Alþýðublaðið - 24.03.1962, Blaðsíða 1
k BÆ INGÓlfS?
ÞESSI mynd yar tekin í
gærkvöldi vi'ð húsið á Ilverf
isgötunni þar seip útvarps-
stöðin fannst. Má greinilega
sjá hinn mikla - fjölda af
leiðslum og loftnetið, sem
eru á þaki hússins, Þrjár
leiðslur liggja frá glugga
leigjandans, ein úr kjallara
frá sendinum og auk þess er
43. árg. — Laugardagur 24. marz 1962 - 70. tbl.
loftnet utan á húsinu. Öllu
var þessu liaganlega fyrir
komið og auðséð að vanur
maður hafði unnið' að.
ÞEGAR grafið var fyrir Steindórs
prentshúsinu við Tjamargötu var
komið niður á fornt öskulag og
fundust þar kinda- og stórgripa-
bein, sem í var kominn fúi. Getum
var að því leitt, að hér hefðu fund-
izt leifar af bæ Ingólfs Arnarson-
ar. Matthías Þórðarson, þáverandi
þjóðminjavörður, skoðaði fund-
inn, og var ætlunin að rannsaka
þetta nánar, — en af því varð
ekki, þar eð slík drift var í hús-
byggingunni, að húsið var komið
upp áður en fornminjafræöingarn
ir höfðu áttað sig.
Þorleifur Eyjólfsson, husateikn
ari, sem teiknaði Steindórsprent
skýrði frá þessu í viðtali við Al-
þýðublaöið í gær. Sagði hann, að
beinin og askan hefðu einkum ver-
ið í því horni, sem næst er Her-
kastalanum.
inn hefði verið byggður á grunni
tveggja eldri húsa, — og ekki hefði
verið grafið djúpt í jörð.
Beinin, sem fundust, þegar graf-
ið var fyrir Steindórsprenti eru á ;
Þjóðminj asaf ninu.
miðjleifaði í
Lögreglan stöövaöi útsendingar í gærkvöldi:
LEYNILEG
Það var árið 1944, sem Stein-
dórsprent var byggt, „og lætin
voru slík í Steindóri við bygging-
una, að hann mátti ekki vera að
því að bíða eftir neinum forn-
leifarannsóknum”, sagði Þorleif-
ur.
Alþýðublaðið átti í gær tal við
Einar Erlendsson, húsam., sem
teiknaði Herkastalann og spurði
hann, hvort einhverrar ösku eða
gamalla beina hefði orðið vart,
þegar liann var byggðpr. Kvað
hann ekki svo vera, en Herkastal-
í GÆR vildi það slys til á Þórs
götu 12, að maður, sem var að
bora fyrir handriði, féll niður á
stigapall og meiddist á höfði.
Hann var fluttur á Slysavarðstof
una.
í gær varð einnig það slys, að
maður féll á milli skips og
bryggju úti við Faxagarð. Hann
var fluttur á Slysavarðstofuna.
LÖGREGLAN í Reykjavík fór í gær
kvöldi um klukkan 11 í hús eitt við
Hverfisgötuna og stöðvaði þar út-
sendingar hjá ólöglegri útvarpsstöð,
sem hefur starfað undánfarin kvöld
og síðast í gærkvöidi.
Er lögreglan kom á staðinn, var
„útvarpsstjórinn“ ekki við, en við
leit fannst mjög sterk sendistöð,
sem var haganlega fyrir komið í
stóru borði. Sendirinn sjálfur
var I kjallara liússins og lágu
leiðslur og loftnet upp á þalt húss
ins.
Það var fyrir 2 — 3 dögum að
I því var veitt eftirtekt, að ný stöö
hafði hætzt við á miðbylgjum og
! útvarpaði hún danstónlist frá
! klukkan 1Q á kvöidin til klukk-
: an 1 eftir miðnætth Jafnframt
voru lögin að nokkru kynnt.
í gærdag frétti ^lþýðublaðið
um þessa útvarpsstöð,;og hafði þá
samband við starfsinjenn ríkisút-
varpsins, en þeir vissji ekkert um
hana. Var þá haft samband við
Sigurð Þorkelsson, yfirverfræð-
ing hjá Landssímanum og hafði
hann frétt um þessa stöð á há-
degi í gær, og gert til þess nauð
synlegar ráðstafanir að hún yrði
mæld út.
Um klukkan níu í gærkvöldi
byrjaði svo stöðin að senda út,
og fóru þá menn frá símanum á
Stúfana, og um klukkan 10,30
hafði þeim tekizt að finna húsið.
sem stöðin var í. Blaðið fylgdist
með þessari leit, og kom á vett
vang um sama leyti og lögregl-
■an.
Við leit í húsinu fundust tæki
þessarar dulafullu útvarpsstöðv-
art og voru þau í herbergi leigj
anda í húsinu. í kjallara liússins
fannst svo sjálfur sendirinn. Var
iUWUUWWAWJVWWUWWWWWWWWMWWWMWiWMWWMHUWWWWWWWWWMWWWiWUWUHW
Er knatt-
spyrnan dsuö
á Akranesi?
þarna um að ræða segulbönd og
plötuspilara, og reyndist stöð-
in vera mjög stcrk.og öll vel úr
garði gerð.
Er lögreglan kom á staðinn var,
eins og fyrr segir, „útvarpsstjór-
inn“ ekki við, en eflir hálftíma
bið kom hann heim. Kvað hann
þetta hafa veriö tómstundaiðju
sína og hafði hann lagt tugir þús
unda í það að koma stöðinni upp.
Ekki er blaðinu kunnugt um til
gang mannsins með þessum út
sendingum, sem heyrðust mjðg
greinilega á miðbylgjum rétt við
Kcflavíkurstöðina.
Eins og kunnugt er, þá er ó-
heimilt að stunda svona „útvarps
rekstur", og yfirvöldunum heim-
ilt að gera öll tæki slíkrar stöðv-
ar upptæk. Ekki er b’lðinu kunn
ugt hve liart verður tckið á þessu
broti mannsins.
VEIÐAR gengu vel í gær hjá
bátum hér sunnanlands. Flestir
bátanna eru nú komnir með net
og er afli þeirra að meðaltali 7
til 10 tonn í róðri.
Nokkrir bátar fengu síld í fyrrl
nótt, en síldir var hæði stygg og
stóð djúpt. Bát.arnir munu verið
hafa að síldveiðum í nótt.