Alþýðublaðið - 28.11.1962, Page 10
Frá ársþingi Frjálsíþróttasambandsins:
Unglingakeppni og
landskeppni við Dani
lackburnl
HANDBOLTI
SVISS vann Frakkland í hand-
knattleik með 20:13. íslendingar
eiga að leika við Frakka í febrúar
eins og kunnugt er.
NORÐMENN sigruðu Vestur-Þjóð
verja í handknattleik um helgina
með 17:14. í hálfleik var staðan
8:7 fyrir Norðmenn. Úrslit þessi
komu mjög á óvart, en þess ber
þó að geta, að Norðmenn eru í
mikiili framför í handknattleik
BLACKBURN er stofnað
1874 og eru þeir meðal stofn-
enda Football League 188S.
Þeir voru löngum meðal
sterkustu iiða Englands, en
heldur hcfur dofnað yfir nafni
þeirra nú á seinni áratugum.
Hér er svo skrá yfir árang-
ur þeirra:
1. deild: Meistarar: 1911-12
og 1913-14.
2. deild: Meistarar: 1938-9 og
1957-8.
Sigurvegarar í bikarkeppn-
inni: 1884, 1885, 1886, 1890,
1891 og 1928.
í úrslitum bikarkeppninnar:
1882 og 1960.
Blackburn leikur í blá-hvít
köflóttum skyrtum og hvítum
buxum. Völlur þeirra er Ew-
ood Park og er aðsóknarmctið
61.783 gegn Bolton í 6. um-
ferð bikarkeppninnar 2. marz
1929. Markhæsti leikmaður:
E. Harper 43 mörk í 1. dcild
1925-6.
Árangur Blackburn í deild
unum frá upphafi:
Leikið 2420, unnið 952, jafnir
543, tapaðir 925, mörk 4097-
4021, stig 2447.
Ritstiófi: ÖRN EIÐSSGN
Sundmót Ægis í kvöld
SUNDMOT Ægis fer fram í
Sundhöllinni í kvöld og hefst
kl. 8,30. Keppt verður í 10
greinum, sex greinum full-
orðinna og fjórum greinum
unglinga.
Flest bezta sundfólk lands-
ins er meðal þátttakenda,
bar má nefna Hörð B.
Finnsson, ÍR, Guðmund
Gíslason, ÍR, Guðmund Þ.
Harðarson, Æ, Hrafnhildi
Guðmundsdóttur, ÍR, Pétur
Kristjánsson, Ármanni, Dav-
íð Valgarðsson, ÍBK o. fl.
Mikil þátttaka er í greinum
unglinga.
í mörgum greinum má bú-
ast við skemmtilegri keppni
sérstaklega í 100 m. bringu
og skriðsundi karla, einstak-
lingsfjórsundi og 4x50 m.
skriðsundi. Á myndinni eru
nokkrir þekktir sundgarpar,
sem allir keppa í kvöld.
E I N S og skýrt var frá í blaðinu
í gær, var ársþing Frjálsíþrótta-
sambands íslands haldið í Reykja-
vík um síðustu helgi. Þingið var
fjölmennt, milli 30—40 fulltrúar
úr öllum landshlutum sóttu þing-
ið.
Lárus Halldórsson frá Brúar-
Iandi, formaður FRÍ, setti þingið
og flutti skýrslu stjórnar. Gjald-
keri Ias reikningana og liinar tvær
sjálfstæðu nefndir sambandsins,
laganefnd og útbreiðslunefnd,
skiluðu sjálfstæðum skýrslum.
Allar skýrslurnar báru það með
sér, að margt hefur verið gert og
meira stendur þó til. Reikning-
arnir sýndu góða afkomu á árinu,
reksturshagnaður á annað hundr-
að þúsund, en þó eru skuldir um-
fram eignir rúmar 40 þúsund krón
ur.
Ýmsar tillögur voru lagðar
fram á þinginu og mikið ræddar.
Sú merkasta og sem mest var rætt
um, var Unglingakeppni FRÍ á
næsta sumri. Keppni þcssi skal,
ef unnt er, fara fram um allt land
fyrir drengi í þrem aldursflokk-
um, sveinar 14—16 ára, drengi 17
—18 ára og unglinga 19—20 ára.
Einnig verður keppni stúlkna 18
ára og yngri.
Stjórnir Frjálsíþróttaráðs og
héraðssambanda skulu senda
FRÍ árangur þann, sem ungling-
arnir ná, fyrst 1. júlí og síðan 1.
ágúst. Síðan keppa þeir fjórir
beztu til úrslita um 20. ágúst. FRÍ
skal greiða ferðakostnað bezta
manns í hverri grein, 3/4 ferða-
kostnaðar annars mannsins, V2
ferðakostnaðar þriðja mannsins
og 14 ferðakostnaðar fjórða
mannsins. Unglingarnir eiga að-
eins keppnisrétt í sínum flokki.
Ekki er nokkur vafi á því, að
keppni þessi getur orðið til að
auka að mun áhuga á frjálsíþrótt-
'im hér, ef vel tckst til um fram-
kvæmd hennar. Guðmundur Þór-
arinsson, íþróttakennari skrifaði
grein í Alþýðublaðið um keppni
í Svíþjóð svipaða þeirri, sem hér
á að fara fram.
Samþykkt var tillaga um að
leyfa samninga við Dani um lands-
keppni í Reykjavík 1. og 2. júlí
næsta ár og í Danmörku 1964.
Aðalhluti Meistaramóts íslands
1963 skal fara fram dagana 11.—
13. ágúst.
Samþykkt var tillaga um að út-
búa mótaskrá fyrir allt landið og
skal hún koma út í síðasta lagi 1.
maí.
Lárus Halldórsson, sem setið
hefur í stjórn FRX í 14 ár af þeim
15, sem það hefur starfað, baðst
eindregið undan endurkosningu
og í hans stað var Ingi Þorsteins-
son einróma cndurkjörinn formað-
ur. Aðrir í stjórn voru kjörnir:
Bjön Vilmundarson, Jón M. Guð'
mundsson, Þorbjörn Pétursson,
Sigurður Júlíusson, Örn Eiðsson,
formaður Laganefndar og Svavar
Markússon, formaður Útbreiðslu-
nefndar. í varastjórn voru kjörn-
ir: Lárus Halldórsson, Þórhallur
Guffjónsson og Sigurður Haralds-
son. Þingforsetar voru Jón M.
Guðmundsson og Eirikur Pálsson.
Þingritarar voru Ólafur Unn-
steinsson og Páll Eiríksson.
Knafhpyrna
LANDSLEIKIR í knattspyrnu um
helgina: Rúmenía—Spánn 3:1 í
Evrópubikarkeppni landsliða. —
Spánverjar lialda þó áfram, þar
sem þeir unnu fyrri leikinn með
6:0. Búlgaría — Austurriki 1:1.
Tyrkland —ísrael 2:0.
★ E I N S og kunnugt er fer lir-
slitakeppni næstu heimsmcistara-
keppni í knattspyrnu fram í Eng-
landi árið 1966. Valdir hafa verið
8 leikvangar, þar sem keppt verff-
ur. Einn af þcim er að sjálfsögöu
Wembley í London. Leikvanginn
á að endurbæta mjög effa fyrir
upphæð sem svarar til 60 millj.
ísl. króna. Áhorfendur geta verið
um 100 þúsund. Úrslitaleikprinn
fer fram á Wembley.
Auk Wembleys vcrður leikiö á
leikvangi Arsenal, Sheffield Wed-
nesday, Aston Villa, Newcastle,
Sunderland, Everton og Man-
chester Utd.
★ FYRIRLIÐI norska landsliðs-
ins, Ragnar Larsen frá Sandaker,
sem var einnig þjálfari liðsins í
sumar, hefur verið ráðinn fastur
þjálfari landsliðsins 1963. Lar-
sen, seni er íþróttablaðamaður aff
atvinnu skal byrja starf sitt í vetur
með því að vera í föstu sambandi
viff landsliðsmennina og væntan-
lega kandidata.
Bruce Kidd sigraði í 6 mílum
Á SAMVELDISLEIKUNUM
í Perth sigraði hinn korn-
ungi kanadíski hlaupari Bru-
ce Kidd í 6 mílna hlaupi á
28.26,6 mín. Er þetta nýtt
samveldismet. Kidd, sem aff-
eins er 19 ára gamall var ca.
50 m. undan næsta manni.
D. Powers frá Ástralíu og
hálfum hring á undan hin-
um góða brezka hlaupara,
Batty. Hlaupið fór fram í 43
stiga hita (!) og Kidd virtist
litið hafa fyrir því, en keppi-
nautar hans voru úttaugað-
ir af þreytu. Margir halda
því fram, að Kidd muni
feta í fótspor Kutz og Zato-
pek á OL í Tokío. Vincent,
Ástralíu sigraði í 3000 m.
hindrunarhlaupi á 8.43,4, en
Herriott, Engl. varð annar á
8.45,0. — Antao, Kenýa sigr-
aði í 100 yds á 9,5, en Harry
Jerome, Kanada varð síðast-
ur og kom það mjög á óvart
10 28. nóv. 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
JíT :<J ■(l' :l3í