Alþýðublaðið - 22.01.1963, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 22.01.1963, Blaðsíða 9
HVAÐA áhrif hafði Kúbudeilan á valdajafnvægi stórveldanna? Er hættan á kjarnorkustyrjöld raun- veruleg? Hvernig telja þeir, sem ráða stórveldunum, að til slíkrar ógæfu gæti komið? Þessum og mörgum öðrum spurningum svarar handaríski blaðamaðurinn Stewart Alsop í þessari athyglisverðu grein. verSur varnarkerfi okkar orðið ó- rjúfanlegt. McNamara hefur varið 6.000 milljónum dollurum meira en stjórn Eisenhowers gerði til að auka getu okkar til að skjóta kjarn orkuvopnum í mark. Árangurinn af þessum fjárveitingum hefur enn ekki komið í ljós í nýjum vonum, en „hugmyndin um veikleika þjóð- arinnar hefur verið eyðilögð", eins og MoNamara orðar það. Ef til vill væri réttara að segja, „hugmyndin um styrk Sovétríkj- anna hafi verið eyðilögð". Sam- kvæmt beztu upplýsingum fyrir þrem til fjórum árum, var búizt við að Sovétríkin hefðu í dag 600 —800 langdræg flugskeyti. Sam- kvæmt því, sem nú er talið, var hundraðasta fiugskeyti Rússa til- búið fyrir nokkrum vikum. Ef síðustu upplýsingar eru rétt- ar' — og McNamara ségir með augljósri einlægni, að hann sé al- gerlega viss um að svo sé -—þá eru yfirburðir Bandaríkjanna raun verulegir. Þeir yfirburðir byggjast á BMEWS og sprengjuflugvélun- um, sem Krustjov reyndi að eyði- leggja. En 6.000 milljón dollararn- ir munu einnig skiia sér myndar- lega áður en langt líður. Til skamms tíma voru hin lang- drægu flugskeyti Bandaríkjanna, aem skotið er af landi, „viðkvæm". í>au voru um 60, knúin af fljót- gndi -eldsneyti og lítt brynvarin éins og Atlas og fyrstu útgáfur af Titan skeytum. Þessi skeyti eru ofanjarðar. Það væri hægt að eyði leggja þau með kjarnorkusprengju í töluverðri fjarlægð og það er seinlegt og erfitt að búa þau undir skot. Undanfarnar vikur hefur verið skýrt frá, að fyrstu harðgerðu skeytin, Titan og Minuteman, séu tilbúin til notknuar. Slík skeyti eru geymd neðanjarðar. Þau er ekki hægt að eyðileggja, nema sprengja hitti beint á þau, og það er álíka fljótlegt að skjóta þeim og kúlu úr byssu. Við munum innan skamms eiga mikið af slíkum flugskeytum. í lok þessa árs verða þau nokkur hundr- uð. í árslok 1964 verða þau upp undir 800. Þegar þau verða tilbúin, mun engin gildra, sem Krustjov leggur, geta eyðilagt getu okkar til gagnárásar eftir vild. Útreikningar flugskeytamanna eru flóknir. En ein varnarhugsuð- urinn hefur sagt, að nú þurfi eng- ar reiknivélar, aðeins blýantsstubb og blaðsnepil. Hugmynd þeirra í Pentagon er sú, að það muni átta flugskeyti til að vera viss um að eyðileggja eitt flugskeyti neðan jarðar. Til þess að eyðileggja öll flugskeyti Bandaríkjanna, að e' sé minnzt á flugvélarnar, kafbát- anna og önnur tæki til kjarnorku- hernaðar, þurfi Rússar að hafa átta sinnum fleiri flugskeyti. „Það geta þeir ekki gert“. Slík er einróma og örugg spá varnarhugsuðanna. Eftir að gildran á Kúbu hefur verið eyðilögð, segist McNamara vera hárviss um „getu til gagnár- ásar“. Hann segir ennfremur (þótt sumir telji það ekki tímabæra full- yrðinguj, að Bandaríkin gætu „svarað með því að skjóta aðeins á hernaðarlega staði“. Hér komum við að annarri kenn- ingu McNamara, sem er um gagn- árásargetuna. Hún er einnig kölluð kenningin um að hlífa borgunum. Sjálfur orðaði McNamara þetta í ræðu nýlega: „Kjarnorkustyrkur okkar ... . gerir mögulega her- stefnu, sem miðast við að vernda þjóðfélag okkar, ef styrjöld brýzt út. Bandaríkjastjórn hefur komizt að þeirri niðurstöðu . . . að svo Framh. á 13. síðu 0 ALÞYÐUBLAÐIÐ - 22. janúar 1963 0

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.