Alþýðublaðið - 29.04.1962, Side 4

Alþýðublaðið - 29.04.1962, Side 4
FRAMBOÐSFRESTUR til bæj- ar- og sveitarstjórnarkosning- anna er útrunninn og baráttan hafin af fullum krafti. Páskarnir hjálpa að þessu sinni til þess, að kosningabaráttan verður af- mörkuð við 4—5 vikur og er það til góðs fyrir alla aðila. Vissu- lega er æskilegt, að kosninga- hamur sé ekki á mönnum og flokkum mjög lengi, baráttan standi ekki marga mánuði. Vafa- laust koma allar röksemdir, sem aðilar hafa fram að færa, fyrir almenningssjónir á einum mán- uði. Ef orrustan er lengri, verð- ur meira um endurtekningar og sterkari freisting til persónu- legra árása. Fróðlegt er að íhuga, að hve miklu leyti kosningarnar snú- ast eingöngu um bæjar- eða hreppsmál, og hvort landsmál blandast þar verulega inn í. Síð- ustu kosningar 1958 reyndust ör- lagaríkar fyrir landsmálin, þar sem vinstri flokkarnir höfðu þá mjög víðtækt samstarf á listum, og biðu ósigur, sem túlkaður var sem meiri háttar áfall fyrir vinstri stjórnina. Mótmæla því fáir, að svo hafi í raun réttri ver- ið, og í Reykjavík snerist kotn- ingin langmest um vinstri st.iórn á bænum eða ekki. Nú er vinstristjórnin fari’i og við völd situr samstjórn Sjálf- stæðisfiokksins og Alþýðuflokks- ins. Samkvæmt kenningum þeirra, sem mæla bæjarstjórnar- kosningar eingöngu á landsmæii- kvarða, ætti því samstaða flokka í kaupstöðum og kauptúnum að hafa breytzt algerlega. En svo er ekki. Það hafa að vísu orðið miklar breytingar á framboðum, en samstarf flokka helzt á mjög mörgum stöðum — og vinstra samstarf þriggja flokka er ó- breytt í fjölda sveitarfélaga, til dæmis á ísafirði, Selfossi, Helli- sandi, og víðar. Hins vegar hafa hvergi orðið þær breytingar, að stjórnarflokkarnir standi tveir saman að listum, þótt þeir vinni samqn á ýmsum stöðum, einir eða með öðrum. Af þessu verður að draga þá á- lyktun, að íólkið í hinum ýmsu byggðum landsins sé óháðara pólitísku flokkunum en meun hafa viljað vera láta. Það «pyr ekki flokksforustuna í Reykja- vík, hvernig það eigi að bjóða fram eða með hverjum. Það fer eftir mönnum og aðstæðum heimafyrir. Ef til vill er stigmunur á ai-^ stöðú flokkanna í þessu tilliti. Við í Alþýðuflokknum höfum Tii dæmis tekið upp þá stefnu, að flokkurinn segi ekki fyrir ara, hvernig flokksfélögin skuli bjóða fram til sveitarstjórna, heldur ráða þau því sjálf hvert á sínurn stað. Þannig á það auðvitað að vera, því fráleitt er að reyna að steypa allt landið niður til hreppsnefnda í mót hverrar ríkis stjórnar. Sjálfstæðisflokkurinn er stærst ur flokkanna og þarf því minnst á samstarfi við aðra að halda, til dæmis til að tryggja meirihluta. Þess vegna er eðlilegt, að hinir flokkarnir reyni ýmis konar sam- starf eftir því sem aðstæður eru á hverjum stað. Hins vegar fer það algerlega eftir aðstæðum og byggist eingöngu á heimamálum. Slíkt samstarf þýðir ekki, að við- komandi einstaklingar séu sam- mála um landsmálin. Geta kosningarnar, sem eru framundan, haft áhrif á ríkis- stjórnina? Flestir, sem eru mál- um kunnugir, telja, að það sé hugsanlegt, en mjög ólíklegt. — Stjórnarflokkarnir gætu beðið afhroð eins og vinstri flokkainir 1958, og mundi þá stjórnarsnm- starfið óneitanlega veikjast. En jafnvel sá ósigur var ekki nóg til að fella vinstri stjórnina. Og þar við bætist, að það eru engar slíkar líkur á hrakförum stjórn- arflokkanna nú, sem voru þá' Þar við bætist að ríkisstjórnin stendur í dag fastari fótum en nokkur stjórn hefur gert á ís- landi í áratugi. „Stríðsáróðurs" íiilðQð Rússð felld GENF, 27. apríl (NTB-Reuter) Bandaríkin höfnuðu á afvopnunar ráðstefnunni í Genf í dag rúss- neskri tillögu í níu greinum um bann við stríðsáróðri. Fulltrúum annarra ríkja tókst heldur ekki að brúa sjónarmið Bandaríkjamanna og Rússa. Samkvæmt rússnesku tillögunni á stríðsáróður að stimpl sa sem svívirðilegur glæpur gegn mannkyninu. Ráðstefnunni liefur verið frestað í fjóra daga. Klerkar í klípu ★ LEIKFÉLAG Hafnarfjarð- ar hcfur undanfarið sýnt gam anleikinn „Kierkar í klípu“ við góða aðsókn og undir- tektir áhorfenda. Næsta sýn- ing á leikritinu verður 1. maí Myndin er af þeim Sigurði Kristinssyni, Auði Guðmunds dóttur og Ragnari Magnús- syni í hlutverkum sínum. HWWWWWMHMWMWWWWWWWWm %WW%W%%%W%%W%%%WYW%%%%%^%%W%%W%%%\%%\%\ Akureyri, 18. apríl. GENGIÐ hefur verið frá fram- boðslista Alþýðuflokksins við bæjarstjórnarkosningarnar í vor og var hann birtur í „Alþýðu- manninum” í gær, en þá voru þrjátíu ár liðin frá stofnun Al- þýðuflokks Akureyrar. Framboðslistinn er skipaður þessum mönnum: 1. Bragi Sigurjónsson, ritsfj. 2. Steindór Steindórsson, menntaskólakennari 3. Þorvaldur Jónsson, skrifstofumaður 4. Torfi Vilhjálmsson, verkamaður 5. Jens Sumarliðason, kennari 6. Björn Kristinsson, vclrirki 7. Anna Helgadóttir, frú 8. Sigurður Rósmundsson, sjómaður 9. Þórir Björnsson, vélstjóri 10. Sigursveinn Jóhannesson kennari 11. Stefán K. Snæbjörnsson vélvirki 12. Árni Árnason, smiður 13. Gísli Bragi Hjartarson, múrari EYRARBAKKI FRAMBOÐSLISTI til hrepps- nefndarkosninga á Eyrarbakka 27. maí n. k. Standa að honum Alþýðuflokks félag Eyrarbakka og framsóknar- menn. Listinn er A-listi. Á hon- um eru: Vigfús Jónsson, oddviti.Garðabæ Halldór Jónsson, form. Bárunnar Þórarinn Guðmundsson, bóndi Ólafur Guðjónsson, bílstjóri Þórir Kristjánsson, verkstjóri Gísli Gíslason, útibússtjóri Ragnar Böðvarsson Óiafsfjörður Ólafsfirði, 27. apríl LISTI Alþýðuflokksins til bæjar stjórnarkosninga á Ólafsfirði er þannig skipaður: Sigurður Guðjónsson, bæjarfóg. Sæmundur P. Jónsson, sjóm. Jón G. Steinsson, verkstjóri Sig R. Ingimarsson, bifreiöastj. Bernharð Ólafsson, sjóm. Árni Gunnlaugsson, sjómaður Ólafur Sæmundsson, bakari Jón Ingimarsson, verkamaður Trausti Gunnlaugsson, sjómaður 14. Matthías Einarsson, lögregluþ. 15. Jóhann Sigurðsson, raf virkj ameistari 16. Stefán Þórarinsson, húsgagnameistari 17. Jón Sigurðsson, stýrimaður 18. Þorbjörg Gísladóttir, frú 19. Þór Ingólfsson, iðnnemi 20. Jón M. Árnason, verksmiðjustj. 21. Albert Sölvason, framkvæmdastjóri 22. Friðjón Skarphéðinsson, bæjarfógeti. DÁLVÍK Dalvík, 26. apríl LAGÐUR hcfur verið fram fram- boðslisti Alþýðuflokksmanna hér á Dalvík við hreppsnefndarkosn- ingarnar 27. mas. Samþykkt hef- ur verið í hreppsnefnd, að f jölga hreppsnefndarmönnum úr fimm í sjö. Sjö efstu menn á framboðslista Alþýðufiokksins eru þessir: Ingólfur Jónsson, trésmiður Árni Arngrímsson, bílstjóri Ásgeir Sigurjónsson, kennari, Gestur Hjörleifss. innheimtum. Jón Tryggvason, bílstjóri, Þórarinn Kristjánsson, vélstjórl og Kristinn Sigurðsson skipstj. WWMWWWWWWWWl 11. maí !j | kaffi ;! KONUR í fulltrúaráði ;> I! Alþýðuflokksins gangast j! $ fyrir veizlukaffi 1. maí í !! ;[ Iðnó. 110810" opnað kl. 2. !> ;! Afburða góðar og ödýrar <; !> veitingar, borð hlaðin rjóma ;[ $ tertum, pönnukökum og alls !! <; konar lieimabökuðum kök- !> ;! um ásamt fjölbreyttu !» | smurðu brauði. ;> !> Þúsundir Reykvíklnga j! <> fagna á götum úti þessum ;! ;! liátíðisdegi íslenzkrar al- !> ;! þýðu. Gerið daginn enn há- <; !! tíðlegri með því að drekka ;[ <; með vinum og venslafolki j! ;! sannkallað veizlukaffi í !> j! Iðnó. <> rtWTOWWWWMWWWW 4 29. apríl 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.