Alþýðublaðið - 24.03.1962, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 24.03.1962, Blaðsíða 14
SLYSAVARÐSTOFAN er opin allan sólarhringinn. Lækna- vörður fyrir vitjanir er á sama stað kl. 8-16. koftleiðir h.f. Laugardag 24. marz er Leifur Liríksson væntanlegur frá Staf angri Amsterdam og Glasgow kl. 22.00 Fer til New York kl. 23.30 Kvæðamannafélagið Iðunn Iieldur fund í kvöld, 24. marz. kl. 8. e. h. að FreyjugötU 27. Minningarspjöid kvenfélagsins Keðjan fást hjá: Frú Jóhönnu Fossberg, lími 12127. Frú Jónínu Loíts- dóttur, Miklubraut 32, sími 12191. Frú Ástu Jónsdóttur, l'úngötu 43, sími 14192. Frú Soffíu Jónsdóttur, Laugarás- vegi 41, sími 33856. Frú Jónu Þórðardóttur, Hvassaleiti 37, lími 37925. f Hafnarfirði hjá Fru Hut Guðmundsdóttur, Austurgötu 19, sími 50582. Bæjarbókasafn Reykjavikur: — Sími 12308. Aðalsafnið, Þing- holtsstræti 29A: Útlán kl. 10 —10 alla virka daga, nema aluagrdaga kl. 2—7. Sunnu- dga kl. 5—7. Lesstofa: kl. 10 —10 aila virka daga, nema laugardaga kl. 10—7. Sunnu- daga kl. 2—7. Útibú, Hólm- garði 34: Opið kl. 5—7 alla vfrka daga nema laugardaga. Útibú, Hofsvallagötu 16: Opið kl. 5,30—7,39, alla virka daga. Minningarspjöld Blindrafélags ins fást í Hamrahlíð 17 og lyf jabúðum í Reykjavík, Kópa vogi og Hafnarfirði Minningarspjöld Kvenfélags Háteigssóknar eru afgreidd hjá Ágústu Jóhannsdóttur, Flóka- götu 35, Áslaugu SveinsdóttujCfi Barmahlíð 28, Gróu Guðjóns- dóttur, Stangarholti 8, Guð- björgu Birkis, Barmahlíð 45, Guðrúnu Karlsdóttur, Stiga- hlíð 4 og Sigríði Benónýsdótt- ur, Barmahlíð 7. Minningarspjöld Styrktarfél. lamaðra og fatlaðra fást á eftirtöldum stöðum: Bóka- foúð Braga Brynjólfssonar. Verzl. Roða, Laugaveg 74. Verzl. Réttarholt, Réttar- holtsvegi 1. Skrifstofu fé- lagsins að Sjafnargötu 14. f Hafnarfirði: Bókaverzl. Olivers Steins og í Sjúkra- samlagi Hafnarfjarðar. Minningarspjöld Neskirkju fást á eftirtöldiun stöðum: Búðin mín, Víðimel 35. — Verzl. Hjartar Níelsen Templarasundi 3. Verzl Stefáns Árnasonar, Gríms staðaholti. Hjá frú Þuríði Helgadóttiu-, Malarbraut 3, Seltjamamesi. Kvenféiag Laugarnessóknar bíð ur öldruðu fólki í Laugarnes- sókn til kaffidrykkju í Laug- arnesskóla kl. 3 n. k. sunnu- dag. Aldraða fólkið í sókn- inni er vinsamlega beðið að fjölmenna. Eimskipafélag íslands h.f. Brúarfoss fór frá Dublin 22.3 til New York Dettifoss kom til New York 21.3 frá Rvík Fjallfoss fer frá Rvík kl. 05. 00 í fyrramálið 24.3 til Kefla- víkur og Norðfjarðar og þaðan sterdam, Antwerpen og Hull til Hamborgar, Rotterdam, Am Goðafoss fer frá New York 23.3 til Rvíkur Gullfoss fer frá Rvík kl. 18.00 í dag til Hamborgar og Khafnar Lagarfoss fer frá Wismar 23.3 til Rostoek Kleip eda Ventspils og Hangö Re.vkja foss fór frá Rotterdam 23.3 til Hmborgar Rostoek og Gauta borgar Selfoss fer frá Rotter dam 23.3 til Hamborgar og Rvíkur Tröllafoss kom til Rvík ur 21.3 frá Norðfirði Tungufoss fer frá Gdynia 26.3 til Kristian sands og Rvíkurr Zeehaau til Grimsby 22.3 frá Keflavík Skipaútgerð ríkisins Hekla fer frá Rvík á hádegi á morgun austur um land í hring ferð Esja er í Rvík Herjólfur fer frá Vmeyjum kl. 21 í kvöld til Rvíkur Þyrill er í Rvík Skjaldbreið er á Vestfjörðum Herðubreið er á Austfjörðum a norðurleið Skipadeild S.Í.S. Hvassafell er í Rvík Arnarfell er væntanlegt til Reyöarfjarðar 25. þ.m. fer þaðan til Gufuness Jökulfell er væntanlegt til Fá skrúðsf jarðar 25. þ.m frá Rieme Dísarfell er væntanlegt til Hornafjarðar 25. þ.m. frá Brem erhaven Litlafell fór í nótt frá Akureyri til Rvíkur Helgafell er á Hólmavík ——------ -* v — anlegt 27. þ.m. til Rvíkur Hend rik Meyer er væntanlegur til Gufunes 24. þ.m. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f. Katla var væntanleg til Genoa í morgun Askja er í Rvík Laugardagur 24. marz 8.00 Morgunútv. 12.00 Hádegisútv ■ 12.55 Óskalög sjúklinga (Bryn- dís Sigurjónsd.) 14.30 Laugardags lögin 15.20 Skák# þáttur 16.00 Vfr. ■ Bridgeþ. 16.30 Danskennsla 17. 00 Þetta vil ég heyra: Guðrún Þorsteinsd. kenn ari velur sér hljómplötur. 17.40 Vikan framundan: Kynning á dagskrái-efni útvarpsins 18.00 Útvarpssaga barnanna „Leitin að loftsteininum" eftir Bern- hard Stokke; IV. (Sigurður Gunnarsson) 18.20 Vfr. 18.30 Tómstundaþáttur barna og ungl inga (Jón Pálsson) 18.55 söngv ar í léttum tón 19.10 Tilk. 19.30 Fréttir 20.00 „Kvöld í Vínar- borg“: Fitharmoníusveit borgar innar leikur undir stjórn Rud olfs Kempe 20.30 Leikrit „Mýs og menn' eftir John Steinbeck 22.00 Fréttir og Vfr. 22.10 Pass íusálmar (29) 22.20 Danslög 24. 00 Dagskrárlok. Framhald af 7 síðu. þingi gæti ekki í þessari stjórn eins og nánast öllum öðrum stjórnum sem háttv. Alþingi kýs. Persónuleg legg ég slík rangindi að líku við þá upphaf legu stjórn, sem á þessum mál um var, þegar aðeins tveir fulltrúar þáverandi stjórnar- flokka fóru t. d. með allar lán- veitingar. Síðan gerði vinstri stjórnin þá yfirsjón um sinn að útiloka þáverandi stjórnarand- stöðu frá áhrifum á þessi mál, sem að vísu síðar var leiðrétt. Allar þessar miður góðu til- færslur og sífelldu breytingar á yfirstjórn jafn viðkvæmra mála og hér um ræðir, hefur stórlega torveldað, þá festu og tiltrú, sem nauðsynleg er í jafn ábyrgðar- miklu og viðkvæmu starfi og hér um ræðir, ekki hvað sízt þegar við höfum verið jafn langt frá því marki og raun ber vitni, um að fullnægja eftirspurn allt frá byrjun þessa starfs. Meðan það er skoðun méiri- hluta (já jafnvel einróma skoð- un Alþingis) Alþingis að hús- næðismálastjórn skuli kosin af Alþingi, þá er það eitt, rétt, að styrkleikahlutföllin þar á hverj um tíma fái notið sín. Það ætti að Tyrirbyggja tortryggni og sí felldar breytingar á yfirstjórn þessara mála. Um 2 og 3 gr. frumvarpsins er áreiðanlega ekki ágreiningur ef marka má tillögur og ræður háttv. stjórnarandstæðinga sem að venju finna það eitt að, ekki sé nógu hátt farið. 4. gr. frum- varpsins er nánast staðfestins á þeirri reglu sem húsnæðismála- stjórn hefur unnið eftir, nokk ur undanfarin ár. Hefur þetta verið gert til aðstoðar sveitar- félögum og þeim til léttis á lausn þess brýna vandamáls að útrýma heilsuspillandi íbúðum. Þá er eins og fyrr er frá greint, ekki gert ráð fyrir bundinni upphæð í þessu skyni nú heldur skal skylt að leggja jafnmikið fé fram og bæjar- og sveitarfélög kunna sjálf að leggja fram, og er því einnig hér um verulega bót að ræða. Þessi umbót verður enn augljós ari, þegar þess er gætt að á yfj 3 irstandandi ári hefðu hinar fjár ^ lagabundnu 4 millj. kr. ekki dug I að Reykjavíkurbæ . einum, til 1 þessara mála og má þó fyllilega ’i gera ráð fyrir að önnur bæjar j félög hyggi á framkvæmdir til I útrýmingar heilsuspillandi hús- ; næði. j Eins og öllum háttv. alþingis mönnum er sjálfsagt ljóst nú er samkvæmt núgildandi lögum, starf Húsnæðismálastofnunar- innar tvíþætt. Annars vegar eru hin svonefndu tæknistörf, teikni- stofa, útreikningar og áætlun byggingakostnaðar og fram- kvæmd þeirrar víðtæku heim- ilda er 2. gr. laeanna gerir ráð fyrir í nýjungum tæknimála. — Hins vegar er svo sjálft lán / veitingastarfið. Þó að verulega hafi markað í rétta átt í hinu almenna tækni starfi stofnunarinnar, þá skal það fúslega viðurkennt að mik ið er enn óunnið og betur liefði mátt gera. Vonandi tekst að vinna enn betur að þeim hlutum í næstu framtíð, því að ekki er einhlítt að útvega aukið fjár- magn, ef ekki tekst á sama tíma að þrýsta niður hinum gífur- lcga byggingakostnaði, — þ. e. að gera húsnæðiskostnaðinn lægri, en það er áreiðanlega ein raunhæfasta kjarabót sem hægt væri við að koma. Til lausnar þeim vanda dugar lítið ósk- hyggja eða hvers konar tillögu fluningur byggður á henni. flutt hér á háttv. Alþingi, í bæj arstjórnum eða blaðaskrif byggð á þeim sama sandi. Þar verður til að koma þrotlaust starf okkar færustu manna, verk fræðinga, tæknifræðinga, arki- tekta og þá ekki hvað sízt byggingamannanna sjálfra, sem gerst vita hvar skórinn kreppir að í þessum málum. — Lóðaút lilutanir bæja og sveitafélaga geta hér einnig lagt mikilvirka liönd að. — Er t. d. ekki athug andi að úthluta samtökum mynduðum af fyrrgreindum aðilj umð heilum landssvæðum tii bygginga íbúðarhúsa, í stað þess að úthluta einni lóð þar og ann arri hér? Slík samtök ættu að liafa aðstöðu til að byggjá fjölda íbúða samkvæmt fyrirfram gerðu skipulagi og áætlun sem á að geta staðist og þannig lækkað sjálfan byggingakostnað inn. Út á slíkar framkvæmdir ættu þessir aðiljar að geta not ið fjárhagslegrar aðstoðar Hús- næðismálastjórnar samkv. gild- andi lögum. — Lítill vafi er á því að það háir stórlega mögu- leikum til lækkunar bygginga- kostnaðar, hvað framkvæmdaað iljar liér eru margir í bygging- ariðnaði, og að ná mætti meiri árangri til lækkunar með færri en stærri og betur skipulögðum aðiljum, sem gætu þá orðið fjár hagslegrar aðstoðar aðnjótandi í verðlaun fyrir góðan árangur. Þannig mætti minna á mörg atriði fleiri, sem úrlausnar bíða, en gætu orðið mikilvæg í lausn þess vanda að lækka stærsta út gjaldalið almennings — húsnæð iskostnaðinn. — Til þessa skort ir ekki lagaheimild, hún er til í núgildandi lögum. Varðandi hinn aðalþáttinn í starfi stofnunarinnar, fjáröflun og lánveitingarnar, þá hef ég þeg ar gert noklcra grein fyrir á- standi þeirra mála frá upphafi til þessa dags. Þrátt fyrir verulega aukið fjár magn til ráðstöfunar 2 s. 1. ár má öllum vera ljóst að allmikið vantar á að þörfinni sé full- nægt. Fastatekjur stofnunarinnar hafa reynst vera 29 — 34 millj. og hefur þó úr þeim dregið vegna minnkandi tekna af skyldusparnaði, sem virðist munu ganga í sjálfan sig scm tekjulind á næstu 2 — 4 árum vegna stóraukinna endur- greiðslna. Frjálsi sparnaðurinn sem gild andi lög gera ráð fyrir hefur eng inn orðið, enda lítt girnilegur, þar sem fríðindi með innlögn- um þar eru lítil. — Við fram- lialdsendurskoðun laganna finnst mér persónulega vel kom.a til álita einshverskonar skattfríðindi fyrir innlög sam- kvæmt þeirri gr. laganna, en það munu t. d. Vestur-Þjóðverj ar liafa gert með góðum árangri. Slíkar aðgerðir þurfa þó veru legrar aðgæzlu við, þar sem þær eru nátengdar annarri fjáröfiun rikisins. Langstærsti tekjuliðurinn, hafa þó verið umsamin framlög ýmsra fjármálastofnana eins og áður hefur verið frá greint um tekjur s. 1. árs. Margir þessara aðilja viku sér á s. 1. ári undan framlagi til þessara hluta, með ýmsum mót bárum, sem ekki er þörf að rekja hér. Persónulega hefi ég verið þeirrar skoðunar að ná mætti þessum framlögum við hlutað- eigandi aðilja, með samningum. Sýni það sig hins vegar nú að samningaleiðin í þessum efnum sé ekki fær, eða árangur fáist ekki, þrátt fyrir að sömu aðilar fáist heldur ekki til að lána í byggingar íbúðarhúsa og vísi í þeim efnum til húsnæðismála- stjórnar þá er ekki nema um tvær leiðir að ræða 1) að lög- bjóða ákveðin skylduframlög eða í 2) að leggja lánveitingastarf stofnunnar niður og fela það öðr um starfandi lánsstofnunum, þvJ óþarft ætti þá að halda uppi sér stakri starfsemi, um útdeilingu þeirra fastatekna, sem nú eru mögulegar. Þessar stofnanir yrðu þá að taka upp sérstök Veð deildarlán þ. e. hliðstæða starf- semi og Landsbankinn annaðist á árunum fyrir styrjaldarárin og sjá um fjárliagslegu þörfina í þessum efnum, það sem á vanta, hver að sínum hluta. Sjálfur trúi ég því að samn- ingaumleitanir þær sem nú standa yfir beri árangur og ég held að þessum málum sé bezt komið á einum stað, — bæði vegna þeirra er leggja fram féð og hinna er lánin fá. — Með sérstöku tilliti til þeirrar hámarkshækkunar lána sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir er nauðsynlegt að hækka fasta tekjur stofnunarinnar og mun endurskoðunarnefndin væntan- legalega taka þetta atriði til meðferðar og gera sínar tillögur þar um. umfram það sem gert kann að vera áður, í þessum efn um. ÁLFARNIR FLUTTIR! Akureyri, 23. marz: NÚ er aftur byrjað að bora i klöppunum frægu, þar sem taliö var að álfar byggju, og hefur ekki borið á neinu svo að það er trú manna, að álf- arnir séu fluttir búferium. Engir borar hafa brotnað nú, en brögð höfðu verið að því áður en borununum var liætt. Vinnan lá niðri í um það bil þrjár vikur vegna álfanna. — G. St. HIMMMMtMMMMUMMHttV 14 24. marz 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.