Alþýðublaðið - 17.04.1962, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 17.04.1962, Qupperneq 2
•Mmjórar: Gisil J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — AöstoSarritstjóri: Björgvin GuSmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími 14 906. — Aðsetur: AlþýSuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu I—10- — Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði. í lausasölu kr. 3.00 eint. Utgef- andi: Aipýðufiokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson. V PRÓFKOSNINGAR UNDANFARNA DAGA 'hefur verið (mikið rætt um „prófkosningar" innan stjórmálaflokka til að velja frambjóðenda þeirra á lista við bæj- arstj órnarkosningar. Er full ástæða til að íhuga ’þá leið, enda getur hún verið þýðingarmikill lið- ur í lýðræðiskerfi. . Sjálfstæðisflokkurinn lét fram fara slíka kosn ingu í Reykjavík. Miklir gallar voru á kosning- v «unni, þar sem unglingar í Heimdalli voru látnir kjósa í stórum stíl; lítil stjórn var á því hverjir notuðu þau kjörgögn, sem út voru send, og loks var ekkert birt um niðurstöðu kosningarinnar. Virðist flokksforustan ekki bundin við að fylgja fúrslitunum við röðun á Reykjavíkurlistann. (Þess vegna er þessi „prófkosning“ ekki annað en lausleg skoðanakönnun. Hér á landi er mikið talað um ofríki fárra manna og flokksvald í stjórmálum. Gegn þessu er hægt að spyrna með prófkosningum, en þá verða þær að uppfylla ýms skilyrði og vera bind andi fyrir viðkomandi flokk. í fyrsta lagi yrði óhjákvsamlegt að setja lög frá Alþingi um prófkosningar. Það yrði fyrst og fremst að setja ávæði um skráningu manna til prófkjörs í tilteknum flokki til að fyrirbyggja, að sami kjósandi gæti tekið þátt í prófkosning- 'um innan margra eða jafnvel allra flokka. Síð- *an yrðu að vera reglur um framboð til prófkjörs ■ og kosningu á kjörstað — en ekki sendingu kjör gagna um allar jarðir. Að lokum þyrftu að vera reglur um talningu atkvæða og birtingu úrslita, sem væru bindandi fyrir flokkana í viðkomandi ikosningu. Minna getur það varla verið, ef prófkosningar «siga að vera annað en skrípaleikur eð sýndar- unennska. Þessi skilyrði þýða að sjálfsögðu, að um tvennar kosningar verður að ræða hverju fcinni, álíka umfangsmiklar, prófkjörið og sjálfa 4cosninguna. Þannig er það til dæmis í Bandaríkj lunum, þar sem prófkjör er hvað mest notað. 10 MILLJÓNIR EMIL JÓNSSON félagsmálaráðherra nefndi í útvarpsræðu sinni fyrir helgi eitt atriði, sem vfarla telst til stórmála yfirstandandi þings. Rík- iistjórnin hefur beitt sér fyrir að veitt væri allt að 10 milljónir króna til starfsemi fyrir fatl- ^ða, lamaða og vangefna. > Henni er ekki alls varnað, þessari OAS-stjórn í^kar! 2 17! apríl 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ GIÆS/IEGT ÓWTIl 0E0Ð C//£> MP4 mf/ HANNES Á HORNINU ★ Listmálun aðalatvinnu- vegurinn innan skamms. ★ Símaþjónusta nauðsyn- leg í Hafnarskrifstof- unni. ★ Eins dæmi í sögu Reykjavíkur. ÞAÐ ER EKKI ANNAÐ sjáan- lcgt en að listmálnn sé að veröa aðalatvinnuvegrur íslendingra. Hver listmálarinn á fætur öðrum opnar sýningu. Það er varla von á öðru þegrar listsnobbar taka upp á arma sfna föndrara og þykjast hafa upp götvað þá. ðlér finnst það illa gert. Verk sumra þeirra er hreinn og beinn bamaskapur, sem gaman er að þegar um börn er að ræða, en verður grátbroslegt þegar fullorðn ir mcnn eiga í hlut. SJÓMAÐUR SKRIFAR: „Mig hefur lengi langað til að minnast á eitt mál við þig, að vísu ekki stórvægilegt, en samt þannig að það snertir töluvert sjómennina og heimili þeirra. Alla tíð liefur það verið þannig, að engar upplýsingar er hægt að fá um skipakomur á kvöldin og um helgar nema í hafn arskrifstofunni, eða hjá hafnsögu- mönnunum. Þcir eru alltaf boðnir og búnir til að veita upplýsingar. EN STARF ÞEIRRA er þannig, að þeir geta ekki alltaí verið við til þess að svara í símann og svara spurningum. Mér finnst að þetta sé orðið óþolandi ástand. Það er nauðsynlegt fyrir fólk að leita sér upplýsinga um skipakomur, því að það ófært að þurfa að norpa niður við höfn og bíða þar eftir skipi. en fólk þarf mjög oft að taka á móti vinum sinum og vandamönn um þegar skipin koma í höfn. ÞAÐ ER ÞVÍ NAUÐSYNLEGT að hér verði liót á ráðin og það ve'ður ekki gert nema hafnarskrif stofan taki upp símaþjónustu og ráði stúlkur til þess að svara í sím ann og þyrfti stúlka að vera á vakt á nær öllum tímum. Það getur vel verið að þetta hafi ekki verið nauð synlegt fyrst eftir að höfnin kom, en borgin hefur stækkað ört, höfn in þanist út og skipakomur marg faldast-. Ég vil mæíast til þess, að hafnarstjórn athugi þetta mál og geri það sem henni finnst skynsam legaát til lausnar á því.“ ÞAÐ ERU MIKXL TÍÐINDI fyrir okkur Reykvíkinga, að hvort tveggja skuli gerast í senn að drykkjarvatn spillist og að borgin einangrist svo að hvorki sé hægt að komast út úr henni né inn í_ hana í bifreiðum — Ég kom hingað til borgarinnar árið 1929, og ég man ekki til þess að þetta liafi kom ið fyrir Framhald á 7. síðu. :

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.