Alþýðublaðið - 07.03.1961, Side 11

Alþýðublaðið - 07.03.1961, Side 11
Einkaskeyti til AlþýSublaðsins. Stuttgart, sunnudag. Islenzka landsliSið í hand- knattleik vann mesta srgur, sem íslenzkur íþróttaflokkur hefur unnið fyrr og síðar, er það gerði jafntefli við Tékkó- slóvakíu í dag 15 mörk gegn 15. Staðan í hálfleik var 10—7 Tékkum f vil. Eins og kunnugt er, vann Tékkóslóvakía silfur- verðlaun í síðustu HM-keppnr og er af mörgum álitið sigur- vænlegast í þessari keppni. — Aðstæður eru mjög góðar hér í Stuttgart, ágætt trégólf í höllinni, sent keppt var í og á- horfendur um 6 þús., uppselt. Mikill baráttuhugur var í ís- lenzka lrðinu fyrir leikinn, en liðsmenn gerðu sér þó fulla grein fyrir því, að litlir mögu- leikar voru til sigurs. GANGUR LEIKSINS Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir ísland, eftir 11 mín. var staðan 4—1, Tékkum í vil, en um miðjan hálfleik fara íslend- ingar að vinna á og á 16 mín hafa Tékkar tvö yfir, 5—3. — Tékkar leika glæsilega næstu mínútur og á 21. mín er staðan 7—3. íslendingar gefa sig ekki og gera 4 mörk gegn 1 næstu| fimm mínúturnar — 8:7. Síð-1 ustu mínúturnar slaka íslend-1 ingarnir á og Tékkar skora tví- vegis — 10—7 í hálfleik. Hjalti varði stórglæsilega að vanda. íslenzka liðið V3f frek- ar óheppið, átti t. d. þrjú stang- arskot. Sterkasta hlið Tékk- anna er hröð upphlaup og frá- bært línuspil, en skotmenn þeirra eru frekar slappir. FRÁBÆR SÍÐARI HÁLFLEIKUR ÍSLENDING A Bæði liðin virtust frekar taugaóstyrk í upphafi síðari hálfleiks, en Íslendingar eru fyrri til að átta sig og Karl Jóh. skorar áttunda mark ís- lands á 3. mín. íslendingar leika nú af mikilli prýði, hröð upphlaup og góð skot og á 9. mín. er jafnt — 11—11! Tékkar sækja sig og komast tvö mörk yfir 13:11. Pétur brýzt í gegn um tékknesku vörnina skömmu síðar — 13:12, en Tékkar svara með hörkusókn, þrátt fyrir frá bæra íslenzka vörn og fjórum mínútum fyrir leikslok var staðan 15:12 fyrir Tékkósló- 1 vakíu. ^ íslenzka liðið tekur nú stór- glæsilegan endasprett, sem Karl Jóhannsson hefur verið ein,^ bezti maður íslendinga í HM-keppninni og scttl flest mörk íslendinga gegn Tékkum. einkenndist af hörku, hraða og keppnisvilja. Gunnlaugur skorar úr víti, Birgir bætir öðru við á glæsilegan hátt og hálfri mínútu fyrir leikslok jafnar Gunnlaugur við gífurleg fagnaðarlæti, svo að þakið ætl aði af hinni glæsilegu íþrótta- höll. Það leyndi sér ekki, að á- horfendur stóðu með íslending- um. Mörk íslendinga skoruðu: Karl Jóhansson 6, Pétur 3, Birgir, Gunnlaugur og Ragnar 2 hver. Dómari var Jung, V- Þýzkalandi og dæmdi illa. — Hann var sérvitur mjög og eyði lagði fyrri hálfleikinn með vafa sömum dómum. BEZTI LEIKUR ÍSLENZKS LANDSLIÐS íslenzkt landslið í handknatt- leik hefur aldrei sýnt betri eða eins góðan leik. Á köflum var samspil, skot og vörn á heims- mælikvarða. Þeir nýttu breidd vallarins til hins ítrasta, send- ingar snöggar og ákveðnar og skutu ekki í tvísýnu. Þessi leik ur var mun betri en leikurinn gegn Sviss á fimmtudaginn. — Allir leikmenn sýndu góðan leik. Hjalti var frábær í mark- inu að vanda, en einnig sýndu Karl Jóhannsson, Gunnlaugur og Ragnar prýðisgóðan leik. — Karl hefur vakið mikla athygli í keppninni, er að verða einn okkar bezti handknattleiks- maður. Liðinu fer fram í hverj um leik og sjálfstraustið vex. Tékkar sýndu mjög góðan leik í fyrri hálfleik, en sterk- asta hlið þeirra er hröð upp- hlaup og línuspil eins og fyrr segir. í síðari hálfleik virtust þessir þrautreyndu leikmenn samt ótrúlega taugaóstyrkir og hin harða íslenzka vörn setti þá alveg út af laginu. Sagt eftir leikinn Stuttgart, sunnudag. Það var mikil þröng af blaða mönnum í búningsklefum leik manna að leik loknum, en mér tókst samt að ná tali af nokkr- um leikmönnum og forystu- mönnum og fer álit þeirra hér á eftir. Ásbjörn Srgurjónsson: Urslit leiksins komu mér mjög á ó- vart, en hann var jafn og úrslit réttlát. Dómarinn var slappur og óréttlátur. íslenzka liðið átti algjörlega síðari hálfleik. í heild mjög góður leikur. Hallsteinn Hinriksson. Dóm- arinn eyðilagði fyrri hálfleik með mjög vafasömum auka- köstum. Síðari hálfleikur var leikinn af miklu öryggi hjá ís- lenzka liðinu og breytingar, sem gerðar voru á íslenzku vörninni heppnuðust. Segja verður, að við höfum alveg stað ið þeim á sporði í listum leiks- ins. Sestak, þjálfari Tékka: Við lékum ekki taktiskt í lok leiks ins, þegar við höfðum fjögur mörk yfir og 4. mín. til leiks- loka, þá hafði liðið átt að tefja og leggjast í vörn. Beztir ís- lenzku leikmannanna voru Karl Jóh. og Hjalti markvörð- ur. Annars eru íslendingar geysilegir bardagamenn og harðir af sér. Provaznik, Gottwaldow: •— Tékkar áttu lélegan leik, en ís- lendingar eru mun betri en í haust. Það er geysilega áríð- andi fyrir ykkur að fá stærra hús á íslandi, efniviður í gott handknattleiksfólk er nægur á Beztu menn ykkar £ kvöld voru Hjalti, Karl Jóh. og Gunnlaug- ur. Ruza, Gottwaldov: Þið lékuð- glæsilega, en okkar lið átti slæman dag. íslenzka landsliðið Framhald á 13. síðu. Þeir tolleruðu Hallstein íslendingarnir . voru ofsakátir að loknum lerk gegn Tékkum í dag. Strax þegar dómarinn flautaði af, hlupu leikmennirnir § til hins vinsæla þjálfara síns, Hallsterns Hinriks- sonar, fóru með hann út á völlinn og tolleruðu hann við mikil fagnaðar- læti þeirra sex þúsunda, sem horfðu á leikinn. Valgeir. di, það sá Heimsmeistar- Gunnlaugur Hjálmarsson er vítakastssérfræðingur íslands og skoraði 15. mark Islendinga gegn Tékkum. arnir í dag -fc í D A G mæta íslending- ar Svíum, heimsmeisturum í. handknattleik. Leikurinn fer fram í Essen og hefst kl. 17,30 eftir ísl. tíma. Svíar ei'u ann- álaðir fyrir hörku í handknatt- Ieik svo að búazt má við hörð- um leik. Ekki er hægt að búast við sigri íslands í dag, en eng- inn vafi er á því að liðið mun standa sig vel í Ieiknum eins og það hefur gert á HM íil þessa. Tékkar mæta Frökkum strax að loknum leik Svía og Islands. í Krefeld leika Danir og Norð- menn og Þýzkaland og Rúmen- ía. Alþýðublaðið — 7. marz 1961

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.