Alþýðublaðið - 09.04.1961, Page 2

Alþýðublaðið - 09.04.1961, Page 2
•nnqorai viisii J Astporsaoi. . ao ^ ttenecUKi v^ronaaj t'uUtruai rlt- itjómar: SigvaldJ Hjálmarsson og IndriðJ G Þorsteinsson - Fréttastlóri •Jörgvin Guðmund n - Símar 14 900 - 14 902 - 14 903 Auglysingasími 4 906 - Aðsetur Alþýðuhúsið Prentsmiðja Alþýðublaðsins Hverfis- |0tu 8—10 — Askriftargjald kT 45.00 ó mánuði í lausasölu kr 3.00 eint ^tffefand AlH6*Þi*lok nrinr 5,romlrvjpmnast1r>H WrH* KÍArtan&flnm Burt með braggana! HVERJUM hefði dottið í hug ‘fyrir 15 árum, þegar hermannabraggar 1 Reykjavík voru teknir sem bnáðabirgðahúsnæði fyrir húsnæðislaust fólk, að ériið 1961 mundu um 1000 manns enn búa í þeim vistarverum? Hverjum hefði komið til hug- ar, að íslenzka þjóðin mundi sömu árin sem hún hefur orðið bjargálna að ekki sé meira sagt, nota tvö hundruð 20 ára bragga, sem byggðir voru til að endast hraustum hermönnum í 3—4 ár, til íbúðar fyrir konur og börn? Þegar litið er á þetta mál í heild, verður það að svörtum bletti á þjóðimú og þá sérstaklega á höfuðborginni, Reykjavík. Þúsundir íbúða hafa verið reistar á þessu tímabili, heil hverfi af myndarlegum húsum, jafnvel lúxusv'illum, hafa risið upp. En braggáhverfin standa enn víðs veg- ar um bæinn, jafnvel nærri hjarta hans. Það hefði verið minnsta vJðunandi frammi- staða bæjaryfirValda, að braggamir hefðu verið horfnir á 10 árum. En nú eru þessir skálar margir hverjir orðnir 20 ára, og til eru íslenzk börn á fermingaraldri, sem aldrei hafa búið í ferstrendu herbergi, heldur ávallt undir braggasúð. Vissulega eru margar hlíðar á þessu máli. Sumir íbúar bragganna hafa lagt í mikinn kostn- að við innréttingu þeirra og gert þá eftir aðstæð- um sómasamlega. Aðfir eiga erfitt með að eign ast íbúðir eða fá þær leigðar af ýmsum ástæð- um, og þá ekki sízt þeirri, að bærinn hefur ekki byggt nægilegt leiguhúsnseði, til að .mæta slíkri þörf. Ekkert af þessu afsakar þö málið sem þjóð- félagslegt vandamál í heild. Slíka erfiðleika ber að leysa, hvað sem það kostar. Reykjavík er sérkennilegur bær útlits Til viðbótar við hina félagslegu hlið braggamálsins, sem snýr að íbúum bragganna sjálfum, verður að taka tillit til þess, að slík hverfi verða að hverfa úr bæjarmyndinni. Hér er nóg af skúra rusli, þótt ekki séu það mannabústaðir áratugum saman. Nú verður að gera ráðstafanilr, sem duga til þess að útrýma bröggunum með öllu á 2—3 árum, og útvega öllu því fóUci, sem þar býr, sómasamlega bústaði, hvemig sem á stendur og hvað sem til þess þarf. Minna átak geta Reyk víkingar ekki sætt sig við. Minningarorð: Haraldur Vignir Andrésson MÁNUDAGINN 10. apr- íl verður gerð útför Haraldar S. Andréssonar, sem fórst af slysförum á m.b. Ingólfi, frá Sandgerði. Haraldur var að- eins 21 árs gamail, — svo ævidagar hans urðu ekki margir. Þrátt fyiir stutta ævi var hann búinn að vinna oft lang an starfsdag og sýna oss vel, hvað í honum bjó. Hans eigin leikar voru áreiðanleiki og dugnaður. Hann sannaði oss, — að æskan í dag getur verið starfsöm og reglusöm, þegar réttnm augum er litið á lífið, otr tilgang þess. Hann skildi lífið rétt og fann skyldu sína og þá áhyrgS sem lífið krefst af hverjum einstaklingi og honum var snemma Ijóst, að lífið er starf og barátta og að ekki var sótt björgin til ann arra, — án hlutdeildar lians sjális. Haraldur heitinn ólst upp með stórum systkinahóp, — þau voru alls 15. En heima aðeins tvær hendur til að sækja björgina. En það voru dugandi hendur, — bó ekki harka, — heldur mildi, og heima hlýjar móðurhendur, sem síðar varð Haraldi gott veganesti. Auðvitað var oft þröngur fjárhaerurinn, eins og auga gefur leið. En bað eru oftast þessi góðu fátæku heim ili. se.m gefa bjóðinni hraust- ustu og beztu svnina. Þess vegna er meiri eftirsjá af slík um mönnum, — þeim, sem hafa viljia til að starfa og komast áfram í lífinu og trevsta ekki-um of á aðra. — Haraldur var langt fyrir inn írá Drangsnesi an fermingaraldur þsgar hann fór að stunda sjó með föður sínum, þá frá Drangs- nesi, — eins og aUir hans bræður. Þess vegna fór hann lífsrevndan ungur maður úr foreldrahúsum, — en nú er almennt orðið. Haraldur fór um 16 ára aldur fra Drangs- nesi og bá til Sandgerði og stundaði sióróðrq baðan og ég held oftast þaðan og oftast hjá sömu mönnum, bví veena dugnaðar síns, áreiðan leika og reglusemi, átti hann alltaf afturkværnt þangað, sem hann einu sinni var bú- inn >að vera. eins og þeir vita sem til þekkja. Þegar aldur og efnahagur leyfði, fór hann í Stýrimanna skólann, og átti aðeins eftir að Ijúka prófi þaðan, eða svo til, — nú í vor. í páskafríinu fór hann strax til róðra. Hann ætlaði að nota fríið til að vinna sér inn peninga. — sem flestir ota þó til hvíldar, lesturs eða skemmtuana. Hann taldi hina þörfina meiri. Þar sýndi Haraldur dugnað sinn og sitt raunsæi. Hann fór í síðasta róður sinn á skírdag með m. b. Ing- | ólfi frá Sandgerði, — en þá varð slysið, — hann dróst úl i með netatrossu oe náðist ör- endur upp aftur. Þannig end- aði hann líf sitt, — í starfi og við það starf, sem hann hafði valið að ævistarfi, og sem og varð hans ævistarf. Slysin eru því miður tíð, — þrátt fyrir tækni og öryggis- útbúnað og stærri skip. En þau minna oss a, — að viS verðum að balda vöku okkar og halda áfram slvsavömum og áminningum okkar hver með öðrum og hver til annars til varfæmi og öryggisvama og hiálpar og þar verðum við öll að vinna saman eins og SVFÍ boðar. eða eins og hug- sjón þess boðar oss, — For- eldrar Haraldar heitins voru sæmdarhiónin Guðmundina Guðmundsdóttir og Andrés Magmrison. en þau eru bú- sett á Drangsnesi. Guðmundina og Andrés, —. við hjónin vottum vkkur okk <ar innilegustu hlufctekningu. Við vitum og skiljum ykk- ar stóru sorg og þau von- brigði, gem sonarmissirinu veldur ykkur og bömum ykk ar. Máttur vor mannanna er lítill begar- bér er komið sögu, — hér endar saga vor allra. En við tekur styrk hjálpandl hönd, sem okkar höndum er miklu máttugri og mildari, —. hönd Guðs. — sem gefur oss lífið og hann flytur oss til annars ocr miklu betra lífs1, — en eftir situr minningin ein. Hér situr eftir minningm um góðan dreng. Þeim, senu sárast syrgja látinn son og bróður. — ætti að vera nokk- ur huggun í bví, að öll þjóðira tekur innilega bátt í sorg ykk ar. Því að öll höfum við eitt- hvað misst. Guð hlessi ykkur og börn ykkar öll. Garðar Viborg. Hannes a h o r m n ( i i Vörubílastöð Akraness vantar stöðvarstjóra frá og með 1. maí n.k. Upplýsingar gefar Gunnar Ásgeirsson í síma 81 og 197. tV Arfurinn frá hernáms árunum. ýý Þegar íslendingar lærðu vinnusvilt. Og braskararnir færð- ust í aukana. '/ý Óhróður í páskaviku. JÓIÍ. GUÐMUNDSSON skrlf ar: „Ég er þcr mjög þaliklátur fyrir skrif þín um krabbamem í þjóðarlíkamanum. Þar hefir þú stungið á kýli, sem vex hraðfara meðal þjóðarinnar, og er farið að gegnsýra og spilla hugsunar hætti almennings. Kjör.orðið er að verða sem mest íaun fyrir sem minnsta vinmi, eða helzt enga vinnu. Þessi hugsunarhátt ur hefir verið aleinn og dekrað við hann síðustu áratugina og komst hann í fullkominn al gleyming á hernámsárunum, þegar það þótti sjálfsagt að fram kvæma aðelns sýndarvinnu hjá hernámsliðinu og taka fullt kaup fyrir. SÉG ÁLÍT af langri reynslu, að einn merkasti þáttur í upp eldi hvers bams sé að koma því í skilning um að enginn hlutur, engin gæði, fáist án fyririhafnar, að einhver hefur orðic að leggja fram orku, andlega eða líkam lega, til þess að við fáum notið slíkra gæða, og að ef við ekki leggjum fram okkar krafta til að greiða okkar hluta af þessum verðmætum, þá erum við ekkert annað en vesöl sníkjudýr á þjóð arheildinni eða aðstandendum okkar, sníkjudýr, sem eiga ekk| skilið virðingu góðra manra. NÚ STENDUR YFIR dyinbil vika (Bréfið er skrifað fyrir páska) og páskahelgin nálgast. Prestar landsins munu yfirleitt hvetja til þess að almennar skemmtanir falii ni.ður þessa viku, einkum síðari hluta henra ar. Þeir vilja gjarnan að söfa uðurnir leiði hugann að þeinx alvarlegu atburðum, sem vikan er helguð að nokkru leyti. Ekki er annað en gott að segja um þessa viðleitni kirkjunnar og starfsmanna hennar, þótt skipt ar séu skoðanr um hversu langt skuli gengið. EN NÚ HAFA þau ömurlegiii tíðindi gerzt á alþingi voru und anfarin kvöld. að þaðan hefir verið ausið óhróðri og aðdrótt unum yfir þlngmenn og stjórn málaflokka þjóðarinnar gegnum útvarpið og þeim brigzlað um heimsku, lítilmennsku, illgirnl og jafnval landváð, ef ekki meB berum orðum. þá með ásökura. um, er jafngilda því. Og þessum Franda. á 12. siðu. 2 9. april 1961 — Alþýóublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.