Alþýðublaðið - 17.04.1962, Qupperneq 16
DAGSBRUN
SAMÞYKKIR
HÚSAKAUP
43. árg. — Þriðjudagur 17. apríl 1962 - 89. tbl.
SVONA er farið að í nýjasta
samkvæmisdansinuni, Tvist,
Eftir myndinni að dæma er
líkamsæfingin meiri og betri
inni. Unglingarnir voru að
tvista í félagsheimili FUJ,
Burst, þcgar km smeilti af.
Fleiri myndir á síðu 13 —
en fæst í morgunleikfim- Úr heiini unga fólksins
K DAGSBRÚNARFUNDI s. I.
funnudag var samþykkt, að kaupa
úanitashúsið ásamt Sjómannafé-
lagi Rcykjavíkur. Ennfremur að
feækja til Alþýðusambandsins um
lcaup á þrem smáhýsum að Reykj-
«uti í Ölfusi, sem ASÍ fær undir
orlofsheimili verkalýðsfélaganna.
Dagsbrúnarfundurinn gerði á-
lyktun um kaupgjaldsmálin og
taldi, að kaup verkamanna þyrfti
«ð hækka og taka skyldi upp við-
ræður við atvinnurekendur um
fra5. • . ■•
vilja fá
samningsrétt
BANDALAG háskólanianna hélt
eiuiennan fund s.I. sunnudag vegna
(eunnvarps um kjarasamninga op-
Inberra starfsmanna. — Um 100
tnanns sátu fundinn,
Fjölmargir tóku til máls. Töldu
mer.n, að BHM ætti að hafa samn-
íngsrétt á hendi yfir meðlimi sína
Eftirfara'ndi ályktun var sam-
þykkt:
,,Almennur fundur í Bandalagi
háskólamanna haldinn 15. apríl
1962 beinir þeim eindregnu tilmæl
Um til hins liáa Alþingis, að það
samþykki þær breytingartillögur
við frumvarp til laga um samnings-
rétt opinberra starfsmanna, sem
etjórn BHM hefur sent fjárhags-
nefnd efri deildar og felur í sér, að
BHM fái samningsaðild fyrir hönd
félagsmanna sinna“.
ÞYZKI svanurinn á Tjörninni
týndist á laugardaginn- var og
kom ekki í leitirnar fyrr en í
gær, að hann fannst illa særður
fyrir sumian Hringbrautina.
Hamnum hafðl verið flett að
tnestu leyti af bakinu á fuglinum,
og Iá iiann þarna hjálparvana er
að var komið.
EFSTUR
3. UMFERÐ í skákmóti íslands
var tefld í gær. Friðrik vann Ingv-
ar, Sigurður vann Benóný, Gunn-
ar vanu Gylfa en hinar skákiruar
fóru í biff. — Ingi á betra tafl en
Jónas, en tvísýnt er hjá hinum.
Eftir þrjár umferðir er Friðrik
efstur meff ZVz vinning, en Björn
f>orsteinsson er meff 2 vinninga og
biöskák.
PINGLD
ÞINGLAUSNIR veröa á morgun
Lýkur þá einhverju starfsamasta
þingi, sem nokkru sinni hefur
setið. Hafa óvenju mörg stórmál
venff afgreidd á þinginu.
Meðal stjórnarfrumvarpa, sem
samþykkt hafa verið á þingi því
sem nú er að ljúka má nefna
þessi: Lækkun aðflutningsgjalda,
verðlagsráð sjávarútvegsins, lausa
skuldir bænda (breyting í löng lán)
aflatryggingarsjóður sjávarútvegs
ins (samþykkt í gær), breyting á
lögunum um Húsnæðismálastofn-
un ríkisins, breyting á lögunum
! um verkamannabústaði, breyting
■ á lögunum um almannatryggingapa
breyting á lögum um Háskóla ís-
lands "(stofnun nýrra prófessors-
embætta í tannlækningum), og á
lokastigi í þinginu voru í gær
frumvörpin um tekjustofna sveitar
félaga og: um tekjuskatt og eignar-
skatt, og frumvarpið um kjara-
samninga opinberra starfsmanna,
svo það helzta sé nefnt. — Fundir
voru í öllum deildum alþingis í
gær og stóðu langt fram eftir. Af
greiddar voru í sameinuðu þingi
fjölmargar þingsályktunartillög-
sumardaginn
NBROTA-
FARALDUR
MIKIÐ var um innbrot og þjófn
aði um helgina, og voru það yfir-
leitt drukknir menn, sem þar áttu
í hlut. Flest þessara innbrota voru
framin aðfaranótt sunnudagsins.
Brotist var inn i Smurbrauðs-
stofuna Björninn að Njálsgötu 49.
Ekki höfðu þjófarnir nema 150
krónur upp úr krafsinu, og voru
teknir skömmu síðar. Þeir voru
tveir og báðir undir áhrifum á-
fengis.
Þá- var kærður þjófnaður, sem
framinn var í herbergi sofandi
manns. Höfðu þrír félagar sezt
að sumbli á laugardagskvöldið,
og sofnaði húsráðandi út frá
drykkjunni. Annar félaga lians
notaði þá tækifærið, og stal 1000
krónum, sem voru í vasa á fötum
lians. Þjófurinn var tekinn nokkru
seinna.
Brotist var inn ’ í bifreiðina R-
1013ÍJ, sem stóð við Brávaliagötu,1
og úr henni stolið dekki og felgu.
Þá var lögreglunni tilkynnt á
sunnudag, að brotizt hefði verið
inn í verzlunina Kjólinn í Þing-
holtsstræti 3. Hafði þjófurinn kom
ist inn bakdyra megin, en við
rannsókn kom í ijós, að engu
hafði verið stolið.
Bílasmiðjan varð einnig fyrir
barðinu á þjófum, en þeir stálu
tveim dýrum rafsuðuvélum úr
verksmiðjunni. Voru það þýzkar
, ,Dalex“-raf s uðu vélar. Þj óf arnir
höfðu brotið glugga og komust
þannig inn í smiðjuna.
★ WASHIN GTON
Þremur stórum stálfyrirtækjum í
Bandaríkjunum hefur verið
stefnt til að láta bókhaldsbækur
sínar af hendi við starfsmenn
dómsmálaráðuneytisins í sam-
bandi við rannsókn á samstillta
tilraun stáliðjuveranna til að
hækka vérðið á stáli.
ENGIN hátíðahöld verða nú í
Reykjavík á sumardaginn fyrsta á
vegum Barnavinafélagsins Sumar-
gjafar, að því er forráðamenn fé
lagsins tjáðu blaoamönnum í gær.
Þannig vill nú tii, í fjórða skipti
á þessari öld, að fyrsta suinar ber
upp á skírdag.
Samkvæmt útreikningum verða
a. m. k. tvisvar enn sumarpáskar
á þessari öld, þ. e. árin 1973 og
1984, en áður hefur svo borið við
1905, 1916 og 1943.
Stjórn Sumargjafar var í nokkr-
um vafa um, hvernig snúast bæri
við þessu fyrirbæri, en nokkrar
staðreyndir, sem ekki varð fram
hjá komizt, blöstu við:
1. Öllum samkomuhúsum borg-
arinnar er lokið þennan dag og
starfsfólk hér og hvar, svo að inni
skemmtanir voru þegar útilokaðar
af þessum sökum einum.
2. Allir skólar eru lokaðir frá
pálmasunnudegi til þriðja í pásk-
um og börn og kennarar í fríi. —
Mikið af skemmtiefni þvi, sem
notað er lil skemmtunar á sumar-
daginn fyrsta er fengið úr barna-
og unglingaskólum. Nú er þetta
efni ekki tiltækt af framangreind-
um ágtæðum.
3. Ýmsir listamenn hafa komið
fram á hátíðahöldum sumardags-
ins fyrsta undanfarin ár, svo sem
leikarar og hljómlistarmenn, Þess
ir menn hafa að sjálfsögðu ráð-
slafað þessu lengsta fríi ársins, eins
og aðrir.
4. Árið 1943 var hátíðahöldun
úm frestað. til þriðja í páskiim, en
sú ráðstöfun gafst ekki vel
Að öllu þessu athuguðu ákvað
stjórn SUmai’gjafar að láta hátíða-
höldin falla niður í þetta skipti.
SÓLSKIN verður gefið út, eins
og vanalega, og selt á barnaheim-
ilum félagsins í dag og á morg
un og á götum borgarinnar síðasta
vetrardag. Einnig verður bókin
seld í bókabúðum.
Framhald á 3. síðu.
i
WMWWMMWWMMMWIWW1
Iveir teknir
ölvaðir -13
ára gamlir
LÓGREGLAN fór í gærdag
um! klukkan fimm á veitinga
stofuna Frosty við Laugaveg,
og tóku þar tvo 13 ára gamla
pilta. Lék grunur á, að ann
ar þeirra hefði tekið inn eitt
hvað af eiturtöflum. Við nán
ari rannsókn kom í ljós, að
piltarnir voru báðir undir á-
hrifurn áfengis.
Drengirnir voru fluttir á
lögregiustöðina, en síðan
mun Barnaverndarnefnd fá
má'I þeirra í hendur.
WWWWWMWWWWWWIWWW
I
't
\