Alþýðublaðið - 20.05.1962, Blaðsíða 8
R e u t e r .
Þær eru ekki fáar
fréttirnar í blöðunum, sem
byrja á þessu orði — eða:
fréttastofa Reuters tilkynnir.
Nýlega sáum við grein í
dönsku blaði - um manninn,
sem stofnaði þetta ágæta
fyrirtæki. Fer hún hér á eft-
ir, litið eitt stytt.
Julius Reuter byrjaði árið
1849 að senda kauphaliarfrétt
ir með bréfdúfum frá Briiss-
el til Aachen. Fréttirnar voru
skrifaðar á næfurþunnan
silkipappír, sem festur var
undir . vængi dúfnanna. Dúf-
umar voru sjö til átta klukku
stundum á undan járnbraut-
arlestum, sem vanalega fluttu
póstinn með þessum upplýs-
ingum.
Tveim árum síðar flutti
Reuter svo til London og
stofnaði þar Reuter símskeyta
félagið. Tólf ára drengur var
eini starfsmaðurinn utan
Reuters sjálfs.
I dag starfa um tvö þúsund
manns hjá fyrirtækinu, þar
af fimm hundruð í London.
Fyrirtækið er nú í eign
brezkra dagblaða og dreifir
fréttum til dagblaða um all-
an heim.
Julius Reuter dó árið
1899, þá var fyrirtæki hans
orðið geysistórt, og honum
hafði hlotnast ýmis heiður.
Hraði, áreiðanleiki og hlut
leysi voru kjörorð Reuters.
Þegar Abraham Lincoln var
myrtur í Washington árið
1865, þá var fréttastofa Reu-
ters fyrst með fréttina í Ev-
rópu, 14 dögum eftir að það
skeði. Þetta var áður en sæ-
síminn kom til sögunnar, nú
er hægt að senda fréttir út
um allan heim á örfáum
mínútum.
Mörgum árum síðar var
fréttastofa Reuters fyrst með
fréttir af því, þegar annar
frægur var myrtur. Það var
árið 1949, þegar Gandhi var
myrtur. Fréttastofa Reuters
var einnig fyrst til að senda
fréttir af því, þegar sveitir
bandamanna gengu á land í
Normandí.
Einhver allra þýðingar-
mesta frétt, sem Reuter var
fyrstur með, og óhætt er að
segja að hafi haft áhrif á
gang heimsmálanna, var þeg-
ar Reuter tilkyryiti, að
Himmler . og Bernadotte
greifi hefðu sameiginlega
rætt um uppgjöf Þýzkalands.
Þýzka áróðursmálaráðuneyt-
ið heyrði þessa Reutersfrétt
í útvarpi og var tilkynning
um hana þegar í stað send
til Hitlers. Sumir vilja halda
því fram, að þegar Hitler
fékk þessar fréttir hafi hon-
um skilizt að nú væri úti um
allt og hefði hann þá fram-
ið sjálfmorð, en að sjálf-
sögðu veit enginn hversu
mikið satt er í því.
Fréttastofa Reuters hefur
alla tíð verið þekkt fyrir á-
reiðanleika, fréttir þaðan
eru ætíð eins nákvæmar eins
og unnt er.
Það er haft eftir fyrrver-
andi yfirmanni fréttastofunn
ar, að þeir seldu fréttir, en
ekki áróður og hlutleysi hef
ur alltaf verið aðalsmerki
Reuters. „Munurinn á frétt-
um og áróðri er,“ sagði hann,
„að þegar um fréttir er að
ræða, þá borgar móttakand-
inn, en sé um áróður að
{ræða, þá borgar sá, :þm',
sendir hann frá sér.“
Haltu þér
saman
New York (Upi).
Fyrir skömmu skeði
það í borginni Des Moins í
Iowa fylki, að maður nokkur
var dæmdur í sex mánaða
fangelsi fyrir að gorta af
því, að hann hefði mútað
dómara. Það var dómarinn,
sem hann sagðist hafa mút-
að, sem dæmdi hann til
fangelsisvistarinnar, og lét
hann þau orð fylgja, er
hann kvað upp dóminn, að
þetta ætti að kenna honum
að halda sér saman, og segja
ekki nema það sem satt
væri.
New York.
Það hefur nú verið
endanlega ákveðið, að Ben-
ny Goodman fari með hljóm-
sveit sína til Rússlands. Alls
mun ferðalagið taka sex vik-
ur og mun hljómsveitin leika
í öllum stærstu borgum í
Sovétrikjunum.
Ýmsir bandarískir tónlist-
armenn eru ekki sem ánægð-
astir yfir því, að hljómsveit
Benny Goodman skuli hafa
verið valin til þessarar far-
ar. Segja þeir, að sú tegund
tónlistár, er Benny Goodman
leiki sé orðin gamaldags og
nær hefði verið að senda ein
hverja hljómsveit er léki ný
tízkulegri jazz.
Það verður gaman að sjá
hvernig viðtökur leikur Ben-
ny Goodman fær hjá almenn
ingi í Rússlandi. Fram til
þessa hefur Rússum jafnan
verið bannað að hlusta á
„vestræna tónlist”, en þessi
ferð hljómsveitarinnar mun
þáttur í listamannaskiptum
Bandaríkjamanna og Rússa.
TIL HAMING
í dag er mæðradagurinn. Allir
góðir synir og góðar dætur ættu
að vera móður sinni til gleði alla
daga ársins, en þrátt fyrir góðan
ásetning, fer stundum svo, að þau
^ryggja hana einhvern tíma,
sumir sjaldan en sumir
in, sem gerði sér svo toj£
um framtíð barnsins, s
í faðmi hennar í fyrstla
ur stundum þurft að
brostnum vonum, og tár
JÆJA, nú er senn hver síffastur aS klófesta þessi tæki. Þið kanni
tækin, sem eru verðlaunagripirnir í getraun AlþýSu blaðsins um úrsl
eru frá Radíóstofu Þorsteins & Viíbergs viS Laugaveg. — Keppnisi
FylliS einfaldlega út seSilinn hérna fyrir endanum og reyniS eftir be
UNA, sem flokkarnir fá í borgarstjórnarkosningunum. ÞaS er allur gald
ar á AlþýðublaSinu og merkið umslagið: Alþýðublað ið, Reykjavík, Ko:
einasta íslendingi er heimil þátttaka og hver 'einn og einasti má
sýnist. Þátttakandi þarf hreint ekki að hafa kosningarétt heldur. —
í VERK! ÞAÐ KOSTAR ÞIG EKKI EYRI, EN ÞÚ GETUR ORÐID ÖTVARPS
- P. S. Ef margir spá rétt fyrir um úrslitin, verður dregið um verð
*W*MWWWWIWIWWWWWIIWWIWWWW*A>MWWWW
1—Miw»aa—■—wb
8 20. maí 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ