Alþýðublaðið - 16.09.1961, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 16.09.1961, Qupperneq 5
FORSEII KOMINN IILISLENDINGA- BYGGDA VESTRA WINNIPEG, 14. sept. Fréttaskeyti frá Jóni Magnússyni; ÁRDEGIS í dag kvaddi forseti íslands, lir. Ásgeir Ás-( geirsson, Diefenbaker, forsæt isráðherra á flugvelli yið Ot- tawa að viðstöddum heiðurs- verði og ýmsu stórmenni. — Flaug forseti frá Ottawa til Winnipeg og var lent þar í sólski'ni og blsðikaparýeðri. Margt fólk var statt á flug- vellinum í Winnipeg til að fagna forsetahjónum við kom una, en þeir Wiilis fylkisstjóri og Roblin, forsætisráðherra Manitoba, tóku á móti forset- anum og fylgdarliði hans. — Ekið var af flugvellinum til þinghúss Manitoba, en þar bauð Roblin forsetn velkom- inn. Sagði hann í ræðu sinni að forseti væri sérstak lega kær gestur á þessum stað og mælti hann þá fyrir munn Manitobabúa af íslenzkum stofni, einnig af hálfu ann-! arra, sem vildu votta gestin-( um virðingu og vinsemd. Hann sagði að nú væru liðin 86 ár síðan íslendingar stofnuðu Nýja ísland. Hann sagði enn fremur, að Manitobabúar hefðu lært að virða íslendinga og framlag þeirra í þágu fylk- isins væri langt umfram það hlutfall sem fjöldi þeirra segði til um. Hann sagði það vel við þæfi að taka á móti forseta íslands í þinghúsi, — enda væru íslendingar gömul þingræðisþjóð. Þá sæmdi Ro- blin forsetann vísundaorð- unni, en vísundurinn er tákn Manitoba. Standa tvær voldug ar styttur af vísundum í and- dyri þinghússins. Forseti íslands þakkaði for sætisráðherra með ræðu — og sagði að síðustu: Það eru ein göngu tvö þinghús í öUum heiminum, sem prýða lóð sína með styttu Jóns Sigurðssonar hins mikla foringja í frelsis og viðreisnarbaráttu íslands, Hafið þökk fyrir að hans mynd mætir okkur hér við ykk ar þinghús Fjöldi manns var á áheyr- endapöllum og mörg hundruð voru Við mótlöku Manitoba- stjórnar að athöfninni í þing- húsinu lokinni. Gengu allir viðstaddir fyrir forseta. Síðar var sjónvarps og blaðaviðtal við forséta, Guðmund í. Guð- mundsson utanríkisráðherra og Thor Thors sendiherra- For seti lagði blómsveig við styttu Jóns SigUTðssonnT fyrir fram- an, þinghúsið. Um kvöldlð i bauð Willie fylkisstjóri til veizlu. Hinni opinberu heim- sókn er nú að ljúka. Allir koma þeir aftur í KVÖLD verður fyrsta frumsýning í Þjóðleikhúsinu á þessu leikári. Þá verður frum sýndur ameríski gamanleikur inn Allir komu þeir aftur eftir Ira Levia, en hann hefur ritað leikritig eftir samnefndri bók, sem Mao Hyman, hefur skrif að og var metsölubók á sín- um tíma. Um 30 hlutverk eru í leikn- um, en aðalhlutverkið er leik ið af Bessa Bjarnasyni. Auk hans leika þessir leikarar stór hlutverk: Róbert Arnfinnsson, Erlingur Gíslason, Jóhann Pálsson, Valur Gíslason, Rúr- ik Haraldsson og margir fleiri. Leikstjóri er Gunnar Eyj- ólfsson, en leiktjöld eru gerð af Lárusi Ingólfssyni. Þýð- andi er Bjarni Guðmundsson. I MMMMMMMMtUUtMUMttW Ekki ofviðri / augum sjómanna í EINU dagblaðanna í gær, er frétt þess efnis, að Hekla hafi lent í of- viðri á leið sinni til Nor- egs. Alþýðublaðið leitaði upplýsinga um þetta í gær hjá Skipaútgerð rík isins, og íékk ieftírflar- andi svör: í gærmorgun kom skeyti frá Heklu, til Skipaútgerðarinnar, og var þar eingöngu gefin upp staðarákvörðun- — Ekkert annað kom fram í skeytinu, sem bent gæti tíl þess, að skipið hefði lent í ofvðri. Venju lega hefur skipið sam- band við útgerðina gegn úm talstöð, ef eitthvað óvænt kemur fyrir. — * Slíku er ekki til að dreifa j j í þessu sambandi.. Að lokum sagði mað- urinn, sem blaðið talaði við, að kannski hafi ver- ið nokkuð hvasst, en ekki svo, að fréttnæmt gæti talizt meðal sjó- manna. TÉKKÓSLÓVAKÍA: Her sveitir hafa verið á ferli á ýmsum stöðum á landamær- um Tékkóslóvakíu og Vestur Þýzkalands og víggirðingar hafa verið styrktar. Her- skylda manna, sem lausir eru úr herþjónustu um þessar mundir, hefur verið fram- lengd til ársloka Rannveig með framsögu í Strassbourg RÁÐGJAFARÞING Evrópu ráðsins sUur á rökstólum í Strassbourg síðari hluta þessa mánaðar. Einn ísl. fulltrúi mun verða á fundum þingsins að þessu sinni.. Er það Rannveig Þorsteinsdóttir, fyrrum alþing ismaður. Verður hún fram- sögumaður, þegar þingið fjall ar um fiskveiðar í Evrópu. Sjá’ft ráðgjafarþingið mun koma saman til funda fimmtu daginn 21. sept. Þó munu full trúarnir á þinginu áður sitja á sameiginlegum fundi ráð- gjafarþir.gsins og Evrópu- þingsins svonefnda, sem verð- ur haldinn dagana 19. og 20. sept. Evrópuþingið er skipað þingmönnum frá þeim sex ríkj um, sem eiga aðild að Efna- hagsbandalagi Evrópu og hafa með sér samvinnu á öðrum sviðum. Á þessum sameigin- lega fundi verður fjallað um starf efnahagsbandalagsins og fleiri mál. Búizt er við, að þá liggi fyrir afstaða Evrópu- þingsins til umsóknar Grikkja um auka—aðild að bandalag- inu. Á dagskrá ráðgjafarþings Ev rópuráðsir.s eru að þessu sinrcl 35 mál. Á fyrsta degi mun Kýp ur veitt aðild að ráðinu og fáni lýðveldisins verða dreginn að hún framan við Evrópuhúa ið í Strassborg.Að Kýpur meci talinni eru aðildarriki Evrópu ráðsins 16. Fyrslu daga þingsins verð- ur fjallað um landbúnaðar og sjávarútvegsmál, samstarf v'tcJ' vanþróuð lönd, ástandið í Evr- ópulöndum, sem ekki eru í Ev rópuráðinu og um óhreinkum andrúmsl oftsins- Mánudaginn 25. og þriðju- daginn 26 september mun þing ið ræða almennt um samstart* Evrópuríkjanna um stjórnmál, menningarmál og efnahagsmáL Tvo næstu daga þar á efiir mun rætt um ýmis önnur mál varðandi menningarsamskipti, um flóttamenn, fólksfjölgun og um sveitarstjórnarmál Þá verða einnig kosnir dómarar * mannréttindadómstól Evrópu. Búizt er v.ið, að fundum ráð- gjafarþingsins Ijúki 28. septem, ber VERÐLAGiÐ Frn af 1. síðu. Sex manna nefnd koma sér ekkj saman um verðlagsgrund völl, ganga ágreiningsatriðin til yfirnefndar, sem fell'r um þau fullnaðarúrskurð í yfirnéfnd á sæti einn fultrúi fynr hvorn nefndarhluta Sex marnia nefnd ar, en hagstofustjóri er odda- maður. Þá er fyrir lá, að Sex manna nefnd mundi ekki ná samkomu lagi um verðlagsgrundvöl! 1961—62, vísuðu fulltrúar framleiðenda í nefndinni mál- inu tii yfirnefndar. Tók Einar Gíslason sæt í henni sem full- trú( neytenda, en Sverrir Gísla son sem fulltrúi framleiðenda. Á fundi yfirnefndar í dag, föstudag, var ákveðinn nýr verðlagsárundvöllur, sem gild ir frá þessu hausti Er hann miðaður við nokkru stærra bú en grundvöllurinn 1960—61, eins og sjá má af því, að magn sauðfjárafurða vex um 9,5%. og magn nautgripaafurða um 5,3% en afurðaaukning grund- vallarins í heild er 6,6%. Meðalhækkun á afurðaverði til - bænda samkvæmt ■ hinum nýja grundvelli er 14,5% en verð til bænda á kjóti, mjólk og kartöflum hækkar heldur minna, eða 13,5% að meðal- tali. Ástæða þessa munar er sú, að verð á gærurn og ull til ú,t flutnings hækkar meira en a öðrum afurðum og vegtir upp hlúta af verðhækkun þeirra. Þessi hækkun búvöruverðs stafar sumpar.t af hækkun kaupgjalds á síðastlifnu sumri og af nýorðinni gengisbreyt- ingu, en sumpart af þvi, að ,,kaup bóndans" í verðlags- grundvelli fylgir breytingum á meðaltekjum verkamanna, sjó manna og iðnaðarmanna og var — samkvæmt niðurstöðum úrtaksathugana — um að ræða verulega hækkun á meðaltekj um þessara -stétta frá 1953 til 960 Sex manna net’nd á eftir -&ð fjalla um nýtt verð til bænda iá einstökum afurðúm og um ,;þann vinnslu- ög dreifingar kostnað, sem leggst - á afurðirn ar á þessu hausti. Er því enn ekkj hægt að segja neitt um væntanlegt útsöluyeýð á ein- stökum landbúnaðarvörutn. ICirkjudagur Háteigssóknar Á KIRKJUDEGI Háteigs- sóknar á morgun hefur kven- félag safnaðarins kaffisölu í Sjómannaskólanum. Slíkar kaffiveitingar til fjárcjlun'ar hefur kvenfélagið haft einu sinni á ári að undanförnu. — Mikill fjöldi fújks he'fur hverju sinni sótt hinar árlegu kaffisölur kvenfélagsins í rúingóðum og vistlegum borð sal Sjómannaskólans og mcð því stutt félagið í fjölþættu og fórnfúsu starfi þess til efl ingar safnaðarlífinu. lá’rkjubygging' safnþiðarins er vel á veg komin. Kirkjan -er komin undir þak og hefur verið múrhúðuð að utan. — Verið er að undirbúa fram- kvæmdir við lokaáfanga bygg ihgarinnar. Er þess að vænta að' fjárskortur hindri ekki þær framkvæmdir, svo að’ ekki líði úr þessu langur tími, þar til messur geta haf izt í hinni nýju, veglegu PÓLLAND: Sést hefur til ferða rússr.eskra hersveita yfir austurlandamærin. í sl. mánuði var .herskylda manna þeirra, sem lausir voru úr her þjónusfu, . framlengd. . kirkju. Hingað til hafa guðs - þjónusitur safnaðarine, svjo sem kunnugt er, farið fram íí hátíðasal Sjámannaskólans, svo og mjög fjölsóttar barna samkomur hvern sunnudags- morgun yfir vetrarmánuð- ina. Stöðugt er safnaðarfólk- ið að styrkja kirkjubygginf} una með gjöfum og áheitrmr. Er nú íramlag s-afnaðarlrA samtals komið nokkuð á aðra milljón ‘króna. ■ Kirí.judeginum á morgiUi verður hagað þannig: Barnasamkoma verður » hátíðasalnum kl. 10,30 f. h, Sóknarprestur, séra Jón Þor ■ varðarson stjórnar samkomiu Hann og séra Bragi Friðrikj son tala við börnin,. Sýndar verða Htskuggamyndir. Messa verður kl. 2 e. h. Sr. Bjarnji Jó^rsson vígislubiskuy prédfikar. Sóknarpres|tur flyl ur ávarp. Kirkjukórinn syng_- ur undir stjórn Gunnars SlL' urgeirssonar. Kaffiveitingar kvenfélags* ins hefjast kl. 3. Á borðum verða heimabakaðar kökur Ofj til alls vandað nú sem fyrr. Þess er vænst, að fjölmenm’k komi í Sjómannaskólann á morgun. ... Alþýffublaðið — 16. sept. 1961 0

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.