Alþýðublaðið - 21.12.1962, Page 15

Alþýðublaðið - 21.12.1962, Page 15
9, KAFLI. Sólin kom upp og hið tröllaukna skýjaþykkni, sem hafði virzt kol svart, þar sem það bar við daufa morgunskímuna, tók skyndilega að loga. Það logaði og engdist til á meðan, eins og brennandi pappir gerir. Það brann upp og eftir varð hvítur mökkur, eins og öskuduft, sem enn svall og dróst saman, þar sem hann bar við harðnandi blóma himinsins. En þó að skýin virtust hafa kóln að, varð hinn hluti lieimsins heitari með hverri mínútunni. Á olíubrákaðri undiröldunni lá brakið enn. Það var orðið mjög dreift & það náði yfir heila fer- mílu eða meira — en það var enn á þeim stað, þar sem skips- tapinn hafði orðið. Það voru umbúðakassar, brotn ar rár og liúsgögn, sólhjálmur, björgunarbelti, flöskur, strádýn- ur, appelsínur og eldhússúrgang ar, hárburstar, fötur og sópar, plankar úr brotnum bát og mik ið magn af óþekkjanlegum trjá- bútum, sem landkrabbar finna rekna á fjörur. Á sumum hinna Etærri búta héngu menn ennþá, })ví að hlýr sjórinn var grimm- ar að því leyti, að hann drap þá hægt, sem höfðu kjark til að halda sér. Þarna voru að auki tveir bátar, stóri björgunarbát- urinn og annar hinna minni. I>eir voru sneisafullir af mann- tólki og á milli þeirra voru inn- an við hundrað metrar. Rúmar mílufjórðung frá bátnum og í út jaðri braksins var lítill gúmmí- bátur. All margir slíkir bátar liöfðu verið bundnir við þilfar San Felix, en allir hinir höfðu faj-ið niður með skipinu, því að í æsingnum hafði engum dottið í. hug að skerá Þá lausa og blásaj þá upp. Það voru tveir menn á þessum fleka. Þegar þeir sáust fyrst í sólarupprás, voru þeir að rpa burtu í norðurátt, en um leið og sólin tók að hitna hættu þeir þeirri áreynslu og létu flekj ann reka. Bátarnir tveir voru svo sneisal fullir, að aðeins þeir, sem stóðu| úti við borðstokkana og sneru út, gátu svo mikið sem lireyft liand I leggina. Þeir menn, sem höfðu! þessa þægilegu aðstöðu, voru j næstum allir Laskar af áhöfn- j inni. Þeir, sem stóðu kasaðir sam an inn í miðjum bátnum, cins og síldar í tunnu og nú þegar að nið urlotum komnir af þreytu, voru karlar og nokkrar konur af ýms um þjóðernum, en þó aðallega Kínverjar. Fyrir utan brytann og þriðja vélstjóra 'voru engir yfirmenn í livorugum bátnum. Þeir kunna að hafa farið niður með skipinu. En sumir að minnsta kosti liöfðu lilotið anh- an dauðdaga. Þegar bátarnir voru orðnir fullir, hafði engum verið leyft einu sinni að halda í borðstokk, hvað þá klifra um borð. Árar voru notaðar í um tilgangi fremur en til með. Hræðileg verk voru in í sjálfsbjargarofsanum. Auk þess hafði San Felix aldrei ver- ið gleðinnar skip, og vafalaust þurfti að gera upp ýmsar ar sakir. ' Skipbrotsmennirnir deginum — en ekki lengi. Þó myrkrið hefði verið ógnarlegt, hafði það að minnsta kosti ver- ið svalt og leynt ýmsu af sem gerðist meðal hins forustu lausa illa blandaða grúa. í dágs ljósinu mátti fylgjast með smáatriðum hvemig þrekið leið skjótlega undir lok. Þeir tveir erfiðleikar, sem verst var að þola, var hitinn þrengslin. Eins og sagt hefur ið, var ekkert rúm til að hreýfa sig. Karlar og konur, öll meira eða minna nakin, þrýstust bók staflega hvert upp að öðru. höfðu verið þannig í fimm tíma í myrkri og nú þau að þola tíu til tólf tíma sól- skin — og hvaða von var það? Hver maður var óvinur_ náunga síns, þar til rúm yrði til að sigla eða róa. Og hitinn dlli því, að þau höfðu líkamlegan við bjóð hvert á öðru. Þar að auki bærðist ekki hár á höfði Bátarnir hreyfðust ekki. Þeir, lágu algjörlega kyrrir og það jók á innilokunartilfinninguna. Þó voru þau ekki lokuð inni af veggjum. Allt í kringum þau var endalaust rúm. Freistingin, þörf- in, var að komast burtu, losna JÓLABÓK BARNÁNNA Sögurnar af Magga litla og ævintýrum lians, njóta afar mikillar hylli með börnum og unglingum víða út um lönd. Það er hugljúf saga um Magga "litla'tfg hana Marí, sem er reynd „ _ar hryssa, sem alla daga sína hefur dregið stóra vagna um götur stórborgarinnar. Fródi við þennan sveitta, kæfandi grúa af fólkinu, hvað sem það kost- aði. Á tímanum fram að hádegi rugluðust ýmsir skipbrotsmanna. Þung þögnin var rofin af glað- legum hálfvitahlátri og hrópi, .. „Sjáið, þarna er ávaxtavagn. Kom ið, við skulum kaupa.“ Síðan sveigðist mannfjöldinn til og þaS heyrðist skvamp. Stundum gerðist það allt öðru Með Valtý Stefánssyni Út er komin bókin „Með Valtý Stefánssyni". Bjarni Benediktsson, ráðherra, ritar formáls- orð fyrir bókinni. Matthías Johannessen, rit- stjóri, segir í samtalsþáttum frá æsku og upp- vaxtarárum Valtýs. Svo eru í bókinni fjöldi frásagnaþátta eftir Valtý og viðtöl við þjóðkunna menn. Bókin er í senn mjög fróðleg og skemmtileg aflestr- ar eins og fyrri bækur Valtýs, sem allar hafa verið metsölubækur. Með Valtý Stefánssyni er jóla- bók fyrir alla, jafnt karla, sem ' ^ konur, unglinga, sem eldra fólk. Bókfellsútgáfan ALÞÝÐUBLAÐID - 21. des. 1962 15 •

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.