Alþýðublaðið - 07.03.1962, Síða 15

Alþýðublaðið - 07.03.1962, Síða 15
7 Ben Gorbes sat og hélt á sím anum i hendinni löngu eftir aö A1 Guthric hafðí lokið máli sinu og ekkert heyrðist í sím- anum nema suðið. Hún er lifandi, hugsaði Ben. Carolyn lifandi. Ekki látin. Ekki særð, ekki ráfandi um. Ekki langt undan. andandi, hre.vfandi sig, vakandi og sof- andi. Lifandi. I>að var jafn mikið áfall og þó honum hefði yerið sagt að hún væri látin. Hann sat grafkyrr í stólnum í forstofunni við hliðina á sím- anum. Eft.ir smá stund lagði hann símann frá sér en hann hélt á- fram að stara á hann og minn- ast orðanna sem sögð voru, hug leiddi þau vandiega til að minn ast þeirra ailra. Og smátt og smátt kom í stað örvæntingarinnar yfir að vita ekki hvað hafði komið fyrir Carolyn, annars konar örvænting A1 Cuthrie. Það var einkennilegt. Hann liafði aldrei imyndað sér þenn- an möguleika þegar hann hafði velt fyrir sér hvað gæti hafa komið fyrir Carolyn. A1 Guthrie. Og Lorene. Lorene, góðverkið. sem hann hafði litið á sem aukna reynslu og gleymt. Og hennar vegna var Car- olyn í lífshættu. Ben reis á fætur og gekk um gólf, herbcrgi úr lierbergi af því að hann gat ekki setið leng nr kyrr, hann var knúinn á- fram af þörf til að fara út og gera eitthvað fyrir Carólyn. En hann vissi ekki hvað hann ætti að gera. I>að var nauðsynlegt að hugsa. Carolyn var lifandi. Hún ■ var ekki látin. Hann.hafði verið viss um það, já hann hafði verið far- inn að sætta sig við að svo væri, en hún var ekki látin. Hún var iifandi og það var á hans valdi að bjarga henni. A1 Guthrie hafði sagt það ,,Það er á þínu valdi Forbes. Og mundu þaö“. hafði hann sagt, ,,að ég vil fá Lorene aftur en fái ég hana ekki er mér sama hvort ég lifi eða dey. Mér er sama hvað kemur fyrir mig og ég get ger: hvað sem ég vil. Þú getur ekki barist við mig Forbes svo þú skalt ekki re.vna það. Og reyndu ekki að hringja á lögregluna, ég lief fengið nóg af lögum og rétti í mínum viðskiptum við þig“. Á hans valdi. Það fór hrollur um Ben. Hann varð að gera eitt hvað en ef hann gerði eitthvað rangt gæti Guthrie drepið Car olyn. Guthrie, Guthrie. Ben settist aftur niður og tók með báðum höndunum um höfuð sér. Honum var illt af liatri. Húð hans var rök og gljáandi og hann andaði ótt og títt. Hann vildi drepa. Hann þyrsti eftir blóði. Guthrie. Veslings Carolyn, veslingurinn. Að lifa við þennan ótta allan þennan tíma, að vera rænt, hótað misþyrmt . . . Misþyrmt. Þar var Guthrie í essinu sinu. Hann hafði svarið Ben að liann hefði ekki snerl Caroiyn og ef til vill meinti hann hað á sinn hátt. Ben trúði þvi. En hann minntist stórra handa Guthrie og útlits Lorene eins og hún hafði verið þegar liann fyrst sá hana. Ef hann hefur svo mikið sem snert hana með litla fingri hugs aði Ben skal ég drepa hann. Ég drep hann allavega, þenn an ógeðslega tikarson. . . Svona nú. Svona nú. Tilfinningarnar voru ekki til neins. Það var erfitt að neita sér um alla tilfinningarsemi en líf Carolyn var undir því komið og hann varð að gera það. Rólegur. Hugsa rökrétt. Hugsa um livað væri bezt að gera. Hann vissi hvað hann átti að gera. Hann ætti að liringja til Erine MacGrath og segja hon- um hvað hefði skeð. Ernie, eða réttara sagt lögreglan myndi biðja um hjálp FBI þar sem þá vissu þeir fyrir víst að um mann rán væri að ræða og þá þyrfti FBI ekki lengur að bíða í heila viku. Allur þessi hópur reynslu og æfingar mvndi beinast að einu markmiði. Þeir myndu vafa- laust finna Carolyn. ,,Ef löggan kemur“, hafði hann sagt, ,;er þetta búið kunningi ég byrja á henni Carolyn þinni og held svo áfram“. Og Carolyn yrði látin þegar þeir fyndu hana. Ef til vill meinti Guthrie þetta ekki. Ef til vill var hann aðeins að monta sig og njóta valdsins með því að segja: „Ég er ósigr- andi af því að það skiptir mig engu máli hvort ég lifi eða dey og þú getur ekki ógnað mér með neinu“. Ef til vill myndi hann ekki tala svona þegar hann stæði frammi fyrir byssukjöfun- um. Það eru margir þeir menn til sem tala svona og gefast svo upp bljúgir sem börn þegar á hólminn er komið. En margir þeirra gefast ekki upp. Þeir meina hvert orð. Og maður með gisl er í sterkri að- stöðu. Hver þorir að leggja líf að veði fyrir því að A1 Guthrie sé að blekkja? Ekki líf Carolyn, hugsaði Ben Ekki ég. Ernie MacGrath fengi ekki að vita það. Hann mátti ekki einu sinni gruna það. Ekki fyrr en öll von væri úti. Gott og vel. Hvað þá? Finna A1 Guthrie. Hann var einhvers staðar með hana — í húsi, íbúð, herbergi, einhvers staðar. Sennilega *ekki langt undan. Þetta hafði verið innanbæjarsamtal. Þó þurfti það ekki að benda til að hann væri í borginni því hann hefði getaö ekið þangað til að hringja. En hann gat varla hafa farið of langt með hana. Finna A1 Guthrie, drepa hann og koma Carolyn undan. Hvernig? Ben vissi um þrjú heimilis- föng Guth'-ie síðan Lorene hafði fyrst komið til hans, íbúðina. sem þau höfðu búið í og sem hann sagði upp þegar Lorene fór frá honum og tvo matsölu- staði. En hann vissi að Guthrie bjó þar ekki lengur því Lorene hafði sagt honum það. Hún hafði vonað að hann væri farinn úr borginni. Guthrie hefði varla farið með Carolyn á stað þar sem hann hafði búið áður og þar sem all ir þekktu hann. En ef til vill hefði. hann sagt eitthvað skilið éftir sig einhver þau ummerki að hægt væri að rekja slóð hans. Ef Ben aðeins gæti komist að því . . . Hann átti að segja Ernie Mac Grath það. Hann vissi það. Lög- reglan gæti auðveldlega rakið spor Al Guthries. En Guthrie myndi komast að því. Hann myndi lesa dagblöð- in og fyrstu ummerki um lög- regluieit myndu enda líf Car- olyn. Þetta var einmitt eitt af þessum málum sem blaðamenn- irnir elskuðu. Það var aldrei hægt að reiða sig á að þeir þegðu. Um leið og maður talaði af sér sjálfur, hætti að gæta sín vandlega, var öllu lokið. Og Guthrie hafði Carolyn á sínu valdi eins og skjöld sinn. Líf hennar tryggði honum ör- yggi. Það gat verið að Ben einn gæti ekki gert mikið en honum virtist samt að hann gæti gert meira en lögreglan. Hann varð að hætta á eitthvað. Það sem Gutlirie bað um var jafn ógjörlegt og að sækja handa honum tunglið. Lorene myndi aldrei fara aftur til lians. Aldrei og hvergi. A1 Guthrie hafði sjálf ur séð um það. Og hvernig átti hann þá að fara að því að finna A1 Guthrie? Svarið lá í augum uppi. Tala við Lorene. Ben stökk á fætur: Skyndilega lá honum mikið á. Hann fór i frakka og setti á sig hatt og gekk til dyra. Áður en hann var búinn að opna nam bíll Ernie MacGrath staðar fyrir framan húsið. Ben hljóp inn í forstofuna, reif sig úr frakkanum og hattinn af höfði sér og henti þeim inn í skáp. Hann heyrði dyrabjölluna hringja en liann varð að bíða til að jafna sig svo liann gæti opn- að fyrir Erine og þegar hann tal aði við hann var andlit hans stíft og óeðlilegt eins og pappa- gríma. Ernie sagði: ,,Ég er á heim- leið. Mér fannst ég mega tú með að líta inn til þín og vita hvernig þér liði“. „Komdu inn“, sagði Ben. Hann gekk inn í setusofuna. „Viltu eitthvað að drekka?“ 8 Hann langaði ekki til að líta á Ernie. Ernie sagði: „Nei, þakka þér fyrir.“ Hann settist. „Það hefur ekkert frétzt. Hefur þú frétt nokkuð?“ Hitabylgja fór um andlit og háls Bens. Hann langaði til að segja? „A1 Guthrie rændi henni, í guðanna bænum finnið hana og komið með hana aftur til mín En hann sagði hinn rólegasti. „Nei, ég hef ekkert heyrt“. Hann var að þegja yfir árið- andi lieimildum. Hann var að hel'ta rannsókn lögreglunnar af fúsum vilja. Það var voðalegt^ af lögfræðingi að haga sér svona En hann var ekki lögfræðingur þegar Carolyn átti í hlut. Þá var liann eiginmaður, sem elsk aði konuna sína. „Það er einkennilegt“, sagði Ernie. „Venjulega er einhver á- stæða fyrir því þegar þær hverfa svona“. „Ég er búinn að marg segja þér að Carolyn hafði engar á- stæður til að hverfa". „Ég veit það. Ég sagði aðein að það væri einkennilegt. I>.: i kemur að vísu oft fyrir að minn islaust fólk finnst í mörg hundr uð mílna fjarlægð frá heimili sínu. Ertu viss um að hún hafi ekki haft peninga með sér?“ „Þá sást sjálfur að veskið henn ar var í kommóðunni“. „Já, ef til vill hefur liún feng ið að sitja í hjá einliverjum. Ég vona að hún komi til for- eldra sinna“. „Hún hefur ekki komið þang að enn. Þau hringja oft á dag. * Ernie andvarpaði. „Við verð- um víst að bíða og sjá til. „Hann leit í kringum sig í setu- stofunni. „Þetta er eins og lík- húsi. Heyrðu Ben því kemurðu ekki heim með mér? Ivy er all‘ af að biSja mig um að taka þig með heim og ég sagði henni að þú færir aldrei frá símanum en einhvern tímann verðurðu að gera það. Þú geggjast ef þú situr sérna allaf“. „Þakka þér fyrir Ernie. Ekki núna“. 5 ; „Ég skal aka þér snemma heim“. Ben hristi höfuðið þrjózku- fullur og leit á gólfið. „Þá það“, sagði Ernie. „Ein- hvern tímann seinna þá”. „Þaklca þér fyrir”, sagði Ben og skammaðist sín. Hann beið þangað til Ernié var horfinn. Þá fór hann aftur í frakkann og setti á sig hatt- inn. Evian .... Framhald af 3. síðu. leyti hún skuli skipuð frönskum hersveitum eða Serkjum ein- göngu. AFP hermir, að sendinefnd Frakka sé komin til Evian, en áð ur var sendinefnd Serkja komin til Genfar. Auk Joxe Alsísráð- herra voru Buron og de Broglie í sendinefn Frakka. Formaður als írsku nefndarinnar, Krim utanrík isráðherra sagði við komuna til Genfar, að vonandi næðist varan leg, viðunandi og farsæl lausn á vandamálinu. MOSKVA: Krústjov hefur gagnrýnt verksmiðju, sem áður framleiddi uppskeruáhöld og hef ur nú tekið upp framleiðslu einka bifreiða „sem Sovétríkin geta án verið“, að því er Tass fréttastof- an segir. -4- -' BONN: Hinn umdeildi Moskvu-senriiherra Vestur-Þjóð- verja. Hans Kroll, kom til Bonn á þriðjudagskvöld og vildi ekkert við blaðamenn segja; Kroll mun ræða við Schröder utanríkisráð- herra í dag. Kroll neitaði því, að hann væri hoðaður á fund 4-deii- auers. m VILJUM GJARNAN SENDA YÐUR BLAÐIÐ HEIM. ÁSKRIFTAR- SÍMI OKKAR ER 14-900. ALÞÝÐUBLAÐIO - 7. marz 1962 15

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.