Alþýðublaðið - 16.03.1963, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 16.03.1963, Blaðsíða 16
í hinum átta hesthúsum Fáks á skeiðvellinum við EII- iðaár, eru 223 hestar. Um helgar, og þá sérstaklega á sunnudögum, tæmast húsin. og fara hestamenn þá í flokk um í útreiðatúra um nágrenni bæjarins og víðar. Ljósmynd- ari blaðsins var þarna á ferð fyrir nokkru síðan og tók þessa mynd. Agnar Bogason, ritstjóri var að beizla hest sinn ,og hjá honum stóð Hösk uldur Eyjólfsson frá Hofs- stöðum í Hálsasveit, einn kunnasti tamningamaður Iandsins. Hús Fáks eru nú rúmlega 2000 fermetrar: Hestamannafélagið Fákur hefur iitó enn bætt við húsakost sinn á skeiðvellinum við Elliðaár. Fyrir skömmu var lokið við byggingu á húsi, sem verður samastaður fyrir starfsemi félagsins, veitingasalur og skriftofa, en þar verður jafn- framt íbúð fyrir eftirlitsmann. Fákur hóf byggingaframkvæmd- ir á skeiðvellinum 1959. Voru þá í fyrstu byggð tvö hesthús ásamt Jblöðu. Búmuðu hesthúsin 56 hesta. Á hverju ári hefur síðan verið bætt við tveim húsum, þannig, að nú eru þar átta hesthús, sem rúma 223 feestri. Brunabótamat þessara húsa eru u n 4 milljónir króna. Öll hús Fáks á skeiðvellinum eru nú rúm lega 2000 fermetrar. Bygging húss þess, sem nú er menn kosnir í bygginganefnd, þeir tilbúið, hófst í fyrra. Voru þrír SÞoriákur Ottesen, formaður félags íns, Sigvaldi Thordarson arkitekt og Sveinn K. Sveinsson, verkfræð ingur. Teiknaði Sigvaldi húsið, en hann liefur og teiknað öll hesthús- in. Grunnfiötur þessa nýja húss er FUNDI FRESTAÐ AÐALFUNDI Alþýðu- flokksfélags Kópavogs, sem vera átti í dag, verður frestað vegna óviffráðanlegra orsaka urn óákveffinn tíma. 240 fermetrar. íbúð húsvarðar er 80 fermetrar. Veitingaskálinn 'er annað eins, og rúmar liann 80 í sæti í húsinu er stórt eldhús, snyrti herbergi og skrifstofuherbergi Hús ið er mjög vandað. Yfirsmiður við biggingu þessa húss var Sigurður Þorgeirsson og múrarameistari Ólafur H. Pálsson. Byggingaframkvæmdum á skeið- vellinum verður haldið áfram. Verða byggð 8 hesthús til viðbótar, sem munu standa beint á möti þeim, sem komin eru. Þegar þeim framkvæmdum er lokið, munu öll húsin rúma 450 hesta. Til að gera þessar framkvæmdir mögulegar, hafa þeir, sem tekið hafa bása á leigu, lagt fram helming þeirrar fjárhæðar, sem áætlað er að hver bás kosti. Hefur sú upphæð verið lán til félagsins. Má segja að hestliúsin á skeið- vellinum sé orðið með stærstu bú- um á landinu. Þessir 223 hestar, sem þar eru nú, þurfa á fjórða þúsund hesta af heyi á ári. Hefur félagið þurft að kaupa allt hey, og er kostnaðurinn við það hátt á fimmta hundrað þúsund krónur, og er þá kjarnfóður ekki reiknað með. Á vegum félagsins er nú starf- andi reiðskóli, og er Rosamari Þor leifsdóttir kennari við hann. Skól- |inn er starfandi fimm daga vik- unnar. 20 börn eru þar við nám á hverjum degi. Aðsókn að skólan um er mjög mikil, og komast færri að en vilja. Á fundi með blaðamönnum í gær, sagði stjórn felagsins, að mörg og mikilvæg verk væru enn yggt inum óunninn. Lóð skeiðvallarins Parf að koma í lag, hreinsa og græða. Á hverju ári fjölgar um 50 desta í liúsum félagsins og innan skamms mun félagið missa aðstöðu sína að Laugalandi, en þar hafa verið ver- ið á annað hundrað hestar. Sr því mikil nauðsyn á, að áframhaldandi byggingaframkvæmdum verði hraðað. Stjórn þess skipa: Þorlákur Otte sen formaður, Haraldur Sveinsson varaformaður, Jón Björnsson gjald keri, Einar Sæmundsen ritari og Ingólfur Guðmundsson meðstjórn andi. í varastjórn eru: Björn Hall dórsson og Bergur Magnússon. í Fák eru nú um 450 félagar. Fjórar litkvikmyndir Ósvalds Knudsen liafa nú veriff sýndar í Gamla Bíó í eina viku viff góóa affsókn og hafa þegar nær 7000 mahns séff inyndirnar. Kvikmyndirnar verða enn sýnd ar í dag, laugardag, kl. 7 og fer nú hver að verða síðastur að sjá þr. Kvikmyndirnar eru þessar: Hail dór Kiljan Laxness, Eldur í Öskju, Barnið er horfið og Fjallaslóðir. Þessi mynd er tekin af hnífnum, sem innbrotsþjóf- urinn reyndi að stinga lög- reglumanninn rneff. Á mynd- inni eru og áfengisflöskur þær, sem hann bar í bcltinu, og hinn hnífurinn. LÍTILL drengur, Þorsteinn Berg aff nafni, varff úti skammt frá héimili sínu, Giljahlíff í Borg- arfirffi, í fyrrinótt. Drengurinn var sonur hjónanna Sigríffar Þor- steinsdóttur og Meinhart Berg, sem búa í Giljahlíff. Þorsteinn litli, sem var þriggja ára, var að leika sér úti í fyrra- dag um sex-leytið og var vel bú- inn til útivistar í þykkum ullar- sokkum, í peysu, með húfu og vettlinga. Þegar farið var að gæta að honum, skömmu síðar, sást hann hvergi. Var þá hafin leit, sem engan árangur bar. Nágrann- ar komu þá þegar til hjálpar og hófu leit að drengnum og loks skólanemar frá Reykholti og frá Hvanneyri og fjöldi sjálfboðaliða úr héraðinu. Leitarmenn skiptu að síðustu hundruðum og var haf- in skipuleg leit, sem stóð alla þá nótt, þar til lík drengsins fannst undir morgun á bersvæði við Geirsá, sem rennur nokkurn spöl fyrir rieðan og sunnan við Giljahlíð. Björn Pálsson flugmaður var fenginn til að flytja sporhund- inn Nonna ásamt gæzlumönnum hans upp að Stóra-Kroppi í fyrra kvöld og var farið með hundinn beint að Giljahlíð. Var hann lát- inn lykta af fötum drengsins og stefndi hann síðan til fjalls, sem er fyrir ofan bæinn, en það var Framh. á 5. síðu 41 bátur með 8588 tonn AFLI Keflavíkurbáta frá ára mótum til dagsins í gær var alls 8588 tonn. Er þetta afli 41 báts, sem fóru 1259 róffra. Á sama tíma í fyrra höfffu Keflavíkurbátar fariff 901 róffur og fengið 6824 tonn. Hæstu bátarnir eru: Bald- ur KE 373,7 tonn, Bjarni EA 358 tonn, Gunnar Hámundar- son 341,9 tonn, Ólafur Magn- xisson 341,5 tonn og Fram 339,9 tonn. »wmwwwnwtwwwwwwww ftorn; ctð.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.