Alþýðublaðið - 24.03.1962, Side 4

Alþýðublaðið - 24.03.1962, Side 4
ERLEND TIÐINDI Guðni Guðmundsson: Peron SÁ ÓVÆNTI atburður gerðist um síðustu helgi, að Perón, fyrr 'verandi einræðisherra Argentínu vann mikinn kosningasigur, án þess að koma þar nokkurs staðar 'nærri. Niðurstaðan af kosningun rúm hefur orðið sú, að lýðræði 'liefur a.m.k. um stundarsakir, ver ið afnumið í landinu, herinn er ‘tiibúinn til aðgerða og Frondizi forseti hefur eftir langa umhugs un ákveðið að ógilda kosningarn ar. Hik Arturos Frondizi forseta er sérlega vel skiljanlegt, þegar rþað er haft í liuga, að allan tim- ann sem Perón sat að völdum, -Var hann mjög einbeittur and- stæðingur hans og hefur alltaf verið einn helzti forvígismaður lýðræðis í landi sínu. Það hlýtur því að vera sárt fyrir hann að þurfa að taka slika ákvörðun sem «ð afnema lýðræði. .Spurningin er þá: hvers vegna gerir hann það? Til þess að svara þeirri spurn- ingu þarf að fara nokkuð aftur •í timann, eða til ársins 1955, cr 'Perón var steypt af stóli. Perón studdist mjög við verkamenn á §ínum tíma og var fyrri kona lians m.a. einn helzti verkalýðs íoringi landsins. Hann hélt fylgi ■verkamanna með alls konar íviln unum þeim til handa, sem sumar hverjar voru keyptar því verði að setja efnahagslíf landsins úr skorðum. Síðasta verk hans, áður en hann flýði, var svo að hirða mestallt handbært fé ríkisins, enda hefur hajja.-iiö<9 góðu lífi síðan, nú síðasÍÍppájJ. Frondizi féb'lt vanþakk láta verkefni, er Kahn tók við for setaembætti, að lireinsa til í efna hagslífi þjóðarinnar. Það hugð- ist hann gera fyrst og fremst með því að styrkja gjaldmiðilinn, þ.e. a.s. með sparnaði. Hann var á sínum tíma kosinn með stuðningi kommúnista og perónista, auk síns eigins flokks Hins ósættan lega radíkalaflokks. Þegar efna hagsráðstafanir hans fóru að verka, kom fljótlega í ljós, að hvorki kommúnistar né perón- istar voru ánægðir. Árangurinn varð sá, að liann varð að víkja af þeirri stefnu sem hann hafði markað sér og var raunverulega mjög líkleg til þess að bjarga við þjóðarbúskapnum. Við tóku hrossakaup og smábreytingar á stefnunni, sem í rauninni eyði- lögðu hana. Nú er það svo, að Frondizi var frá upphafi hliðhollur verkamönn um, en hann hefur orðið fyrir árásum og þvingunum frá báðum hliðum. Kommúnistar og perón istar hafa, eins og fyrr segir, ráð izt á stefnu hans í efnahagsmál ’um, en hins vegar hafa hægri öflin, þá fyrst og frémst herinn rlagzt hart gegn nokkrum tilslök unum á stefnunni. Niðurstaðan hefur orðið sú, að hann hefur komizt æ meir undir áhrif hægri manna, aðallega hersins. Fron dizi liefur verið ljóst frá því að hann kom til valda, að perónism inn ætti enn veruleg ítök í mönn JUAN PERÓN ARTHURO FRONDIZI um- þar í landinu. Hefur hann því alltaf forðast að ganga mjög gegn þeim, og segja sumir, að hann hafi persónulega ekki verið þess ófús að nálgast þá nokkuð.k Það virðist þó ekki hugsanlegt úr þessu. En hvað gerðist þá nú? í kosn ingunum s.l. sunnudag var perón istum í fyrsta sinn leyft að bjóða fram við kosningar í landinu. Til þessa hafa þeir stutt Frondizi á- samt kommúnistum, eins og fyrr segir. Nú sameinuðust perónistar og kommúnistar um frambjóðend ur perónista og unnu stórsigur, fengu 2,2 milljónir atkvæða á móti 1,8 milljónum flokks Fron dizis og 1,4 milljónum Radíkala (þjóðarsambandsins Aðeins var kosið um lielhráíg þingsæta að þessu sinni, en hitt var verra,, að perónistar náðu kosningu sem ríkisstjórar í tíu ríkjum. Ákvörðunin um að leyfa perón istum að bjóða fram var tekin meira eða minna í blóra við her inn og vegna þess, að ekki var talið líklegt, að þeir mundu geta núð neinu verulegu fylgi. Þarna liefur átt sér stað alvarlegur feil reikningur og er rétt að gera sér nokkra grein fyrir því hverjar orsakir eru líklegastar. Ýmsir telja, að ákvörðun stjórn arinnar um að slíta stjórnmála sambandi við Kúbu, skömmu fyr ir kosningar, hafi haft mjög veru leg áhrif. Sagt er, að Frondizi hafi verið ófús að gera þetta, en hafi hins vegar neyðzt til að láta undan vilja hersins í þessu efni. Þá er ekki ósennilegt, að í á róðri hafi sú ákvörðun verið tengd þeirri frétt, sem kom einnig rétt fyrir kosningar, að Argentína hefði fengið 150 milljónir dollara frá Framfarabandalaginu. Það er þó engan veginn nauðsynlegt að leita slíkra ástæðna, því að eng inn efi er á því, að Fidel Castro er vinsæll meðal hinna fátækari í Argentínu, eins og reyndar víðar í latnesku Ameríku. T.d. munu stuðningsmenn Peróns vera mjög hliðhollir Castro, einræðisstefn urnar reynast enn vera skammt hvor frá annarri. Líklegast skýringin á óförum Frondizi virðist þó vera sú, að verulegur hluti af atkvæðamagni (j'erónista nú séu mótmælaat- kvæði, menn hafi með þessu vilj að mótmæla sparnaðarstefnu þeirri, sem stjórnin hefur fylgt undanfarið. Hverjar svo sem orsakirnar eru þá er það liin sorglega staðreynd að um sinn er einu lýðræðisrík inu færra í Suður-Ameríku. Per ónistar eru að vísu heldur leiðin legur lýður, en allt um það virð- ist það slakt lýðræði, þar sem menn lirópa „ómark“, ef ógeð- felldur flokkur sigrar. Afskipti hers af stjórnmálum ahfa alltaf loðað við í latnesku Ameriku, en eru sérlega ógeðfelld. Hitt er svo auðvitað athyglisvert, að í Argen tínu sigruðu í kosningunum stuðningsmenn fyrrverandi ein- ræðisherra, sem hljóp burtu með ríkissjóðinn, og býr nú í háborg fasismans, á Spáni. Og þeir unnu sigur sinn með stuðningi fylgj j enda forsætisráðherra, sem býr! í háborg kommúnismans, í Kreml | Inflúenzan setti sinfóníuhljóm sveitina úr skorðum, svo að tón leikar féllu niður, en í næstu viku geta hlustendur heyrt tvenna í staðinn. Fyrri konsert inn með Einari Vigfússyni cello lista heyrist á morgun milli há degis og kaffitíma, en síðari kon sertinn á venjulegum tíma á íimmtudag. □ Þjóðin hefur á síðustu árum eignazt nokkra unga heimspeki lærða menn, en flestir þeirra fá ekki atvinnu í fræðigiein sinni og vinna ýmis skrifstofustörf ... Á fimmtudag mun Gunnar Ragn arsson cand. mag. tala um Mac murray og heimspekiviðhorf hans □ Fjórða ritgerðin í samkeppn inni „Því gleymi ég aldrei" er eftir Jochum Eggertsson rithöf und, fjallar um „Trýnaveður" og r HRNN VRNN verður flutt á venjulegum tíma eftir átta annað kvöld. Jochum |fé^ aukaverðlaun, en annan sunnudag kemur fyrsta af mörg um, sem ekki hlutu verðlaun, en útvarpið þó vildi kaupa til flutn ings. LÉTTMETIÐ: Jónas Jónasson með hraðfleyga stund annað kvöld . .. Úlfar Sveinbjörnsson með lög unga fólksins á þriðju dag ... Picosarnir leika harmon ikulög eftir fyrri fréttir á mið vikudag en Högni Jónsson og Henry J. Eyland flytja harmon ikuþátt á fimmtudagskvöld . . Káta ekkjan er eftir seinni fréttir á föstudag en annað laugardaes kvöld leika Svvar Gests með Hc enu Eyjólfsdóttir og Ragnari Bjarnasyni. □ Hluti af dagskránni um Þing eyrarklaustur verður endurtek inn kl. 4.30 á morgun •... Hákon Guðmundsson talar um dómsmál á fimmtudag . .. Siguröur Nordal les þjóðsögur á vökunni á mið vikudag ... Friðþjófur Hraun dal flytur varnaðarorð á miðviku dag. □ Einn elzti og vinsælasti af föst um þáttum útvarpsins er tóm stundaþáttur barna og unglinga sem Jón Pálsson sér enn um á laugardögum. .□ TONLIST: Arni Kristjansson flytur kl. 9.20 í fyrramálið Pad erewsky með skýringum eftir Janusz Skiert ... Á næturhljóm leikum á miðvikudagskvöld leika belgískir listamenn nútímaverk ... Pétur Jónsson bifreiðarstjóri velur hljómplötur kl. 5 næsta laugardag. DREGIÐ 4 24. marz 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.