Alþýðublaðið - 07.03.1962, Side 8

Alþýðublaðið - 07.03.1962, Side 8
Skakkt númer! ÖLL þekkjum við sögur af því, að hringt er í vitlaust númer, þegar við þykjumst vera viss um að gera hið eina rétta. Sú reynzla getur verið talsvert leiðinleg, enda bregst fólk misjafnlega vel við slíkum mistökum. En hafið þið nokkurn tíma heyrt getið um það, að mað- ur hafi hringt í vitlaust núm er en fengið einmitt það sam band, sem hann óskaði eftir. Það höfðum við ekki til skamms tíma, en nú vitum við dæmi þess. Maður nokkur, sem heima átti í Kaupmannahöfn, fann upp á því einn daginn að hringja til gamallar vinkonu sinnar, sem hann hafði ekki haft samband við í fjögur eða fimm ár. Vinkonan átti heima yfir á Jótlandi. Maðurinn tók upp vasabókina sína, fann síma- númerið og bað um persónu- legt samband við vinkonuna. Sambandið fékk hann innan stundar og þau töluðu lengi saman. Áður en þau slitu samtal- inu, sagði vinkonan: ,,Segðu mér, hvernig fói'stu eiginlega að því að finna mig hérna?“ „Nú, það var ákafiega ein- falt,“ sagði maðurinn. „Eg leitaði bara að númerinu í gömlu vasabókinni minni og þar var það svart á hvítu, — „132.“ ” „132,“ hrópaði vinkonan hlæjandi. „Jú, það er alveg rétt, að ég hafði það síma- númer, þangað til fyrir fjór- um árum, en þá flutti ég í annað hverfi í bænum og fékk nýtt númer. Fyrir tveim ur árum, eða svo, kom ný hár greiðsludama í bæinn og hún fékk fyrra númerið mitt. — Nú «r ég einmitt stödd hjá henni í hárlagningu." Þetta er skemmtileg mynd að okkar áliti, mynd úr tveimur heimum, sem snertast, en renna ekki saman. „Steinaldarmennirnir" á myndinni eru Papúar, af þjóöflokki þeim, sem einkum byggir nýju Guineu, landið, sem Hollendingar og In lonesíumenn rífast sein mest um í bili. Papúarnir hafa gaman af þcssum nýtízku farartækjum hvíta mannsins, en þeir hafa enga ágirnd á þeim, nema sem leikföngum. EKKI alls fyrir löngu gerðist það, að maður, sem var í fjallgöngu í Grænlandi, missti fótanna og rann eða kastaöist ofan alla fjallshlíö- ina aftur. Sú Ieið var hvorki meira né. minna en 1.300 fet og erfitt er að ímynda sér að nokkur maður sleppi lifandi frá slíku, en í þetta skipti gerðist það og hér í Reykja- vík var maðurinn tjaslaður saman að nýju. Hér kemur svo hin furðu- lega saga mannsins, skráð af honum sjálfum. Við höfðum farið nokkrir stúdentar úr Bangor College í Wales i þeim tilgangi að kortleggja nokkur fjöll í Stauning-ölpunum í Græn- landi. Við höfðum þegar klif- ið noklcra tinda og gefið þeim nöfn og nú var nýr tindur fram undan. Barry, bróðir minn, og ég, vorum undanfarar í göngunni upp og á eftir okkur komu leiðangursstjórinn okkar Mal colm Lyon, sem við kölluð- um Ben og Ross Barber. Við höfðum hafið gönguna með byrjun nætur, en sumar- nætur í heimskautalöndunum eru ljósar eins og hádagur og við höfðum valið þann tíma sólarhringsins vegna þess, að þá er snjórinn þéttari í sér. í fjórar stundir klifruðum við upp á við eða öllu held- ur lijuggum okkur leið upp ísbungurnar og nú þóttumst við hafa lagt ísinn að baki. Við vorum svo vissir um að fram undan væri auðveldur kafli upp að tindinum, að við leystum reipin, sem bundu okkur saman og fengum okk- ur matarbita. Þegar við stóð um upp aftur, þótti okkur ekki ástæða til að binda okk- ur saman að nýju, við tókum meira að segja af okkur mannbroddana. HÆTTA FRAMUNDAN Þegar við gengum yfir næstu klettabelti, stóðum við allt í einu frammi fyrir ís- fjngri, sem teygði sig ofan frá tindinum og var í vegi okkar. ísfingurinn teygði sig órofinn allt niður á skriðjök- ulinn 1.300 fetum neðar, hann var aðeins 24 fet á breidd, svo að okkur fannst ekki á- stæða til að fara að láta á okkur reipi og mannbrodda að nýju. Harry fór fvrstur og hjó sér fótfestu yfir um og ég gekk í spor hans. Barry komst yfir og ég var aðeins tíu fetum aftan við hann, en þegar ég reyndi á öryggi eins sporsins með tánni, lét það undan og ég féll. Eg hringsnérist, hoppaði og skoppaði og ég hefði átt að vera hræddur, en í stað þess hjó ég ísöxinni í ásinn, hvenær sem færi gafst, en náði aldrei að gera meira en að rispa liann, áður en ég tók næstu veltu. Eg rann hraðar, ísinn brenndi mig, beit mig og reif og ég reyndi að gjalda líku líkt með ísöxinni. Eg fann engan sársauka, allt í einu kastaðist ég á klettanybbu og fann hana skerast inn í kvið- inn á mér. ÖXIN BJARGAR. Eg bvst við því, að það hafi verið öxin, sem bjarg- aði mér. Eg man ekki hvenær ég hætti að renna. Eg man bara, að ég opnaðj augun í ver- öld, sem var alhvít. Eg mundi ekkert í fyrstu, en smám saman kom allt aftur. Eg leit upp og sá ísbungumar yfir mér. Þá fór ég að kalla eins hátt og ég gat, ég öskraði af hræðslu, hræðslu við dauð- ann. Smám saman róaðist ég og gat farið að hugsa rólega um hvað gera skyldi. Það blæddi úr andliti minu en ég fann engan sársauka, ég bjóst við því að vera meira særður annars staðar á líkamanum, en ég ákvað að hugsa ekki um það að sinni. Barry var þegar á leið nið- ur til mín, en þó að hann færi eins hratt og hann gat, var hann þó tvo t inni. Þegar hann 1 gaf hann mér sti sprautu, breiddi 1 mig og rcyndi s\ sér ljóst hvað ge: Útlitið var ekki jafnvel vonlítið, á varð ég að komas deyja, ísöxin hafð illa. Á Grænlandi \ sjúkrahús, næsta byggð var Meistan tán mílur i burtr að komast þangað. Barry sótti hina gefið deyfilyf og í gangan með mig í Þeir urðu að drag á móti fyrst, til yfir fyrir skriðjö! sú ganga var sti bundu reipi um l og drógu mig þ: hægt og hægt. E: stundir var öxlinni gerðu þeir einhv börur úr bakpokui um og bundu mig Alla nóttina var með stuttum hvilí félaga minna fóru til að reyna að hjálpinni, hinir ge gengu, þó að aðt krafturinn einn h uppi. Skyndilega hópurinn, ég varð að allir litu til 1 reisti höfuðið me munum og kom au rauðan depil, sem aði og í Ijós k vængja. Þetta var herf Bandaríkjamönnun henni komu féla sem á undan höfði og námustjórinn vík. Hann hafði sti heyrði um slysið, band við Thule Hún Brigitta standið fyrir sker við lagði við það Franskir karh það sljákkaði í s Brigitte í fylgd n 8 7. marz 1962 - ALÞÝÐUBLA0IÐ i

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.