Alþýðublaðið - 09.04.1961, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 09.04.1961, Blaðsíða 3
STÖÐVÁST LANDANIR ÍSLENZKRA TOGARA? Viðtal við Þórarin Olgeirsson EG !hef lagt til við F élag íslenzkra botn vörpuskipaeigenda, að löndunum verði hætt í bill, sagði Þórarinn Olgeirsson, ræðismaður Islands í Grimsby, er Alþýðu'blaðið átti símtal við Ihann í gær. Sagði Þórarinn, að ástandið væri nú mjög uggvæn legt og búast mætti við samúðar'vinnustöðvun löndunarmanna þá og þegar. Þórarinn sagði, að togaraeig endur og sjómenn á togurunum hefðu haldið fund á föstudag. Vilja togaraeigendur, að Parísar samkomulagið verði haldið, en óttast að landanir íslenzkra tog ara verði stöðvaðar með samúð arverkfalli löndunarmanna. Hafa togaraeigendur óskað eftir að farið verði mjög varlega í landanir á næstunni. NOKKRIR A LEIÐ ÚT Nokkrir íslenzkir togarar eru nú á leið út til Englands með afla, Eru þeir væntanlegir til Hull og Grimsby á þriðjudag og fimmtudag. En Þórarinn sagði, að vel gæti farið svo, að snúa yrði þessum togurum til Þýzka lands eða aftur heim til íslands ef lön'dunarmenn neituðu að losa þá. NOKKRIR REVNDU AÐ iFARA ÚT Þórarinn sagði að nokkrir brezkir togarar hefðu reynt að brjóta verkfallið og fara út, en þó væri það algert og nær allur togaraflotinn í Grimsby og Hull stöðvaður. — Ástandið hefur versnað mikið síðustu daga sagði Þórarinn að lokum, og vel getur farið svo, að landanir ísl. togara stöðvist alveg um skeið. 1000 MANNS Ráðstefnan heldur áfram i dag |* RÁÐSTEFNA I ÍSUJ um húsbyggingarmál held ur áfram í dag kl. 2 í Félagsheimili FUJ, Stór- holti 1. Mun Eggert G. Þorsternsson, fþrmaSur Húsnæðismálastjórnar þá flytja erindi. Allir vel- komnir ineðan liúsrúm leyfir. Frjálsar umræður að loknu erindrnu. iWWMWW Frh. af 1. síðu. Það mun hafa verið fyrir um það bil 15 árum, að farið var að taka braggana í notkun sem „bráðabirgðahúsnæði" fyrir hús næðislausa Reykvíkinga. Má segja. að það hefði verið afsak anlegt ef aðeins hefði verið um stuttan tíma aðv ræða, enda braggarnir þá enn í sæmilegu lagj E-n nú. 15 árum síðar, er það mikill blettur á höfuðborg inni p* h-a vgar þessir skuli enn vera í notkun. Meðan flestir dvöldust í brögg unum munu hafa verið í þeim á annað búsund fjölskyldur eða yfir 5 búsund manns. Hefur því vissulega þokazt verulega í þá átt ið útrýma þeim, en þó eru enn í dag um 200 fjölskyldur í þeim eitthvað á annað þús und manns Það er 200 fjölskyld um of mikið. SkvH er að geta þess, að nú eru í smíðum 109 íbúðir við Skála®''rði og Grensásveg. Munu þær fyrst og fremst ætlaðar b’'aggaf''1ki og fóilki, sem býr í tugum saman áfram að búa í bröggunum Bæjarfélagið verð ur að taka hinar óhæfu vistar verur úr notkun og gera fólkinu, er í þeim býr, kleift að komast i sómasamlegt húsnæði. Friðrik til Moskvu Framh. af 1. síðu. Ekki hefur verið ákveðið, hvar millisvæðamótið verður haldið, en Friðrik sagðist hafa heyrt talað um Riga í Eistlandi. Þar verða vafalaust einhverjir sömu skákmenn, sem taka þátt í Moskvumótinu, þannig að gott væri fyrir Friðrik að glíma við þá áður. Að lokum spurðum við stór meistarann, hvað hann hefði nú helzt fyrir stafni í skákheimini um. Þá kvaðst hann vera að pæla í gegnum skákir frá Sovétmeist aramótinu, sem er nýlokið. Er þar um að ræða 200 skákir, semi eflaust hafa mikinn visdóm að geyma. Fjórir efstu menn í því móti taka þátt í millisvæðamót inu. — a. Þórarinn Olgeirsson. Árekstur ÁREKSTUR varð um kl. 13 f gær á mótum Bergstaffastrætis og Bjargarstígs. Rákust þarna á strætásvagn og fóiksbíllinn R 6912.. Konan sem ók fólksbíln um, Hjördís Ingvarsdóttir, meiddist ekki alvarlega. Hins vegar skemmdist bíllinn mikiff. Þjónar drottins í síöasta sinn * í KVÖLD verður síð- asta sýning á leikritinu „Þjónar drottrns“ í Þjóð- Ieikhúsinu og er það 15. sýning á þessum leik. — Myndin er af Rurik Har- aldssyni í hlutverkr sínu. U öðru heilsuspillandi húsnæði. Er bes<s qð vænta, að þegar þetta nvia íbúðarhúsnæði verð ur tekið í notkun muni unnt að rífa flesta þeirra bragga, sem enn oftir. Má í því samban'di bendn á að um 70 þeirra fjöl skvldno sem enn eru í brögg Um oínq ínnréttingar, sem þær geta sQlt og notað andvirðið til að hluta af kaupverði hinna nviu íbúða. Nokkuð hefur borið á því, að einstaka fjölskylda, sem búið hefur í bragga, hefur reynzt treg að yfirgefa það húsnæði, enda hafa sumir braggar verið stórlega endurbættir. En það af sakar ekki, að fólk haldi ára i Tvær nýjar hækur frá Almenna bóka- félaginu TVÆR BÆKUR komu út hjá Aýnenna bókafélaginu i gær. í Eru þaff bækurnar „Á strönd | inni“, sem er febrúarbók félags ins og „Hafið“, sem er marzbók | in. Sú fyrrnefnda er eftir brezka ] rithöfundinn Nevil Shute, og er þýdd af Nirffi P. Njarffvík. Hin bókin er eftir Unnstein Stefáns son, og er hún alþýfflegt fræffslu rit um hafiff. “ Bókin „Á ströndinni“ fjallar um endalok mannkynsins. Sag an gerist í Suður Ástralíu, og lýsir fólki, sem bíður dauðans, og algjörrar tortímingar alls lífs á jörðinni. Bók þessi hefur vakið mikla athygli þar sem hún hef ur komið út, en hún var fyrst gefin út árið 1958. Kvikmynd hefur verið gerð eftir henni, en kvikmynd sú hefur verið kjörin bezta ban'daríska kvikmynd árs ins. Höfundur bókarinnar, Nevil Shute, er einhver mest Iesn; höfundur Bretlands í dag. Hann andaðist á síðastliðnu ári, rúm lega sextugur að aldri. Hann hef ur skrifað fjölda bóka, en engin þeirra hefur orðið eins fræg og sú sem hér um ræðir. Aðeins ein saga hefur birzt á íslenzku eftir hann áður, en það er sagan „Víða liggja vegamót1*, sem koni sem framhaldssaga í Tímanum í fyrra. „Á ströndinni" er 332 bls. að stærð, prentuð í Borgar prenti. Hin bókin, „Hafið“, er byggð á hafrannsóknum síðustu ára tuga, en þær hafa leitt í ljós ótal margt nýtt og mikilvægt um eðlj Framhald á 15. síðu. WMMWMmwwwtmlMMtV a ALMENNA bókafélagið hefur nú tryggt sér út- gáfurétt á hinni nýju hók Hemingways „Spánskt sumar“, sem mun koma út bráðlega. Bókin verður þá gefin út samtímis í Bandaríkjunum og hér heima. Þetta er fyrsta bók Hemingvúays eftir að hann hlaut Nobelsverð- launin, en ltaflar úr bók- innr voru birtir í banda- rísku tímariti, og olli mikl ,um deilum, sérstaklega á Spáni, því Hemi-ngway þykrr draga um of taum nautabanans Dominrguin, en bókin fjallar um tvo nautabana. lUHMMUMHMMMMWMMMV Alþýðublaðið 9. apríl 1961 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.