Alþýðublaðið - 16.06.1962, Blaðsíða 2
1
\ .* •. •'
JSLitstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Aðstoöarritstjöri:
Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasínli
£14 906. — Aðsetur: Alþýðuhtísið. Prentcmiðja Alþýðublaðsins, líverfisgötu
■8—10, — Áskriftargjald kr. 55,00 á mánuöi. í laúsasölu kr. 3,00 eint. Útgef-
andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannescon.
Al þýðusambandíö
s NÆSTA haust iverður háð þing Alþýðusambands
íslands. Kommúnistar hafa stjórnað sarnbandinu
sl. 8 ár en undanfarið hafa þeir tapað fylgi í verka
lýðsfélögunum og það getur því orðið mjög tví-
sýnt hvort þeim tekst enn að ná meirihluta og
halda völdum eða ekki. Segja má, að kommúnist
ar haldi nú völdum í Alþýðusambandinu af tveim
ur ástæðum. í fyrsta lagi vegna þess, að framsókn
armenn á þingum ASÍ hafa kosið með kommúnist
um og í öðru lagi vegna þess, að stórum hópi, sem
rétt á til veru í ASÍ er haldið utan við samtökin, þ.
e. Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna. Vit-
að er að meðal óbreyttra framsóknarmanna ríkir
mikil óánægja með þá stefnu forustumanna Fram
sóknar að styðja kommúnista í iverkalýðshreyfing
unni. Þegar Alþýðusambandið náðist úr höndum
kommúnista 1948 tóku framsóknarmenn þátt í því
ásamt öðrum lýðræðissinnum í verkalýðshreyfing
unni að hnekkja valdi kommúnista í .verkalýðs
samtökunum. Ástæðan fyrir stefnubreytingu for-
ustumanna Framsóknar í þessu efni er sú, að þeir
eru argir yfir því að vera ekki í ríkisstjórn. Þeir
telja að meiri líkindi séu til þess að unnt verði að
fella ríkisstjórnina með því að styðja skemmdar
verk kommúnista í þjóðfélaginu. Þess vegna hef-
ur Framsókn stutt kommúnista til valda í verka
lýðsfélögunum undanfarið og staðið með þeim að
framkvæmd verkfallsstefnu. Þessi tækifærisstefna
framsóknarmanna getur orðið þjóðfélaginu dýr og
framsóknarmenn sjá það þó síðar verði, að hér hafa
þeir gengið feti of langt.
Þess varð vart í stjórnarkjörinu í Iðju í vetur,
að allmargir framsóknarmenn neituðu að hlýða
forustumönnum flokksins. Sú staðreynd veit á gott
og vera má að einhverjir framsóknarmenn fáist til
þess á næsta þingi ASÍ að taka þátt í því með lýð-
ræðissinnum að fella kommúnista úr stjórn sam-
bandsins. Kommúnistar hafa misnotað svo mjög
Alþýðusambandið þau 8 ár, sem þeir hafa verið við
völd þar, að engin dæmi eru um slíka misnotkun
á verkalýðssamtökunum fyrr. Þeir hafa látið ASI
stofna stjómmálasamtök fyrir kommúnista, látið
verkalýðsfélögin hajda að sér hönáum í kjaramál
um meðan kommúnistar sátu sjálfir í stjórn en
stofnað til verkfalla um leið og þeir höfðu oltið út
úr ríkisstjórn. Þannig hefur öll stefna kommún-
ista í Alþýðusambandinu miðast við það eitt að
þjóna hagsmunum Sósialistaflokksins en hagsmun
ir verkalýðshreyfingarþnlar hafa verið látnir
víkja. Það er vissulega kominn tími tii þess að leysa
æfintýramennina í stjórn ASI frá völdum.
ANNES
Á HORNINU
k Var það árás á bindind-
menn?
k Hver varð árangurinn
af framboði H-listans?
k Sveinbjörn Jónsson
svarar Jóhanni.
þess að benda bindindismönnum á
að „konstrúera" nýtt brot Áfengis
verzluparinnar? Og því þá að koma
upp um aðeins hana, þegar vitað
er að áfengis búlurnar og leynivín
salarnir selja einnig unglingum
áfengi? En veit ekki Jóhann þinn,
og þú líka, að löggæzlustarfið í
Reykjavík tilheyrir lögreglustjóra
borgarinnar? Er ekki hans að gæta
áfengislaganna sem annars laga?
Bindindismenn hafa ótal mörg önn
ur verkefni í áfengismálum.
stjóra: Sem allra fæst atkvæði á
bindindismenn. A-A-maður var lát-
inn skrifa langa grein og sjálfstæð
istemplarar mergjaða pistla.
ALLT FÓR ÞETTA af stað eftir
útvarpsumræðurnar og á síðustu
stundu til að eyða þeim samhug,
sem bindindisfólkið vakti með ræð
um sínum. Þótt Jóhanni þínum
hafi fundist þær „blautt þvaður'*
og „um ekki neitt“ lítur ekki út
fyrir að Sjálfstæðismönnum liafi
þótt það. Að sjálfsögðu ætti Jó-
hann að snúa sér beint til yfir-
manns löggæzlunnar í landinu með
lögbrot Áfengisvefzlunarinnar og
þá einnig lögbrot annarra áfengis
sala, ef liann af heilum hug vill
klekkja á slíkum lögbrjótum, og
forða æsku landsins frá áfengis
kaupum."
SVEINBJORN JONSSON for-
stjóri skrifar: „Iíamies minn! Nú
fimist mér að þér vera farið að
fiirlast. Því tekurðu í pistla þína
annað eins bréf og það frá Jóhanni
um áfengiskaup unglinga sl. mið
vikuÖEg. Ef gjálífir unglingar lcsa
þig, mun þeim finnast bréfið fyrir
taks kennsla og örvun til áfengis
kaupa. Sé Jóhaijn þinn einlægur
áfengisandsæðingur hefði hann átt
að nota ritmennskuna á lieppilegri
háít.
EN ALLT BENDIR TIL að hann
hafi fyrst og fremst yiljað ná til
bindismanna. „Bindindismenn ættu
í staðinn fyrir þvöglulegar ræður
um ekki neitt að koma UPP um
„svona framferði." Því gerir sá
rnikli maður það ekki sjálfur í stað
TÓKSTU EFTIR ÞVI hvernig
„þvoglulegar ræður“ bindindis-
fólks í útvarpinu um daginn verk
uðu á Sjálfstæðismenn? Þeir urðu
svo hræddir um að tapa meiri-
hluta í borgarstjórninni að sjálfur
forsætisráðherrann fór á stað í
stærsta samkomusal landsins og
spurði: „Hvert mundu Sjálfstæðis-
,menn þá stefna reiði sinni? Og eina
jráðið til að afstýra hættunni: -
'að atkvæðin sem H-listinn fær
verði svo fá að .... “ Svo kom há-
punktur ræðunnar, sem auðvitað
var líka birtur í MorgunbL: „Við
Sjálfstæðismenn crum auðvitað dá
lítið hreyknir af afrekum fortíðar
innar .... “ Sjálfsagt í áfengismál
um sem öllu öðru. „Þvögluræðurn
ar“ framkölluðu einnig samskonar
áskorun í Morgunblaðinu frá bind
indis-alþingismanni og banka-
ÉG HRINGDI TIL JÓHANNS og
fékk liann að sjá þetta bréf. Hann
! hafði þetta að segja: „Þó að for-
stjórinn vilji láta líta svo út sera
ég hafi átt við ræður fulltrúa bind
indislistans í borgarstjórnarkosn-
ingunum, þá átti ég alls ekki við
þær, síst þær, því að þar gengu
bindindismenn þó í eitt skipti fram
til baráttu. Ég átti fyrst og fremst
við Templarana, sem maður sér
ekki, að geri nokkurn skapaðan
hlut annað en að hlusta á sömu ræð
urnar áratug eftir áratug á stúku-
fundum.
MEÐ BRÉFI MÍNU var ég að
hvetja il baráttu gegn áfengisböl-
inu, raunverulegrar baráttu, en
ekki lokuðu klúbbstarfi. Það hefði
verið til framdráttar þessum mál
Framhald á 15. síðu.
2 16. júní 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ