Alþýðublaðið - 23.03.1962, Side 15

Alþýðublaðið - 23.03.1962, Side 15
Það var haldinn vörSur við hús Kratich allan sólarhringinn og maður varð á verði í íbúð Lore'ne. Hreppstjóranum hafði verið tilkynnt um málið og leit var hafin að bíl sem líktist bíl Guthries og sæist hann mynd; tilkvnning send logreglunni án þess að nokkuð yrði gert í mál- inu án vitundar Bens. Þeir vildu ekki að Carolyn Forbes yrði drepin vegna umferðar- kæru. Nú hafði allt verið gert sem unnt var að gera unz þeir fengju eitthvað nýtt að vinna að. Þeir settust allir niður hjá Ben Forbes og biðu þess að sím inn hringdi. 19 V Lorene Guthrie sat líka og beið. Hún beið þess að A1 kæmi og dræpi hana. Kratich húsið var stórt og gamalt, herbergin stór og kassa löguð og gluggarnir náðu næst- um niður að gólfi. Því var hald ið vel við. Vern og eldri bróð- ir'hans, Nick, sáu um það. Þeir þjuggu þar báðir, Vern af því gð hann var piparsveinn og Nick af því að hann var ekkjumaður. Það var líka annar bróðir og tvær systur en þau voru öll gifi: ■ og bjuggu í eigin husum. Lor- ene hafði hitt þau en hún þekkti þau lítið. Hún liugsaði aðeins um Vern. Núna var hún á heimili þeirra alveg eins og hún væri gift Vcrn. Og skyndilega var ekk ert þessa raunverulegt. Ekki einu sinni Vern. Þetta var eins og þegar hún var lítil og úti í garði að leika að , hún væri prinsessa og hundur- inn væri töframaður og hún gæti fengið allt sem hún girnt ist og pabbi hennar kallaði út. um bakdyrnar og sagði henni að • koma strax og gera eitthvað og hún var aðeins hún sjálf, ber- . fætt og óhrein. Allt hafði gengið svo vel og hún hafði verið svo hamingjusöm og hún hafði gleymt A1 og svo kom herra For bes og allt varð ljótt á ný. Og þetta var raunveruleikinn, Hún var ennþá konan hans Als og hann vildi ekki sleppa henni. Hún hnipraði sig saman í stóra stólnum í svefnherberginu sem hún hafði verið látin í. Regnið lak piður glugggna. Rauðu rós- irnar á veggfóðrinu líktust blóð blettum. Hún hafði sagzt ætla að sofna en hún gat ekki sofið þó hún hefði tekið inn svefn- meðal. Hún var aðeins þreytt og sljó og lasin en óttinn og hugsanirnar kútveltust í höfðinu á henni. Svo hún sat kyrr í stóru heitu herberginu klædd í rósóttan slopp scm hún hafði eklci bundið að sér og keðju- reykti og hugsaði um dauðann. Það var lögreglumaður á verði niðri og.fleiri fyrir utan. Þeir myndu sjá til þess áð A1 næði ekki í hana. Það sögðu allir og ef til vill trúðu þeir því líka en þeir þekktu ekki Al. Hann kæmist að því hvar hún var og sækti hana og enginn lög reglumaður í heiminum gæti komið í veg fyrir það. A1 var stór og stérkur og hann var eins slunginn og api þegar hann var reiður. Hún liafði séð hann fyrr þegar honum fannst hann þurfa að hefna sin 'á einhverjum, þá sat hann og hugsaði og drakk og drakk og hugsaði þangað til hann gerði eitthvað af sér. Ekk ert gat komið í veg fyrir að hann gerði það sem hann ætl- aði sér. Honum var sama þó hann missti vinnuna eða þó þeim væri lient út þar sem þau bjuggu. Ef hann varð reiður við einhvern varð sá hinn sami að þola refsinguna hvað sem það kostaði. Núná var hann alvöru reiður og hún myndi deyja. A1 myndi einhvern veginn komast inn í húsið. Hann myndi koma upp stigann og opna dyrnar og standa og virða hana fyrir sér eins og hanji gerði alltaf þegar hann var reið ur með skínandi björt augu og kjálkana framsettá. Svo myndi liann ganga til hennar og draga hana út úr stólnum með sínum stóru höndum og berja hana. stynjandi og talandi meðan hann barði og og hann myndi ekki hætta. Hann myndi berja hana þangað til hún lægi al. blóðug á bláu gólfteppinu. Hún stuni og réri sér fram og til baka. Engum þykir vænt um m'ig, hugsaði hún. Þessum hryllilega mánni sem sagði að ég yrði að vera hérna kyrr honum stendur á sama hvað um mig verður bara ef hann fær það sem liann vill. Eins er með herra Forbes. En ég hélt að Vern þætti vænt um mig. Hann var alltaf að segja við mig: „Þú ert bara krakki Lorene ég skal hugsa um þig.” Af hverju gerir hann það þá ekki? Af hverju fer hann ekki eitthvað með mig þar sem ég er örugg? Hann sagði mér oft að ég væri ung. Og falleg. Er honum alveg sama þó ég deyji? Hún tók með báðum höndum undir brjóst sín, þessi þungu fallegu brjóst sem hún hafði verið svo hreykin af. í fyrsta sinn sem hún liitti A1 Guthrie hafði hann komið inn í mjólkur búðina til að fá brauðsneið og kaffibolla og hún hafði hallað sér fram yfir borðið í þunna hvíta sloppnum sínum og hann liafði starað niður um V-lagað hálsmálið eins og hann tryði ekki sínum eigin augum. Svo hafði hann litið upp í augu henn ar og spurt hana hvað hún héti og þá hafði hún vitað að hann kæmi aftur. Henni fannst hún vera fullorðin þegar svona stór maður eltist við hana. Hún var þreytt á strákunum í þorpinu, mjólkurhvítum og ferskum sem töluðu ekki um annað en hlöð- ur. Og A1 fékk góð laun fyrir að aka vörubil. Þegar hann bað hennar hafði hún ekki hugsað sig tvisvar um áður en hún sagði já. Pabbi hennar hafði bara sagt gangi þér vel en mamma lienn- ar hafði hrist höfuðið: ,,Mér lízt ekki á hann“, sagði hún. „Hann er vondur maður“. Og Lorene hafði svarað: „Þú veizt um hvað *þú talar þú giftist pabba“. Og þá hafði mamma hennar orðið reið og sagt: „All í lagi góða en komdu ekki hlaupandi heim seinna“. Og þegar Lorene hafði komið heim komst hún að því að mamma hennar hafði meint hvert orð. Svo hún hafði alltaf farið aftur til Als. Hún strauk yfir mjúka boga- línu mjaðma sér og roðnaði. Ef til vill hafði ástæðan lika verið önnur. A1 hafði ekki alltaf ver ið svo slæmur. Að einu leyti hafði hann haft dálítið sem Vern hafði ekki. ^ Skildi Vern sleppa sér eins og A1 ef hún færi frá honum? Það er þessi lögregluþjónn, þessi Packer, hugsaði hún. Vern hefði farið með mig liéðan ef liann hefði ekki verið. Hann hafði vakið hana og far ið með hana til Paekers. Og Paeker hafði spurt hana og spurt hana um Al, spurt hana þangað til hana langaði til að veina. Og svo hafði liann sagt henni hvernig hann ælaði að gæta hennar. „En ég verð að komast héð- an“, sagði hún og hugsaði um A1 sem var alls staðar að leita hennar. „Vern fer með mig héð an. Ég held að þér skiljið þetta ekki frú Guthrie. Eiginmaður yðar hefur rænt frú Forbes og lieldur henni sem gísl til að fá yður aftur. Hann hefur hótað að drepa hana ef kröfum hans sé ekki framfylgt. Vitanlega er það ekki hægt en — Hún greip fram í fyrir hon um, rödd hennar var skræk og skar eyru hennar að innan: „Þér ljúgið. Þér ætlið að neyða mig að fara aftur til hans. Þér ætl ið að nota mig til að veiða hann“. Packer leit á hana eins og hún inætti skammast sín. „Svona nú frú Guthrie þér vitið að það , kemúr ekki til mála“. En liún skammaðist sín ekki, alls ekki’. „Af hverju er ég þá neydd til að vera hérna?“ gargaði hún og Vern lagði höndina á öxi hennar og sagði henni að vera rólegri. / Packer sagði: „Það má vel vera að líf annarrar konu sé undir því komið hvort þér eruð hér kyrr eða ekki. Þér verðið ekki látnar stofna yður í neina hættu en þér eruð undirstöðu- atriði þessa máls og það getur farið svo að við þörfnumst hjálpar yðar. Ég er sannfærður um að þér munið ekki hika við að veita hana ef þörf krefur“. Vern tók fast um öxl henn- ar og Vern sagði: „Vitanlega gerir hún allt sem henni er unnt. Hún er aðeins æst og lirædd og veit ekki hvað hún er að segja“. ,,Það er gott“, sagði Packer. „Við gætum haldið henni hér sem aðalvitni málsins en ég vona að það verði ekki nauðsynlegt". Svo fór hann og hún veinaði: „Af hverju gerðirðu þetta Vern? Af hverju skýrðirðu ekki fyrir honum að ég verð að fara héðan?“ „Af því“, sagði hann með ein kennilegri röddu sem hún hafði aldrei hevrt hann tala í fyrr, ,.að ég veit að þegar þú hefur hugsað málið viltu ekki fara“. Og hann var svo hörkulegur á svipinn að liún þorði ekki að segja meira heldur fór að hátta þegar hann sagði henni að gera það. En hún gat ekki farið að sofa. Hún gæti aldrei sofið meðan “hún var í Woodley og A1 á hæl- unum á henni bíðandi eftir að ná henni. Og þessi maður, þessi Pac- ker, hann myndi standa álengd ar og láta hana gera eitthvað voðalegt. Ég get það ekki, hugsaði hún. Ég get það ekki! Hún stökk á fætur, reif sig úr sloppnum og hóf að klæða sig. Fáeinum mínútum síðar var barið að dyrum og hún veinaði af skelfingu. En það var bara Vern. „Mér heyrðist ég heyra til þín sagði hann. Hún sat fyrir framan spegilinn og tætti og sleit í hárið á sér. Henni var alveg sama hve sárt það var. „Svo þú ert enn ákveðin í að fara?” sagði hann. Hún fór að gráta og barði með krepptum hnefunum í marmara- plötu snyrtiborðsins. „Ég 'skil þig ekki. Ég hélt að þú elskaðir mig”. „Ég elska þig, Lorene”. „Af hverju viltu þá að A1 drepi mig?“ Hann andvarpaði og tók með liöndunum um axlir hennar og leit á spegilmynd hennar. „Treystirðu mér alls ekki?“ Hún vissi að hún áttia að segja já, en hún gat aðeins hvísl- að: „Ég verð að komast liéðan”. Hann hristi höfuðið. „Þú heyrðir hvað Packer lögreglu- foringi sagði. Þú veizt að það er satt. Þú getur ekki hlaupizt á brott'*. „Þeir vilja að ég fari aftur til hans“, sagði hún. „Það er ekkl réttlátt". „,í guðanna bænum“, sagði hann óþolinmóður. „Þú ert ekk- ert barn lengur. Hættu að þaga þér eins og smákrakki". ( Hjólreiöar á víbavangi Hjólreiðar hafa veriö iðlc- aðar hér á landi, en víða er- lendis er íþróttin mjög vin- sæl. Myndin er tekin í Eng- iandi og er úr hjólreiða- képpni á víðavangi. Kappinn heitir John Atkins og er 19 ára og að sjálfsögðu sigraði hann í keppninni. ALÞÝOUBLAÐIÐ - 23. marz 1962 X9

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.