Alþýðublaðið - 07.05.1961, Page 11
VEGLEGI FERDA-
HAPPDRÆTII
NÚ Á næstunni eru liðin
ár tvö síðan| 'Sjálfsbjörg, land
sambartd fatlaðra var stofnað.
Hlutvei'k sambandsins er, að
hafa forystu í baráttu fatlaðs
fólks fyrir auknum réttindum
og. bættri aðstöðu í þjóðfélag
inu. Innan, þess eru nú átta
félög víðsvegar um landið,
sem öll starfa með miklum
krafti. I
Á Akureyri liefur verið tek
in: -í notkun hluti af félags-
og vinnuheimili, sem félagið
þar er að reisa. Á ísafirði er
rekin vinnustefa fyrir örykja.
Á Siglufirðj er hafin undir
búningur að vinnustofu, sem
framleiðir vinnuvettlinga.
Hinn 14. nóv. sl. oípnaði
Landsam'bandið skrifstofu að
Bræðraborgastíg 9, og hafa all
ar aðstæður fyrir sámtökin
þatnað við það, til m|:ikilla
muna. Hafin er athugun á
byggingu vinnu- og ivalar-
heimilis öryrkja í Reykjavík.
L’andssambandið hefur enn
elkki fengið fastan tekjustofn
líkt og fiestir aðrir öryrkja
hópar. Þess vegna verður að
leita til annarra ráða tiy þess
að afla fjár til starfseminnar.
Hefur í þessu skyni verið
efnt til ferðahappdrættis, og
mun sala á miðum hefjast
í dag, sunnudaginn 7. maí.
| Yinningar í happdrættinu
verða 15. Eru allar ferðirnar
fyrir tvo og vinningar skatt-
frjálsir. Meðal vinninga verð
ur ferð til Kananíeyja. Á eyj
unum verður dvalið í 14
daga, og á heimleið verður
dvalið 5 dagar i París og
London. Einnig eru innifald
ar 14 þús. kr. í ferðapeninga.
Einn vinningurinn er 13 daga
ferð til Lugano í Sviiss. Einn
er ferð með Gullfcssi til
Kaupmannaihafnar og til
baka (8 þús. í ferðapeniinga)
og einnig verða feríir til Fen
eyja og Grænlands og nokkr
ar innanlandsferðir.
Kópavogsnemar
sýndu handavinnu
í GÆRDAG viar sýning í Gagn
fræðaskóla Kópavogs á lianda-
vinnu og teiknun nemenda. Var
sýningin aðeins opin frá klukkan
1—8.
Blaðamaður Alþýoublaðsins
heimsótti sýninguna í gærmorg-
un Var þar að sjá margt veJ
gerðra gripa og laglegra teikn-
inga. Teiknikeunarinn, Sigurjón
Hinaáiusson, sagði að margir
góðir teiknarar hefðu venð í
.skólanum í vetur og fengu 5
nemendur 10 á annars bekkjar-
prófi, en í fyrsta bckk var Helga
Æinarsdóttir hæst í teiknun. Sig
urjón tilnefndi þó sérstaklega
einn nemanda, sem skarað hefði
áberandi fram úr öðrum. Teikn
arinn sagði, að þar gæti verið á
ferðinni efni í listamann Piit-
urinn heitir Pétur Bjarnason.
Ymis konar smíðisgripir voru
á sýningunni, borð, skápar
bekkir og annað slíkt auk smíð-
isgripa úr horni, beini, rafi,
hörðu plasti o. fl. Sérstalca at-
hygli vöktu ermahnappar og
bindisnæla gerð úr hvalbeini.
Handavinna stúlkna var einn-
ig til sýnis í skólanum í gær.
Handavinnukennarinn. Gíslrún
Sigurbjörnsdóttir, lét vel af
vinnubrögðum stúlknanna. Hún
sagði, að margar hefðu gert
meira en skylda er, margar
ungu stúlknanna væru t. d.
spenntar fyrir að sauma barna-
föt — þótt þær væra ekki eldri
en 13 ára.
Kristín Aðalsteinsdóttir var
hæst í handavinnu í 2. bekk. í
fyrsta bekk voru margar stúlk-
ur með sömu hæstu einkurm.
Nemendasýning í
Barnaskóla
Hafnarfjarðar
SICÓLASÝNING á vinnu nem
enda í barnaskólanum i Hafnur-
firði verður opin í dag.
Tíðindamaðui’ Aiþýðublaðs-
ins brá sér þangað í gær og voru
margar hraðvirkar hendur við
að koma sýningarmunum fyrir
á borðum og veggjum hins
skemmtilega samkemusalar skól
ans og verða þar eingöngu til
sýnis vinnubrögð 12 ára barna.
Mátti þar líta margan vel
gjörgan hlut, fallega saumaöa
dúka, prjónaðar peysur, vel
l gjörða muni drengjanna, borð,
lampa o. fl.
Þá var á efsta gangi skólans
teikningar skólabarna og víðar
í nokkrum kennslustofum hlutir
og vinnubækur sem skólabörn-
in hafa unnið.
Kaffi- og merkja-
sala Hraunprýðis-
kvenna
EINS og undanfarin ár hafa
Hraunprýðiskonur í Hafnarfirði
kaffi- og merkjasölu í vertíðar-
lokin. Að þessu sinni fer kaffi-
salan fram nk. þriðjudag, og
verður þá selt ltaffi og dýrindis
kökur í Sjálfslæðishúsinu og A1
þýðuhúslnu frá kl. 3 lil 11,30.
Hraunprýðiskonur gera þetía
í fjáröflunarskyni, og er þetta
þeirra aðal fjáröflunarleið, sem
ávallt. hefur gcfist vel„ Einnig
verða merki seld á götum bæj-
arins þennan sama rtag.
Þeir, sem ætla að styrkja
kaffisoluna, komi með kökur á
mánudaginn eftir kl. 8 í Sjálf-
stæðishúsið.
Slysavarnadelldin HraunprýSi
Hafnarfirði
hiefux sína árlegu kaffi og merkjasölu þriðjudag-
inn 9. mal Kaffi vierður selt í AJþýðuhúsinu og
Sjálfsrtæðishúsinu frá kl. 3 e. h. til ld. 11,30 e,h,
Mérki verða seld allan daginn. — Sölubörn vitji
merkj^ima í skrifstofu Verkakvennafélagsins í Al-
þýðuhúsinu sama dag frá kl. S f Jh.
Nefndirnlar.
Bifreiðasalan
Frakkastíg 6.
Allar tegundir bifreiða til
sölu — kynnið yður verð-
lista okkar áður en þér á
kveðið kaup annars staðar
13 örugg hjá okkur.
Ausfurbær
Ungur Þjóðverji, sem vinniur í Reykjavík
óskar eftir herbergi helzt í austurbænum.
Æskilegt væri að lítið eldunarpláss fylgdi,
TiUboð merkt Paul sendist blaðinu sem fyrst.
RYÐHREINSUN & MÁLMHÚÐUN sl.
GELGJUTANGA - SÍMI 35-400
- Félagslíf -
Ártnann, frjálsíþrótta-
deild.
Umræður um sumarstarfið
og væntanlega hvítasunnu-
ferð verða kl. 3 e. h. sunnu
daginn 7. maí í Félagsheim
ilinu við Sigtún.
Sýndar verða margar mjög
skemmtilegar ijþráttakvik-
myndir sem ekki hafa ver
ið sýndar hér áður.
Áríð^nidi að allir félagar
mæti. Einnig driengir þeir,
sem hafa verið á námskeiði
FrjálsaþröttadeiMarinnar í
vetur.
Stjómin.
Bifrelðasalan
Frakkastág 6.
Sím'ar: 19092 - 18966 - 19168
Trjáplönfusala
Sitkagreni
Alaska ösp
nijög falleg
Birki
Reyniviður
^ ••Ribsberjarunnar
Sólberjarmmar
o. m. fl.
Biómaskófinn
Nýbýlavegi og
Kámesbraut.
I 1
SÝNIKENNSLA
I dag kl. 2 verður opnuð sýnikennsla
•. i
á PASSAP-prjónavélar í nýj-u '
kennslustbfunni á Skólavörðustíg 1 •
(annarrit hæð).
Sýningin verður opin næstu viku (nema fimmtudag) kl. 2—7.
Öllum Passap-eigendbm og öðrum, sem áhuga hafa, er boðið á sýninguna.
Leiðbeinandi frá PASSAP-verksmiðj unum verður á sýningunni.
Verzlunin PFAFF
Alþýðublaðið — 7. maí 1961