Alþýðublaðið - 17.08.1961, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 17.08.1961, Blaðsíða 8
„B A R N þarfnast hvoru tveggja — áhrifa frá föður og móður. Eins og einn þáttlak- anda sagði síðast koma vandamál, þegar pabbi einn getur hjálpað — eins og stuhdum steðja að vandamál, sem mamma getur ein leyst úr. Það er ekki rétt, sem einu sinni var álilið — að nyti barnið móðurlegrar ástúðar, væri allt í bezla lagi. Og það er ekki heldur aðeins barnið, sem þarfnast föður síns, held ur þarfnast konan einnig karlmanns,’ sem deilir með henni ábyrgðinni. yið enduð- um síðast á því, að frú Inger sagði, að miklu fleiri hjón ættu að komast af hvert við annað — ekki hvað sízt vegna barnanna. Þar tökum við upp þráðinn í dag. Inger: „Já, ég fyrir mitt leyti hef fyrir töngu komizt að þeirri niðurstöðu, að ef konan vissi, áður en hún skil ur við mann sinn, hvaða á- byrgð hún hefur tekizt á hendur og hvað hún kemur til með að þurfa að bjóða börnum sínum, þá myndi hún fremur hafa þraukað í hjónabandinu, þótt það væri ekki hamingjusamt. Þegar rætt er við fráskildar, einstæð ar konur, tveim árum eftir hjónaskilnaðinn, ekki mánuði eftir — því að fyrst í stað rýóta þær sín, ekki heldur ári eflir — heldur einmitt eftir tvö ár, þá ættuð þér INGER, 38 ára, ekkja með þrjár dætur, 15, 12 og 7 ára. HENRIK, 23 ára, foreldr- ar hans skildu, og hann ólst upp á hehna vistum. AGNES, 52 ára, — gift „manni bak við dagblað- ið“. — Þau eiga 17 ára son. ERIK, 40 ára, fjöl- skyldufaðir, faðir 17 ára (írengs og 13 ára stúlku. bara að heyra til þeirra. Flest ar venjulegar konur vilja fúsar fá mann sinn aftur. Þvi að það þarf gífurlegt þrek til að standa ein með alla ábyrgð ina á herðunum. Sp.: — Samt sem áður hlýt ur það að skipta miklu máli, hvernig maðurinn var, og hvort hjónabandið var svo stormasamt, að börnin liðu af því. Inger: Auðvitað skiptir miklu máli, hvernig maður- inn er. En ég held, að mörg- um hjónaskilnaði mætti forða, ef báðir aðilar gætu áður en það er um seinan tal- að við einhvern, sem gæti hjálpað þeim. Sp: Álítið þér, að það sé of auðvelt að skilja hérlendis? Inger: Að mínu áliti er það of auðvelt. En það er einnig annað, sem til greina kemur í þessu sambandi, Ég held, að alltof margar ungar stúlkur séu fákunnandi, beg- ar þær gifta sig. Vissulega hafa þær margar hverjar lært heil ósköp — en á allt öðru sviði -— þegar til þess kemur að búa til mat, vita þær ekki, hvernig á að búa til einföld- ustu sósur. Agnes: Unga fólkið er ofl á tíðum ofdekrað nú á dögum. Það fær að eyða öllu sínu fé í farartseki og föt. Inger: Og þegar það giftir sig, fær þag allt í einu að kenna á því, hvað úigjöld eru. Þau eru ekki nógu dugandi til að sigrast á örðugleikun- um. Gefast upp og fara hvert sína leið. Erik: Mér finnst einnig, að þetta fólk sem skilur æ ofan í æ eftir hverja giftingu, finni svo sárasjaldan þetta, sem það leitar að. Það hefði eins vel getað hangið í fyrsta hjónabandinu. Og þótt krakk arnir heyri stöku sinnum rif- izt. Ég held varla að þau skað ist af því. Inger: Og ef við lærum að gleðjast yfir smávægi hvers- dagsins værum við ekki alllaf á kapphlaupi eftir einhverju nýju og nýju. Og faðirinn. . . . Erik: Það er erfitt að skil- greina, hvað vantar, þegar hann er þar ekki. Ég get það a. m. k. ekki, — og hef þó reynl .... Inger: Það er vegna þess að þetta er hreinl tilfinninga mál Ég veit af reynslu á barna heimilum, að ógerlegt er að sjá á börnum, hvort þau eru föðurlaus eða ekki. Það er undravert, hvað einstæðar mæður geta gert fyrir börn sín. Oft á tíðum eru börn ein- stæðra mæðra betur klædd en hin. — Maður skilur það oft ekki .... Erik: Við karlmennirnir hljóíum oft að hugsa til þess, hve ótrúlega miklu kona fær áorkað, Inger: En hvað- viðkemur titfinningunum, — þar stend ur hnífurinn f kúnni. Börn hafa sannarlega ekki illt af í FRAMHALDI viðræðnanna. — Um fátt hefur verið meira talað að undanförnu en ólætin og ölvunina á verzlunarmannaheíginni. Hvar sem tveir menn eru saman komnir beinist talið fyrr eða síðar að þessum ósköpum, — jafnvel yfir glasi af góðu víni ... Niðurstöður sálfræðinganna eru venjulega þær, að allt eigi þetta rót sína að rekja til uppeldisins, — til óhamingju á heimili og óöryggis í heimilislífi. í Danmörku og raunar víðast hvar er þetta sama vandamál við að stríða. Þar eru hjónaskilnaðir, ung lingaafbrot og almennir glæpir enn sem komið er algengari en hér heima, — enda sitja margar nefndir skipaðar sérfræðingum sálar og líkama jafnan á rök síólum og ræða, hvað unnt sé að gera til að fyrir byggja ósköpin. Hér eru þessi vandamál rædd frá fjórum ólíkurn sjónarhólum, — og kann einhverjum að Ieika forvitni á að lesa afstöðu annarra til þessara mála, — en greinin er þýdd úr dönsku blaði. Ástúð, sem ekki fæst keypt, — segja þeir dönsku. — Einmiít það! Að fá ekki að fara inn í ís sjoppuna á kvöldin og kaupa sinn eigin ís, — er kannski ekki mesta mótlæti heimsms?—! því, þótt þau fái ekki allt, sem þau benda á, en einstæð móðir óttast alltaf, að börn hennar hafi það ekki eins og önnur, — enginn má geta sett neitt út á þau. Erik: Ég þekki til fjölda heimila, þar sem hjónin eru skilin og allt er slétt og fellt á yfirborðinu. Börnin heim- sækja föður jafnt sem móður, — en samt sem áður er eitt hvað í ólagi. Inger: Svo kemur það líka til greina, að faðirinn, sem að eins hefur leyfi til að sjá börnin sín einu sinni í hálf- um mánuði, — er oft og ein- atl ekki eins og æskilegt væri. — Hann fer með þau í dýragarðinn og Tívolí, — leik ur með þau og eyðir á þau, — en heima stritar móðirin fyr- ir öllu. Sp: Henrik sagði eitthvað í þá áítina síðast, að hann hefði haft það á tilfinningunni, að foreldrar hans álitu, að gætu þau ekki gefið honum annað, — þá gætu þau a. m. k. stutt hann fjárhagslega. Hendrik: Já. en ég get ekki farið að vera þakklátur fyrir það. Erik: Börn skilinna for- eldra fá oft meiri peninga en önnur börn, og þau hrósa sér af því til þess að herða sig upp. Hendrik: Já. — ég get sagt yið sjálfan mig, svo ungur sem ég er; Ég hef kannski ekki notið sömu bernsku og aðrir, en ég á þá bíl, — en fæstir jafnaldra minna hafa náð svo langt. Inger: Nú til dags er margt miðað við peninga. En þeir eru ekki hið þýðingarmesla. Sp: Nei,. enn er margt, sem ekki verður keypt. Erik: Mín börn gengu fyrir nokkrum árum í skóla, sem skilnaðarfaraldur gekk yfir. Hvað eftir annað komu börn- in heim og sögðu að nú ætl- uðu hinir og þessir foreldrar að skilja. Og þar kom, að börnin sögðu við okkur, graf- alvarleg: — Þið megið aldrei skilja. Sp: Áður fyrr var sagt, að það væri hræðilegt fyrir börn in að alast upp í spenntu and- rúmslofti. Eigum við nú, að segja, að það verði að hafa það, bara ef hjónabandið fer ekki út um þúfur? Inger: Auðvitað getur alltaf það ástand skapazt, að heppi- legra sé að hjónir, fari hvort sinn veg, en oft eiga full- þroska manneskjur að geta haft vald á sér og látið allt lagast. Erik: Ef það er nokkuð, sem ég reyni að kenna mínum börnum, þá er það, að hjóna, bandið er grundvöllur, sem margt er hægt að byggja á, bara ekki himinháar skýja- borgir. Hjón verða að sýna hvort öðru tillitsemi, því hjónabandið samanstendur af venjulegu fólki Maður getur aðeins gert kröfur til sjálfs sín. Sp: Frú Inger, segja börn yðar nokkru sinni, að þér ætt uð að giftast aftur? ínger: Það segja þau öll! — En meðan það var mögulegt, höfðu þau ekki neinn áhuga á því Ég reyndi meira að segja einu sinni að eiga vin, en það var hræðlegast af öllu. Ég kom dauðþreytt heim úr vinn unni, varð að taka til í hús- inu og þjóna þrem börnum, og samtímis að reyna að vera ungleg og líta vel út þegar hann vildi fara út. Og um leið og ég settist við hlið hans í sófanum, komu öll börnin og skriðu upp í kjöltu mína, eða fengu mig burt .... Sp: Það er víst óhætt að segja, að afbrýðisemin hafi verið sterkari þörfinni fyrir samskipti, sem svo mjög er talað um .... Inge: Áreiðanlega. Nú er ég ekki einu sinni fráskilin, held ur ekkja og börnin hafa haft mig út af fyrir sig um lengri tíma. Ég má ekki fara burt Ég verð að vera þarna. Það gekk prýðilega hversdags- lega en ekki var vinur minn fyrr kominn til mín, en þau fóru að hegða sér illa. Ég vildi ekki setja ofan í við þau í návist ókunnugs manns, og svo fannst honum ég láta allt of mikið eftir þeim — og það þoldi ég ekki að heyra. Nei, það var dauðadæml. Sp: Þetta gefur til kyroia, að einstæð móðir sé eflirlátssam ari við börnin, en hin sem hefur manninn sér við hlð? Inger: Já, mun eftirlátsam ari. Ég hef rætl þetta við frá- skildar konur og hef komizt að þeirri niðurstöðu, að fjöl- margar þjást undir oki, ein- hvers konar skyldutilíinn- ingu, sem hefur þau áhrif að þær dekra meira við börnin en góðu hófi gegnir. Þær finna til þess, að þær hefðu ekki ált að skilja við mann- inn, og að þær heíðu getað gefið börnunum meiri gleði, ef þær hefðu ekki skilð. Ægnes: En hvað um skyldu tilfinningu karlmannsins? Inger: Það er auðvitað und ir manninum komið, — en ekki svo fáir álíta, að þeir geri sína vísu fullvel, — ef þeir aðeins borga meðlagið mánaðarlega. g 17. ágúst 1961 —1 Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.