Alþýðublaðið - 13.02.1963, Page 15

Alþýðublaðið - 13.02.1963, Page 15
Leyndardómsfull skáldsaga eftir Hugh Pentecost ,,Nei!” svitaperlurnar stóðu á enni Marks. „Yður stendur al- gjörlega á sama um okkur. Yð- ur cr sama hvað gerizt hérna. En það er Jeff og George og Paul ekki. Það eru konur hérna, sem þeir elska.” Hann snéri höfð- inu örlitið. „Er það ekki satt, Jeff?” ÞRIÐJI HLUTI. Jeff, Paul og George ruddust út úr dyrunum, niður þrepin frá svölunum og út í rjóðrið fyrir framan húsið. Jeff hafði verið svo forsjáll að taka með- sér vasaljós. Stígurinn er eina lelðin, sem hann getur hafa farið að kvöldi til,” sagði Paul. „Hann mundi ekki reyna við skóginn, nema til að fela sig. Hann gœti ekki not- að ljós án þess að hætta á, að Mark sæi hann.” „Ef hann hefur farið niður stíg inn, þá erum við í súpunni,” — sagði George. „Hvernig getum við náð lionum, áður en hann kemst niður á þjóðveginn, úr því að hann hefur fimmtán mínútna forskot?” „Við getum það ekki með því að standa hér,” sagði Jeff. Sjáið þið til. Við Paul erum sterkari en þú, George. Við hlaupum niður stíginn. Það er rétt hugs- anlegt, að við náum honum. Þú ferð í bátaskýlið. Hann kynni að hafa ákveðið að róa yfir vatnið. Iíann mundi græða tíma á því, af því að við yrðum að ganga meðfram því.” „Mark iæsti árarnar og utan- borðsmótorinn inni,” sagði Paul. „Eg gekk úr skugga um það í gær.” „Hann notar ekki mótorinn, — annars heyrðum við í honöm,” sagði Jeff. „Hann kynni að hafa fundið árar einhvers staðar. Ef þú kemst að raun um það, að einn af bátunum vanti, George, þá segðu Mark það þegar í stað. Þá mundi hann gefa okkur meiri tíma. Það mimdi taka Nicky klukkustundir að komast til nokkurs staðar frá hinum vatns- bakkanum. Romdu Paul.” „Nei,“ sagði Paul harðneskju- lega. „Eg ætla ekki að skilja Peg eftir hérna." „í guðs bænum,” hrópaði Jeff, „eini möguleilú Pegs er að við finnum Nicky.” „Eg verð kyrr. Ef nauðsyn krefur, ræðst ég á Mark. Kann- ski get ég með einhverju móti komizt aftan að honum.” „Láttu ekki eins og helvítis asni,” sagði Jeff. „Það þarf ekki nema rétt að koma við gikkinn á þessari vélbyssu! Hann þarf ekki annað en heyra marra í gólf- fjöl, svo að hann byrji ekki að skjóta á hin. Notaðu skynsemina, Paul, gerðu það nú, þetta er ekki rétti tíminn til að deila.” „Ég skal fara með þér, Jeff,“ sagði George. „Látum Paul um bátaskýlið." „Jæja, við getum ekki rifizt um þettaj" sagði Jeff. „Við er- um enn að sólunda eina mögu- leikanum. Komdu þá.“ Hann snéri sér við og þaut yfir rjóðrið í áttina að stfgnum. Þetta var krókót’tur vegilr, sem lá niður í móti mest af hin- um 6 kílómetrum niður að þjóð- veginum, nægilega ósléttur og grýttur til þess, að aka varð í lággir, þegar ekið var upp eft- ir honum. Það var hættulégt að hlaupa niður eftir honum í svarta myrkri með vasaljós eitt til að lýsa sér. Á hlaupunum várð Jeff hugsað til þess, að möguleik- arnir væru ekki miklir. Nicky hafði ekki notað ljós, ekki fyrr en hann var kominn langt frá hústnu, Hann hefði orðið að hlaupa hægt í fyrstu. Þó að nótt in vri lieiðskýr og himinninn fullur af stjörnum, þá var vegur- inn undir furutrjánum eins og dimm jarðgöng. Nicky hlaut að hafa orðið að þreifa sig meira eða minna áfram, þar til hann gat notað vasaljósið — ef hann þá hafði það. Þeir hefðu átt að ganga úr skugga um það. Þau hefðu átt að telja vasaljósin til að athuga hvort hann heföi tek- ið eitt þeirra. Svo hrasaði Jeff og féll endi- langur á magann og vasaljósið valt langt frá honum. Hann lá þarna, hálfrotaður. Hann heyrði George koma hlaupandi óöruggan í spori og kallandi hárri röddu „Nicky, Nicky, hvar ertu?“. Eins og Nicky myndi svara! Jeff brauzt á fætur. Nú þegar þó að þeir væru aðeins komnir tvö liundruð metra, var hann farinn að finfca til vonleysis. Nicky mundi heyra til þeirra, ef þeir kæmust þá nokkurn tíma svo nærri honum. Það eina, sem hann þyrfti að gera, væri að ganga nokkra metra út fyrir veg- inn og felá sig í kjarrinu. Þeir mundu aldrei finna hann. Elt- ingarleikurinn var gagnslaus. Kannski hafði Paul rétt fyrir sér. Hið eina, sem þeir gætu gert, væri að fara til baka og bjóða Mark byrginn og spila tromp- inu sínu — einhvers konar sam- stilitri árás. George var nú búinn að ná Jeff móður og másandi. „Við verðum að halda áfram, Jeff,“ sagði hann. „Það þýðir ekkert," sagði Jeff „Við eigum innan við hálftíma eftir," sagði George, „til að finna Nicky og koma með hann aftur til hússins. Við verðum að reyna Jeff, hversu vonlaust, sem það kann að virðast. Kannski hefur hann dottið, eins og þú Kannski hefur hann rekizt á kle'tt eða tré og ijotazt. Við verðum að halda áfram að reyna, á meðan tími er til, Jeff.“ Jeff hristi höfuðið til að losa sig við áhrif fallsins. „Ég býst við að þú hafir rétt fyrir þér, George. Þó að við gætum ef til vill gert eitthvað ef við værum í húsinu. Það gæti verið." „Komdu," sagði George. „Svo- lítið lengra, Jeff.“ Þeir flýttu sér niður veginn og George byrj- aði að kalla á Nicky. „Hann svarar þér ekki,“ sagði Jeff. „Djöfuls rottan er úr hættu. Það eina, sem hann þarf að gera, er að halda áfram, þar til hann heyrir í vélbyssunni, og þá ér hann alveg öruggur." „Við skulum — ekki — tala,“ másaði George. „Höldum bara á- fram í tíu mínútur í viðbót.“ Þeir héldu áfram að hlaupa, eins hratt og þeir gátu, gripu hvor í annan til stuðnings, þegar þeir hrösuðu um grjót eða rætur. Skyndilega stanzaði Jeff. „Það þýðir ekkert, George. Hann þarf ekki annað en að fela sig utan við veginn. Við finnum hann ekki. Ég sný við.“ „Hyors vegna?" sagði George með undarlegri flatri röddu. „Hvað meinarðu, hvers vegna?“ . „IXvers vegna að snúa við?” sagði George. Hann tók af sér gleraugpn og þurrkaði af þeim. „Þú skalt bara halda áfrám að hlaupa, Jeff. Það er enginn af þinni fjölskyldu í húsinu. Það gæti enginn álasað þér.“ „Sjáðu til George, ég þarf að lifa með sjálfum mér það sem eftir er lífs míns. Hvernig held- urðu, að mér myndi ’líða, ef ég hlypist á brott og Mark dræpi ykkur hin?“ ,Þegar allt kemur til alls,“ sagði George, „þá borgar göfug- mennskan sig sjaldan." „Hver í andskotanum er að vera göfugur?" sagði Jeff. „Það er alltaf möguleiki — svo lengi sem við erum ekki dauð. Kannski hefur Nicky farið yfir vatnið? Kannski hefur Paul tekizt að fá tímann framiengdan. Ef ég flýði væruð þið alveg í sömu súpunni aftur.“ George setti á sig gleraugun aftur. „Þú elskar Kay ennþá, er það ekki, Jeff?“ „Komum okkur af stað," sagði Jeff hörkulega. „Ég þekki þá tilfinningu," sagði George. „Laureen hefur aldrei hætt að elska Mark. Kann ski ætti ég að segja við hana — Farðu og kræktu í hann! En mað ur getur eklci sleppt, þegar mað- ur elskar, er það?“ „í guðs bænum, George, þetta er ekki tími til heimspekil^ra vangaveltna. Koand’j, nú.“ „Ég vildi bara segja þér eitt,“ sagði George. „Mér hefur alltaf þótt vænt um þig, Jeff — bezt af öllum hópnum. Það er slæint, að þetta skuli enda svona. Þið Kay hefðu kannski getað bjarg- að einhverju úr rústunum." „Heyrðu mig,“ sagði Jeff, „sparaðu loftið, þar til þú þarft að fara að tala við Mark.“ Hann hló þurrlega. „Við komum til með að þurfa einhvern bezta verjanda í heimi." II. Enginn hafði talað f tíu mín- útur í setustofu hússins. Mark snéri baki að arninum, með vél- byssuna í fanginu. Kay og Laur- een átu gegnt honum í hæg- indastólunum. Reg Norton sat í klunnalegu hnipri í horni sóf- ans. Fem stóð við barinn og var að blanda sér i þriðja glasið síðan þetta nýjasta vandræða- ástand hafði skapazt. Dr. Smith snéri bakinu að Mark og var að skoða bækurnar í bókaskáp á veggnum gegnt arn inum, eins rólega og hann værl að velja sér einhverja bók til á£f lesa í rúminu. Fern gekk til hana með glasið í liendinni. „Þetta eru lokin, er það ekki, Johiiny," -sagði hún hvíslandi. „Gæti verið það,“ sagði hann án þess að snúa sér við. 1 1 „Þeir finna ekki Nický,” sagði liún. „Honum er sama lim alla nema Nicky.“ Og þegar Ör. Smith svaraði ekki, sagði hún: „Mér er sa- ra sjálfrar mín vegna, Johnny. Ef ég hefði ekki verið bleyða, hefði ég bundið endi’ á allt hjá mér, þegar Walter fórst, Mér er sama.“ Læknirinn tók úrið upp úr vasa sínum og horfði á~paft. „Við skulum ekki leggja árar í bát ennþá," sagði hann. „Við Sgum enn eftir tíu mínútur.,, „Ert þú hræddur við að déyjat Johnny?" Hann brosti þurrlega. „Við skulum segja, að ég sé tregur,“ sagði hann. „Hvernig heldurðu að hann geri það? Heldurðu að hann raði okkur upp og leyfi okkur að fá okkur síðustu sígarettuna og sjússinn? Eða gerist það án viff- vörunar? Ég á við —“ ■ „Mark!“ Það var rödd Kay, og furðulega róleg. Læknirinn snéri sér ekki við, en hann rétti út hendina og tók í handlegg Fern, svo að liún þagnaði. „Já Kay?“ rödd Marks var lág og slöpp. ’ * „Þú veizt, að þú getur raunveru lega ekki gert þetta, elskan mírí,“ sagði Kay. :siA - „Ég get það og geri það,“ sa^ði Mark. „Ég skil nú hlutina allmiklu betur en áður, Mark,“ sagði Káý. „Ég vildi heldur tala við þíg}* I eínrúmi, en úr því að það1 ’ér ekki hægt —“ * >ÍM (C PIB CJPe'nhaC^n lamma hefur alveg rétt fyrir sér. Veðrið ,er alltof gott ^ 5 sitja hér og horfa á sjónvarpið. Eigum við að koma niður,|t jallara og spila borðtennis? .V M- b\> V M . Y G'sai’Am’. >.v B ! f ÁLÞÝÐUBLAdlÐ — 13. febrúar 1963 J.5

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.