helgina og
réðist heiftarlega á kynþátta-
stefnu stjórnar S.-Afríku, en.
enginn þeirra vildi þó kveða
upp úr með andstöðu geg á-
framhaldandi veru landsins inn
an samveldisins.
FUJ í Haínar-
firði
'fc FUJ í Hafnarfirði held
ur félagsfund í kvöld kl.
8,30 í Alþýðuhúsinu við
Strandgötu. Á dagskrá
fundarins er inntaka
nýrra félaga, stofnun kjör-
dæmaárðs ungra jafnaðar
manna í Reykjaneskjör-
dæmi, félagsstarfið og önn
ur mál. Áríðandi er að fé-
lagar mæti vel og stund-
víslega.
WWMWWMMWWMWUV
Afríkuríkin
bjarga Kongó
NEW YORK, 6. marz
(NTB—REUTER).
FORSETI Ghana, Kwame
Nkrumah, átti í dag einkavið
ræður við Dag Hammarskjöld
forstjóra SÞ, um ýmis alvar-
leg alþjóðleg vandamál, fyrst
og fremst um Kongó-máli,.
Fyrr um daginn hafði Nkru
mah rætt við Adlar Stevenson
fulltrúa USA hjá SÞ.
Að loknu samtalinu við
Stevenson sagði Nkrumah að
eina leiðin til að bjarga Kongó
væri sú, að afrízku löndin
tækju höndum saman,
studd af SÞ. Er Allsherjarþing
ið hefst á morgun mun Nkru
mah flytja ræðu þar og er henn
ar beðið með mikilli eftirvænt
ingu vegna þeirrar áhrifa-
miklu aðstöðu sem hann hefur
í stjórnmálum álfu sinnar.
Hammarskjöld hafði boð
inní tjil jheiðuys Nlkrumah í
dag; meðal boðsgesta var
Gromyko utanríkisráðherra
Rússa, en hann þekktizt ekki
boðið.
Þeir Gromyko og Stevenson
ræddust við í dag um dagskrár
mál Allsherjarþingsins. Tals-
maður sendinefndar USA kvað
ekkert samkomulag hafa orð-
ið um þá tillöguð, að strrka út
af dagskránni mál er annar
hvor aðrli vill sleppa, t. d.
Ungverjalandsmálinu og Tibet
málinu.
Gizenga
tifi topp-
fundar
TANANARIVE, 6. marz.
) (NTB—AFP)t -
TOPPFUNDURINN hér um
framtíð Kongó samþykkti í
dag að fresta fundum sínurn
vegna tilmæla frá Antoine
Gicenga, forsætisráðherra. Er
hann nú á leið til Madagaskar
og mun verða komrnn þangað á
morgun. Hinrr leiðtogar Kongó
manna, samherjarnir Ileo for
sætisráðherra, Tshombe for-
sætisráðherra og Kasavubu for
seti ræddust við í dag.
Auglýsið í Alþýðublaðinu
Auglýsingasíminn 14906
Alþýðublaðið — 7. marz 1961 3