Alþýðublaðið - 04.05.1962, Side 16
9
HALLDOR Kiljan LAXNESS
kom til Eeykjavíkur í gær-
morgun með Gullfossi. Alþýðu-
blaðið hringdi að Gijúfrasteini
gær og spurði Laxness frétta
af hinu nýja leikriti, um næstu
verkefni og óskaði honum allra
heilla á sjöunda ævitugnum.
— Hvernig tóku Hafnarstúd-
entar nýja leikritinu? (Laxness
las hið n ý j a leikrit sitt,
PRJÓNASTOFAN SÓLIN, á
fundi með íslenzkum stúdent-
um á sextugsafmæli sínu á 2.
í páskum).
— Ég las í hálfan þriðja
tíma, — og fékk mjög gott
hljóð.
— Hefur eitthvað verið á-
kveðið um útgáfu leikritsins eða
sýningar á því?
— Nei, ég hef ekkert skipt
mér af því. Aðeins haft ánægj-
una af því að skrifa leikritið.
— Voruð þér byr jaðir á þessu
leikriti, áður en þér fóruð utan?
— Nei, ekki staf, en ég hafði
það í höfðinu.
— Hvernig ieikrit er . . .?
— Það er bezt að láta aðra
dæma um verkið, hvernig það
er. Ég skrifaði það.
verjalandi skömmu áður en ég
fór til Hafnar.
— Og hélduð þar upp á af-
mælið?
— Nei, ég hef aldrei haldið
upp á afmælið mitt og gerði
það ekki heldur núna.
— Hvar voruð þér í vetur?
— Við höfðum íbúð í Vín, en
vorum á ýmsum stöðum. Ég var
til dæmis í París í desember,
seinna í Prag, á Ítalíu og i Ung-
— Verðið þér lengi heima?
— Ég hef aldrei nein plön.
— Hafið þér eitthvað nýtt í
höfðinu, sem segja mætti frá?
— Ég er ekki vanur að segja
fá því, sem ég ætla að gera fyrr
en ég er búinn að því og jafnvel
þá læt ég aðra um að tala um
verk mín.
— Við fáum þá kannski að
sjá það seinna? — Velkomnir
heim. II
ARNI PETURSSON, kennari, hef-
ur verið skipaður skólastjóri
búnaðarskólans að Hólum í Hjalta-
dal frá 1. júní n. k. Árni hefur ver-
ið kennari við Hólaskóla s.l. 10 ár
og kennt búfjárrækt, náttúrufræði
og efnafræði. Alþýðublaðið átti
símtal við hinn nýskipaða skóla-
stjóra í gær.
Hann sagði, að búnaðarskólinn
að Hólum yrði starfræktur með
sama sniði í sinni stjórnartíð eins
og verið hefði síðustu árin. Skól-
inn hefst 15. október að hausti, ef
nægur nemendafjöldi hefur sótt
um skólavist, en nemendur þurfa
að vera orðnir 16—17 ára. 18 nem-
endur hófu skólagöngu að Hólum
á síðastliðnu hausti, en af þeim
hafa 7 heltst úr lestinni. Einn hætti
námi sökum veikinda, en hinir 6
gengu burt í vetur vegna ósam-
komulags við skólayfirvöld og þá
einkum skólastjórann Gunnar
Bjamason.
Árni Pétursson sagði í gær, að
þessum piltum hefði verið gefinn
kostur á að koma aftur í skólann,
og hefðu sumir þeirra haft hug á
því, en hætt svo við það á síðustu
stundu og ákveðið að leggja í ann-
að nám.
Árni Pétursson er næst elztur
í starfi kennara, sem nú starfa við'
Háskóla. Sá þeirra, sem lengst hef-
ur kennt, lætur af störfum fyrir
aldurs sakir eftir næsta ár. Árni
stundaði nám við Búnaðarskóla í
Kaupmannahöfn og lauk þaðan
kandidatsprófi.
GAINAGERÐIN:
Sjálfstæðisflolikurinn boðar það |
t Morgunblaðinu i gær, að borgar- j
mwwwwwwwwiwwtw
Saga
mtslí til
næsta
bæjar
LISSABON - Telpuhnokki
í Sebadelhe í Portúgal meidd-;
ist illa í síðastliðinni viku,
þegar sprengikúla sprakk á
heimili hennar. Rannsókn
leiddi í ljós, að kúian var frá
tímum frönsku innrásarinnar
á valdaskeiði Napóleons!
Vö«v, vvvw v . - VW virVVVv'
stjórn Reykjavikur ætli að full-
gera gatnakerfi borgarinnar á
næstu 10 árum og malbika allar
þær götur, sem eftir er að mal-
bika nema í þeim hverfum, sem
gerð verða byggingarhæf síðustu
þrjú ár áætlunarinnar, þ. e. 1970
— 1972. — Þetta hljómar vel og
vissulega hefði borgarstjórn mátt
gera slíka áætlun, fyrr. En vinnu-
brögð meirihluta borgarstjórnar
undanfarin ár í gatnagerðinni spá
ekki góðu.
Lítum í síðustu ársskýrslu bæj-
arverkfræðings, sem er fyrir árið
1960. í lienni segir, að samanlögð
lengd gatna 1960 hafði verið 164.4
km. Á 52.0 km. hafi þá verið mal-
bikslitlag og hafði sú lengd auk-
izt um 0.9 km. i árinu. En mal-
bornar götur voru þá alls 112.4 km
að lengd. Var þetta þó bezti árang-
ur, sem náðst hafði í malbikun hjá
meirihluta borgarstjórnar. Árið
áður voru aðeins malbikaðir 0.8
km. og árið þar áður 0.7 km.
Með þessum vinnuhraða tekur
það því nokkuð á annað hundrað
ár að malbika þær götur borgar-
innar, sem enn er eftir að malbika.
Það er eðlilegt, að menn séu van-
trúaðir á áætlanir íhaldsins þegar
reynslan er ekki buröugri en
þetta.
Njarðvfkur-
Iistinn
LÍSTI Alþýðuflokksins við hrepps-
nefndarkosningarnar í Njarðvík-
um hefur verið ákveðinn þannig:
1. Ólafur Sigurjónsson, hrepps-
stjóri.
2. Helgi Helgason, verkamaður.
3. Ólafur Thordarsen, fríhafnar-
stjóri.
4. Sigurður Ásmundsson, bifreið-
arstjóri.
5. Sólbjörg Vigfúsdóttir, húsfrú.
j 6. Gunnar Kristjánsson, varð-
stjóri.
7. Hilmar Þórarinsson, rafvirki.
8. Kristján Pétursson, ráðningar-
stjóri.
9. Guðbergur Sveinsson, verka-
maður.
10. Eiríkur Þorsteinsson, vélstjóri,
Frambjóðendur Alþýðuflokksins
til sýslunefndar eru, Guðmundur
Finnbogason og Gunnar Steind'órs-
son.
Njarðvíkurhreppur mun nú vera
næst fjölmennasti hreppur lands-
ins með um 1400 íbúa.
WWWWWWWWWWWWWWWWWWM WWWWWWHMtMtHWWMMtHMWWHWWW
A-LISTA SKEMMTUN / LIDÓ
★ KVOLDSKEMMTUN A-listans verður í
Lido I kvöld kl. 9. Þar verða fyrsta flokks
skemmtiatriði, flutt þrjú stutt ávörp og dans
að til kl. 1. Óperusöngvararnir Guðmundur
Jónsson og Kristinn Ilallsson syngja glunta
og Ævar Kvaran leikari skemmtir. Ávörp
flytja: Soffía Ingvarsdóttir, Björgvin Guð-
mundsson og Eggert G. Þorsteinsson. Pétur
Pétursson setur skemmtunina. Þeir, sem enn
liafa ekki sótt boðsmiða á flokksskrifstofuna,
eru beðnir að gera það sem fyrst í dag. —
Borðpantanir í Lido.
:!
m m ap* E®*
i tT
< * 1 Í5 i Í h I
43. órg- — Föstudagur 4. maí 1962 — 100. tbl.
\I\D NÓI AWfil A