Alþýðublaðið - 09.03.1961, Síða 2
[ Ritstjórar: Gísli J. Astþórsson (áb.) og Benedikt Lrróndal. — Fulltrúar rit-
• Btjórnar: Sigvaldi Hjálmarsson og Indriði G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri:
Ðjörgvin GuSmund.' son. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími
14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins Hverfis-
götu 8—10. — Askriftargjald: kr. 45,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint.
Ctgefandi: Alþýðuflok.. urinn. — Framkvæmdastjóri: Sverrir Kjartansson.
Skammsýni andstöðunnar
; FYRRI umræðu um lausn landhelgisdeilunnar er
lokið, og hin síðari hefur staðið í jþrjá sólar-
hringa. Stjórnarandstæðingar hafa talað yfir 30
klukkustundir og reynt að rífa niður lausnina.
Þetta hefur ekki teki'zt. Þeir hafa endurtekið
sörnu andmælin maður eftir mann, ekkert nýtt
fært fram frá byrjun og ekki tekizt að hrekja mál
‘ stjórnarinnar.
! Andstöðunni hefur ekki tekizt að hrekja þá
staðreynd, að Bretar viðurkenna 12 mílurnar.
Vitnisburðurinn Meðst upp á móti þeim. Samn-
1 ingamenn íslendinga, brezkir ráðherrar, brezk
! blöð, hlutlaus blöð annarra landa, lagadeild Há-
skóla íslands og flefri aðilar staðfesta málstað
f stjórnarinnar. Hann er réttur.
j í deilunni um grunnlínur fer stjórnarandstað-
j an einnig halloka. Það er óumdeilanlegt, að Lúð-
! vík færði þær ekki út, andstaðan hefur barizt
! 'fyrir frumvarpi um að lögfesta gömlu grunnlín-
1 urnar og hefur aldrei fengizt til að prenta eða
lesa texta alþjóðasamninga, sem við erum aðifar
að, til að sannprófa, hver réttur okkar er. Stjórn-
in hefur rétt fyrilr sér: Viðurkenning Breta á
hinum nýju grunnlínum er hreinn vinningur fyr-
ir íslendinga, sem ekki fengist með alþjóðadómi.
Þess vegna er samið um þetta atriði.
Deilan urn alþjóðadómstólinn hefur verið ís-
lendingum til skammar, af því að sjórnarand-
stæðingar, menn eins og Lúðvík Jósefsson, hafa
til að þjóna augnahlikshagsmunum sínum full-
yrt, að allar aðgerðir okkar hingað til hafi verið
þverbrot á þjóðarétti! Þetta er ekki aðeins al-
röng, heldur þjóðhættuleg afstaða og sýnir furðu-
lega skammsýni þessara manna.
! Það stendur óhaggað, að við höfum engum
rétti fórnað til frekari einhliða aðgerða. Við höf-
1 ,um aðeins lofað að hlíta úrskurði alþjóðadóms,
ef deilur verða um málið, og það er okkur óhætt
■' svo framarlega sem við höldum okkur innan
marka laga og réttar framvegis eins og hingað
! til.
Það er ólga innan Framsóknar og mörg dæmi
1 um kommúnista, sem viðurkenna, að samnlngur-
inn sé mjög hagkvæmur og við eigum að ganga
inn á hann. Ofstæki og stóryrði andstöðunnar
hafa ekki getað hrakið þessar staðreyndir. Mikill
1 mfeirihluti þjóðarinnar stendur með ríkisstjórn-
innf í þessu máli, enda gerðir hennar þjóðinni
■hagkvæmar.
! Auglpngasími blaðsins er 14906
jKabarett á
laugardag
FYRIR tveimur árum var
stofnaður minningarsjóður um
Pál heitinn Arnljótsson fram-
reiðslumann í Nausti og skyldi
sjóðnum varið til kaupa á gervi
nýra. Sjóður þessi nemur nú
orðið 70 þúsund krcnum og j
vantar því ekki nema herzlu-
muninn til þess að hægt sé að
kaupa þetta tæki, sem mun
kosta 80—100 þúsund krónur.
Má því segja að ekki standi á
neinu með að gervinýra fáist
hingað til lands. Landsspítalinn
mun þó ekki enn geta veitt tæk
inu móttöku sakir húsnæðis-
leysis.
Þeir, sem að minningarsjóði
Páls Arnljótssonar standa hafa
ákveðið að efna til kabarett-
skemmtunar til ágóða fyrir sjóð
inn og verður hún haldin í
Austurbæjarbíói, laugardaginn
11. marz og hefst kl. 3,00.
Allir þeir listamenn, sem þar
koma fram gefa vinnu sína til
þessa þarfa málefnis. Kabarett
þessi verður hinn fjölbreyttasti
sem hér hefur verið haldinn
lengi og munu m. a. þessir iista-
menn koma fram:
Ævar Kvaran mun stjórna
kabarettinum, Baldur Georgs
flytur gamanþá'tt, Bl’yndís
Schram sýnir listdans, Kristín
Einarsdóttir sýnir akróbatik,
Emelía Jónasdóttir og Áróra
Halldórsdóttir flytja leikþátt,
Gestur Þorgrímsson gamanþátt.
Þá mun hljómsveit Björns R.
Einarssonar, Carl Billich og
Karls Lilliendahs og Kristjáns
Magnússonar skemmta. Með
hljómsveitunum munu syngja
m. a.: Ragnar Bjarnason, Val-
erie Shane, Haukur Morthens,
Sigrún Ragnarsdóttir og Elly
Vilhjálms.
NYRZTA land Bandaríkj-
anna er eins og allir vita
Alaska, landið handan við
Beringssund, sem Rússar
fundu fyrstir hvítra
manna á 18. öld en seldu
svo Bandaríkjamönnuni
seinna fyrir rúmar 7
milljónir dala. Salan olli
miklum deilum á Banda-
ríkjaþingi en var samt
samþykkt að lokum. Ekki
var liðinn nema tiltölu-
lega stuttur tími frá því
kaupin höfðu verið gerð
þar til Bandaríkin höfðu
stórgrætt á landinu og
fengið upphæð þá tugfalda
sem þeir keyptu landið fyr
ir af félitlum keisara. Nú
þykir Alaska auðugt land.
Þar eru stundaðar fiski-
veiðar, mikið skógarhögg
og nokkuð af málmum er í
jörðu. Þar við bætist að
ferðamcnn gera sér nú
orðið tíðförult til þessa
norðlæga skóga- og fjalla-
lands, sem er rómað fyrir
fegurð fjalla sinna og víð-
áttu og dásamleg sumur
sem eru hjört eins og hér,
enda er landið á svipaðri
breiddargráðu og landið
okkar.
Eyjahátar
afla lítib
Vestmannaeyjum 7. marz.
LEIÐINDAVEÐUR hefur
verið liér undanfarið. Bátarnir
hafa að vísu verið á sjó, en feng
ið heldur lítinn afla.
Hér er enn skortur á fólki og
nokkrir bátar hafa ekki enn
komizt út vegna skorts á sjó-
mönnum. Fjöldi fólks bíður eft-
ir fari hingað. Ekki hefur verið
flogið í nokkra daga og Herj-
ólfur tekur takmarkað. P.Þ.
Þá mun Árni Jónsson óperu-
söngvari syngja ásamt eftirfar
andi söngvurum, sem allir eru
Reykvíkingum góðkunnir: Sig-
urveig Hjaltested, Snæbjörg
Snæbjarnar, Guðmundur Guð-
jónsson, Hjálmar Kjartansson
og Gunnar Kristinsson undir-
leik annast Fritz Weisshappel.
Sala aðgöngumiða verður í
Austurbæjarbíói á fimmtudag,
föstudag og laugardag á venju-
legum miðasölutíma. Þá má auk
bess panta miða í Nausti, sími
17758.
Forráðamenn sjóðsins vilja
hvetja alla Reykvíkinga til þess
að Ijá góðu málefni lið með því
að sækja þessa fjölbreyttu
skemmtun.
,SVEITAKEPPNI Bridge-
klúbbs Akraness lauk síðast
liðinn sunnudag. Sveit Óla
Arnar Ólafssonav sigraði,
vann alla s»na leiki, og hlaut
14 stig.
i KLÚBRURINN I
5 B
I *
s Opið í hádeginu. — *
■
a Kalt borð — einnig úr- j
Q val fjölda sérrétta.
í KLÚBBURINN f
■ 8
a Lækjarteig 2 - Sími 35355!
H !
ftMMMHBHKBHHHnaHMHU
2 9. marz 1961 — Alþýðublaðið