Alþýðublaðið - 13.02.1963, Page 2

Alþýðublaðið - 13.02.1963, Page 2
«dií ■Uacjotvr-. uuii J. Astþörsmn (fib) og Benedikt Gröndal.—ABstoðarrttstjórl •JCrgvin GuOmunclbson. — Fréttastjórl: Sigvaldl Hjfilmansson. — Símar: 14900 14 002 — 14 903 Auglýstngasími: 14 906 — AOsetur: AlþýðuhúsiO. — PrenUmlOJa A!þýSublaöf;ns, Hverflsgötu 8-10 — Askrlftargjaid kr. 65.00 4 aafinuSL t lausasóiu kr. 4 00 eint. Otgefandi: AlþýOufiokkurino LEIT NÝRRA LEIÐA OLÍUKÓNGURINN Morgan sýndi eitt sinn gesti aðalskrifstofur fyrirtækja sinna. Gengu þeir deild úr deild, þar sem hundnuð manna voru að störfum og allt var á hreyfingu. Svo komu þeir að ílítilli skrifstofu, þar sem maður sat með fætur •uppi á borði og gerði ekkert að því er bezt ivarð séð. „Þessi maður gerir efekert nema hugsa“, sagði lUorgan við hinn undrandi gest. „Ef hann kemur með eina góða hugmynd á ári, þá margborgar sig | j að greiða honum gott kaup“. Þessi saga er táknræn fyrir þjóðfélag nútím- i ans. Hið flókna skipulag og hin hraðvaxandi tækni - veita stöðug tækifæri til breytinga og endurbóta, «og slíkar framfarir auka framleiðslu og velmegun heildarinnar. Mennimir sem finna nýjar starfsað- ferðir, nýjar vinnuvélar og nýja tækni gera sam- borgurum sínum ómetanlegt gagn. Frumherjarnir, sem finna nýjar leiðir, sitja ekki allir auðum höndum og hugsa eins og maður Morgans. Flestir þeirra eru á einhvers konar rann sóknarstofnunum, þar sem þeir skoða í smásjá, imæla og vega — og reyna nýjungar, unz þeir finna það, sem þeir leita að. Stórfyrirtæki nútím-' ans verja miklu fé til slíkra rannsókna og þær þjóð ir mestu, sem lengst eru komnar í tækni og iðnaði. Hér á landi er unnin margvísleg rannsóknar- starfsemi. í fyrradag ræddi Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra um þetta starf í þingræðu, og | undruðust áheyrendur, hversu miklum árangri hefur þegar verið náð á sumum sviðum. j Ná hefur verið lagt fyrir Alþingi frumvarp um | endurskipulagningu rannsóknaranála, og er ætlun in að færa þau í framtíðar búning, svo að fiskveið- 1 ar, fiskiðnaður, landbúnaður og iðnaður hafi j1 þeirra sem bezt not í framtíðinni. Hér er stórmál á ferð, sem getur haft meginþýðingu um afkomu i atvinnuvega og þjóðarinnar allrar. Skipulagsbreyting er mikiivæg, en hún er ekki nóg. Þjóðin verður að verja meira fé til þessara mála en hún hefur gert, ef hún vill fylgjast með í þeim greinum, sem hún lifir á. Um þetta virðast stjórn og stjórnarandstaða í aðalatriðum sammála, <og tekst vonandi að efla hagnýtar íslénzkar rann- sóknir á komandi árum eins og nauðsyn krefur. 1 Auglýsingasími Alþýðublaðsins er 14906 cJSiífetrúar. 1963 - ALÞÝÐilBtAOiO MIKLU MEIRIAFLI EN I FYRRA ÍTJÍad GÆFTIR voru ágætar fyrri hluta mánaðarins, og var þá yfirleitt góður afli og afburðagóður á Pat- reksfirði. Síðari hluta mánaðarins voru aftur á móti stirðari gæftir og tregari afli, einkanlega í nyrðri verstöðvunum. Var hafisinn þá kom inn upp undir landið, svo að bát- arnir komust ekkert út og urðu að róa á grynninguna, þegar gaf á sjó. Á syðri Vestfjörðunum var ágætur afli allan mánuðinn, en langsótt. Réru bátarnir þar vestur í Víkur- ái, um 8 klst. siglingu í vestur frá Patreksfirði. Mánaðaraflinn í verstöðvunum við Djúp var mjög áþekkur og í fyrra, en á Vestfjörðuniun var afl- inn alls staðar miklu meiri. Afla- hæsti báturiun í fjórðungnum var Dofri frá Patreksfirði með 248,8 lestir. Ilann hafði einnig beztan afla í róðri, 26,5 lestir. Þar af voru um 2 Iestir af karfa og 9 lestir af keilu. Var aflinn suður frá tals- vert keiluborinn og einnig fengu bátarnir þar talsvert af karfa á línuna, en það mun vera nær eins dæmi, að karfi fáist hér á Iínu, svo nokkru nemi. Var þetta ailt stór aldamótakarfi. í fyrra var afla hæsti báturinn í janúar með 186,4 lestir. Fjórir bátar frá Vestfjörðum stunduðu síldveiðar við Suðurland í janúar, Hafrún og Sólrún frá Bol- ungarvik, og Sæúlfur og Sæfari frá Tálknafirði, en þeir hættu báðir á síldveiðum í mánaðarlokin, og var Sæfari byrjaður dagróðra en Sæúlf ur var að búa sig á útilegu. 56 bát- ar stunduðu dagróðra með línu, en aðeins einn bátur, Guðrún Jóns- dóttir, var á útilegu. Minni bátarn- ir (undir 15 lestir) hættu flestir I veiðum um áramótin, nema bát- j arnir frá Hólmavík og Drangsnesi'j og öfluðu þeir yfirleitt ágætlega, miðað við þennan árstima. Aflinn í einstökum verstöðvum: PATREKSFJÖRÐUR: Lestir Róðrar Dofri......... 248,8 22 Helgi Helgason .... 242,1 22 ^Sigurfari ...... 138,6 19 Sæborg ...... 133,4 16 Orri ............. 25,0 5 TÁLKNAFJÖRÐUR: Guðm. á Sveinseyri 144,8 19 Tálknfirðingur .... 142,6 19 Sæfari ............. 17,2 2 BÍLDUDALUR: P. Thorsteinss.... 176,1 19 Andri ’............ 146,3 16 ÞINGEYItl: Hrafnkell ......... 128,3 19 Þorgrímur ......... 108,2 18 Fjölnir ............ 96,3 17 Þorbjörn ......... 46,7 9 FLATEYRI: Hinrik Guðm........ 148,1 21 Ásgeir Torfason ....114,4 21 Mummi .............. 90,8 15 Einar Þveræingur .. 45,6 10 SUÐUREYRI: Draupnir .......... 137,1 18 Friðbert Guðm..... 129,9 19 Freyja ............ 122,7 20 Gylfi ............. 116,4 19 Stefnir ..,......... 62,2 14 Hávaröur .. .t.... 53,3 9 BOLUNGAVÍK: Einar Hálfdáns .... 162,7 22 Hugrún ............ 142,5 22 Þorlákur 139,2 20 Heiðrún 122,2 21 Guðrún 38,6 13 Hrímnir 38,5 17 HNÍFSDALUR: Páll Pálss . 130,6 1 Mímir 129,8 21 Rán 116,8 21 Einar 93,4 19 ÍSAFJÖRÐUR: Guðbj. Kristj 169,8 21 Guðbjörg 155,4 20 Víkingur II 20 Gunnhildur 121,4 22 Gunnvör 120,9 21 Straumnes 120,8 20 Guðný 107,2 19 Hrönn 106,4 21 Ásúlfur 103,6 18 Borgþór 60,5 13 Guðrún Jónsd. ý. 101,1 útiL SÚÐAVÍK: Trausti 91,4 19 Svanur 86,9 16 Óli 21,6 10 HÓLMAVÍK: 1 'J Guðm. frá Bæ 86,8 18 Hilmir 84,2 16 Farsæll 61,5 15 Sigurfari 52,6 13 Víkingur 43,5 13 DRANGSNES: H, Pólstjarnan .... 45,4 13 Smári 43,3 13 Sólrún; 36,6 13 i Hafdís 31,6 11 ! Ath. Afli bátanna á Drangsnesi er veginn slægður, svo og 64 lest ir af afla m.s. Guðrúnar Jónsdóttur. Afli annara báta er veginn óslægð- ur. HANNES Á HORNINU ★ Uppruni íslendinga. ★ Skemmtilegt umræðu- efni. ★ Hvaða þjóðum erum við skyldastir? ★ Launakjör verkamanna og vinnutími þeirra. SPJALI.AÐ í ÚTVARPSSAL er yfirleitt mjög góður þátlur, og tekst Sigurði Magnússyni oftast nær að finna alhyglisvert umræðu- efni. Stundum bregður þó út af. Þrátt fyrir það minnist ég þess ekki að neinn þátturinn hafi verið beinlínis leiðinlegur, nema einn, einu sinni í vetur. Einhver bezti þátturinn var á sunnudagskvöld, þegar rætt var um uppruna ís- lendinga. ÞARNA LEIDDU fjórir menn saman- hesta síná: Benedikt frá Hofteigi, Björn Þorsteinsson, Jón prófessor Steffensen og Skúli Þórð arson. Merkilegastar þóttu mér upplýsingar Jóns Steffensens um niðurstöður af rannsóknum blóð- flokka og höfuðkúpa. Þar ætti að finnast skýring á því, hvaða þjóð- um við erum skyldastir. — Vitan- lega er málið ekki útrætt og verð- ur víst seint. En ég saknaði þess, að enginn skyldi minnast á það, hversu margt fé var til í landinu upp úr landnáminu. Það er útilok- að, að svo mikið fé hafi verið flutt til landsins og fjölgunin líka óhugs andi á svo skömmum tíma. FRÆÐIMAÐUR SAGÐI við mig í gær: „Það, livað margt fé var hér hafi annað hvort verið fjöl- skýra á annan hátt en þann, að liér hafi annað hvort-verið fjöl- mennt fyrir þann tíma, er fyrst hófst landnám að talið er á bók- um, eða, sem er sennilegra, a löngu fyrir þann tíma hafi írar verið hér, að þeir hafi mjög snemma á öldum flutt hingað fé og að það hafi síðan gerigið sjálfala, orðið villifé — og tímgast og fjölg- að á öldum. VERKAMAÐUR sendir mér all- langt bréf um vinnutíma og kaup verkamanna af gefnu tilefni frá Pétri Sigurðssyni alþingismanni í umræðum á alþingi. — Bréfið er nafnlaust, svo að ég birti það ekki. Hins vegar er rétt, að endurtaka hér þau orð verkamannsins, að full- yrðingar uríi kaup verkamanna eru út í hött. Það er ekki nóg að segja, að kaup sumra verkamanna sé eitt hundrað þúsund krónur. Það verð- ur líka að taka það með í reikn- inginn, hversu lengi hann er atS vinna fyrir þessu kaupi. ÞAÐ ER ALKUNNUGT, að til þess að hafa sæmileg laun, þarf verkamaðurinn að vinna svo að segja myrkranna á milli. Verka- maður nær ekki slíku kaupi með því að vinna reglulega átta ííma, nei, liann þarf að vinna allt upp jí sextán stundir á sólarhring. Ég veit að verkamenn vilja vinna lengi. Þeir fá tvöfallt dagvinnukaup fyrir nætur- og helgidagavinnu. IIÉR ER LÍKA um erfiða vinnu að ræða í flestum tilfellum. Fyrr- um var það atvinnuleysið, sem knúði menn til þess að vinna þrot- laust þar sem vinnu var að fá. Nú eru það vélarnar, sem ráða vinnu- hraðanum í mjög mörgum tilfell- um. Það má vel vera, að í einstaka greinum komi hinn langi vinnu- dagur fram í því, að menn slái slöku við vinnuna, en það er fótítt, Hannes á horninu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.