Alþýðublaðið - 22.11.1962, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 22.11.1962, Blaðsíða 9
 ; "... M&mm,má%M á Kúbu með því að setja menn vesturveldanna á sjó. Mali- hkov, r. einn- istur- n ís- livos- ildina arnar hefur rahafi :í, en sögðu f svo her- :sýnir flot'i tnegn Ksvöll sjálft lang- ihuga hafs- aunir :stu ó ÉComa 1 fyr- lants- lineu, fríku, ússar væmt >5. tand- orðið Vald- land kjör- áhrif iríku, fouré sjálf- i eru íd er 'egna Mið- iðu á ússar lavið- Gíb- IDI. 5, að hafa jarð- trönd ússar á að öðlast fótfestu í sundinu milli Atlantshafs og Miðjarðarhafs. Rússneska herráðið hefur ávallt gefið hlutverki því, er Miðjarðar- haf og S.-Evrópa gegnir í sóknar- áaetlunum þess gaum. Að vísu kall aði Krústjov heim sovézka kaf- báta, sem staðsettir voru í flota- stöð þeirra í Valona í Suður-Al- baníu í reiðikasti. En þess vegna er hann þeim mun ákveðnari að haldið skuli áfram að koma upp birgðastöð fyrir sovézk herskip við ösa Nílar í Miðjarðarhafi. Þetta gera Rússar sumpart und ir því yfirskyni, að þeir séu að búa herafla Egypta sovézkum vopn um og herflutningatækjum, en með því er sending rússrieskra her verkfræðinga og annarra „ráðu- hauta“. til Egyptalands að minnsta kosti dálítið skiljanlegri. ★ JEMEN, ÍRAK, INDÓNESÍA. í Jemen á sunnanverðum Ara- bíuskaga, þar sem Rauðahaf og Indlandshaf majtast, hafa rúss- neskir verkfræðingar í fjögur ár unnið að hafnarframkvæmdum í Ilodeida. Byltingin í landinu ný- lega hefur enn staðfest þann orð- róm, að verið sé að breyta Ho- deida í sovézka kafbátabækistöð. iVið mynni ánna Efrats og Tig- ris í írak eru Rússar einriig að koma upp höfnum, og af þessu má sjá, að Rússum er mikið í mun að fá aðgang að Indlandshafi. Auk þess er orðrómur á kreiki um, að Rússar séu önnum kafnir við að koma sér upp eldflaugastöðvum í írak. Að vísu eru rússnek herskip sjaldséð á Indlandshafi. Hins veg- ar hafa rússnesk athugunar- og rannsóknarskip verið þar önnum kafin. Og því er ekki hægt að neita, að Rússa hafa mikil hern- aðarleg áhrif í Indónesíu. Nýlega fékk Indónesíufloti beitiskip, sem smíðað var í Rússlandi, og von er á öðru beitiskipi samkvæmt víg- búnaöarsamningi Rússa og Indó- nesa. Rússum hefur jafnvel verið •leyft að koma sér upp hafrann- sóknarstöð á Molukka-eyjum í Austur-Indónesíu nálægt norður- strönd Ástralíu. Þessi stöð hefur sín eigin skip, eigin flugvélar og loftskeytastöðvar. ★ DEILAN VIÐ KÍNVERJA. Á Austur-Kyrrahafi rekast út- þensluáætlanir Rauða flotans og ráðagerðir Kínverja á. Ekki er hægt að segja um, hvort áhrif austantjaldslanda í Laos, munl hafa áhrif á strandríkin og ná- grannaríkin Suður-Vietnam og Kambódíu. Kinverjar hafa reynt að efla flota sinn, sem er heldur veikur, með því að kaupa kafbáta. En þrátt fyrir uppbyggingu rússneska flotans er floti NATO fjórum sinn um öflugri í flotamálum, en öll valdablökk kommúnista. Og að- eins 5% kaupskipaflota heimsins er austan tjalds. ★ YFIRBURÐIR NATO. Kúbu-deilan leiddi greinilega í ljós, að einn mesti styrkur NATO og helzta „tromp“-spil þess, er veldi þess á sjónum. Atlantshafs- ríkin hafa varðveitt yfirburði sína á úthöfunum og munu halda þeim í framtíðinni, þrátt fyrir allar til- raunir Rússa til þess að fá flota- stöðvar í löndum handan hafsins og þrátt fyrir gífurlega stækkun rússneska stríðsflotans. Rússneski flotinn liefur stækkað meir en nokkur önnur grein sov- ézka heraflans allt frá lokum síð- ustu heimsstyrjaldar. Rússneski flotinn, en aðaláherzla hefur verið lögð á kafbáta er orðinn stærri en floti Breta. Rússar eiga næst stærsta herskipaflota í heimi, Bandaríkjamenn hinn stærsta. En aldrei síðan heimsstyrjöld- inni lauk, hefur veldi á sjó verið sýnt betur en í Kúbudeilunni. Þar kom í ljós, að hreyfanleiki er stærsta trompið. Ferðir flugvéla- móðurskipa, sem sífellt breyta um stað, og flugvéla skapa nýjar að- stæður næstum á klukkustundar íresti. ★ ÚTHAFIÐ ÖRUGGT. Eldflaugamáttur beitiskipa, tundurspilla og kafbáta bætist síðan við sambland veldis á sjó og í lofti, og hér skapast nýtt vold ugt sambland flotaafla og eld- flauga. Landgöngulið eru orðin að úrvalshersveitum. Þannig eru floti, flughér og landsveitir land- gönguliðsins orðnar að einni heild, sem séð getur um framkvæmdir hernaðaraðgerða hvar sem er og hversu víðtækar, sem þær eru, en með tilkomu flugskeyta og eld- flauga hafa hernaðaraðgerðir enn orðið víðtækari en áðiu’. Þegar öllum samgöngutækjum á landi hefur verið eytt verður út- hafið aðgönguleiðin til nálega sér- hvers stríðsvallar. Úthafið er ör- uggt gegn eyðingu, forðast má hafsvæði, þar sem geislavirkra á- hrifa gætir. Flotaaflinn hefur á ný öðlast árásargetu sína, en hún glataðist upp úr 1950, vegna tækni þróunar. ★ SVEIGJANLEIKI. Flotaafli getur birzt öllum að óvörum hvenær sem er og næst- um því hvar sem er undan strönd fjandmanna, búið í haginn fyrir innrás eða dreift herafla fjand- mannanna. Athafnafrelsi flotaafl- ans er ótakmarkað, hann er hreyf- anlegur og sveigjanlegur. Þessi ógnun frá sjó verður til þess, að fjandmennirnir verða að hafa öflugar hersveitir á stöðum, þar sem þeirra gerist ekki þörf að lokum. Þetta flotaveldi stendur gegnt því hagræði, sem stórveldi á landi hefur af innri keðju stuttra sam- gangna, en þetta hagræði á að- eins við um styrjöld á landi. Þessi styrjöld á landi sem austantjaids- Framh. á 13. síðv Kristinn syngur með sinfóníu- hljómsveitinni KRISTINN HALLSSON syngur einsöng á næstu tónleikum Sin- fóníuhljómsveitar íslands, sem haldnir verða í Háskólabíóinu í kvöld. Hann syngur þar FJÖGUR ANDLEG LJÓÐ, sem eru biblíu- textar, teknir úr 3. og 4 kafla Prédikarans, úr Siraksbók og úr fyrra bréfi Páls postula til Ko- rintumanna. Textinn er prentaður í híjómleikaskránni, og sagði söngvarinn við fréttamenn í gær, að áheyrendur ættu að fylgjast með eða kynna sér textann vel áður, því að svo nátengt væri tón- verkið biblíutextanum, að það mætti ekki sundur skilja. Það var Johannes Brahms, sem samdi tón- listina við þessa ákveðnu kafla biblíunnar og hafði sjálfur sér- stakt dálæti á þessu verki sinu, sem hann stundum nefndi sína eigin afmælisgjöf. Brahms mun hafa samið verk sitt við hina þýzku þýðingu biblíunnar, en hér verð- ur að sjálfsögðu sunginn hinn ís- lenzki texti til þess að áheyrend ur skilji sönginn — bæði ljóð og Iag. Kristinn Hallsson, óperusöngv- ari hefur áður sungið þessa af- mælisgjöf Brahms, en það var í Kammermúsíkklúbbnum við pía- nóundirleik Árna Kristjánssonar. Þetta er í fyrsta sinni, sem þetta verk er flutt hérlendis af' hljóm- sveit. Á tónleikunum í kvöld leikur hljómsveitin auk þessa Tokkötu eftir Girolano Frescobaldi. Dr. Hallgrímur Helgason sagði- á fundi með blaðamönnum í gær, að þetta verk mundi upphaflega samið sem orgelverk, en Frescobaldi var org- elleikari við Péturskirkjuna í Róm í byrjun 17. aldar. Á þeim tíma var ekki til hljómsveit í nú- tímaskilningi þessa orðs og því getur verkið ekki verið samið upp- haflega sem hljómsveitarverk. Stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar- innar, Mr. Strickland gat sér þess til, að ef til vill væri þetta verk alls ekki samið af Frescobaldi sjálf um, heldur af einhverjum læri Framhald á 14. síðu. DOROTHY nokkur Alz- mann, ekkja í Los Angeles, hefur stefnt frú Quentin Babcock fyrir svik. Frú Alz- mann segist hafa „keypt“ eiginmann frú Babcocks fyr ir 450.000 krónur. en þó með þeim fyrirvara, að hún mætti skila honum aftur gegn endurgreiðsiu. Það gerði hún svo — en þá neit aði hin löglega eiginkona að' endurgreiða meira en fjórð- ung söluupphæðarinnar. PIPARKVÖRNIN GEFUR BETRA BRAGÐ... LILLU KRYDD ER ÁVALT BEZT EFNAGERÐ REVKJAVÍKUR H.F. Nú getið þér mulið heilan pipar beint yfir matinn án nokk- urrar fyrirhafnar og fengið þannig bragð- betri og sterkari mulinn pipar en venjulega. Pipardósin er nefni- Iega líka piparkvörn. í dósinni er heill pipar, en vanti yður mulinn pipar þá snúið þér bara loki kvarn- arinnar fram og aftur nokkrum sinnum og þá sáldrast nýmulinn pipar niffur úr botni dósarinnar. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 22. nóv. 1962 9

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.