Alþýðublaðið - 04.05.1962, Page 13
Aðalfundur
Styrktarfél.
vangefinna
AÐALFUNDUR Styrktarfélags
vangefinna áriS 1962 var hald-
inn í Breiðfirðingabúð föstud.
30. mars.
Lögð var fram skýrsla stjórn-
arinnar um starfsemi félagsins
síðastliðið ár.
Síðan síðasti aðalfundur var
haldinn hafa félaginu bætzt 19
nýir félagar, þar af 3 ævifélagar.
í félaginu eru nú 568 félagar, þar
af 112 ævifélagar. í fyrra árs
skýrslu voru félagar taldir 440,
en voru þá 549, þar af 109 ævi-
félagar.
Félagið rekur skrifstofu að
Skólavörðustíg 18 í Reykjavík,
Skrifstofustjóri hefur verið séra
Ingólfur Þorvaldsson og hefur
hann séð um skrifstofuhaldið sem
fyrr og haft sér til aðstoðar
stúiku öðru hvoru. Störf skrif-
stofunnar liafa að langmestu
leyti verið í þágu fjáröflunar
starfseminnar, happdrættis,
merkjasölu o. fl. Heð bygging-
arframkvæmdum og Jeikskóla-
lialdi hafa fjársýslustörfin að
sjálfsögðu færzt mjög í aukana.
Skrifstofan veitir upplýsingar
varðandi vangefna og leitast
við að leysa ýmis vandamál
þeirra cftir föngum.
Fjáröflun félagsins var með
sama hætti og árið á undan. Efnt
var til hapþdrættis um 3 Volks-
wagen-bifreiðar og var árangur
mjög sæmilegur. Þá var stofnað
til merkjasölu með sama hætti
og undanfarin ár með dágóðum
árangri eins og jafnan fyrr. Auk*
þessa hefur félagið haft minn-
ingarspjöld á boðstólum, en hagn
aður af þeim hefur verið fremur
lítill. Félagið varð fyrir óhappi
í sambandi við söngskemmtun
ítalska drengsins Róbertinos, og
beið nokkurn halla í því sam-
bandi, svo sem reikningar fé-
lagsins bera með sér.
Merkasti áfanginn, sem náðst
hefur í málefnum vangefinni síð-
an síðasti aðalfundur félagsins
var haldinn er án efa hækkun sú
á gosdrykkja- og ölgjaldinu, sem
nú er orðin að lögum. Svo sem
kunnugt er var gjald þetta þre-
faldað og tími sá, sem gjaldið
vcrður innheimt tvöfaldaður.
Félagið hefur á síðastliðnu ári
tekið þátt í stofnun öryrkja-
bandalags íslands og er nú með-
limur í því sambandi.
Frá því á síðasta aðalfundi
liafa konur í félaginu haldið 9
fundi, þar af 2 gestafundi. Fund-
ina hafa sótt að meðaltali 50
manns. Á dagskrá fundanna hef-
ur jafnan verið eitthvað til fróð-
leiks og skemmtunar. Á þessu
tímabili hafa konurnar haft baz-
ar tvisvar og kaffisölu jafnframt
og einu sinni kaffisölu eingöngu.
Tekjur af þessari fjáröflun, sem
mun vera nálægt 140 þús. hafa
allar runnið í sérsjóð kvenna.
Úr honum hafa verið veittar
nærri 200 þús. krónur' á árinu
eitthvað til allra heimila vangef
inna i landinu. Reikningar sjóðs
ins fylgja reikningum félagsins
og eru endurskoðaðir með þeim.
í sjóðstjórn eru nú:
Kristrún Guðmundsdóttir,
Þórunn Sveinsdóttir og
Stefanía Vilhjálmsdóttir.
Nú um mánaðamótin lætur sr.
Ingólfur Þorvaldsson af störfum
hjá félaginu, samkvæmt eigin
ósk. Séra Ingólfur hefur starfað
hjá félaginu síðan á öndverðu
ári 1959. Stjómin ' þakkar séra
Ingólfi fyrir mikið og vel unnið
starf í þágu félagsins og árnar
honum allra heilla.
Ársreikningur félagsins voru
lagðir fram og skýrðir af skrif-
stofustjóra félagsins, sr. Ingólfi
Þorvaldssyni, er mælti að lok-
um árnaðarorð til félagsins. — !
Reikningar félagsins voru samþ.
samhljóða og athugasemdalaust.
Endurkjörin var í stjóm félags
ins frú Kristrún Guðmundsd., en
í stað frú Fanneyjar Guðmunds
dóttur, sem baðst undan endur-
kosningu, var kosin frú Svein-
björg Klemensdóttir.
Auk formanns, sem eins og áð
ur er getið færði sr. Ingólfi
Þorvaldssyni þakkir stjórnarinn-
ar, fluttu Aðalsteinn Eiríksson
námstjóri frú Kristrún Guð-
mundsdóttir gjaldkeri félagsins
o.fr. Ingólfi Þorvaldssyni þakkir
ir fyrir ágætlega unnin störf í
þágu fél. og honum og konu hans
árnaðaróskir.
HVAÐ MEINAR BISKUP?
BISKUP hefur gefið út bækling
um Votta Jehova og núna 30.
marz hefur hann birt grein í
flestum blöðum bæjarins, sem
hann kallar „Svar til Votta Je-
hova”.
Þegar þessi tvenn skrif biskups
eru borin saman koma í ljós
mótsagnir, sem fróðlegt er að
athuga.
í biskups bæklingi stendur á
blaðsíðu fimm: „Vottar Jehova
segja, að Jehova (svo nefna þeir
guð sinn) hafi hafnað kirkjunni
árið 1877" o. s. frv.
Hér segir biskup að Jehova sé
guð Votta Jehova en ekki sinn
guð þvi annars hefði hann ekki
kallað Jehova þeirra guð.
í blaðagrein biskups (30. marz)
segir biskup í grein þrjú, þav
sem hann skýrir Jehova nafnið.
Guðinn, sem þeir (Vottar Jeho-
va) boða, á nafnið að nokkru
leyti sameiginlegt með Bibli-
unni og kristinni guðstrú, en
litið annað. v
Með öðrum orðum er nafnið
Jehova biblíulegt. En hvað með
kristna guðstrú? Jú, samkvæmt
skrifum biskups á kristin guðs-
trú nafnið að nokkru leyti sam-
eiginlegt með Vottum Jehova
(Biblían getur ekki átt nafnið að
nokkru leyti). En hvað með bisk-
UP? Jú, í bæklingnum segir bisk-
up að það sé þeirra guð en ekki
sinn.
Skrítið! Biskup lifir þó af- ttú
biblíunnar eða hvað? Og samt
liafnar har.n guði hennar.
Skrífið! Lifir hann á öðru'’ Ltf
ir hann ef til vill á áhugaleysi
fólksins á trúmálum?
Margt fleira álíka furðulegt
kemur í'ljós við samanburð þess-
ara tveggja skrifa biskups, eins
og t. d. í kaflanum: Ekki kristin-
dómur (í bæklingnum á blaðsíðu
þrettán). Þar telur biskup upp
sjö atriði, sem sýna, að Vottar
Jehova eru ekki kristnir. Þriðja
atriðið er: „Þá segja þeir og að
Jesús hafi ekki orðið Messias
fyrr en við skírnina og hann liufi
ekki risið líkamlega upp frá
dauðum.
Þetta er eitt af þeim sjö atr-
iðum, scm sýna að Vottar Jeho-
va eru ekki kristnir.
í blaðagrein biskups kveður
samt við annan tón. í lið númer
sjö, segir biskup loks hverju
kristnir menn trúa og segir hann
orðrétt: „Skírnin markar þátta-
mót í jarðneskri sögu Jesús, Þar
af kemur hann fram sem guðs
smurði!” /
Almenningi til fróðleiks þyðir
hebrezka orðið Messías hinn
smurði og gríska orðið Kristur
þýðir líka hinn smurði.
Skrítið! Kristnir menn trúa að
Jesús hafi fyrst orðið Messias
við skírnina, en Vottar Jehova
eru ekki kristnir vegna þess að
þeir halda því fram. ,
Hvað jólasveina hátíðinni við-
kemur, sem kölluð er jól, álit ég
að jafnvel biskup landsins sjái
lítið kristilegt við hana eins og
hún er haldin í dag.
Öðrum til fróðleiks má geta
þess, að dýrkendur ljósguðsins
Mitra, héldu fæðingardag Mitra
hátíðlegan 25. desember. Mitra-
trúin náði hápunkti sínum 275 —
300 e. kr. í þeim hluta heimsins,
sem síðar var kallaður hinn
lcristni heimur, þegar Aurelian
í Róm gerði Mitratrú að ríkistrú
(dýrkun hinnar ódauðlegu sólar
— Sol invictus). Minjar Mitra-
trúar hafa fundizt mjög viða og
jafnvel í Þýzkalandi, sem sýnir,
EINS og kunnugt er, æfa Þjóð-
verjar unga menn í her-
skyldu á sérstökum skólaskip-
um, sem m. a. hafa komið í
heimsókn hingað til lands. Hafa
skólaskip þeirra siglt yfir 200
þúsund sjómílur í þessu mark-
miði síðan 1958—1959.
Hitt hefur ef til vill ekki verið
í heimsfréttunum að undan-
förnu, að um borð í hverju skóla
skipi er að finna „fjórfætta sjó-
Qða“ — einkum hunda og ketti.
Myndin er af einum slíkum,
sem gegnir sinni „herskyldu" á
freigátunni „Hipper".
Ekki kunnum við þó að
greina frá því, hvern titil þessi
ber, en frétzt hefur af skips-
hundi á „Gorch Fock“, sem ber
nafnið Whisky og hefur nýlega
verið útnefndur undirliðþjálfi.
að útbreiðsla hennar náði ut fyr-
ir Rómaveldi.
Jól voru fyrst haldin af kristn-
um mönnum um 350 e. kr. og
þurfti þá aðeins að breyta nafn-
inu Mitra í Krist, svo út kærni
kristileg hátíð. Kristilegt, ekki
satt? Jafnvel þótt vitað sé með
vissu að Jesús fæddist ekki í
desember.
Merkilegt!
G. H. G.
ALþÝÐUBLAÐlÐ - 4. maí 1962 13