Alþýðublaðið - 12.04.1961, Side 10
Ritstjóri: Ötn Eiðsson.
íslandsmót í körfuknattleik hafið:
Lélegir leikir
fyrsta kvöldið
MEISTARAMÓT íslands í
körfuknattleik, það tiunda í röð
inni var sett að Hálogalandi á
mánudagskvöldið af formanni
Körufknattleikssambandsins, —
Bogia Þorsteinssyni
Bogi sagði m. a., að mót þetta
væri fjölmennasta íslandsmótið,
sem fram hefði farið, 30 lið frá
8 félögum með 300 keppendum.
AIis verða háðir 50 Ieikir. Bogi
sagði einnig, að landsliðið væri
nýkomið heim úr keppnisför er
Iendis. Að vísu hefði það ekki
verið sigurför, en liðið hefði
samt staðið sig með sóma og öðl
ast dýrmæta reynslu. Til marks
um það hve körfuknattleikurinn
væri ung íþrótt hér, sagði Bogi,
að helmingur Iandsliðs okltar
væri 18 ára. Að lokum skoraði
«»>WWWWWWMW»>IMWW
Sleifarlag
UPPHAF íslandsmóts
ins í körfuknattleik var
heldur ógæfulegt. íþrótta
síðunni var tilkynnt um
mótið á síðustu stundu sím
leiðis og var því ekki hægt
að geta um það á þessum
vettvangi sem skyldi. Okk
ur er tjáð að vönduð leik
skrá hafí verið gefin út, en
vegna þess að hún hefur
ekki borizt blaðinu, er ekki
hægt að skýra frá því, hve
nær mótið heldur áfram.
Fyrsta leikkvöldið var lítið
eða ekkert eftirlit með
krökkum, sem voru að ólm
ast í óhreinum skóm á
keppnisgólfinu í leikhléi
og einu sinni sáust tveir
boltar á gólfinu í leik ÍS
og ÍKF. Annar dómarinn í
sama leik mætti í sínum
keppnisbúningi, sem var
allt of líkur búning annars
liðsins, sem var að leika.
Þetta er. leiðinlegt, og er
hér með skorað á fram
kvæmdanefnd mótsins, —
sem mun vera Körfuknatt
leiksráðið að íáta ei slíkt
sleifarlag halda áfram.
hmuhhmhmmmmmhmm
formaðurinn á þátttakendur að
formaðurinn á þátttakendur
mótsins að leika vel og drengi
lega og taka bæði sigri og tapi
með jafnaðargeði..
LÉLEGIR
LEIKIR.
Háðir voru tveir leikir og
fyrst léku KR og Ármann (b) í
2. flokki karla. Hvorugt liðið
sýndi góðan leik, en KRingar
áttu þó góða kafla af og til. —
Beztan leik í liði KR átti Einar
Bollason, sem er innfluttur frá
ÍR. Guttormur Ólafsson er einn
ig liðlegur leikmaður. Staðan í
hálfleik var 23:13 fyrir KR, en
lokatölurnar voru 44:28. Af Árm
enningum voru stigahæstir þeir
Guðjón Magnússon með 12 stig
og Jón Þór 8.
Dómarar voru Þór Hagalín og
Hólmsteinn Sigurðsson og voru
frekar slappir.
MFLi. KARLA:
ÍS—ÍKF 46:31.
Fyrsti meistaraflokksleikur
inn lofar ekki góðu, það var lít
ið um körfuknattleik, en þeim
mun meira af stimpingum og
mistökum af öllu tagi. Bjarni
Jónsson skoraði fyrstu körfuna
fyrir ÍKF, og liðin skiptust á um
forystu fram í miðjan fyrri hálf
leik, en þá náði ÍS öruggri for
ustu og hélt hennj til leiksloka.
Staðan í hálfleik var 20:14 en
leiknum lauk með sigrj stúdenta
46:31.
Eins og fyrr segir var hér
um lélegan leik að ræða en
landsliðsmennirnir Kristinn
Jóhannsson og Ingi Gunnars
voru beztir. Jón Eysteinsson og
Hrafn Johnsen áttu einnig góða
spretti í liðj stúdenta, langskot
Hrafns eru oft frábær. í liði ÍKE
eru nokkrir efnilegir nýliðar,
sem lofa góðu, en vantar meiri
reynslu. Gömlu kempurnar Frið
rik og Magnús eru ekki í æf
ingu.
Dómarar voru Halldór Sigurðs
son oð Ólafur Gfeirsson og
dæmdu sæmilega.
Mikil þátttaka i
Skíðamóti
Siglufjarðar
Skíðamót Siglufjarðar hófst
hér á páskadag og var keppt í
göngu í yngri flokkum, sem
fór fram við Leikskála.
Keppnin var skemmtileg og
margir áhorfendur. Keppend-
ur voru samtals 37 í fjórum
aldursflokkum.
Ganga 11—12 ára fl. 4 km.
Tómas Sveinbj. 22:13
Sig. Hlöðv. 23:12
Jóh. Tómasson 23:30
Ganga 13—14 ára fl. 5 km.
Sigurjón Erl. 27:15
Bjöm Bjömsson 28:01
Ágúst Stef. 32:19
Þessar myndir voru j!
teknar í Hveradölum á j!
sunnudaginn. Sú efrr er !;
af Valdimar Örnólfssyni, ; J
brunmeistara Rvíkur, en !!
hin er af austurríska skíða j;
kappanum Otto Rieder. !!
i •
MMHMHMWWMtMMiMWVI
Úrslit í yngri
fiokkum
+ Á SUNNUÐAGINN voru
leiknir fimm leikir í yngri flokk
um íslandsmótsins í körfuknatt
leik. Úrslit urðu þau, að Ármann
vann KR í 4. flokki karla 24:1. í
3. flokki karia vann Ármann
Hauka í Hafnarfirði sem nú taka
í fyrsta sinn þátt í íslandsmótinu
með 23:10. ÍR (a) sigraði KFR
(b) með 35:6. í 2. flokki sigruffu
Haukar Ármann (c) með 42:2.
Loks vann KR ÍR (b) í 2. flokki
kvenna með 15:10.
SVIGMÓT
AKUREYRAR
SVIGMÓT Akureyrar fór
fram um síðustu helgi í Hlíðar
fjalli í blíðskaparveðri og góðu
færi.
Úrslit urðu sem hér segir: A
flokkur: 1. Ottó Tunilíus, KA,
120,4 sek. 2. Bragi Hjartarson,
Þór, 138,3 sek.
B flokkur: Hörður Þorleifsson
MA, 113,0 sek. 2. ívar Sigmunds
son, KA, 123,7. 3 Kristinn Steins
son, Þór, 143,3.
C flokkur: Guðmundur Túnil
íus, KA, 102,5. 2—3. Magnús
Ingólfsson KA og Þorleifur Sig
urðsson, KA, 126,6.
Drengir 12 til 15 ára: 1. Smári
Sigurðsson, KA, 58,4. 2. Ólafur
Ásgeirsson KA 71,6. 3. Ingimar
Karlsson Þór 90,1.
Drengir 11 ára og yngri: Jón
Laxdajl, KA, 33,7 2. Bergiu-
Finnsson, Þór, 38,6. Árnj Óðins
son KA 40.0.
G. S,
Ganga 7—8 ára fl. 1,5 km.
Ing. Jónsson 10:03
Ólafur Bald. 10:23
Jóh. Skarph. 10:52
Ganga 9—10 ára fl. 3 km.
Guðm. Skarph. 21:00
Þórh. Jónsson 23:20
Sig. Steingr. 23:27
DRENGJAHLAUP
U.M.F.K.
HIÐ árlega drengjahlaup
UMFK fer fram næstkomandi
sunnudag kl. 11 f. h, Hlaupaleið
in verður svipuð og áður, ca.
1800 metrar Þátttaka tilkynnist
til Þórhalls Guðjónssonar eigi
síffar en á laugardag
Ennfremur fór fram boð-
ganga fjögurra sveita frá þrem
átthagafélögum í Siglufirði, og
varð A-sveit Fljótamanna hlut
sikörpust. 2. sveit Þingeyinga
nr. 3 sveit Fljótaníanna B og
nr. 4 sveit Vestfirðinga. A-
sveit Fljótamanna var skipuð
þeim Gestji Frímíannssyni,
Guðmundi Þorlákssyni, Ingólfi
Steinssyni og Benedikt Sigur
jónssjmi.
Keppendur voru samtals 40
stökkkeppni yngri flokka við
Skíðaborg. Veður var gott og
fjöldamargir áhorfendur.
Ól. Baldursson 170,5 st.
í fjórum aldursflokkum.
Keppni drengjanna var mjög
spennandi og komu þarna fram
ákaflega efnilegir stökkvarar.
Stökk 7—8 ára fl.
Tómas Jónsson 186,5 s.t
Framhald á 11. síðu.
/þróttafrétti r
í STUTTU MÁLÍ
í fybrrakvöld fóru fram
tveir leikir í ensku deilda-
keppninni, Leieester sigraði
Cardiff 3—0 í I. deild og Ley-
ton Orient Stoke 3—1.
Real Madrid hefur verið
boðið til Bandaríkjanna í ágúst
nk. og mun leika þar nokkra
leiki.
ítalska knattspyrnusam-
bandið hefur hafnað tilmælum
þeirra landa, sem sótt hafa um
leyfi til að nota þá leikmenn,
sem þátt taka í ítalskri knatt-
spymu, í undankeppni HM,
Juventus hafði • leyft John
Gharles fyrir sitt leyti að leika
með Wales gegn Spáni 19. apr.
12. apríl 1961 — Alþýðublaðið