Alþýðublaðið - 22.06.1961, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 22.06.1961, Blaðsíða 12
Dullrevolusjonen i Paris (1830) rev den 19-áriqe llszt ut av forelskelses-melan' kolien. Han svaermei: for .fo'kestqre’ nfoni. Han d'Agoult, som til stor forarqeise ftyktet med ham til Genéve. Der leude de stort a\j hans höge klauer- honorarer. De fikk en datter. Cosima. Hun ble Wagners hustru !(Neste Musikalsk tri In _. WVWUuWtil_■______________ introduserte Chopin i Paris' musikk- salonger og han oppleude en rekke kjærlighetsaffærer Mest aluorlig og varig var den med qrevinne tlarie NÝ ÁST: Júlíbyltingin í París (1830) reif hinn 19 ára gamla Liszt upp úr ástar-þunglynd inu. Hann lét sig dreyma um „alþýðustjórn“, og unidir- bjó byltingarsinfóníu. Hann kynnti Chopin í tónlistar- sölum Parísar, og hann upp lifaði fjölda ástarævintýra. Alvarlegasta og varanleg- asta var með Marie d’Ago- ult, greifynju, sem öllum til mikillar gremju flúði með honum til Genf. Þar lifðu þau hátt á hinum háu greiðslum, sem hann fékk fyrir píanóleik. Þau eignuð ust eina dóttir, Cosima. Hún varð eiginkona Wagners. En sú hugmynd, að heimsækja hana á þessum tíma nætur. Gerðu ekki grín að henni. Hún heldur að hún kunni að synda. Kommar Frh. af 7. síðu. stjórnakosningarnar á sl, ári. Kömmúnistar hafa fjórðung þíngsæta, en það er tekið frfcm, að allir kjósendur þjóð legu demókratanna, eins og finnskir kommúnistar nefn- ast, séu ekki harðsoðnir kom- múnistar. Erfitt er að átta sig á stöð- unni í verkalýðshreyfingunni, þar eð verkalýðsfélög jafnað- armanna fóru úr verkalýðs sambandinu og stofnuðu eigið samband. Áhrif kommúnista jukust á gamla sambandinu, en stjórn þess er þó enn f höndum andstöðu-jafnaðar manna eða hanníbalista. Kom múnistar stjórna nokkrum ein stökum verkalýðsfélögum, þar á meðal félögum byggingar- verkamanna og verkamanna í matvælaiðnaðinum, leður- iðnaðinum og vefnaðariðnað- inum. Jafnaðarmenn í andstöðu við flokkinn (eins konar haní níbalistar) vinna með komm- únistum jafnt í almennum stjórnmálum sem í verkalýðs málum. í stjórnarkreppunni 1958—1959 vildi bændaflokk- urinn, flokkur Kekkonens for seta, taka kommúnista inn í stjórnina, en sú hugmynd var drepin af andstöðu annarra flokka. ÍSLAND. óþarfi er að hafa langt mál J? 22. júni 19ol — Alþýðub í Evrópu um ísland hér. Er kommún- istar fengu hið nýja blóð með hanníbalistunum 1956, fór atkvæðamagn þeirra í næstu kosningum upp í 19,2%, sem er það ‘hæsta, er þeir hafa komizt, en við kosningarnar 1959 voru þeir búnir að tapa því öllu aftur og komnir ofan í þau 16%, sem virðist vera nokkuð fast fylgi þeirra. Hér, eins og víða annars staðar, má sennilega segja, að allir kjós- endur séu ekki harðsoðnir kreddu-kommúnistar, heldur mun þar vera mikið um óá- nægt fólk. Mest hefur tap kommún- ista á Norðurlöndum orðið í Danmörku, þar sem alvarleg ur klofningur fylgdi í kjölfar Ungverjalands. Aksel Larsen sem í 20 ár var foringi flokks ins, gerðist ”endurskoðunar- sinni” 1959 og var eftir langa innri baráttu í flokknum rek inn úr honum. Hann neitaði að fara af þingi og deyja póli tískt og vann smám saman fylgi. í kosningunum í fyrra fengu kommúnistar 1,1% at- kvæða (höfðu 12.5 prc. árið 1945) og eiga nú engan þing- mann i fyrsta sinn síðan flokkurinn var slofnaður 1932, að undanskildum stríðs árunum. Flokkur Aksels Lar sens náði hins vegar mjög góðum árangri, fékk 6,4% at- kvæða og 11 þingsæti. Hann hefur líka á sínum snærum iðíð nokkuð af fyrrverandi verka lýðsleiðtogum flokksins. Flokkur hans verður þó tæp- ast kallaður sovézkur komm únistaflokkur. Stöðug hnignun kommún- ista í Noregi heldur áfram, en í Svíþjóð standa þeir nokk urn veginn í stað. í hvorugu landinu skipta þeir raunveru lega nokkru máli. BRETLANDSEYJAR. í Bretlandi sjálfu koma kommúnistar ekki við sögu í stjórnmálum, en vegna kjör- dæmaskipunar og kosninga laga er ómögulegt að gera sér grein fyrir stuðningi þeirra meðal almennings. Árið 1951 buðu þeir fram 10 menn í þingkosningum og fengu þeir alls 33,144 atkvæði og misstu allir tryggingarfé sitt. Árið 1959 höfðu þeir 18 menn í framboði, sem fengu alls 30.896 atkvæði, og töpuðu þá 17 þeirra tryggingarfé sínu. Vegna uppljóstrananna um Stalin og atburðanna f Ung- verjalandi hrapaði meðlima- tala flokksins úr 33,250 árið 1956 ofan f 24,900 árið 1959. Síðan ‘hefur talan hækkað hægt og hægt og var á árs- þingi flokksins fyrir skemm- stu talin 28.707. Talið er, að deilurnar innan Verkamanna flokksins valdi þar nokkru. Flokksforustan er stirð og í- haldssöm. Palme Dutt hefur verið forustumaður brezkra kommúnista í 30 ár. Staða kommúnista er í verka lýðshreyfingunni, sem hefur verið hel/.ti styrkur þeirra, hefur farið smám saman hnignandi. Þeir töpuðu nokkr um smáfélögum eftir Ung- verjaland, en í stærsta sam- bandinu, sem þeir hafa ráðið, rafvirkjasambandinu, er fram tíð þeirra óörugg. Þeir eru nokkuð öruggir í forustu skozkra námamanna og hafa styrkt aðstöðu sína meðal námumanna í Wales, en ekki virðist námumannafélagið í heild vera í hættu. Þá hafa þeir verið að tapa í vélamanna sambandinu og eru ekki hættulegir í neinu öðru, stóru verkalýðsfélagi eða sam- bandi. I Norður-írlandi hafa kom múnistar ekki boðið fram síðan 1953, er frambjóðandi þeirra missti tryggingarféð. Þeir eiga éinn eða tvo þekkta verkalýðsleiðtoga, en skipla engu máli í Norður-írlandi nú fremur en 1953. Þeir standa enn verr í Eire þar sem talið er, að meðlima tala þeirra sé um 100. Geðvernd Framhald af 4. síðu. hér í Reykjavík með þeim hjálpargögnum, sem nauðsyn- leg eru. Til þess þart mikið fé og margt velmenntað íóik. Starfsfólk Geðverndarstöðv- arinnar er nú: Sigurjón Bjcrns son, sálfræðingur, Margrét Mar geirsdóttir, félagsfræðingur, Guðrún Teódóra Sigurðardótí- ir, sálfræðingur (hálfan dag- inn). Tveir læknar eru við deil'dina: Jakob Jónsson, sem hefur sérmenntun í tauga- og geðsjúkdómum og Halldór Hansen yngri, barnalæknir, en liann hefur jafnframt lagt stund átauga- og geðsjúkdóma fræði barna. Skrifstofustúlka er Ingibjörg Pála Jónsdöttir. Frá því deildin tók til starfá hefur verið tekið þar á móti um það bil 130 börnum til rann sóknar og tæplega eitt hundrað eru á biðlista. Það er því Ijóst, að hér er mikil þörf slíkrar stofnunar og væri vel, ef það starf yrði aukið að mun. Slíks er þörf. Viöræður um loftferða- samning WASHINGTON, 20. júní. (NTB-REUTER). Viðræður um loftferða- samning milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna munu senni- lega hefjast í Wasliington 18. júlí. Er tilgangurinn að reyna að semja um bcinar flugferðir Pan American og Sovflot milli New York og Moskva. Banda- ríkjamenn sitja um þessar mundir að samningum um loft ferðir við Hollendinga, ítali, Kanadamenn, Breta og Perú- menn.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.