Alþýðublaðið - 21.12.1962, Síða 3
RETAR FÁ POL-Hvar verða togar
ARISFLUCSKEYTIamir um jöliní
Nassau, Bahama-eyjum. ingnum, en þess er vaenzt, að það
20. desember. (NTB-Reuter). verði gert á fundinum á föstudag.
Kennedy forseti og Macmillan Macmillan hefur kvatt stjórn-
forsætisráSherra hafa orðið ásátt-ina til fundar í London á föstudag
ir um að Bretar fái Polaris-flug-til þess að ræða einstök atriði
skeyti í stað Skybolt-eldflaugar- samningsins. Haft er eftir góðum
innar, en hægt er að skjóta kjarn-heimildum, að sennilega hafi Ken-
orkuvopnum með Polaris-flugskeytnedy og Macmillan náð algeru sam
um frá kafbátum, sem eru neðan-komulagi um að hætt verði við
sjávar. Skybolteldflaugamar.
Þetta var haft eftir áreiðanleg- Er þeir höfðu rætt þetta mál í
um heimildum að loknum þriðjudag, fór þeir landvarnarráðherr-
samræðum þeirra Kennedys ogunum Robert MacNamara og Pet-
Macmillans i dag um landvarna-er Thorneycroft að ganga frá ein-
og alþjóðavandamál. Ekki hefurstökum atriðum samningsins um
verið gengið endanlega frá samn-Polaris. Leggja átti uppkast að
Hetjuleiðir og
landafundir
samningnum fyrir forsetann og
forsætisráðherrann seinna í dag
og taka þeir málið fyrir á ný.
Leiðtogamir hafa annað rætt
en varnarmál, t. d. sambúð aust-
urs og vesturs í Ijósi Kúbuvanda-
málsins, landamæradeilu Indverja
og Kínverja, ástandið í Miðaust-
urlöndum, samninga Breta og E
B E o. fl.
Macmillan forsætisráðherra
mun hafa fullyrt, að Bretar vilji
ekki afsala sér stöðu sinni sem ó-
háð kjarnorkuveldi innan Nato,
og Kennedy mun hafa sagt, að
hann sé algerlega sammála um
_ það, að ákvörðunin um, að hætt
verði við frekara starf í sambandi
við Skybolt-áætlunina, megi ekki
koma í veg fyrir, að Bretar megi
halda þessari aðstöðu sinni.
Eitt af frekari markmiðum með
samningnum er að skipuleggja bet
ur kiarnorkuvopn vesturveldanna
innan ramma NATOs.
Viðræðum Kennedys og Mac-
millans hefur seinkað og munu
þeir halda áfram að ræða alþjóða-
mál á laugardag.
í FRÉTTUM okkar af bókaflóðinu
undanfarnar vikur hefur ein bók
orðið útundan og þó jafnvel sú
sem sízt skyldi. Þetta er bók Vil-
hjálms heitins Síofánssonar:
„Hetjuleiðir og landafundir", sem
bókaútgáfan Hildur gefur út.
Vilhjálm Stefánsson landkönnuð
þarf ckki að kynan fyrir íslending
um. „Hetjuleiðir og landafundii"
hefur þá sérstöðu meðal bóka Vil-
hjálms, að hún fjallar ekki um
könnunarferðir hans sjálfs, hcldur
er hún safn af frásögnum um landa
fundi, og eru ýmist landkönnuð-
urnir sjálfir látnir segja frá eða
félagar þeirra eða samtíðarmenn
! Þessum frásögnum fylgja svo skýr
ingar og athugasemdir Vilhjálms
sjálfs og eru í senn fróðlegar og
skemmtilegar.
Vilhjálmur Stefánsson er vita-
' skuld einna frægastur allra íslend-
inga á þessari öld. íslendingum
er og ávalt fengur að bókum hans.
„Hetjuleiðir og landafundir" er
255 blaðsíður.
AFLASÖLUR
ERLENDIS i
EINN íslenzkur togári seldi er-
lendis í gær, var það Sigurður og
seldi hann 150 tonn í Grimsby
fyrir 12.400 sterlingspund.
ALÞÝÐUBLAÐEÐ hringdi í gær*
í allmörg togaraútgerðarfyrirtæki
til að afla upplýsinga um hvar
togaramir verða staddir um jólin.
Hér fer á eftir árangurinn af
þeirri könmm.
T....
Bæjarútgerð Reykjavíkur:
Á veiðum verða Skúli Magnús-
son og Þormóður Goði, og ef
til vill einnig Jón Þorláksson,
en það er þó ekki fullráðið. í
höfn verða því um jólin: Ing-
ólfur Arnarson, Þorkell máni,
Þorsteinn Ingólfsson, Hallveig
Fróðadóttir og Pétur Hall-
dórsson.
Síldar- og Fiskimjölsverksmiðjan:
Hvalfell og Haukur verða inni
um jólin, en Askur og Geir
verða á veiðum. .
ísbjörninn:
Freyr verður sennilega í höfn
yfir hátíðisdagana.
Narfi,
Guðmundar Jörundssonar
verður á veiðum.
Alliance:
Jón Forseti er á leið frá Eng-
landi og mun verða í höfn yfir
hátíðina.
G. Thorsteinsson:
Karlsefni verður í höfn um
jólin.
Kveldúlfur:
Egill Skallagrímsson verður á
veiðum um jólin.
Bæjarútgerð Ilafnarfjarðar:
Maí og Ágúst verða á veiðum,
en Júní og Apríl í höfn.
Einar Þorgilsson:
Surprise verður í höfn um jól-
in.
Framli. á 7. síðu
Framhald af 1. síðu.
vísanirnar voru þar. Þessi maður
meðgekk að hafa brotizt inn í her-
bergi mitt aðfaranótt föstudagsins
og stolið þar þeim verðmætum, er
ég saknaði. Hann kvaðst hafa
hent vegabréfinu, en látið annan
mann fá ferðaávisanirnar. Nafn
þess manns vildi hann þó ekki
gefa upp. Innbrotsþjófurinn reynd
ist vera Júgóslafi.
Lengra var rannsókn málsins
ekki komin, er ég fór frá París,
sagði Guðmundur í. Guðmundsson
að lokum, en lögregluforingi, er
með mál þetta fór, sagði við mig
eftir að innbrotsþjófurinn var tek-
inn fastur:
„Þegar innbrotsþjófurinn var
tckinn, var hann vel út búinn til
að vinna sitt verk. Þér vornS
sannarlega heppinn, að þér skyld-
uð ekki vakna.“
Guðmundur skýrði frá því, að
það hefði einnig komið fyrir á
fimmtudaginn, að ráðizt var á einn
fulltrúa á NATO-fundinum, er
hann var á leið til herbergis síns
á einu af stærstu og þekktustu
hótclum Parísar, og reyndi mað-
urinn að hrifsa af lionum tösku
hans og fara á brott með liana,
en fulltrúinn kallaði á hjálp og þá
var árásarmaðurinn handsamaður.
Hótel Scribe, þar sem innbrot-
ið var framið, er stórt og þckkt
gistihús rétt hjá Óperutorglnu S
hjarta Parísarborgar.
FJARHAGSAÆTLUN RVIKUR
Framliald af 16. síðu.
Hitaveitan:
3.035 þús. 3.710 þús. 22%
Óskar sagði, að jafnvel Raf-
magnsveitan næði ekki fyrrgreind
um stofnunum hvað hækkun kostn
aðar snerti. Kostnaður hennar
hefðí aukizt um „aðeins 15.1%.
3 millj. í aukavinnu.
Óskar kvað nauðsynlegt að
stinga við fæti í borgarrckstrinum
og veita stofnunum borgarinnar
aukið aðhald. Hann sagði, að svo
virtist sem greiða þyrfti í nokkr-
um helztu stofnunum yfir 3 millj.
kr. i aukavinnu og afleysingar og
um 5 millj. kr. þyrfti að greiða
í bílastyrki og bílakostnað borgar
starfsmanna. Kvað Óskar bíla-
styrki nú orðna svo almenna að í
hreint öngþveiti stefndi.
Þá kvaðt Óskar flytja tillögur
um aukin framlög til ýmissa stofn
ana og til ýmissar starfsemi og
væri það vel kleift, ef tillögur
hans um hækkun teknaliða og
sparnað hjá ýmsum stofnunum
væru samþykktar. Helztu hækkun-
artillögur hans voru þessar:
Iðnskóli Reykjavíkur fái 1983
þús. í stað 1178 þús. til kaupa á
kennslutækjum og til aukningar á
verklegri kennslu. Kvað Óskar Iðn
skólann einu stofnunina er sæi at-
vinnulífinu fyrir tæknimenntuðu
vinnuafli og væri vissulega nauð-
synlegt að hlúa að þeirri stofnun
er hún hefði svo mikilvægu hlut-
verki að gegna. Sérstaklega kvað
Óskar nauðsynlegt að gera Iðn-
skólanum kleift að hefja verklega
kennslu í stórum stíl, en til þess
að slíkt væri unnt, þyrfti að afla
kennslutækja sem ekki hefði verið
unnt að kaupa.
Byggingarsjóður verkamanna
fái 4934 þús. í stað 4184 þús. —
Óskar sagði, að við ákvörðun á
framlagi Rvíkurborgar væri gert
ráð fyrir lágmarksframlagi þ. e.
40 kr. á fbúa en samkvæmt lögum
ætti framlagið að vera 40-60 kr. á
íbúa. Kvaðst Óskar gera ráð fyrir
50 kr. framlagi í sinni tillögu.
Kvað hann nauðsynlegt. að stór-
auka byggingu verkamannabú-
staða og því jnrði að hækka fram-
lagið.
Byggingarsjóður Reykjavíkur-
borgar fái 12 millj. í stað 10 millj.
í upphaflegu áætluninni var
gert ráð fyrir 9 millj. kr. framlagi
en borgarráð samþykkti i gær, að
leggja til 10 millj. kr. framlag.
Óskar kvað það enn of lágt, þar
eð ástandið í húsnæðismálum R-
vtkur væri nú mjög slæmt og hefði
það komið vel fram í sambandi
við úthlutun Álftamýrarhúsanna.
Hann sagði, að yfir 600 íbúðir
væru nú taldar heilsuspillandi í
horginni og segði það mikið um
ástandið. Óskar skýrði frá því, að
hann flytti í sambandi við af-
greiðslu fjárhagsáætlunarinnar til
lögu um það, að byggðar yrðu
næ°ta ár 150 leiguíbúðir fyrir
fvrir efnalitið fólk. Kvað hann
betta nauðsynlegt til þess, að leysa
vanda bnirra er ekki gætu ráðið
v5* tvúðarkaup. Einnig kvað Ósk-
ar navSsvnlegt, að eitthvað af
bess”ni íbúðum yrðu sérstaklega
f-7T-)r i'ngt fólk er væri að byryja
búskan.
Rpnvorsnffaiinn fái 18.5 millj.
í s'-í 15 5 millj.
Óskar sagði, að bygging borgar-
spítalans hefði nú staðið yfir í 12
ár, enn væru þó aðeins 2/3 spít-
alans í smíðum. Væri nú ráðgert
að sá hluti yrði fullgerður 1964
eða 185 rúm. Hefði byggingin
gengið óeðlilega hægt. Bæri því
brýna nauðsyn til þess að hraða
byggingunni og veita auknu fjár-
magni til hennar. Óskar sagði, að
sjúkrahússkortur væri mikill í
borginni. 1949 hefði verið talið, að
það þyrfti 8 sjúrkarúm á hverja
1000 íbúa, en nú væru þau að-
eins 5 á hverja 1000 íbúa. Væri
því mikilvægt, að sú áætlun gæti
staðist, að unnt yrði að taka hin
185 sjúkrarúm í notkun 1964. En
einnig bæri að leggja mikla á-
herzlu á að fullgera B-álmuna sem
eftir væri að byggja, þar eð talið
væri að mjög óhagkvæmt yrði að
reka þann hluta spitalans sem til-
búinn yrði 1964 einan sér.
Framlag til sumardvalar mæðra
og bama hækki úr 400 þús. í 700
þús. Óskar kvað nauðsynylegt, að
borgin styrki f auknum mæli þá
starfsemi, er nú væri rekin til
þess að skipuleggja orlof hús-
mæðra, en einnig þyrfti að stór-
auka framlög til sumardvalar
bama. Gjöldin sem greiða yrði
fyrir sumardvalir barna væru mjög
há og erfitt fyrir aðstandendur
bamanna að greiða þau. En ástæð-
an væri sú, að borgin hefði styrkt
starfsemina alltof lítið. Þá kvað
Óskar nauðsynlegt aB athuga þaB
hvort ekki væri rétt fvrir borgina
að byggja sumardvalarheimili, þar
eð Rauði krossinn os Vorboðinn
er starfsemina hefðu með höndum
hefðu ekki nægilega gott hús-
næði fyrir bömin.
Margar fleiri tillögur flutti
Óskar svo sem um 3ia milljón kr.
hækkun á framlagi til skólabygg-
inga eða hækkun úr 15 millj. í 18
millj., hækkun á framlagi til leik-
valla og útivistarsvæða úr 1350
bús. f 1900 þús. og um hækkun á
framiagi til Verodar f 100 þús. og
framlag til Siálfsbtarear 150 þús.
kr. Ekki er hér rúm til þess að
rekia fleiri tillögur.
Umræður stóðu vfir um fjár-
hagsáætlunina er blaðið fór í prent
un og var ekki búizt við neinni
atkvæðagreiðslu fyrr en undir
morgun.
ALÞÝ0UBLAÐIÐ - 21. des. 1962 3 ,