Alþýðublaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 3
PRÓFESSORAR SEGJA:
VÍSINDI f STAÐ
OAMALLA BÖKA!
PRÓFESSOR í stærðfræðivís-
indum, Lonsoth að nafni, kom Iiing
að í febrúarbyrjun og hefur frá
þeim tíma kennt á námskeiði í Há-
skóla íslands, — en það námskeið
var einkum ætiað mönnum, sem
tekið hafa háskólapróf í stærð-
fræði eða eru komnir langt í
stærðfræðinámi. Háskólarektor, Ár
mann Snævarr, og Leifur Ásgeirs-
son, stærðfræðiprófessor kynntu
próf. Lon'soth fyrir blaðamönnum
í gær, en hann er senn á förum
héðan.
Háskólamennirnir töluðu mjög
um gildi raunvísinda á þessum
tímum og próf. Leifur Ásgeirsson
taldi íslendinga fljóta sofandi að
feigðarósi í þeim efnum. Taldi
hann, að góðir stærðfræðihæfileik
ar liefðu farið forgörðum hér á liðn
um öldum, og nútíminn gerði is-
lenzkum stærðfræðingum ekki
lieldur hátt undir höfði. Hann
nefndi Vilhjálm Ögmundsson,
bónda á Narfeyri á Skógaströnd,
sem dæmi um mikinn hæfileika-
mann á sviði stærðfræði, og sagði
hann mundi hafa verið efni í stærð
fræðing á heimsmælikvarða, ef
hæfileikar hans liefðu fengið að
njóta sín. Próf. Leifur vakti at-
hygli á því, að íslendingar yndu
vel við að ylja sér við forna frægð
en hirtu lítt um að geta sér góðan
orðstír á þeim sviðum, sem nú
væru nauðsynlegust en stærðu sig
af skriffinnsku karla á 12. öld. *—
Hann sagðist ekki vera að draga úr
gildi fornbókmenntanna, þótt hann
hvetti landa sina til að líta raun-
særri augum á menningu þjóðar-
innar, sem með því einu héldist
við, að þjóðin reyndi á hverjum
tíma að gera sitt bezta á þeim svið-
um menningar og mennta, sem til-
heyrði samtíðinni.
Háskólarektor sagði, að Háskól-
inn vildi bæta í þær eyður, sem
væru í raunvísindanámi hérlendis
enn sem komið er. Hvernig þessar
úrbætur færu bezt, væri nú rætt af
háskólamönnum, og víst væri um
það, að úr öllu yrði ekki bætt í
einu vetvangi. En hann sagðist
leggja á það sérstaka áherzlu,
að koma próf. Lonsoth hefði verið
háskólanum sérlega kærkomin, en
próf. Lonsoth kom hingað á vegum
vísindadeildar. Atlantshafsbanda-
lagsins, — en sú deild vinnur, eins
' og nafnið bendir til að eflingu vís-
inda í löndum bandalagsins.
Próf. Lonsoth er prófessor við
ríkisháskólann í Oregon í Corvall-
is í Bandaríkjunum. Hann er af
norskum ættum, en hefur að öllu
leyti alizt upp í Bandaríkjunuhi
Nú, þegar kennslu lýkur á hann
von á foreldrum sínum hingað til
lands, og mun hann fara með þeim,
konu sinni og syni að skoða
Noreg og um önnur Evrópulönd.
Prófessor Leifur Ásgeirsson
sagði við blaðamenn í gær í lok
viðtalsins við prófessor Lonsoth:
„Við verðum að opna dyrnar út í
heiminn". Hann lagði þá enn á það
áherzlu, að það tjóaði ekki að
stinga höfðinu í sandinn og stæra
sig af íslendingasögunum á meðan
aðrar þjóðir kepptust við að né
sem lengst í vísindum nútímans.
Jouhaud
tórir enn
PARÍS, 29. apríl.
(NTB-AFP)
DA GAULLE forseti mun taka á-
kvörðun nm það innan tíðar hvort
náða skuli eða lífláta Jouliaud fv.
hcrsliöfðingja. Þrátt fyrir orðróm,
sem var á kreiki um, að Jouliaud
hefði verið tekinn af lífi, sat hann
enn í Santa-fangelsinu í París á
laugardagsmorgun.
Sumar heimildir herma, að ekki
verði tekin ákvörðun um örlög
Jouhauds fyrr en málaferlunum
gegn Salan er lokið. Salan neitar
enn að svara spurningum dómara
í bráðabirgða yfirheyrslunum.
Salan hefur krafizt þess, að de
Gaulle forseti, Debré, fyrrverandi
forsætisráðherra og margir aðrir
þekktir stjórnmálamenn og lier-
foringjar beri vitni í réttarhöld-
unum. Talið er liarla ósennilegt,
að gengið verði að þessari kröfu
Salans.
Þá er talið, að ef Salan fái ekki
vilja sínum framgengt muni hann
reyna að gera upp sakirnar við
stjórnmálamenn og herforingja
fjórða og fimmta lýðveldisins í
réttarhöldunum, og reyna að rett-
læta gerðir sínar á grundvelli
stefnu Frakka í Alsír síðan stríðið
gegn frelsishreyfingunni hófst fyr
ir sjö árum.
ISLENZKA VHiÐUR
FORMAÐUR norræna félagsins í
Noregi, Henrik Groth, skýrði blaða
mönnum frá því í gær, að í haust
yrði tekin upp kennsia í nútíma-
íslenzku í menntaskólanum í Nor-
egi.
Groth, sem er einnig forstjóri
stærsta bókaútgáfufyrirtækis Nor-
egs, sagði, að í sumar kæmi út hjá
forlagi hans fyrsta kennslubókin í
nútíma-íslenzku, sem gefin verð-
ur út á Norðurlöndum.
Henrik Groth kom hingað til
Reykjavíkur á sunnudaginn og
heldur fyrirlestur í liátíðarsal há-,
skólans kl. 8.30 í kvöld um „Norð
urlönd og heiminn” (Norden og
Verden). Á fimmtudaginn fer
hann til Akureyrar og heldur fvr-
irlestur á vegum deildar norræna
félagsins þar.
Á fundi með blaðamönnum
sagði Groth, að í sumar mundi
Ivar Orgland, fyrrverandi sendi-
kennari Norðmanna við háskól-
ann hér, stjórna íslenzkunám-
skeiði, sem 50 menntaskólakenn-
arar taka þátt í, og verður þar
lögð áherzla á réttan framburð.
í haust verður síðan hin nýja
kennslubók í nútímaíslenzku tek-
in í notkun í norskum mennta-
skólum, en hana hafa þeir Magnús
Stefánsson og Ivar Eskeland tekið
saman. í bókinni verða kaflar um
hljóðfræði, málfræði og ísland nú
á dögum, leskaflar og orðasafn. —
Kennslubókin er á nýnorsku.
Forn-íslenzka er nú kennd einn
tíma á viku í þrjá vetur í norsk-
um menntaskólum, en nemendur
I þurfa ekki að taka próf í íslenzkri
málfræði. Groth sagði, að eftir um
j 10 ár ættu 5 þúsund norskir stúd-
entar að geta lesið íslenzku, og
hugmyndin væri sú, að gera ís-
lenzku að skyldunámsgrein.
Henrik Groth hefur tvisvar áð
ur komið til íslands, sem fulltrúi
á fundi norrænu menningarmála-
nefndarinnar og formaður For-
eningen Norden á fulltrúafundi
norrænu félaganna.
Fyrirlesturinn, sem Groth held-
ur í kvöld, mun fjalla um menn-
Frh. á 5. síðu.
OHRAÐ
FRÉTTIR
★ OTTAWA: Viðræður forsætis
ráðherranna Diefenbakers og Mac-
millans um fulla aðild Breta að
Efnahagsbandalaginu og efnahags-
mál samveldisins hófust í Ottawa
á mánudagsmorgun.
★ WASHINGTON: Formaður
þingflokks Kristilegra demókrata
í Vestur-Þýzkalandi, Heinrich von
Brentano, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra, ræddi í 50 mínútur við
Kennedy forseta á mánudag. v.
Brentano kvaðst ekki hafa mót-
mælt viðræðum sendiherra Rússa
í Washington og Rusks utanríkis-
ráðherra heldur bent á leiðir til
lausnar Berlínarvandamálinu.
★ ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefur
sýnt Skugga-Svein 45 sinn-
um að þessu sinni, við met
aðsókn. Síðasta síðdegissýn-
ingin verður í dag. Leikur-
inn verður aðeins sýndur 3—
4 sinnum enn og er óhætt að
hvetja alla þá, sem ætla að
sjá leikinn að tryggja *ér
miða í tíma.
Myndin er af Haraldi
Björnssyni og Valdimar
Helgasyni í hlutverkum sín-
um.
VILJA
6 og 6
MMMtttMUUtMHMMHMMV
F.Í. flytur í
Bændahöllina
FLUGFÉLAG íslands hefur nú
flutt allar skrifstofur sínar í nýtt
húsnæði I Bændahöllinni. Þar hef-
ur félagið til umráða alla 4. hæð-
ina. Skrifstofurnar verða opnaðar
á miðvikudag 2. maí.
Þetta er raunverulega í fyrsta
sinn, sem allar skrifstofur félags-
ins eru á sama stað, en áður hafa
þær verið víða um bæinn. Aðal-
skrifstofan flytur af Reykjavíkur-
flugvelli, skrifstofurnar úr Lækjar
götu 6b og bókhaldið af Lindar-
götunni.
Þetta er langþráður áfangi, sem
félagið nær með þessum bústaða-
skiptum, en annar maí hefur áður
verið merkilegur dagur í sögu fé-
lagsins. Það var 2. maí fyrir um
það bil aldarfjórðungi, að fyrsta
flugferðin var farin hér innan-
lands, og 2. maí 1957 komu skrúfu-
þotur þess, Hrímfaxi og Gullfaxi í
fyrsta sinn til landsins.
MUMtMMMHMUMUI
LONDON, 29. apríl
(NTB — Reuter).
VERZLUNARRÁÐ fimm bæja á
norðurströnd Bretlands hafa hafið
baráttu fyrir sex eða tólf mílna
fiskveiðilandhelgi við Bretlapd.
Arthur Dunn ofursti, formaður
sérstakrar nefndar, sem stófnuð
hefur verið í þessu markmiði,
sagði um helgina, að þriggja mílna
landhelgin veitti brezkum fiski-
skipum enga vernd gegn erlend-
um togurum.
)
Krafan um stækkun landhelg-
innar verður tekin upp á hinum
árlega fundi verzlunarráðs Bret-
lands í næsta mánuði. Krafizfc
verður sex-mílna landhelgi og auk
þess 6 milna belti þar sem fisk-
veiðar verða bannaðar útlending-
um á vissum svæðum og árstímum.
í tillögunni, sem fram verður
borin, segir, að á síðustu árum
hafi erlendir togarar eyðilagt
mjög dýrmætan veiðibúnað Breta.
Þeir fimm bæir, sem fremst
standa í baráttu þessari, eru
Whitby, Searborough, Filey, Brid-
lington og Hornsea.
Kommar klufu
Framhald af l. siðu.
allt of mikill einhliða kommúnist-
ískur áróður. En síðara ávarp Guð-
mundar var þó fullt af skömmum
og áróðri gegn stefnu ríkisstjórn-
arinnar og í ávarpinu tekin alger
afstaða gegn liinum minnstu
tengslum við Efnahagsbandalag
Evrópu. Þá voru einnig í því kröf-
ur um tafarlausa brottför varnar-
liðsins. Jón Sigurðsson lagði til,
að gerðar yrðu ítarlegar tilraun-
ir til þess að ná samkomulagi um
ávarpið EN KOMMÚNISTAR
NEITUÐU AÐ BREVTA EINU
EINASTA ATRIÐI í SÍNU UPP-
KASTI.
Var þá ljóst, að kommúnistar
höfðu evgan áhuga á samkomu-
lagi um 1. maí. — Er málið var
lagt fyrir 1. maí nefnd, bar Jón
Sigurðsson fram tillögu um það,
að kröfugöngunefnd yrði falið að
gera úrslitatilraun til þess að ná
samkomulagi um ávarpið. En sú
tillaga var felld með 10:19 atkvæð-
um. Var ávarp kommúnista síðan
(samþykkt með örfárra atkvæða
meirihluta.
Greinilegt er, að ætlun kommún-
ista hefur vrið að nota hátíðahöld-
in fyrsta maí til áróöurs gegn rík-
isstjórninni og þeim flokkum ér að
henni standa. Hins vegar vUdu full
trúar lýðræðissinna, þeir Jón |(Sig-
urðsson og Guðjón Sigurðsson, að
1. maí ávarpið yrði helgað kjara-
málum verkalýðsins eingöngu, —
Það vildu kommúuistar ek.;i 'fall-
ast á. r
Lýðræðissinnað fólk í verkalýðs-
hreyfingunni hefur tækifærí til
þess í dag 'að sýna hug sian til
klofningsstarfs kommúnista. Fjöl-
mennið á útifundinn á l ækjar-
i torgi.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 1. maí 1962 *
<