Alþýðublaðið - 24.03.1962, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 24.03.1962, Blaðsíða 10
Dauft yfír iþrótfalífinu á Akranesi: Ritstjóri: ÖRN EIÐSSON VIÐ HRINGDUM í Helga Daníels- son, knattspyrnumann og frétta- ritara Alþýðublaðsins á Akranesi í gær, til að leita frétta af æfing- ; um Akranesliðsins, en Akranes hefur af mörgum með sanni verið nefndur knattspyrnubærinn. — Akranesliðið lék til úrslita í I. deild í fyrra gegn KR og tapaði, en 1960 sigruðu þeir. — Hér er ekkert æft, sagði Hclgi og mín skoðun er sú, að vafasamt sé, hvort Akranes getur stillt upp liði í I. deild í sumar. Sveinn Teitsson og Jón Leósson eru hættir og vafasamt hvort Kristinn Gunnlaugsson, Jóhannes Þórðarson eSa Skúli Hákonarson verða með. Þórður Jónsson stend- ur í húsbyggingu og æfir ekkert. |/MtWHMMMMHHHWMMW Á myndinni eru þrír af knattspyrnumönnum Akur- nesinga síðustu árin. í miðj- unni er Helgi Daníelsson, markvörður en t. h. er Sveinn Teitsson, sem nú er hættur og Kristinn Gunn- laugsson, en hann hefur ekk ert æft til þessa og er senni lega einnig hættur. Helgi sagði ennfremur, að a fyrstu - æfingar meistaraflokks, 11. flokks og 2. flokks, sem æfa sam an, hefðu mætt 10 til 12, en síðan ' hefur stöðugt fækkað, gott þætti nú, ef 3—4 mættu og á sumar æf- ' ingar hef ég aðeins komið einn. Helgi Hanpesson og Ingvar Elís- son hafa sýnt töluverðan áhuga, 1 en nú eru þeir að gefast upp, t. d. sagði nafni nýlega, að ef þetta breyttist 'ekki til batnaðar á næst- unni, myndi hann steinhætta. — Helgi sagði, að mikill áhugi væri í 3. og 4. flokki. Okkur þykja þetta sorglegar fréttir og vonandi taka Akurnes- ingar sig á og hrista af sér slenið. ★ DAUFT í ÖÐRUM ÍÞRÓTTAGREINUM Við spurðum Helga, hvort áhugi væri meiri í öðrum greinum og kvað hann svo ekki vera. Tölu- verður áhugi hefði verið á frjáls- íþróttum í fyrra, en nú væri ekk- ert æft. í sundinu sýndu nokkrir unglingar áhuga en þeir eldri væru hættir. Töluverður áhugi | hefði verið fyrir handknattleik fyrir áramót, en nú færi bann minnkandi. tMWwvvmwwwtwvww 5 landsleik- ir ákveðnir AD UNDANFORNU hafa staðið yfir samningaumleit- anir við ýmsa erlenda aðila um landsleiki í knattspyrnu á þessu ári og hefur nú ver- ið gengið frá samningum um eftirgreinda leiki, sem ís- land tekur þátt í á komandi sumri: ísland —Noregur í Reykja- vík 9. júlí. ísland B—Færeyjar í* Reykjavík 3. ágúst írland—ísland í Dublin 12.; ágúst. ísland—írland í Reykjavík 2. september. sland—Hollenzku Antil- & eyjarnar í Reykjavík 16. sept. WWWWVWÆtWWWWW wwwwwwwwwww Innanhússmót í knattspyrnu wttttttHtttttttwmttttttv . bttttttttttttttttttiwttttttv KNATTSPYRNUSAMBAND ís- lands á 15 ára afmæli um þessar mundir, en það var stofnað hinn 26. marz 1947. Af því tilefni tekur stjórn K. S. í. á móti gestum í íGlaumbæ, Frík'irkjuveg 7, n. k. mánudag 26. þ. m. milli kl. 3JA og 5 e. h. í tilefni afmælisins verður stofnað til knattspyrnumóts,, inn- anhúss, og fer það fram í íþrótta- húsinu að Hálogalandi mánudag- inn 26. og þriðjudaginn 27. þ. m. og hefst kl. 8.15 e. h. báða dag-i ana. Þátttakendur eru: KR Valur Fram Víkingur Þróttur í B K Keflavík Haukar Hafnarfirði Reynir Sandgerði Aftureiding, Mosfellssveit Breiðablik, Kópavogi. Keppt verður um verðlauna- grip, sem gefinn er af K S í. Reykjavíkurmótið í svigi fer fram í dag í Hamragili við ÍR- skálann. Keppnin hefst kl. 3, en alls eru skráðir um 80 keppendur. Þetta er fjölmennasta skíðamót hér sunnanlands til þessa og búizt við mjög spennandi keppni. Bíl- ferðir eru frá BSR kl. 14. flokki karla og síðan mætast KR in getur orðið mjög spennandi. Körfubolti um helgina MEISTARAMÓT íslands í körfu- knattleik heldur áfram að Háloga landi í kvöld og hefst keppnin kl. 8.15. Háðir verða tveir leikir, fyrst leika KFR og Ármann í 3. flokki karla og ðísan mætast KR og ÍS í meistaraflokki karla. Sá leikur ætti að geta orðið mjög skemmtilegur. Mótið heldur svo áfram annað kvöld á sama tíma. Þá leika Ár- mann og ÍS í I. flokki karla og síðan ÍR og KFR í meistaraflokki karla. KFR og ÍR eru bæði tap- laus og hafa því möguleika á ís- landsmeistaratitlinum. Viðureign- in getur því orðið mjög spenn- andi. Fyrsti heiðurs- félagi Þrótfar Á fimmtudagskvöldið var haldin árshátíð Knattspyrnu- félagsins Þróttar í Klúbbn- um við Lækjarteig. Myndin er tekin á árshátíðinni, en þá var frumkvöðullinn að stofn- un félagsins, Halldór Sigurðs- son, gerður heiðursfélagi. F.r hann jafnframt fyrsti heiðurs félagi Þróttar. Til vinstri er varaformaður Þróttar, Óskar Pétursson. ;?4. mar;z l^62 - ALÞÝÐ.IJBLAÐID fHHHWHVHHHWUmWHHtHHVHVmmmmmUHV

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.