Alþýðublaðið - 04.05.1962, Side 4
Guðni Guðmundsson:
ERLEND TIÐINDI
osnmgum
STJÓRNMÁL virðast aldroi
tiggja í láginni í Bandaríkjunum,
iþví að aldrei líða meira cn tvö
ár á milli meiriháttar kosninga.
;í>að er dálítið málandi, að þar er
talað um „to run for“ (bókstaf
•lega „hlaupa eftir“) kosningu í
í|)etta eða hitt embættið og niður-
staðan er sú, að alltaf eru ein-
hverjir „að hlaupa" og gefa blöð
imi eitthvað til að skrifa um. Sum
ir hlaupa stöðugt og virðast al-
drei stanza, og nái þeir ekki kosn
ingu eru þeir kallaðir „also-rans“,
þ.e.a.s. „hann bauð sig líka fram,
«n . ..“
Nú líður senn að kosningum
enn einu sinni hjá þeim fyrir
vestan. í nóvember verður kjörið
í ríkisstjóraembætti og þingsæti
og hlaupin eru þegar byrjuð fyrir
alllöngu og á sumum stöðum fara
fram á næstunni undankosningar
lijá flokkunum um frambjóðend
ur til hinna ýmsu emþætta, svo
sem í Texas, þar sem demókratar
niunu velja á milli G manna, sem
allir telja sig vel til þess íallna
að vera frambjóðenduh ílokksins
við ríkisstjórakosningarnar í nóv
<ember.
Athyglin beinist þó aðallega að
tveim ríkjum New York og Kali-
forníu. í New York-ríki er nú
ríkisstjóri Nelson Rockefeller, og
ætlar hann að leita eftir endur-
■kjöri í haust, en það er meira í
húfi fyrir hann en embættið eitt,
.því.að eitir frammistöðu hans fer
hvort hann hefur von um fram-
boð fyrir repúblikana við forseta-
kosningarnar 1964 gegn Kennedy.
Eftir hinn mikla sigur Roberts
JYagner, borgarstjóra New York
borgar, á sl. vetri er enginn demó
krati talinn honum líklegri til að
geta staðið sig svo vel gegn
-Bgokefeller. Undanfarið hefur
því aðallega verið talað um
W’agner sem hugsanlegan mót-
frambjóðanda „Rockys" og fyrir
skemmstu voru látin síast úrslit
skoðanakönnunar sem demókrat
ar höfðu látið fara fram í rikinu,
sem Wagner reyndist hafa meira
fylgi en Rockefeller, eða 43% á
móti 41%, en 16% óákveðnir.
"Eftir að þessar tölur spurðust út,
\'4r talið einsýnt, að Wagner
mundi fara fram gegn Roekefell
(Nú gerðist það hins vegar um
síðustu helgi, að Wagner tilkynnti
að hann mundi ekki verða í kjöri
; til ríkisstjóraembættis í nóvemb
; er. Það er nú einu sinni gamalt
. bragð stjórnmálamanna að láta
.ggnga á eftir sér og vera akki of
fijótir að gefa skýlausar yfirlýs
ingar í slíkum íilfellum, en í
, þetta skipti virðist þó ástæða til
að trúa, því að Wagner var svo
ROBERT WAGNER
afdráttarlaus í neitun sinni, að
liann hefur tæplega nokkurn
möguleika á að snúa við aftur
blaðinu. Það er því svo að sjá,
sem hann sé aftur orðinn beirrar
skoðunar, að Rockefeller sé of
sterkur andstæðingur fyrir sig.
Ef svo er, þá hefur þessi ákvörð
un ef til vill meira að segja, en
maður skyldi halda við íyrstu sýn
Demókratar eru þess fullvissir,
að Kennedy muni verða endur-
kjörinn sem forseti 1964, og þeir
hugsa nú aðallega um að styrkja
aðstöðu hans á þingi. Ef það
tekst, verður það í fyrsta sinn
síðan 1934, að flokkur, sem hefur
forsetann, vinnur í millikosning-
um. Þeir vona sem sagt, að vin
sældir forselans muni færast yfir
á frambjóðendur þeirra. Repú-
blikanar hafa hins vegár boðið
víða fram sterka frambjóðendur
til ríkisstjóraembætta, og það er
engan veginn óhugsandi, að þau
framboð geti vegið eitthvað upp
á móti vinsældum Kennedys. Á-
standið er því raunverulega þarin
ig nú, að útlitið er mjög óvisst.
Mikið er að sjálfsögðu komið
undir því hvað repúblikanar gera
fram að kosningum. Þeir hafa
átt í miklum erfiðieikum' með
stefnu undanfarið, enda skortir
þá algjörlega forustumann. Þeir
virðast algjörlega klofnir í aft
urhaldssaman og frjálslyndan
arm. Rockefeller er frjálslyndur,
þó að hann hafi upp á síðkastið
verið að reyna að þurrka af sér
þann stimpil og vilji heldur láta
kalla sig einfaldlega repúblikana,
en hægri armurinn hefur sér að
leiðarljósi afturhaldsmanninn
Barry Goldwater. Það er einmitt
í þessu sambandi, sem ákvörðun
Wagners er veigamikil.
Það er vitað mál, að Wagner
er eini demókratinn í New York
ríki, sem nokkurn möguleika hef
ur gegn Rockefelier í nóvember,
og gæti þannig eyðilagt mögu-
leika hans á að verða írambjóð
andi repúblikana við' forsetakosn
ingarnar 1964. Ef Rockefeller
kemur vel út úr nóvemberkosn-
ingunum, þá heldur frjálslyhdi
19 útskrifast úr
Iðnskóla Akraness
armurinn áfram að dafna, en tap
hjá honum í nóvember hefði hugs
anlega getað dæmt repúblikana
til að hafa íhaldsmann að íram
bjóðanda 1964. Hugsanlegt er, að
Kennedy muni reyna að hafa á-
hrif á Wagner í þá átt að taka
ákvörðun sína aftur, en :í dag virð
ist ekki líklegt að það íakist.
Annar þekktur repúblikani er
að berjast fyrir sínu pólitíska lífi.
Það er Nixon, fyrrverandi vara-
forseti, sem 5. júní slæst um
repúblikana-framboðið til
ríkisstjóra þar við ríkan íhalds-
mann Shell að nafni. Það er nokk
urn veginn öruggt, að Nixon sigr
ar í þeirri undankosningu en hugs
anlegt er, að Shell fái nægilega
mörg atkvæði til þess, að stuðn
ingsmenn hans sjái sér leik á
borði að greiða Nixon ekki at-
kvæði í nóvember. Ef Nixon tap
ar kosningunni í nóvember gegn
núverandi ríkisstjóra, demókrat
anum Brown, þá má búast við,
að hans pólitíski ferill sé úti.
En slíkur ósigur mundi líka verða
til þess, að afturhaldsmenn í repú
blikanaflokknum yrðu háværari
í kröfum sínum um íhaldsmann í
framboð til forsetaembættis 1964
og þá helzt Barry Goldwater.
Sumir halda því jafnvel fram, að
í því efni mundu þeir njóta
stuðningshinna frjálslyndari afla
sem mundu þá vonast til þess að
mikill ósigur Goldwaters fyrir
Kennedy mundi taka vindinn úr
seglum íhaldsmanna.
• Þriðji repúblikaninn, sem boð
inn er fram til ríkisstjóraembætt
is og talað hefur verið um sem
hugsanlegan frambjóðenda 1964,
er Romney sá, sem framleiðir
Bamblerbíla, en hann er í fram
boði í Michigán og á við ramman
•reip að draga. Hann hefur hins
vegar litla reynslu í stjórnmáluin
og er algjörlega óþekkt stærð.
Framboð hans 1964 gæti senni-
lega aðeins orðið ef enginn
hinna þriggja íyrrnefndu væru
taldir hafa möguleika á sigri, eða
ef þeir sjálfir þyrðu ekki að
hætta pólitískri "ramtíð sinni í
baráttu við Kennedy.
IÐNSKÓLA Akraness var sagt
upp laugardaginn 14. apríl. Skóla
stjórinn, Sverrir Sverrisson á-
varpaðinemendur og afhenti próf
skírteini. Á skólaárinu höfðu nem
endum og kennurum Iðnskólans
verið sköpuð betri starfsskilyrði
en áður, enda lét núverandi
bæjarstjórn gera miklar endur
bætur á skólahúsinu. Að þessu
sinni var í fyrsta sinni hafin verk
leg kennsla við skólann fyrir nem
endur í Jbifvélavirkjun, húsasmíði
og .vólvirkjun og hafinn undirbún
ingur að .slíkri kennslu fyrir raf
virkja,
í vetur störfuðu S kennarar við
skólann auk skólastjóra, og voru
nemendur 63 í 4 bekkjum. Skól
inn var í fyrsta skifti í vetur dag
skóli og störfuðu 1. og 2. bekkur
fyrir áramót, en 3. og 4. bekkur
eftir áramót.
Vegna inflúensu varð að fresta
prófum um viku, en þeim lauk 4.
apríl.
Á 1. bekkjarprófi var Guðmund
ur Bragi Torfason efstur með
eink. 8,99, í 2. bekk Atli Marinós
son 8,76, í 3. bekk Huldar Ágústs
son 9,40, en það er hæsta aðal-
einkunn í skólanum nú.
Burtfararprófi luku 19 nemend-
ur, af þeim eru 8 í vélvirkjun,
4 í húsasmíði, 3 í netagerð, 1 í
blikksmíði, 1 í bólstrun, 1 í hús-
gagnasmíði og 1 í rafvirkjun.
Hæstu einkunn á burtfarar-.
prófi hlaut Guðmundur Jón-
mundsson vélvirkjanemi, 9,32 en
næsthæstu Þorsteinn Ragnarsson
blikksmíðanemi 9,13
Við skólaslit afhenti skólastjóri
Guðmundi Jónmundssyni bókar-
verðlaun frá Iðnaðarmannafélagi
Alcraness fyrir hæstu einkunn á
burtfararprófi og Þorsteini Ragn
assyni bókaverðlaun frá Iðnskól
anum fyrir ágætiseinkunn á burt-
fararprófi.
Fyrir hönd brautskráðra nem
enda flutti Þorsteinn Ragnars-
son nokkur ávarpsorð og færði
skólanum að gjöf mynd af kenn
erum og nemendum 4. bekkjar
1962;
Skólastjóri þakkaði gjöfina og
vinarþel nemenda til skólans,
cinnig færði hann öllum nemend
um og öllu starfsliði skólans þakk
ir fyrir ánægjulegt samstarf n
skólaárinu.
hdan
Hellisanði 2. maí.
NOKKRIR bátar eru á sjó frá
Hellissandi og er nú alls aflamagn-
ið frá áramótum orðið 2730.3 lest-
ir í 223 róðrum. Aflahæstur er
Arnkell með 645 tonn í 67 róðr-
uni, þar næst koma Tjaldur með
560 tonn í 67 róðrum, Ilamar með
540 tonn í 71 róðri, Sæborg með
499 tonn í 64 róðrum, og loks Svala
með 456,2 tonn í 54 róðrum.
Tíöarfar hefur verið ágætt á
Hellisandi og nær liggjandi sveit-
um undanfarnar vikur. í vorleys-
ingunum versnuðu vegir um
byggðarlagið allmjög, og eru veg-
ir jiú víða slæmir eða illfærir með
öllu.
Ágætt veður var liér 1. maí og
fóru hátíðahöldin fram með sóma,
og var margt gert til skemmtunar,
meðal annars var fengin hljóm-
sveit úr Reykjavík til að skemmta.
Einnig sýndi danspar úr Reykja-
vík tvist, og vakti það óskerta at-
hygli áhorfenda. Flaug Bjöm Páls-
son með þessa skeinmtikrafta báð-
ar leiðir.
ðWWWWWWWMMIWWWWWMMMWWWWMMWWWW
Soffía Ingvarsdófíir:
Engar sjoppur
við skólana
1 HVERT sinn er rls upp
nýr barnaskóli eða unglinga-
skóli hér í borg, er það segin
saga, að sjoppa sprettur upp
jafnsnemma í næsta nágrenni
við hann.
Sjoppur hafa reynst skólun
um sannkallaðar klakstöðvar
ómenningar. Þangað safnast
nemendur í frímínútum og
öðrum hléum til sælgætis-
kaupa, gosdrykkjaþambs og
sígarcttureykinga. Auk þessa
komast óharðnaðir unglingar
þar einatt I kynni við drukkna
menn og slangurlýð er gjarnan
leita á slíka staði.
Skólarnir gera sitt til að
draga úr þessu sjoppurápi, en
ekki er hægt að hnappsitja
unglinga í hverju hléi enda
skólalóðir yfirleitt ógirtar og
sízt getur skólinn ábyrgzt nem
endur á leið úr og í skólann.
Skólarnir áminna foreldra
um að láta böm og unglinga
ekki hafa peninga með sér í
skólann daglega enda allt slíkt
óþarft, því flestir skólar hafa
komið á hjá sér mjólkurdreif
ingu, en mjólkin er afhent
eftir miðum, scm greiddir eru
hálfsmánaðarlega. Þá er til
þess ætlast og brýnt bæði fyr
ir foreldrum og börnum að
þau hafi með sér smurt brauð
í skólann.
Sjoppur í nágrenni skóla
ber að banna með öllu.
Alþýðuflokkurinn telur, að
þetta sé stórt uppeldislegt
vandamál hér í borg, og því
beri borgarstjórn og borgar-
lækni að beita sér fyrir lög-
gjöf, sem banni sjoppur í ná-
grenni skóla, séu aðrar leiðir
ekki færar til að ná settu
marki.
iWWWWVtWWVWWWWVWtWWWWWWWWWW
4 4. maí 1962
ALt>YÐUBLAÐIÐ