Alþýðublaðið - 17.11.1961, Side 10
TLEIKUR ER
IGI k ÍSLANDI‘
Skemmfi-
legir
leikir
MEISTARAMÓT Reykjavíkur
í handknattleik hélt áfram í
fyrrakvöld og voru háðir sex
leikir í 2. flokki kvenna og
karla.
Franska knattspyrnusam-
bandið hefur sent mótmæli til
FIFA vegna ósæmilegrar fram-
komu tékkneska dómarans,
sem’ dæmdi leiki Búlgaríu og
Frakklands um síðustu helgi.
Ritstjóri: ÖRN EIÐSSON
HMHMHMMtlHHIMMUMMMHMMIUtMUMMMtMMUIUV
*
Anægðir sigurvegarar
MYNDIN var tek'n aS loknum leik Hafnfirðinga og
danska liðsins Efterslægten fyrir tæpum liálfum mánuði. —
Leikurinn fór fram í íþróttahúsi varnarl'ðsins á Kefla-
víkurflugvelli eins og kunnugt er og lauk með sigri Dana
17:15. Lengst tll hægri er þjálfarinn Björklund_ en tveir
af leikmönnunum eru með honum á myndinni. Ánægjan
leynir sér ekki á svip þeirra. (Ljósm.: J. Vilberg).
ÍÞRÖTTAFRÉTTIR '
í STUTTU
Sovétmeistararnir Dynamo
Kiev eru á keppnisferðalagi í
Englandi. Þeir léku gegn Aslon
Villa á þriðjudag í London. —
Englendngarnir sigruðu me3
2:1. ________________
í fyrrakvöld léku Tottenham
og Foyenoord frá Amsterdam
síðari leik sinn í Evrópubikarn-
um. Leikurinn fór fram í Lon-
don. og lauk með jafntefli 1:1.
Englendingarnir sigruðu í
fyrri leiknum og halda því á-
fram keppninni. *
Gunnar Nordahl, einn þekkt-
asti knattspyrnumaður Svía
skrifar í Stockholms-Tidnin-
gen á þriðjudaginn, að SVíar
þurfi að fá sér „knattspyrnu-
einræðisherra“, ef þeir ætli
ekki að dragast aftur úr. ítalir,
Spánverjar og V-Þjóðverjar
hafa slíka herra og vegnar vel.
Þessir menn þurfa síðan að
vera í nánu sambandi við þjálf
ara félaganna.
segir Björklund þjálfari í
viðtali við Alþýðublaðið
SKÖMMU áður en danska
handknatt-leiksTðið Efterslægt
en hélt heimleiðis átti frétta-
maður Iþróttasíðunnar stutt
viðtal við þjálfara liðsins, John
Björklund. Þetta var í annað
sinn á sama árinu, sem Björk
. lund er hér á ferð með dönsk-
um íþróttaflokki. Hann kom
hingað á sl. sumri með knatl-
spyrnuflokk: frá Bagsværd I.F.
sem hér var á ferð í boði KR.
Þá notaði stjórn HSÍ tækifærið
og fékk Björklund til að halda
stutt námskeið fyrir leiðbein-
endur Björklund er því all-
kunnur hérlendum aðstæðum.
Hann kvaðst vilja byrja á því
að þakka gestgjöfunum, KR,
fyrir ágætar móttökur. Ferðin
, hingað hefði heppnast með á-
gætum og það væri einnig á-
nægjulegt, að gestgjafarnir
hefðu ekki orðið fyrir fjárhagi
legu tjóni af heimsókninni
t Um handknattleiksíþróttina
hérlendis kvaðst hann vilja
segja það, að hún væri á háu
stigi miðað við allar aðstæð-
ur. Hann kvað það sína skoð-
un, að keppnishúsið að Há-
logalandi stæð'. í vegi fyrir
allri frekari þróun í íþróttinni.
Brýnasta verksfnið væri því
nýjar og stærr' keppnishallir.
Þið eigið mjög góða skot-
menn, enda virðist mér að lið
in séu val'n með hliðsjón af
skotstyrkleika mannanna en
hins vegar gætir lílt léttra og
fótírárra leikmanna. Hugsan-
legt er, að keppnishúsið að Há-
logaland' eigi sinn þált í þessu,
* því að það er einmitt á stærra
velli, sem kostir léttu og fót-
fráu leikmannanna njóta sín.
Af einstökum leikmönnum vil
ég nefna Karl Jóhannsson og
tel ég hann bezta leikmanninn
sern ég hsfi séð hér. Einnig
car markvörður'nn, Hjalti
Einarsson ágætur í síðasta
'siknum. Þá ber og að nefna
Reyni Ólafsson í fyrsta leikn-
um. Mig langar sérstaklega til
að benda á það, að þau ungl-
ingalið, sem ég hefi séð hér,
leika mjög góðan handknatt-
leik og eru þau engu síðri en
lið jafnaldra þeirra í Dan-
mörku. í þessum unglinga-
leikjum hefi ég séð betri hand
knattleik en £ leikjum full-
orðinna hér. Eg hefi komizt að
raun um, að það er talsvert al-
gengt, að leikmenn séu jafn-
framt þjálfarar þess liðs, sem
þeir leika með. Þetta fyrir-
komulag tel ég mjög óheppi-
legt, en tel víst, að það stafi
af skorti á leiðbeinendum. —
Það er þó að mínu viti mál
málanna í íslenzkum hand-
knattleik í dag, að skipulögð
verði námskeið fyrir leiðbein-
endur og allt gert, sem mögu-
legt er, til þess að bæta úr þess
um skorti á leiðbeinendum_ —
Tel ég vafalítið að Danir og
Svíar mundu vilja aðstoða
ykkur í þessum efnum. Að-
spurður um álit sitt á íslenzk-
um dómurum sagði Björk-
lund: Það kom mér á óvart,
að íslenzkir dómarar dæma
ekki „skandinaviskt“, þ. e. eins
og algengt er í Danmörku og í
Svíþjóð. Einstakar tulkanir
þeirra á leikreglum komu okk
ur mjög á óvart. Eg tel Magn-
ús Pétursson beztan dómara
þeirra, er við höfum kynnzt
hér. Vonandi fá dómarar ykk
ar fleiri tækifæri til að kynn-
ast stéttarbræðrum sínum á
Norðurlöndum svo að þeir
geti samræmt túlkun sína. —
Þeirri túlkun, sem þar er ríkj-
andi. Að lokum var Björk-
lund sþurður um fyrirkomu-
•'ramliald á 11. síðu.
Leikimir voru yfirleitt
skemmtilegir og vel leiknir,
sérstaklega í 2. fl. karla.
ÚRSLIT:
2 fl. kvenna:
Armann—Þróttur 16:2.
Fram—KR 4:0. ' 1
2. fl. karla:
ÍR—'Valur 5:7. 1
Fram—Þróttur 5:3
KR—Ármann 8:9.
Mótið heldur áfram annað
kvöld.
/ djörfum leik
N. k. sunnudag kl. 3 og 5
verða fjórar úrvals íþrótta-
kvikmyndir, fyrir yngri sem
eldri, sýndar í Tjarnarbíói.
Myndir þessar eru:
Olympíuför íslendinga t'l
Rómar 1960. Æskan að leik. —
L'tmynd, er sýnir vel líf og
starf í sumarbúðum í. S. I. að
Reykholti í sumar, sem for-
eldrar og börn ættu að kynna
sér.
England gegn Brasilíu. —
Mynd af hinum sögulega leik,
þegar England vann heims-
meistarana frá Brasilíu. M. a.
sjást Didi og Matthews.
Paradís skiðamanna. Gull-
falleg frönsk lit og tónmynd af
skíðaiðkunum í Ölpunum. I-
þróttaskólinn í Reykjadal stend
ur fyrir þessari sýningu og
rennur ágóðinn til styrktar
starfsem hans
t 1© IV- nóv. 1961 — Alþýðublaðið