Alþýðublaðið - 16.07.1961, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 16.07.1961, Blaðsíða 12
 42. árg. — Sunnudagur 16. júlí 1961 — 156. tbl, æmt ve litil vei I FYRKADAG fór veður versn andi á síldarmrðunum, og í fyrrinótt og í gær var bræla á öllum miðunum og lítið um veiði. Enginn bátur hafði til kynnt verði til Raufarhafnar eða. Seyðsfjarðar frá klukkan 7 í gærmorgun, og til klukkan 4 í gær, er blað'ið hafði samband við ])essa staði. í fyrradag og fyrri hluta nætur í fyrrinótt fengu taáiarn ir sæmilegan afla, og veiddist síldin aðallega út af B.iarnarey 8—12 mílur og SSV af Fouti 10—20 mílur. Fanney hefur leitað síldar við Kolbeinsey, en hfur lítið orðið vör. Til klukkan 7 í gærmrogun var síldarleitinni á Rautarhöfn kunnugt um afla 29 skipa meö samtals 16.750 mál og tunnur. Seyðisfjörður hafði cirxnig fregnir af afla 8 skipa með 3050 mál og tunnur. Skip, sem tilkynntu sildar leitinni á Raufarhöfn um af'.a sinn: Ólafur Magnúss. KE 300 mál, Snæfell EA 1000 mál, Júííus Björnsson 400 mál, Faxataorg 600 ,mál, Böðvar AK 700 mál Víðir II. 500 tn., Árni Geir KE 600 mál, Vilborg KE 600 tn„ Jión Garðar GK 1000 tn., Ágúst Guömundss. GK 200 tn., Vísir KE 150 mál, Hafþór RE 500 mál, Sigrún AK 250 tn., Stein unn 400 mál, Sigurbjöii’g SU 400 mál, Sæljón RB 200 tn. Höfrungur II. 1800 mál, Pétur Sigurðss. RE 700 mál, Steinunn gamla 850 mál, Reynir VE 500 mál og tn., Ifaraldur AK 300 tn., Vörður ÞH 400 mál, Gissur hvíti SF 250 tn., Jóxi Guhn laugss. 1000 tn., Leifur Eiríks son RE 1000 tn., Draupnir ÍS 250 mál, Sæborg BA 300 tn., Guðbjörg ÓF 800 mál, Gjafar VE 600 tn. Skip, sem tilkynntu síldarieit inni á Seyðisfirði um afla sinn: Ársæll Sgurðsson GK 700, Sindri VE 500, Stefán Ben NK 500, Guðrún Þorkelsd. SU 1600, Húni I-IU 650, Sigurvon AK 500, Hrafn Sveinbjarnarson II. GK 1000, Akurey SF 600. A FORSIDUNNI í dag erum við með myndir af 3 faliegum garðyrkju- konum. Hér er garðyrkju maður úr skólagörðum Keykjavíkur — og er honum áreiðanlega ekki {»ægð í því að vera bor- inn sömu lýsingarorðum og starfssystur hans. Al- þýðublaðsmyndin var tek in í fyrradag, þegar sól- skinið var farið að segja til sín. Það þarf að vök- va fleira en blómin við garðyrkjustörfin. FÓGETA SKIPTI ra s HINN 1. júlí síðastliðinn léf Alfreð Gíslason af emb- ætti bæjarfógeta í Keflavík og tók v'ið starfi bæjarstjóra þar.. Fráfarandi bæjarstjóri, Eggert Jónsson, tók þá við embætti bæjarfógetans. Alfreð Gíslason bjó að Mánagölu 5, sem er tveggja hæða steinhús og var eign ríkisins. Bæjarfógetinn bjó á efri hæðinni, en á þeirri neðri eru skrifstofur embælt- isins. Um það bil sem embætta- skipingin fór fram keypti Á1 freð húsið af ríkinu og mun húsa verðið ekki hafa verið hátt. — Hann býr áfram á efri hæð- inni, en leigir ríkinu neðri hæðina fyrir skrifstofur fóg- elaembættisins. Þar sem íslenzka ríkinu ber að' sjá fógetum fyrir húsnæði, þurfti það að kaupa nýtt hús handa nýja fógetanum, þar sem Alfreð var selt hitt. Þá var gripið til þess ráðs, að kaupa húsið að Vatnsnes- vegi 11 fyrir nýja fógelann. Þar mun vera slæm aðstaða til að innrétta fyrir skrifslofur. Kaupverð þessa húss var mjög hátt og mun vera mun hærra en ríkið fékk fyrir húsið sem það seldi Alfreð. Þar sem hér er um að ræða Framhald á 3. síðu. ÞAÐ var grehiilegt, að fólkið kunni aö njóía góða veðursins í gærdag, þ. e. a. s. þeir, sem áttu frí. Mikill fjöldi fólks lá í sólbaði á Arnarhólnum, í Naut hólsvíkinni, í Sundlaugunum, svo ekki sé minnzt á hinar ýmsu svalir húsa og einkalóð ir. Hvarvetna sást fólkið njóta sólar og surnars í Reykjavík. í Nauthólsvíkinni var mikill fjöldi fólks. Höfðu margir mat með sér í körfum og urxdu þar út frá allan daginn. Það slys varð þar út frá, að stúlka skarst á fæli, og varð að sækja hana á sjúkrabíl og flytja á Slysavarðstofuna. appdrætti FUJ Vegna hinna nýlóknu verkfalla hefur sölutínii í Ferðaliappdrætti Félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík orðið allmiklu skemmri en áður hafði verið ráð fyrir gert. Hef ur stjórn félagsins því neyðzt til að fá drættin- um frestað til 15. ágúst næstkomandi.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.