Alþýðublaðið - 25.11.1962, Blaðsíða 2
Itltstjórar: Gísli J. Ástþórssor' (áb) og Benedikt Gröndal.—ASstoSarritstjóri
Bjc.’gvin GuSmundssrn. •• Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. — Sxmar:
14 900 — 14 902 - J4 903. Auglýsingasími: 14 906 — Aðsetur: Alþýðuhúsið.
— Prentsmiðja A Mðublaðsins, Hverfisgötu 8-10 — Áskriftargjald kr. 65.00
£ mánuði. 1 lausasö’u kr. 4.00 eint. tJtgefandi: Aiþýðuflokkurinn — Fram-
kv.'emoa.-tjóri: Asgeir Jóhannesson.
Hvert stefnir Framsókn?
UM ÞESSA HELGI má segja, að fyrstu lotu
ij ístjómmátabaráttunnar á þessum vetri sé lökið.
j Flokkarnir hafa þreifað hver á öðrum í umræðum
uim stórpólitísk mál á Alþingi, og þeir hafa tekizt
j á innan dyra Alþýðusamhandsþings.
Af þessum átökum verður eitt ljóst: Framsókn
\ arflokkurinn er að sigla upp að hlið kommúnista
j á nýjan leik og fer nú nær þeim en nokkru sinni
j fyrr. Þetta kom átakanlega í ljós á Alþýðusam-
j Ibandsþingi, en birtist á engu þýðingarminni hátt
| f afstöðu Framsóknar til Efnahagshandalagsins.
| Þannig er sýnilegt, að Eysteinn, Þórarinn og þeir
| félagar, sem ráða nú stefnu flokksins, ætla að heyja
i Ssosningaharáttuna næsta vor þétt við hlið komm
| ánista.
Nú spyrja menn: Hvert stefnir Framsókn með
í þessari afstöðu?
Augljóst er, að alþingiskosningamar ráða nú
f þegar stefnu Framsóknarf lokk^sins í hverju máli.
Er sama, hvort um viðkvæm utanríkismál eða inn
f lend dægurmál er að ræða. Mælikvarðinn er að-
1 eins einn.
Sennilega telja forystumenn Framsóknar, að
\ Ikommúnistar séu að tapa fylgi, og Þjóðvamarflokk
1 uirinn virðist ekki sýna mikið lífsmark. VÍrðast
1 framsóknarmenn miða stefnxma við að lokka til
sín fylgi, sem laust verður frá þessum tveim flokk
\ mm. Þess vegna er siglt svo nærri kommum. Þess
1 vegna er tekin afstaða, sem lítur út eins og Fram
\ sóknarmenn séu á móti Efnahagsbandalaginu.
7 Þessi afstaða á að gegna sama kosningahlutverki
f og marzályktunin 1957.
Á þennan hátt hyggjast Framsóknarforingjarn
? sr skapa sér aðstöðu eftir næstu kosningar, sem eigi
\ að tryggja þeim sæti í ríkisstjórn, því að flokkur-
ínn engist æ meir xmdir valdaleysinu. Kjarninn í
1 áróðri framsóknarmanna hefur alltaf verið það,
■ sem fulltrúi á Alþýðuflokksþinginu kallnði „gaffal
í 1bitapólitík“, og því lengur sem þeir eru utan stjóm
\ é, því færri gaffalbita hafa þeir til að rétta líkleg-
\ tim kjósendum.
I • . !
f Ekki er víst að Framsóknarforingjamir geri
í sér fyllilega Ijóst, að þessi stefna hefur þann rök-
! s^etta endi — ef hún tekst — að þeir myndi stjóm
\ með kommúnistum. Er nú eftir að sjá, hvort allur
■ Framsóknarflokkurinn er jafn hrifinn af þessari
7 s efnu og það gengur hljóðlaust fyrir sig í flokkn-
m tn að leika slíkan skollaleik, sem þjóðin sá á Al-
' Jfýðusamhandsþingi.
75 ÁRA Á MORGUN:
Maríus T. Pálsson
Sjötíu og fimm ára er á morgun
Maríus Thorberg Pálsson, Borgar-
holtbraut 5, Kópavogi.
Maríus er fæddur að Kleifár-
völlum í Miklaholtshreppi, 26.
nóv. 1887, og voru foreldrar hítns
hjónin Kristín Hannesdóttir og
Páll Kristjánsson, bóndi og kenn-
ari. Maríus er nú einn á lífi tíu
alsystkina en einn hálfbróður á
hann á lífi, Óskar Pálsson, sem
búsettur er í Sandgerði. Einn af
bræðrum hans var Kristján Páls-
son fyrrum bóndi í Hólsandi, sem
andaðist fyrir rúmum mánuði.
Maríus ólst upp á Snæfellsnesi,
en hann missti ungur móður sína
og varð snemma að fara að vinna
fyrir sér, eins og títt var um ungl
inga á þeirri tíð. Þegar hann var
13 ára fór hann fyrst til sjós, en
árið 1902 hóf hann skósmíðanám
hjá Guðmundi Guðjónssyni, skó-
smiðameistara í Ólafsvík og vann
að þeirri iðn til 1911, er hann
hóf sjómennsku að nýju. Eftir það
stundaði hann sjóinn um fjöl-
mörg ár og var margar vertíðir
formaður á bátum frá Sandgerði,
og einnig var hann lengi með
flutningabát, sem var í förum
milli Reykavíkur og Mýra.
Fyrri kona Maríusar hét Þórey
Jónsdóttir, og hófu þau búskap i
Ól^fsvík, <^n fluttfllst síðar til
Reykjavíkur. Konu sína missti
hann .eftir fárra ára sambúð 1916.
Þau eignuðust þrjú börn, eina
dóttur og tvo syni, og er aðeins
annar sonurinn á lífi. Kristinn
skipstjóri búsettur í Reykjavík.
Dóttir þeirra hét Þórdís og and-
aðist tæplega tvítug að aldri, en
hinn sonurinn var Sigurbjörn
slökkviliðsmaður, er fórst af slys-
förum í starfi sínu fyrir allmörg-
um árum. Árið 1918 stofnaði Mar-
íus heimili á ný, með Hansínu
Hansdóttur, og gekk hún börnum
lians í móður stað og ólust synir
hans upp hjá þeim ásamt syni
Hansínu, Jónasi Hallgrímssyni
Eftir að Maríus fluttist til
Reykjavíkur tók hann virkan
þátt í verkalýðshreyfingunni —
einkum í Sjómannafélagi Reykja-
víkur, en hann var einn af stofn-
endum þess, og mun nú einn af
fáum stofnfélögum þess, sem enn
er á lífi.
Fyrir allmörgum árum hætti
Maríus sjómennsku, en vann
lengi eftir það sem afgreiðslu-
maður hjá Sameinaða gufuskipa-
félaginu. En þegar aldurinn færð-
ist yfir og þrekið tók að bugast til
erfiðisvinnu, tók hann til við
handverk sitt á ný og stofnaði
skóvinnustofu í Reykjavík. Fyrir
nokkrum árum reisti liann sér
hús að Borgarholtsbraut 5 í
Kópavogi og flutti þangað skó-
vinnustofu sína og hefur rekið hana
. þar síðan , þangað til fyrir einu til
tveim árum að sjón hans tók að
bila, en þá leigði hann vinnustof-
una.
Heimili þeirra Hansínu og Marí-
usar er friðsælt og notalegt, og
þar mætir gestum hlýleiki og sönn
gestrisni. Og þó að skörð hafi kom
ið í hóp vina og venzlamanna á
langrl lífsleið, bætast nýir við með
nýrri kynslóð, því að æskan hefur
ávallt laðast að þeim. Ég minnist
þess, hver fagnaður dóttur minni
var það ungri, að gatslíta skónum
og því munu honum sendar marg
ar hugheilar og hlýjar kveðjur á
morgun. ^
Frændi
Efling
abar á
ísafirbi
iðn-
MARIUS T. PALSSON.
ungri, að gatslíta skónum sínum til
sínum til að fá tækifæri til þess að
heimsækja frænda í skóvinnustot-
una, og þannig mun því hafa verið
f arið um fleiri börn — þau áttu það
ávallt víst að fá hlýlegt klapp á
kollinn og einliver uppörfandi orð
í veganesti.
Maríus Pálsson er kyrrlátur mað
ur og hefur aldrei borizt á, en á
trausta skapgeð, hlýlegt viðmót og
góða greind. Þessir eiginleikar liaía
aflað honum vinsælda og virðingar
meðal þeirra er honum hafa kynnst
ísafirði.
BÆJARSTJÓRN ísafjarðar kaus
á síðasta fundi sínum nefnd, sem
hefur það hlutverk að athuga um
eflingu iðnaðar í bænum svo og
um nýjar iðngreinar, sem tiltæki-
legt yrði að stofna til.
í nefndina voru kjörnirf *
Konráð Jakobsson, skrifstofustj. 1
Guðmundur Sveinsson, netagerða-
meistari. j
Jón A. Bjarnason, ljósmyndarl '
Marzellíus Bernharðsson, fram- 5
kvæmdastjóri
Daníel Kristjánsson, húsasmíðam,
B. S.
HEIMSÓKNIR
LISTAMANNA
ísafirði.
BÆJARSTJÓRN ísafjarðar hefur
samþykkt að fela Menningarráðl
ísafjarðar að vinna að því að fá
viðurkenndan listamann eða fyrir-
lesara til þess að heimsækja bæ-
inn, helzt fyrir áramót. Bæjarsjóð-
ur greiðir þann kostnað, sem af
heimsókninni leiðir. B. S«
Karfmannaföt
algengt verð 1990 — 2090 — 2420 — 3000 ]
Unglingaföt í ’
1575 — 1850 j
Frakkar
1265 — 1895 |
Stakir jakkar 'J
1090 — 1290 )
Glæsilegt úrval j
Nýjasta tízka í\
ÚLTIMA
Kjörgarði
i'
25. nóv. 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ