Alþýðublaðið - 20.05.1962, Blaðsíða 13
ÆOECSfí)
k, u L*J
s K E oss n
AÐALFUNDUR
AÐALFUNDUR Félags löggiltra
rafvirkjameistara í Reykjavík var
baldinn í Þjóöleikhúskjallaranum
10. þ. m.
Úr stjórn og varastjórn áttu að
ganga:
Vilberg Guðmundsson og Sig-
uroddur Magnússon, en voru báð-
ir endurkjörnir.
Stjórn og varastjórn skipa nú:
Árni Brynjólfsson, form., Vilberg
Guðmundsson, ritari, Johann Rön-
ning, gjaldkeri, Finnur B. Krist-
jánsson, Ólafur Jenssen og Sigur-
oddur Magnússon.
KVENFÉLAG Alþýðuflokksins
á ísafirði hélt fund í veitingasal'
Alþýðuhússins nýlega.
Á fundinum voru rædd ýmiss
félagsmál, m.a. var kosin nefnd
til að hafa með höndum, ásamt
með nefndum frá hinum flokks
félögunum í bænum, undirbúning
vegna bæjarstjórnarkosninganna.
Björgvin Sighvatsson, kennari,
sem skipar 5. sætið á H-listanum,
sem borinn er fram af Alþýðu-
flokknum, Alþýðubandalaginu og
Framsóknarflokknum, ræddi um
bæjarmál og bæjarstjórnarkosn-
ingarnar.
Gamla bíó: Uppreisnin um borð
— bandarísk mynd um sannan at-
burði.
Hafnarbíó: Hættuleg sendiför
— bandarísk mynd — aðalleik-
ari og framleiðandi: Ricliard Wid
mark. Mjög sæmilega gerð.
UPPREISN um borð er alltaf
v vinsælt efni fyrir æsingaþyrsta
áhorfendur. Mynd sú er Gamla
bíó sýnir nú er sögð byggð á
sönnum atburðum, sem gerðust
ekki alls fyrir löngu. Tveir sam
vizku lausir bófar lögðu á ráðin
um að myrða heila skipshöfn,
fremja skemmdarverk á skipinu
og sigla 4>ví svo til hafnar í þeim
tilgangi að heimta eina milljón
dala í björgunarlaun.
Frá þessum atburðum segir
myndin — eða svo er sagt.
James Mason fer með hlutverk
skipstjórans, sem _ tekst að yfir
buga glæpamennina að síðustu,
sæmilega unnið hlutverk.
Dorothy Dandridge skýtur
þarna upp í heldur ólíldegu hlut
verki og er ekki til neinnar
prýði né gildisaukningar.
Broderick Crawford leikur
höfuðpaur bófanna og sýnir góð
an leik eins og við mátti búast.
Öll er myndin sjáanlega gerð
með það helzt fyrir augum að
vekja spenning og ógn, en ristir
heldur grunnt. — H.E.
ALASTAIR MacLean er einn
þeirra höfunda, sem er gæddur
þeim eigindum að geta haldið les
endum sagna sinna föngnum
meðan bókin er lesin. Richard
Widmark „prófessor“ hefur nú
tekið eina sögu hans upp á sína
arma og gert kvikmynd eftir
henni.
Ságan er um mann, sem fer
frá Vín til Budapest í þeim til
gangi að ná þýðingarmikilli per
sónu út úr landinu, í slagtogi
með honum er dóttir mannsins.
Auðvitað tekst þeim verkið og
þljóta sjálfsagt börn og buru að
launum.
Óhætt er að segja, að myndia
er æðislega spennandi, hún er
einnig mjög sæmilega gerð.
Samt bregður þeim senum fyr-
ir, að myndin verður blátt áfram I
kjánaleg, einkum þegar „kaldi
Ameríkaninn“ er að tala við aum-
ingja ungversku kommúnistana I
og sýnir þeim „stórkostlega and- |
lega yfirburði sína.“ Sá hlátur,
sem slíkar senur vekja getur ver-
ið skolli ívíeggjaður.
Widmark er góður leikari, en
sýnir það varla í þessari mynd
að marki. Sonja Ziemann er fal-
leg, en um leikhæfni hennar verð
ur ekki dæmt af þessari mynd.
Ýmis aukahlutverk eru betur unn
in.
H.E.
ALÞÝÐU8LAÐ1Ð - 1962 20. maí 13