Alþýðublaðið - 04.05.1962, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 04.05.1962, Qupperneq 5
STJÓRN Rauða __________ Kross íslands hefur k j ö r i ð fyrrverandi formann s i n n , Þorstein Scheving Thorsteins son lyfsala, heiðursfélaga RKÍ og var honum nýlega af- lient heiðursskjal af því til- efni. Þorsteinn Scheving Thor- steinsson hefur setið í stjórn Rauða Kross íslands frá upp- hafi, eða frá 1924, og verið fomaður hans frá 1947 og þar til hann lét af stjórnar- störfum í september s.l. Eng- inn maður hefur unnið eins mikið fyrir Rauða Kross ís- lands og mótað stafsemi fé- lagsins eins og íiann. Á myndinni sést Þorsteinn Scheving Thorsteinsson með heiðursskjalið. (Ljósm.: P. Thomsen). OÐINN VIÐ verki DRAKK EKKI TRÉSPlRA ÖLVAÐUR maöur var um síðustu helgi fluttur á Landsspítalann, og töldu læknar að hann hefði drukk- ið tréspíritus. Kvaðst maðurinn skyndilega hafa misst sjónina, og bentu öll einkenni til þess, að hann liefði neytt fyrrnefnds vökva. Nú er rannsókn í máli þessu lokið, og talið öruggt að maðurinn hafi alls ekki drukkið tréspíra. Maður þessi fór af spítalanum í fyrramorgun, og þá heill heilsu. Þorlákshöfn, 3. maí. FISKVEIÐARNAR virðast nú vera að deyja út, en menn geta verið ánægðir eftir ágæta vertíð. Friðrik Sigurðsson mun nú vera aflahæstur Þorlákshafnarbáta með um 800 tonn. Bátarnir eru hættir netaveiðum. Einn bátur var að koma að í gær- dag með 5—6 tonn. .— N.B. Var hann tekinn til yfirheyrslu, og hélt þá við fyrri framburð sinn, hann hefði keypt áfengi af leigu- bílstjóra, en álitið var að það hefði verið tréspíri. Gat maðurinn gefið einhverja lýsingu á þessum bílstjóra, og náðist hann. Viðurkenndi sá, að hafa selt manninum eina flösku af brennivíni nokkrum klukkustund- unyáður en hann var fluttur á spítala. Þá hefur það einnig sannast, að maður þessi sat að sumbli ásamt fleira fólki allt kvöldið. Kom hann með eina brennivínsflösku í sam- kvæmið, og er taiið víst, að þá flösku hafi hann keypt af leigubíl- stjóranum, en ekkert meira eftir að hanh fór frá fólkinu. Það er því talið fullsannað, að maður þessi hafi ekki látið annað en íslenzkt brennivín inn fyrir sínar varir, og blindan stafað af öðrum orsökum. Fallegur KraftmikiII Ódýr ORKA H.F. Laugaveg 178 / •• Skipstjórinn fái 153.000 ISRONDINA VARBSKIPIÐ Oðinn í gærkvöldi að ísröndinni við aust urströnd Grænlands, og snemma i morguir átti varnarliðsþyrlan, sem Óðinn flutti, að sækja danska sjúkl inginn á lóranstöðinni skammt frá Kulusuk. Þyrlan flýgur með sjúklinginn um borð í Óðinn og verður síðan haldið til íslands aftur og sjúk ingurinn fluttur í sjúkrahús hér. Ferð Óðins gekk að óskum, en hvasst var nokkuð. Ekki er búizt við honum aftur fyrr en á laugar- daginn. HÆSTIRÉTTUR hefur kveöið upp dóm í máli er Magnús H. Gíslason höfðaði gegn Bæjarútgerð Nes- kaupstaðar vegna vanskila á greiðslum útgerðarinnar á því fé Magnúsar, er bar að leggja í Líf- eyris- og dánarbótasjóð árin 1957 —1959. Er útgerðinni gert að greiða Magnúsi kr. 153.156.70 auk vaxta af hinum sundurliðuðu greinum heildarupphæðarinnar. Til tryggingar greiðslu fjárins fær Magnús sjóveðrétt í bv. Gerpi, NK 106. Svo var mál með vexti, að Magn ús H. Gíslason var skipstjóri á bv. Gerpi á árunum 1957 — 1959, en þá var skipið gert út af Bæjarút- gerð Neskaupstaðar. Kjarasamn- ingar þeir, er giltu um kaup Magn úsar, ákváðu skipstjórum afla- verðlaun, 2.25% af nánar tilteknu aflaverði. Einnig var útgerðaraðili skyldugur til að greiða til Lífeyr-1 is- og dánarbótasjóðs yfirmanna á i skipum Félags íslenzkra botn- vörpuskipaeigenda 0.5% af afla- verði. Þessi framlög eru ekki tal- in til skattskyldra tekna hlutað- eigenda. Verði vanskil á greiðslu til sjóðs ins af hálfu útgerðaraðilja, og sjóðfélagi hætti þátttöku í sjóðn- um af þeirri ástæðu, þá hækki afla verðlaun skipstjóra um 1.25% upp í 3.5% frá því að vanskil hófust. Ef sættir verða ekki milli skip- stjóra og útgerðar vegna van- skila sem þessara á 14 dögum, þá hækkar aflaverðlaun eins og get- ur að framansögðu. Símfóníutónleikar Simfóníuhljómsveit íslands hélt þrettándu hljómleika sína í vetur, í Háskólabíói í gærkveldi undir á- gætri stjórn Róberts A. Ottósson- ar. Fjögur verk voru á efnis- skránni öll mjög vel leikin. Vorsimfónía Schumanns var vel leikin, þó að mér finnist hún í daufara lagi á köflum. Wagner var vel leikinn og Polowits dansar Bo rodins tókust afbragðsvel. Söngur Fílharmóníukórsins var góður, en vantar tilfinnanlega. — Hljómleikunum lauk með marzi Hindemith, skemmtilegu og vel flúttu. G.G. Nú urðu vanskil á greiðslu Bæj- arútgerðar Neskaupstaðar á fé Magnvisar í Lífeyris- og dánarböta- sjóð árin 1957 — 1959, Árið 1960 tilkynnti svo Magnús, að hann myndi hætta þátttöku í sjóðnum, ef ekki yrði að gert innan 14 daga. Hlutaðeigendur sinntu ekki frek- ar málinu, og innan 14 daga hóf Magnús mál á hendur útgerðinni. í undirrétti var stefnda gert a3 greiða Magnúsi kr. 148.416.05 auk málskostnaðar. Þessu áfrýjuðu - báðir aðilar til Hæstaréttar, sem kvað upp dóm enn hagstæðari Magnúsi, því að greiðslur hækk- uðu til hans, auk þess sem hanu fékk sjóveð í Gerpi. Utankjörstaðakosning er hafin. Þeir sc<m ekki verða heima á kjör- degi geta kosið hjá sýslumönnum, bæjarfógetum og hreppstjórum og í Reykjavík hjá borgarfógeta. Er- lendis er hægt að kjósa hjá ís- lenzkum sendiráðum og ræðis- mönnum, sem tala íslenzku. Kosn- ingaskrifstofa borgarfógeta í Reykjavík er í Hagaskóla, skrif- stofan er opin alla virka daga kl. 10—12, 2 — 6 og 8 — 10. Sunnudaga kl. 2-6 Siglufirði, 2. maí. TEKIN var í notkun klukkan é í gær yfirbyggð sundlaug, sem hef- ur verið í smíðum s. 1. 4 ár. Húa er mjög glæsileg og til fyrirmynd- ar á alla vegu. Sigurjón Sæmundsson, bæjar- stjóri, ílutti stutta ræðu við opnun- ina, Lúðrasveit Siglufjarðar lék og Helgi Sveinsson, formaður íþrótta bandalags Siglufjarðar, flutti þakb ir fyrir hönd íþróttamanna fyrir þennan mikla áfanga. — J.M. Vegir ófærir á Snæfellsnesi Stykkishólmi, 3. maí. HÉR hafa'allir vegir verið ófærir í nokkra daga, og komast engir bíl- ar á milli — hvorki suður né út á Snæfellsnes. * Sums staðar er vegurinn horf- inn á köflum. Einkum er ástandið slæmt suður í Hreppum, en þar hefur vegurinn þurrkazt út. Er nú unnið að því að laga vegina. i Áburðarflutningum til bænda hér í nærsveitum er nú lokið, en áburðurinn hefur verið fluttur á skipum hingað. ' Einn bátur hætti róðrum í dag, en tveir voru hættir áður. Einn bátur er að búa sig á síldveiðar. Nú eru þrír bátar á netaveiðum. Formaðurinn | gekk aftur Þau tíðindi gerðust á fram- ! haldsaðalfundi Vélstjórafé- ] lags íslands í vetur, að for-') maður félagsins Egill Hjörv- ) ar sagði af sér formennsku ! og kvaðst mundu fela Gísla ! Ilafliðasyni að taka við af Í sér. í fyrrakvöld var haldinn ) [ fundur í félaginu — hinn !! fyrsti síðan. Stýrði Egill þá ! I fundi eins og ekkert hefði í skorizt og hann aldrei sagt af sér formennsku. Er farið var að inna hann eftir því, i; hvort hann væri ekki hætt- j) ur formcnnsku kvað hann í svo ekki vera og gaf eftirfa^- andi skýringu: Gísli Ilafliðá- son fékkst eftki til starfans en auk þess kom til greiná Bergsveinn Bergsveinsson, en ég treysti honum ekléi fyrir starfinu. Þess vegná varð ég að vera áfram. Þessi yfirlýsing Egils Iljörvar'S vakti mikla furðu fundad- manna og urðu út af henrfi miklar deilur á fundinum. Þykir framkoma Egils öH vera hin furðulegasta. f ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 4. maí 1962 £

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.