Alþýðublaðið - 17.11.1961, Síða 16

Alþýðublaðið - 17.11.1961, Síða 16
HHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHWM w^ÆSj»Mjfexí y\ Fro GossvæBinu Tollþjónn grun- aður um smygl LOGREGLAN lagði í fyrri- u»tt hald á glymskratta, ,.juke sem talíð var að hefð( veií:ð fluttur ólöglega út !af Keflavíkurflugvell/. Það var um miðnætti í fyrrinótt að lög *egluþjónn, sem átt/ leið um fíverf'J g,tuna, sá að verið var !>. flytja glymskrattan af bif ^eið inn í hús'ð að Hverfisgötu 83a. Spuröi,-hann flutn:ng5menn Geislavirknin hefur minnkað hér á landi GEISLAMÆLIXGAR hér á fandi voru síðast gerðar 13. þ. m. í Eðlisfræðistofnun Háskól- ans. Ge'slavirkni í andrúmsloft tnu reyndist hafa minnkað nokk uð frá því að hún mældist mest á lok síðasta mánaðar. Engar tnælingar hafa ver'ð gerðar nú síðustu þrjá dagana og því ekki vltað hvort geislavirknin hefur aukist eftir hið mikla úrfelli íyrstu daga þessarar viku. Fyrir nokkru var mjólk og nokkrar aðha fæðutegund r, sendar til Danmerkur til geisla- mælinga, en enn hefur engin túöurstaða fengist af þe^m. mæl- ingum. ina hvernig á þessum varningi stæði, en þeir sögðust hafa fullt leyfi til að flytja hann. Kom í ljós að verkfærið var af Keflavíkurflugvelli, og sagði fyrirsvarsmaður flutnings manna að hann hefði komið með glymskrattan til Reykja- víkur til viðgerðar. Lögregluþjónninn hafði síð- an samband við tollgæzluna, þar sem talið var aS plötuspil ari þessi væri illa fenginn eða smyglaður. Yfirmaður toll gæzlunnar gaf leyfi til, að lagt yrðj hald á glymskr.attan, þar ti.l löglegir pappírar hefðu ver ið sýndir. Síðar kom í ljós að aðalflutn 'ngsmaðurinn var yfirmaður tollgæzlunnar á flugvellinum, og mun hann hafa haft fullt leyfi til að flytja „gpparatíð:: en ekki gætt að sér og sýnt nauðsynleg leyfi í flugvallar- hliðinu, en leyfin var hann bú inn ,að fá. 'Þessi maður hefur oft te;kið með sér ýmsan varning í bæ inn í greiðaskymi, og flutt hann á tollafgreiðsluna, og mun það hafa verið ætlun hans ,að skila leyfum fyrir þessum flutningi til viðkomandi yf!r valda. Mál þetta mun því vera úr sögunni, og geymskrattinn komast í lag innan tíðar, og verða fluttur á sinn gamla dvalarstað. Veiðiútlit gott í gærkvöldi VEÐUR var gott á síldar miðunum vestur við Jökul í gær, og fóru all'r síldar- bátarnir að kasta, og höfðu lóðað á mikla síld, sem aldrei hefur staðið eins grunnt. Vitað var uih einn bát, sem fékk 500 tunnur í kasti í Jökuldjúp inu. Útlitið var mjög gott í gærkvöldi. enda veður með bezta móti. Má því ætla að nokkuð magn síld- ar berist á land í dag. MMHMMUMtWUMMMMIMV ASKJA liefur haft hægt um sig undanfarna tvo daga, en í fyrrakvöld komu nokkrir menn þaðan og sögðu þau tíðindi, að nú rynni hvítglóandi hraun upp úr jörðinni á tveimur stöð- um. Ekki væri um gos að tala, miklu heldur að hraunaugun líktust uppsprettulindum. j Þeir sem voru þarna á ferð fóru upp eftir á tveimur bílum ; og létu vel af færinu, en snjó- lítið eða snjólaust er nú efra eftir þíðviðri undanfarna daga. Þó eru komnir dálítið háir bakk ar að Gautlandaá. Mennirnir voru uppfrá í björtu veðri. Mikið hraun rennur enn úr goshverunum tveimur, sem ferðamenn telja að raunar geti aðeins verið einn, en hraunið runnið undir og komið svo upp úr gamla hrauninu og myndi hver númer tvö. Hraunrennslið fer ofan á gamla hrauninu og rennur síðan í suðaustur þess hrauns sem komið var og fjall- anna, sem umlykja Öskju að austan. Þar með eru allar leið- ir inn að opinu að lokast. Upplýsingar þessar hefur Alþýðublaðið eftir Pétri Jóns- syni í Reynihlíð. Sagði hann að meðal annarra í þessari ferð, hafi verið Baldur Líndal, en bílarnir úr Köldukinn, frá tveimur bæjum þar j sveitinni. BROTIST ENN I ÍBÚÐ STIKKER París, 16. nóvember. (NTB-AFP). í NÓTT er leið var brotist inn í íbúð D'rk Stikkc.r, fram- kvæmdastjóra Atlantshafsbanda lagsins, í París. Vaknaði Stikk- er við það að tinhver var á ferh í ibúð hans, spratt upp oS þreif í manninn, en hann streittist á móti og tókust þe'r á góða stund. Að ilokum tókst innbrots manninum að slíta sig lausan, hljóp hann á dyr og skellti í lás á eftir sér. Dróst fyFr Stikker að opng dyrnar, en síðan kallaði hann eft'r aðstoð. Ekki tókst þó að stöðva hinn ókunna, enda hafði hann nú slegist í för með meðhjálpara sínum. Skjöl þau, er saknað var úr íbúð framkvæmdastjórans, fann ræstingarkona litlu síðar við inngöngudyrnar. Kvaðst Stikk- er þá vera sannfærður um að þau hefðu ekki verið Ijósmyrid- Framhald á 12. síöa. Þá frétti Alþýðublaðið á Gríms slöðum, að nokkru á undan hafi menn úr Kelduhverfi verið á ferðinni. Stórkostlega hláku gerði nyrðra upp úr helginni og tók af allan snjó í byggð á mánu- dag og þriðjudag, og einnig þiðnaði mikið í fjöllum. í gær var bjartviðri og frost á þess- um slóðum. Pétur tjáði blaðinu að bjarmi frá Öskju hefði sést alla síðastliðna viku og fram á mánudag, en hann hafi nú minnkað. Meðan mennirnir stóðu við hjá Öskju stórjókst hraun- rennslið og virðist því ekkert lát á því, þótt um eiginlegt gos sé ekki lengur að ræða. Alþýðublaðið hafði sam- band við Svartárkot { Bárðar- dál í gærkveldi. Fólkið þar sagði að lítið hefði borið á bjarma frá Öskju í fyrradag og daginn þar áður, en eldar hefðu sést allan síðastliðinn hálfan mánuð. Þetta var jafn ljóshjúpur, sem tók yfir vítt svæði, en stóð ekki hátt. Bjarm inn hafði verið með mesta móli á þriðjudagskvöldið, og spegl- aðist eldurinn þá í vatni, sem er fyrir framan bæinn Svartár kot, eins og gerir stundum í tunglsljósi. Helga bætti úr tiskskorti IIELGA frá Reykjavík er fyrsta skipið, síðan fyr ir heimsstyrjöldina síðari, sem landar íslenzkum fiski í North Shields, segir blaðið „Guardian Jour- nal‘< £ Nottingham. Helga landaði 1000 kössum af þorski og ýsu, Segir blað- ið, að þetta hafi bætt úr miklum fiskiskorti í bæn um, sem stafar af afla- leysi fiskiflotans í North Shields og fárviðri und- anfarið. mmm 42. árg. — Föstudagur 17. nóv. 1961 —- 259. tbl.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.