Alþýðublaðið - 13.03.1963, Page 8

Alþýðublaðið - 13.03.1963, Page 8
« [ iggerí G. Þorsteinsson skrifar um verkalýðsmál: >KATTAR GREIÐ- ST JAFNÓÐUM G LAUN GREIÐAST | vera á skattastiga hinna ýmsu sveitafélaga. — Þá auðvelda sjálf skattskýrsiueyðublöðin ekki slíkan undirbúning .— og til heiðarlegr- I ar útfyllingar þeirra þarf sérfræði lega aðstoð. Hin nagandi óvissa manna um ráðstöfunarrétt á tekjum sínum, sem hæglega taka stórbreytingum frá ári til árs, á að tilheyra for- Itíðinni. í flestum nálægum lönd- |um hefui' þetta jafnóðum -skatt- ' greiðslukerfi verið tekið upp, — þannig eru starfsbræður okkar þar að taka við því fé, sem það opin- bera hefur oftekið af þeim á árinu, á sama tíma, sem við sitjum sveitt ir við að hnoða saman framtals- skýrslu liðins árs. Síðan líða 4—6 mánuðir, þar til menn fá að vita, hver raunveruleg gjöld þeirra verða. FRÁ atvinnuleysisárunum minn ast menn þess, að opinberir starfs- menn hjá ríkis- eða bæjarfyrir- tækjum, voru taldir öfundsverðir, hvað atvinnuöryggi snerti. ; Undánfarin ár hefur þessi hugs- uþarháttur tekið allmiklum breyt- iiigum, þar eð nægt vinnuframboð hefur verið á hinum almenna vinnu markaði. — Lífeyrissjóðir og þau hlunnindi, sem samfara þeim eru, hafa og einnig náð til æ fleiri síarfsgreina. Þannig skipta þeir starfsmcnn nú þúsundum, sem njóta þeirra hlunninda, er slíkir sjóðir veita, utan hinna opinberu siarfsgreina. Þannig hefur stífasti giansinn horfið af þeirri sérstöðu, sém launþegar hjá hinu opinbera voru taldir hafa. Að sögn þeirra, sem gerzt til þekkja, e'r í dag talið nlun vænlegra til bættrar fjárhags- legrar afkomu að vinna hjá einka- fyrirtækjum en því opinbera og raddir heyrast um, að ýmsir hæf- ustu starfskraftarnir hjá ríkis- og bæjarstofnunum séu þannig yfir- boðnir í launum, að þeir hverfi þaðan úr störfum til einkafyrir- tækjanna. Allar sögur um það efni skipta þó ekki máli í sambandi við það, sem þessar línur áttu um að fjalla. ( Árum saman hefur það verið krafa verkalýðssamtakanna að inn- heimtu persónuskatta (og útsvara) yrði hagað á þann veg, að gjöldin væru dregin frá launum, hverju sinni og launagreiðsla fer fram. Hvernig sem á því stendur, hafa mikið umtalaðar rannsóknir og at- huganir ekki séð dagsins ljós og þaðan af síður að úr nokkurs kon- ar framkvæmdum hafi orðið, nema hjá hinum opinberu starfsmönnum. Hjá öðrum launþegum hefur lítið orðið úr framkvæmdum, þegar frá eru dregnar örfáar undantekning- ar. Okkur er sagt að á öðrum vinnu stöðum sé nánast ókleyft að koma þessu við, og þar með „punktum og basta“. | Fjöldi verkalýðsfélaga, mörg Al- : þýðusambandsþing, hafa gert álykt anir í málinu, sem á einn veg hafa verið, kröfur um rannsókn og fram kvæmdtr. Málinu hefur af Alþýðu- flokknum verið hreyft á Alþingi jog þingsályktun um það gerð og 1 „vinstri stjórnin" hét framkvæmd j um, en allt hefur komið fyrir ekki. j Við þessari kröfu, er ekki ótítt að heyra einstakar raddir eins og jt. d. hvers vegna þarf fólk nú sér- ! staklega að hafa opinbert aðhald ! um greiðslu gjalda? eða getur fólk ið ekki sjálft lagt til hliðar, við j hverja launagreiðslu, hæfilegan hluta launa sinna, fyrir opinber- um gjöldum. Að sjálfsögðu ætti þetta að vera mögulegt, ef allir vissu fyrirfram, hverjir skattarnir yrðu í raun og sannleika frá ári til árs. Svo auð- velt er þetta þó ekki. Nánast eng- inn Veit hver þörf ríkisins og bæjarfélaganna verður á næsta ári a. m. k. ekki nákvæmlega, auk hins mikla mismunar, sem virðist Það virðist a. m. k. lágmarks- krafa, að opinberlega verði gerð grein fyrir þeim rannsóknum, er fram hafa farið um þessi mSl, og þá jafnframt hvers vegna ekki hef ur verið hafist handa hjá okkur. Sá dráttur, sem orðinn er á þess- ari breyttu tilhögun, verður enn torskildari, þegar þess er g'ætt, að árlega verða ríki og bæjarfélög að fella niður allstóran hluta í inn heimtu opinbetrra gjalda, beinlín- is af því, hve langur tími líður frá tekjuöfluninni, til þess að gjaldagreiðslau verður að eiga sér stað. Frá leikmanns sjónarmiði virð- ast því báðir aðilar, — það opin- bera og skattgreiðandinn,, eiga hér sameiginlegra hagsmuna að gæta. Annar losnar við óvissuna og ótt- ann við að þurfa að greiða skatta af tekjugóðu ári í lélegu árferði næsta árs á eftir og sá, sem skött- unum á að ráðstafa á það opinbera) ætti að fá öruggari tekjur. En hvað er til fyrirstöðu? GEORGES Bidault var áhrifamik- ill stjórnmálamaður heima og er- lendis eftir styrjöldina, nú er hann hatursfullur andstæðingur de Gaulles. Ferill hans liefur vérið persónulegur harmleikur, og hann varpar ijósi yfir hinar stóru sveifl- uf franskra stjórnmála. Bidault bauð de Gaulle velkom- inn heim til Frakklands árið 1944 fyrir hönd frönsku andspyrnuhreyf ingarinnar og sem foringi hennar. Þeim geðjaðist aldrei hvorum að öðrum. De Gaulle minnkaði áhrif Bídaults sem mest hann gat og Bidault gerðist einn af foringjum þeirra stjórnmálamanna, sem ýttu hershöfðingjanum til hliðar tveim árum síðar. Með styrjöldinni hófust afskipti Bídaults af s'jiórnmálum. Fyrir sti íð var hann sögukennari og skrif aði greiuar í blöð um hugðarefni sitt, utanríkismál. Hann var ein.i af stofnendum Kaþólska þjóðarflokksins, sem setti svip sinn á frönsk tjórnmál fyrstu árin eftir styrjöldina. For- sætisráðherra var hann fjórum sinnum og tvívegis utanríkisráð- herra. Bidault var helzti fulltrúi Frakka í alþjóðlegum samninga- viðræðum á þessum tíma. Eftir ósigurinn í Indó-Kína lauk stjórnmálaferli hans. Ljóst var, að hann var orðinn mjög beiskur maður og kom það greinilega fram í þingræðum hans. Vandamálin í Norður-Afríku — Marokkó, Túnis og einkum Alsír — komu á hreyfingu þeim hóp- um stjórnmálamanna, sem töldu Frakka hafa siðmenningarlegu hlutvérki að gégna í þessum heims hiuta eins og reyndar annars stað- ar I heiminum þar sem franska nýlenduveldið náði. Þeir voru and- vígir undanlátsstefnunni, er þeir | töldu undirbúa jarðveginn fyrir siðleysi og kommúnista. Þeg- ar Alsir-stríðíð dróst á langinn, fóru þeir að leita að leiðtoga, sem gæti varðveitt franskt Alsír. Öfgasinnar til hægri töldu de Gaulle þennan leiðtoga. Tilbeiðsl- an varð að hatri, þegar þeir töldu de Gaulle hafa svikið sig. En Bidault hafði hatað de Gaulle svo lengi, að hann var ekki einn þeirra, sem fögnuðu valdatöku hans 1958. i Ef Bidault hafði litlu hlutverki ^að gegna í frönskum stjórnmálum ; á síðustu árum 4. lýðveldisins, i hafði hann engu hlutverki að gegna í 5. lýðveldinu. Hann var orðinn alger utangarðsmaður og settist loks að erlendis. Þegar OAS-foringinn Salan var gripinn í fyrra var tilkynnt, að Bidault væri orðinn eftirmaður hans. Bidault kveðst halda áfram bar- áttunni, sem hann háði í stríðinu í andspyrnuhreyfingunni. Hreyf- ing hans kallast Þjóðlega bylting- arráðið eins og þá. Bidault beitir þeim rökum, að stjórn de Gaulles sé ólöglegt lýðræði og vill aftur koma á þingræði. Hann gagnrýnir utanríkisstefnu de Gaulles og seg- ir: „Hvað merkir Evrópa de Gaull- es frá Atlantshafi til Úralfjalla? Það merkir, að Rússar eigi að til- heyra Evrópu og að Bandaríkja- menn fari burtu þaðan,“ segir hann. Ekki er vitað hve mikið fylgi Bidault hefur að baki, en hann hefur beðið álitshnekki vegna sam starfsins við OAS. í Frakklandi er hann eftirlýstur afbrotamaður og fátt bendir til þess, að hinn mikli meirihluti andstæðinga de Gaulles sé fús til að fallast á hann sem léiðtoga. Viðtalið við Bidault í brezka sjónvarpinu í síðustu viku hefur ! vakið feikilega reiði í Frakklandi. Þetta mál er eitt af mörgum fyrir j boðum um afstöðu Breta gagn- ! vart Frakklandi, þótt brezka stjóm i in segi réttilega, að hún hafi ekki álniga á að setja BBC undir rit- skoðun og eftirlit á friðartímum. Allt bendir til þess, að brezka stjórnin hafi vitað um viðtalið fyr- irfram og ekkert gert til að koma í veg fyrir að því yrði sjónvarpað. 0 3 13. marz 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.