Alþýðublaðið - 20.05.1962, Síða 2
JRltstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Aðstoðarritstjóri:
Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími
14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
S-7IO. — Áskriftargjald Kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef-
andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson.
■i- . ; . .. •; ••'.■'
, V;
■ Húsin við Lækjargötu
t ÞAÐ VAKTI jþjóðarathygli í fyrrasumar, þegar
Seðlabankinn keypti húseignina Lækjargötu 4 fyr
ir liðlega 10 milljónir króna og hækkaði með einu
pennastriki allt lóðaverð í miðbænum. Þessi eign
var metin til stóreignaskatts fyrir fimm árum á 1,5
milljónir, og er því hreinn gróði eigendanna yfir
8 milljónir króna.
Næstu hús fyrir sunnan eru Lækjargata 6A og
6B. Þau hús verða að hverfa eftir fá ár tii að Kirkju
stræti geti náð út í Lækjargötu. Samkvæmt núver
andi verðlagi þarf bærinn að greiða af útsvörum
borgaranna að minnsta kosti 10 milljórnir króna
til að koma því skipulagi fram á sama tíma sem hús
eigendur hirða yfir 8 milljónir í gróða af næsta
húsi.
Þetta fjármálakerfi á ekki skylt við neitt réttlæti
og er í algeru ósamræmi við félagslegan hugsunar
hátt mikils meirihluta íslendinga. Þess vegna verð
ur að setja þau lög, að ekki minna en helmingur af
yerðhækkun selda fasteigna renni beint í skipulags
sjóð, sem notaður er til að greiða kostnað við það
sama skipulag, sem gefur fasteignunum hið háa
verð.
Hingað til hefur aldrei verið hægt að koma þessu
í lög. Hin óbeinu, þöglu áhrif peningamanna hafa
alltaf getað teygt krumluna inn á Alþingi til að
eyða málinu hljóðalaust. í Reykjavík hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn haldið vemdarhendi yfir þessu
stórfellda lóðabraski og ausið úr sjóðum bæjarins
til að tryggja stórfyrirtækjum og stofnunum lóðir
í nýjum bverfum í stað þess að láta þessa aðila
'hyggja upp'gamla bæinn. Allt hefur þetta kostað
Reykvíkinga milljónir á milljónir ofan —en hinir
fáu lóðaeigendur hafa hirt milljónagróðann.
Eins og almannatryggingar eru til þess að færa
fé frá þeim, sem eru aflögufærir, til hinna, sem
eru þurfandi, hefur lóðabraskið haft öfug áhrif.
Það veldur stórfelldum flutningi á fé frá almenn-
ingi, sem borgar útsvörin í Reykjavík, sem á sjóði
Seðlabankans og slíkra stofnana, til hinna fáu lóða
eigenda. Þarna er straumur peninga í öfuga átt,
straumur sem gerir hina ríku ríkari án nokkurrar
fyrirhafnar og á kostnað almennings. Þennan
straum hefur meirihlutinn í borgarstjórn Reykja
víkur svikizt um að stöðva.
Þessi ástæða ein er nægileg til þess, að Reykvík
ingar eiga að veita Sjálfstæðisflokknum í borgar-
stjórn sterkt aðhald. Hann verður ekki felldur frá
meirihluta í þessum kosningum, en með því að
< fla ábyrgan og lýðræðislega-n andstöðuflokk í
■ iorgarstjórninni mundi Sjálfstæðisflokkurinn
: eyðast til að haga stefnu sinni meira í samræmi
i ið hagsmuni fjöldans en hann hefur tíðum gert.
Lögreglumaður svarar
Mánudagsblaöinu
í MÁNUDAGSBLAÐINU dag-
settu 21. þ. m. og sem verið er að
selja á götum Reykjavíkur í dag
er á forsíðu árásargrein á lög-
regluna um næturárásir á reyk-
vískra borgara. í undirfyrirsögn
er sagt, að lögreglumenn fremji
ferleg brot, handtaki saklausa
borgara og ,,saki“ þá um „meint
áfengiskaup“. Grein þessi er
mjög rætin í garð lögreglu-
manna og það efnij sem þar er
tekið til meðferðar, er rangfært
og mistúlkað á svo freklegan
hátt, að óhjákvæmilegt er að því
sé svarað.
Enginn verður sakaður um á-
fengiskaup. Það er hverjum
manni heimilt að kaupa áfengi
hevnær sem er, af hverjum sem
er og á hvaða verði sem er. Kaup
andi áfengis, sem ólöglega er
selt, er aðeins kvaddur til sem
vitni í máli gegn þeim er seldi
og þegar lögreglan óskar eftir
vitnisburði, er borgarinn skyld-
ugur til að svara og skyldugur
til að segja satt og rétt frá. Það
er gagnrýnt í blaðinu, að lög-
reglumenn skuli vinna störf sín
óeinkennisklæddir, en því er til
að svara, að mörg afbrot sem
framin eru að næturlagi eru
þess eðlis að þau verða síður upp
lýst af lögreglumönnum í ein-
kennisfötum. Má þar nefna leyni
vínsölh auk þess, sem þjófnaðar
mál og innbrot verða síður upp
lýst ef verðið laganna klæðast
einkennisfötum.
Rannsóknarlögreglumenn eru
óeinkennisklæddir og er óþarfi
að skýra frekar nauðsyn þess.
í nefndri Mánudagsblaðsgrein,
er sagt frá því, að tveir farþeg
ar úr leigubifreið, hafi verið
teknir á lögreglustöðina vegna
„meintra áfengiskaupa“. Forsaga
þess máls er þessi:
Óeinkennisklæddir lögreglu-
menn veittu athygli tveim mönn
um, sem virtust vera að leita ein
hvers við stöðvarhús Hreyfils
við Kalkofnsveg. Þeir töluðu við
ökumenn, sem komu og fóru en
gengu loks á brott. í því bar að
leigubifreiðina R-7380. Þeir
stöðvuðu hana, höfðu tal af öku
manni um framrúðu og settust
inn í bifreiðina, þó að farþegi
væri fyrir í henni. Síðar kom í
ljóst, að mennirnir þekktu
hvorki farþega eða ökumann.
Ökumaðurinn, ICristján Jónsson,
ók nú skemmtu leið heim til sín
að Brekkustíg 6. Hann fór inn
og kom strax út aftur. Skömmu
síðar tóku lögreglumennirnir
hann tali og farþega hans og
kom þá í ljós að í bifreiðinni
voru fjórar flöskur áfengis, þar
af tvær undir framsæti. Vegna
ósamhljóða framburðar, tóku yf
irheyrzlur alllangan tíma.
• Mál þetta þarf ekki frekar að
útskýra, en það var sent yfirsaka
dómara til framhaldsrannsóknar.
Frá 1. júlí 1960 til dagsins í
dag, hefur lögreglan í Reykja-
vík sent 180 kærur á hendur rúm
lega 100 leigubifreiðastjórum
fyrir brot á Áfengislögunum.
Sumir hafa fengið allt að sjö
kærum. Af þessu sést að mikið
hefur verið um þessi brot, þó
að lögreglan hafi hvergi nærri
getað sinnt þessum málum sem
skyldi. Það þarf að gerá meira
en kæra leynivínsala og dæma.
Það þarf að kom í veg fyrir að
þeir grípi strax til fyrri iðju,
er þeir hafa lokið við útttekt
dóms. Stöðvarstjórarnir þurfa
' að framfylgja þeim ákvæðum,
sem leigubifreiðarstjórar hafa
sett, en það cr að þeir missi
stöðvarréttindi, sem dæmdir eru
fyrir leynivínsölu. Það er stað-
Framhald á 14. síðu.
Mæ&rablómið
MÆÐRABLÓMIN verða seld á
morgun að venju á þessum degi.
Allur ágóði af sölu mæðrablóm-
anna rennur í sjóð, sem notaður er
til reksturs sumardvalarheimili
mæðra í Hlaðgerðiskoti í Mosfells-
sveit.
Börn, sem selja blómin fá sölu-
laun, og blómið kostar 10 krónur
eins og áður hefur verið.
Mæðrastyrksnefnd er skipuð
þessum konum:
Jónína Guðmundsdóttir, form.
Svava Mathiessen,
Guðfinna Jóhannsdóttir. ’
TJOLD
margar stærðir, úr hvítum og
mislitum djúk, með vönduðum
rennilás.
SÓLSKÝLI
SVEFNPOKAR
BAKPOKAR
VINDSÆNGUR
margar gerðir
SÓLSTÓLAR
margar gerðir
GARÐSTÓLAR
GASSUÐUÁHÖLD
(proþangas)
FERÐAPRÍMUSAR
SPRITTTÖFLUR
POTTASETT
TJALDBORÐ
TÖSKUR
m/matarílátum
picnictöskur)
TJALDSÚLUR
úr tré og málmi
TJALDIIÆLAR
VEIÐISTÍGVÉL
VEIÐIKÁPUR, ný tegund
FERÐA og SPORT-
FATNAÐUR
alls konar.
Geysir h.f.
Vesturgötu 1.
VorsS er komið
Sumaríöt
Síakir jakkar
Síakar buxur
Ensk
Þýzk
Islenzk
Japönsk
fataefni
Sauraum eftir máli
2* 20. maí 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ