Alþýðublaðið - 13.02.1963, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 13.02.1963, Qupperneq 9
skamman tíma. Það er ástæða til að ætla, að einmitt þetta blað hafi góða aðstöðu til að kunna skil á skoðunum de Gaulles i þessum efnum. Blaðið segir, að de Gaulle gangi' út frá því sem- vísu, að brezki Verkamannaflokkurinn nái valda- aðstöðu eftir næstu þingkosning- ar í Bretlandi. Hann telur líklegt, að ríkisstjóm jafnaðarmanna muni undirrita Rómarsáttmálann án skil yrða. Annað franskt blað, „France Observateur”, telur, að erfiðleik- um geti verið bundið, að fá brezka þingið til að fullgilda sáttmálann. Þá er í sama blaði bent á þann möguleika, að væntanleg ríkis- stjórn Verkamannaflokksins muni ófus að framkvæma sáttmálann, enda þótt þingið fullgildi hann. Þessar hugleiðingar leiða af sér þá spurningu, hvers vegna lét de Gaulle ekki ráðherra sinn, Gouve de Murville, taka skrefið til fulls og útiloka Breta frá þátttöku í EBE fyrir fullt og allt. Þegar svara á þessari spumingu, ber að hafa í hugá nokkur tímabundin vanda- mál; sem einkum áhrærir Þjóð- verjá. Adenauer hefur fallizt á að láta . af kanzlaraembætti næsta hauát. En væntanlegur eftirmaður hans, Ludwig Erhard, efnahags- málaráðherra, nýtur einskis trausts í París. Á blaðamannafund- inum í París, sem haldin var að loknum ráðherrafundinum í Briis- sel, sagði de Gaulle m. a.: „Til að skapa Evrópu verður Þýzkaland að liggja fyrir akkeri, annars verður skipstrand. Þýzkaland er kjölfesta Evrópu”. Þegar tekið er tillit til allra að- stæðna, er sennilegt, að de Gaulle hafi þegar í fyrrahaust tekið þá ákvörðun, sem fram kom á Briis- sel-fundinum. Hann hefur í raun- inni ávallt leikið tveimur skjöld- um gagnvart Bretlandi. Þegar Churchill kom í heimsókn til Par- ísar árið 1944. lagði de Gaulle fram tillögur þess efnis, að Bret- land og Frakkland tækju upp mjög nána samvinnu í alþjóða- málum. Churchill hafnaði þessari tillögu og sýndi þá greinilega það álit sitt, að hann mat Frakkland mjög lítils. Þessari afstöðu Churc- hills ásamt fjölmörgum svipuðum viðhorfum brezkra stjórnmála- manna til Frakklands hefur de Gaulle ekki gleymt. Hann er minnugur vel en jafnframt lang- rækinn. Um þetta hafa de Gaulle farist orð á þessa leið i „Le Sa- lut”: Bretland vill heyja stjórn- málabaráttu sína á alþjóðavett- Framh. á 11. síðu 5 ég sé galin eða hvað?“ V BILAR OG UMFERÐ HVERNIG Á AÐ LEGGJA BIFREIÐ? FYRIR þá, sem ekki kunna að bakka inn í bílastæði, birtum við hér leiðbeiningar og skýringar- myndir um hvernig það skuli gert. Þetta eru að sjálfsögðu hlutir sem ökukennarar eiga að kenna nem- endum sinum áður en þeir ganga undir prófið. En þar sem öku- kennsla hér á landi virðist ekki vera upp á marga fiska, munu fæst ir af þeim, sem þetta kunna, hafa iært það af ökukennurum. Hér koma svo reglurnar: á móts við afturendann á fremri bílnum, snúið þér stýr- inu vel til vinstri. EZBír~n-»r~B Þ E T T A er algeng sjón í Reykjavík, — alltof algeng. Svo virðist sem sárafáir hér kunni að leggja bíl á milli tveggja annarra, án þcss aö fara að eins og sést hér á myndinni. Bilar, sem svona er Iagt skapa að sjálfsögðu mikla slysahættu og gera um ferðina alla ógreiðari. 1. Akið fram með hlið fremri bíls ins eins og sýnt er á myndinni. Hæfilegt er að bilið milli bíl- anna sé um það bil hálfur meter. HB 2. Snúið stýrinu síðan vel til hægri og bakkið hægt inn í áttina að aftari bílnum. Þegar framhjólin á bílnuin yðar eru FORD Motor Company hefur til- kynnt, að nettó tekjur félagsins hafi síðastliðið ár numið 480,7 millj ónum dollara eða 4,36 dollurum á hvert hlutabréf. Tekjur fyrirtækisins hafa aldrei fyrr verið jafnmiklar. Fyrirtækið hefur nú fleiri menn í vinnu en nokkru sinni fyrr, og aldrei hefur verið greitt jafnmikið fé í vinnu- laun og á síðastliðnu ári. 3. Nú er bíll yðar kominn næst- um fast að aftari bílnum. Þá er ekki annað eftir en að rétta stýrið af og aka áfram þar til bíllinn er mitt á milli hinna tveggja. Framleiðslan árið 1963 BÚIZT er við, að Bandaríkin og fimm önnur lönd muni á yfirstand- andi ári framleiða meira en eina milljón fólks- og vörubíla. Þau lönd ,auk Bandaríkjanna, sem framleiða munu meira en eina milljón bíla, eru þessi: Þýzkaland, Frakkland, Bretland, Ítalía og Jap- an. Ítalía og Japan munu í fyrsta skipti í ár framleiða svona mikið af bílum. í fyrra vantaði 18 þúsund bíla upp á að Japanir næðu milljón og ítali vantaði 46 þúsund bíla til að ná sama marki. Á síöastliðnu ári voru framleidd- ir í hinum frjálsa heimi alls 17.167.000 bílar og var um að ræða 21% aukningu frá árinu áður. Um það bil helmingur bílanna var fram leiddur í Bandaríkjunum. Þrjár bílaverksmiðjur framleiddu á siðastliðnu ári meira en milljón bíla. Það voru Chevrolet, Ford (í Bandaríkjunum) og Volkswagen- verksmiðjurnar. Þégar félag bifreiðaeigenda var stofnað í Englandi fyrir 65 árum var hámarkshraðinn í London 22 kílómetrar á klukkustund. í dag er meðalhraði faratækja í heims- borginni hins vegar ekki nema 17 kílómetrar á klukkustund. í haust kemur á markaðinn í Bandaríkjunum og í Evrópu nýr japanskur sportbíll. Yfirbygging bílsins er teiknuð á Ítalíu, og þar mun vera ætlunin að setja hann saman. Bíllinn er frá Hino .verk-. smiðjunum og heitir „Contessa.” Hámarkshraði bílsins verður 140 km. á klst. og framleiddir verða 5000 bílar á mánuði til að byrja með. Verð bílsins verður um 100 þús. krónur íslenzkar í Bandaríkjun- um. í DANMÖRKU voru á síðastliðnu ári 87 bílar á hverja 100 íbúa. Ekill. ■ ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 13. febrúar 1<?63 Q

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.