Alþýðublaðið - 20.02.1963, Blaðsíða 16
STÆESTA farþegaflugvél
veraldar — rússncska vél-
• in TU-114 — lenti fyrir
»•.. . . ' f t • '
Lundúnaflugvelli. Hún var
að sækja hóp 170 brezkra
verzlunarmanna, sem ætluðu
' i'X ‘ nir'Xn Itnln’ímii í Mnclrirll
Myndin sýnir flugfrcyjurnar,
sem buðu Bretana velkomna
nra borð.
M®
44. árg. — Miðvikudagur 20. febrúar 1963 - 41. tbl.
Heimskunn söng-
kona kemur hér
fram á tónleikum
HIN HEIMSKUNNA austurríska
söngkona, Irmgard Seefried kom
til Reykjavíkur í gær, en hún
syngur með Sinfóníuhljómsveit-
inni í Háskólabíó í kvöld og á
íöstudagskvöldið. Einnig komu
með henni prófessor Eric Werba,
sem leikur undir á tónleikunum,
og þýzki hljómsveitarstjórinn
Gústav König, sem stjórnar tón-
leikunum á föstudagskvöldið.
Irmgard Seefried er heimskunn
ljóða- og óperusöngkona. Hún hef
ur sungið við helztu óperuhús
Evrópu og Ameríku og haldið tón-
leika víða um heim. Hún hefur
einnig sungið inn á fjöldamargar
hljómplötur. Á tónleikunum í
kvöld syngur hún eingöngu ljóða-
lög eftir Schumann, Schubert,
Brahms og Richard Strauss. Eric
Werba, sem leikur undir á píanó,
er prófessor við tónlistarháskól-
Framh. á 5. síðu
ÞRIR rússneskir rithöfundar, sem kallaðir hafa
verið „nýir Pasternakar“, vegna baráttu sinnar fyrir
auknu frelsi Sovétlistamanna, hafa hafnað á geð-
veikiahæli. Bækur eftir þá alla hafa birzt á Vestur-
löndum.
Frá þessu segir í síðasta tölu-
Maði brezks stórblaðsins „The
Sunday Express“.
Samkvæmt hinni nýju „frjáls-
«eeðisstefnu“ Krústjovs á nú svo
«ð heita, að engan sovétborgara
waegi lineppa í fangelsi af pólitísk-
«un ástæðum. Örlög rússnesku rit-
ttiöfundanna gefa visbendingu um,
«tð hin kommúnistisku stjórnarvöld
hafi nú fundið áhrifaríka aðferð til
þess að komast í kringum þetta
ákvæði — með eða án vitundar
Krústjovs.
Rithöfundarnir eru:
VALERIY TARSIS, um sextugt,
sem tvær skáldsögur hafa verið
birtar eftir í Bretlandi. Handrit-
inu var smyglað frá Rússlandi.
MICHAEL NARITZA, 53 ára
tWtVWltWMWWWWWWWWWWWWHWVWMWW
//
BALL"
ÁRSINS
ÁKVEÐIÐ hefur verið, að
Blaðamannafélag íslands
haldi svokallað „pressuball”
laugardagskvöldið 2. marz
næstkomandi. Verður „ball-
ið” haldið í nýja salnum á
Hólel Sögu, og verður það
fyrsti almenni mannfagnað-
urinn í þessum glæsilegu
húsakynnum.
„Ballið” hefst með kvöld-
verði klukkan sjö um kvöld-
ið. Aðalræðu kvöldsins held-
ur Gunnar Gunnarsson rit-
höfundur, en auk hans koma
fram á „pressuballinu” marg
ir i fremstu röð íslenzkra
listamanna. Það er ætlunin,
að „Pressuball” verði fram-
vegis árleg skemmtun, sem
mikið kveður að í skemmt-
analífi þjóðarinnar.
Erlendis er sá siður í há-
vegum hafður, að blaðamenn
haldi slíkt pressuball árlcga,
og eru þær skemmtanir jafn
an aðalskemmtihátíð hvers
árs. Það er von B. í„ að
„pressuballið” hérlendis' geti
einnig orðið ball ársins á ís-
landi.
gamall myndhöggvari og rithöfund
iu- í Leningrad. Ævisaga hans í
skáldsöguformi kom út í Vestur-
Þýzkalandi fyrir tveimur árum.
VOLPIN-ESSENIN, sem ljóð og
ritgerð um heimspekileg efni hafa
birst eftir í Bandaríkjunum. Hon-
um hefur nú verið sleppt úr geð-
veikrahælinu — en var um leið
stimplaður sem svartamarkaðs-
braskari í rússneska blaðinu Ogon-
ek. Við þeim glæp getur legið líf-
látshegning í Sovétríkjunum.
Af sögum Tarsis verður naum-
ast annað ráðið en að hann hafi
séð fyrir hvernig fara mundi fyrir
honum. Þannig hermir önnur frá J
rússncskum menntamanni, sem. ác-
angurslaust reynir að brjóta af sér |
hlekki skoðanakúgunarinnar og 'fflR
varaður við því, að hann eigi á
hættu að verða úrskurðaður geð-
veikur „að góðri og gamalli rúss-
neskri hefð“.
t í nokkrum köflum er engu lík-
ara en rithöfundurinn sé að vara
lesendur við hugsanlegum örlög-
. um sínum og biðja þá að trúa á
andlegt heilbrigði sitt hvað sem
þeir kunni að heyra.
I Naritza var handtekinn þremur
i mánuðum eftir að bók hans birtist
og ári eftir að hann hafði sent
Krústjov forsætisráðherra eintak
ásámt með bréfi, þar sem hann mót
mælti hverskyns liöftum á rúss-
-neskfi list.
Nokkrum vikum eftir handtök-
una var konu hans sagt, að útvega
honum verjanda og tjáð, að réttar
höld yfir honum mundu fara fram
fyrir luktum tíyrum og að hann
kynni að fá allt að sex ára fang-
elsi fyrir afbrot sitt.
Þó fór svo að lokum, að Naritza
var færður á geðveikrahæli. Og
þar sat hann, þcgar síðast fréttist
I — seint á síðastliðnu ári.
Þjódminjasafn íslands 100 ára:
AFMÆLIÐ HALDIÐ HÁ-
TÍÐLEGT Á SUNNU
100 ARA afmæli Þjóðminjasafns-
ins verður haldið hátíðlegt næst-
komandi sunnudag eins og gert
hefur verið að liðnum hverjum
aldarfjórðungi til þessa. Á sunnu-
dag verður samkoma í hátíðasal
Iláskólans, og einnig verður þá
opnuð sýning í bogasal Þjóðminja
safnsins á tréskurði frá lið'num
öldum, og verður þar reynt að
draga fram megin línur í þróun
tréskurðarins frá fornöld til loka'
19. aldar. !
Afmælisritið „Hundrað ár í ‘
Þjóðminjasafni” kom út fyrir jól-
in, en kemur nú út í annarri út-
gáfu með, stuttum enskum skýr-
ingatextum. Þá gefur Póststjórnin
út tvö ný frímerki í tilefni afmæl-
isins, og koma þau í dag.
Á fundi með blaðamönnum í
gær sagði Kristján Eldjárn, Þjóð-
minjavörður, að safninu hefði bor-
izt ýmsar gjafir í tilefni afmælis-
ins. Börn Jóns biskups Helgason-
ar, þau Annie, Cecilie, Þórhildur
og Páll Helgason, færðu safninu
að gjöf allar hinai- mörgu teikn-
ingar, sem faðir þeirra gerði af
íslenzkum kirkjum á vísitazíuferð-
um sínum. Eru það myndir af flest
um íslenzkum kirkjum, sumar að
vísu hálf unnar.
Ásmundur Jónsson frá Skúf-
stöðum og frú Jenny Guðmunds-
dóttir í Hafnarfirði gáfu safninu
uppskrift á dánarbúi Sigurðar
málara, þá er var í fórum syst-
Framh. á 11. síðu