Alþýðublaðið - 13.02.1963, Blaðsíða 7
i
HIN SlOAN
HAF
Salt er nú uni'-iS úr hafinu í rík-
um mæli. Tiitöiuleg'a skammt er
HVER ER MAÐUR-
INN?
ÁN EFA hafa flest ykkar séS
þennan ' kvikmyndaleikara
oftar en einti sinni á hvíta
tjaldinu. í síðustu kvikmynd
sem þessi leikari lék í, er
gervi hans slíkt, að jafnvel
þeir, sem oft hafa séð hann,
þekkja hann ekki við fyrstu
sýn. — Það gerðum við að
minnsta kosti ekki.
Myndin er af Burt Lan-
caster.
síðan þessi vinnsla hófst, því salt
var til skamms tíma svo ódýrt að
ekki þótti taka því að vinna það
úr sjó.
Saltvinnsla úr sjó er mjög iðkuð
í Kaliforníu, þar er sólarhitinn
látinn sjá um uppgufun vatnsins,
og þegar vatnið er gufað upp, er
ekki annað eftir en að safna sam-
an snjóhvítum saltkristöllunum.
Hversu mikið salt er í hafinu?
Sérfræðingar gizka á, ef öllu því
salti sem í hafinu er, væri dreift
yfir yfirborð jarðar mundi það
mynda 200 feta þykkt lag.
Þeir geta sér einnig til um, að
það hafi tekið hafið 90 milljónir
ára að öðiast allt þetta salt.
Enn er ekki vitað með vissu
hvert allt þetta salt á rætur sínar
að rekja, en vitað er að ár hafa
borið nokkuð af því í hafið.
Ár og lækir bera á ári hverju
að dómi vísindamannanna um 100
milljónir smálesta af saltefnum
í hafið.
® .
Hafið er missalt, það er aö
segja að seltan er ekki alls stað-
ar sú sama. Venjulega er hún
3,5%, en í Dauðahafinu er seltan
25%.
SMÆLKI-SMÆLKI-SMÆLKI
UNGLINGAR ná á dögum geta
huggað sig við það, að þótt þeir
valdi foreldrum sínum áhyggjum þá
er það síður en svo ný bóla.
Á fornminjasafninu í Istanbul er
6000 ára gömul pappírsörk, ig
fyrsta setningin á henní er á þessa
leið: Heimur versnandi fer. Allir
vilja nú vera rithöfundar og börn
in eru með öllu hætt að hlýða
foreldrum sínum.
Frúin: í hvert einasta skipti,
$em ég sezt í kjöltu hans byrjar
hann að lesa mér fyrir bréf.
LYFTUVÖRÐUR nokkur var orðinn
asði þreyttur á því að næstum hver
einasti maður, sem með lyftunni
fór spurðr hann hvað kl. væri.
Lyftuvörðurinn lét því koma fyrir
klukku í lyftunni. Þá tók ekki betra
við. Farþegarnir spurðu nú hver á
eftir öðrum hvort klukkan þarna á
veggnum væri rétt.
KAUPSÝSLUMAÐUR nokkur var
orðinn illa á'sig kominn líkamlega,
of feitur, með of háan blóðþrýst-
ing og sitthvað fleira. Læknirinn
gaf honum það ráð, að í stað þess
að aka í vinnuna þá skyldi hann
fara gangandi og skoppa gjörð líkt
og krakkar skemmta sér við.
Þetta gekk allt vel. Og hann
fór brátt að hlakka til þess að
skoppa í vinnuna og, honum leið
öllum mikið betur.
Dag nokkurn kom hann inn í
bílageymsluna þar sem hann
geymdi gjörðina, afgreiðslumaður
inn þar tiikynnti honum þá, að því
miður hefði gjörðinni verið stolið
- að sjálfsögðu mundi hann fá tjón
ið bætt að fullu.
Kaupsýslumaðurinn varð ofareið-
ur. „Mig varðar ekkert um bætur“,
sagði hann, „en hvernig í ósköpun
um á ég að komast heim til mín í
kvöld?"
ALFRED Hitchock, segir: Fólk hef
ur ákveðnar hugmyndir um mig
sem leikstjóra. Ef ég gerði kvik-
mynd um Öskubusku mundu allir
byrja á því að svipast um eftir lík
inu í vagninum.
EIGINMAÐURINN svarar f sím-
ann: Hún er ekki heima, en hver á
ég að segja að hafi ætlað að
hlusta?
★
MJÓLKURPÓSTUR fann eitt sinn
eftirfarandi skilaboð á húströpp-
um:
Vilduð þér vera svo vænn að loka
hliðinu, því fuglarnir komast nefni
lega inn og pikka göt á tappana I
mjólkurflöskunum.
SKAKKI
í PISA
Borg'arstjóranum í Pisa á Ítalíu
hefur borizt mikill fjöldi bréfa
með ráðleggingum um hvernig
forða megi skakka turninum fræga
frá falli. Flestar tillögurnar eru
að sjálfsögðu harla lítilsverðar og
sumar hverjar vægast sagt fáránleg
ar.
Bandaríkjamaður hefur gert það
að tillögu sinni að turninn verði
felldur og byggður síðan á nýjan
leik og þá alveg lóðréttur.
Þjóðverji nokkur hefur Ems
vegar komið fram með þá athyglis
vörðu tillögu að þyrla verði látin
lyfta turninum og síðan verði ný
undirstaða byggð á nákvæmlega
sama stað.
Þótt svo að hallinn á turninum
aukizt nokkuð ár frá ári, hallazt
sérfræðingar að því, að turninn
muni hætta að hallast áður en
hætta verður á að liann falli ,og
halda þeir því fram að turninum
sé með öllu óhætt næstu tvö hundr-
uð árin-að minnsta kosti.
„Við, sem heima sitjum
KLUKKAN 14,40 í dag les
Jóhanna Norðfjörð, Ieikkona,
úr ævisögu Gretu Garbo í
þættinum „Við, sem heima
sitjum“. Eins og nafnið bend
ir til, er þessi þáttum einkum
ætlaður húsmæðrum. í gríni
tala útvarpsmenn um þáttinn
sín á milli, sem „eftir upp-
vask og fyrir kaffi“, á það að
sjálfsögðu við tímann, sem
þátturinn er fluttur á.
Jóhanna Norðfjörð, leik-
kona, útskrifaðist úr Leik-
skóla Þjóðleikhússins árið
1S60. Síðan hefur hún leikið
í nokkrum leikritmn lijá
Þjóðleikhúsinu og einnig í
mörgum útvarpsleikritum. '
ERTU aS elda eSa strauja,
elskan?
MIÐVIKUDAGUR 13. febrúar: 20,20
08,00 Morgunútvarp (Bæn. 08,05
Morgunleikfimi. .— 08,15
Tónleikar. — 08,30 Frétíir.
08,35 Tónl. — 09,10 Veðurfr.
09,20 Tónleikar.
12,00 Hádegisútvarp (Tónleikar.
12,25 Fréttir og tilkynning-
ar).
13,00 „Við vinnuna“: Tónleikar.
14.40 „Við, sem heima sitjum“:
Jóhanna Norðfjörð les úr
ævisögu Grétu Garbo (18).
15,00 Síðdegisútvarp (Fréttir og
tilk. — Tónleikar. — 16,00
Veðurfr. — Tónleikar. — 21,45
17,00 Fréttir. — Tónleikar.
17.40 Framburðarkennsla í dönsku 22,00
og ensku. 22,10
18,00 Útvarpssaga barnanna; I. 22,20
(Helgi Hjörvar).
18,20 Veðurfregnir. — 18,30 Þing-
fróttir. 18,50 Tilkýnningar.
19,30 Fréttir.
20,00 Varnaðarorð: Garðar Páls- 22,50
son skipherra talar uni leit
úr lofti og af sjó og aðstoð
við björgun.
20,05 Tónleikar: Eugen Tajmer
syngur með kór og hljóm-
sveit Ole Mortensens. 23,30
Kvöldvaka:
a) Lestur fornrita: Ólafs
saga helga; XV. (Óskar
Halldórsson cand. mag.).
b) íslenzk tónlist: Lög eftir
Áskel Snorrason.
c) Hallgrímur Jónasson
kennari fer með frumorfc
kvæði og stökur.
d) Arnór Sigurjónsson rit-
höfundur flytur fyrri
hluta frásöguþóttar:
Þorrakvöld 1912.
e) Sigríður Hjálmarsdóttir
kveður ferskeytlur eftir
Stephan G. Stephansson.
íslenzkt mál (Jón AðaLstcinn
Jónsson cand. mag.).
Fréttir og veðurfregnir. —-
Passíusálmar 3).
Kvöldsagan: „Sýnir Oddíi!
biskups“ eftir Jon Trausta;
fyrri hluti (Sigurður Sigur-
mundarson bóndi í Hvítár-
holti).
Næturhljómleikar: Síðari
hluti tónleika Sinfóníuhljóm.
sveitar íslands í Háskólabíói
7. þ. m. Stjórnandi: Ragnai-
Björnsson. Sinfónía nr. 8 i
F-dúr op. 93 eftir Beethoven.
Dagskrárlok.
HÍN SlÐAN
ALÞÝÐUBLÁÐIÐ - 13. febrúar 1963 J