Alþýðublaðið - 17.03.1963, Page 13
Grein Jónasar
Frh. úr Opnu.
Lears konungs. Eklci prýíiir hjarta-
gæska frú Macbeth, þótt drottning
væri og ekki á Ríkharður konung-
ur þriðji mikið aflögu til uppbótar
á dómsdegi. Kaldhyggjumaður SV?
urðar Róbertssonar mun með þess-
um skýringum þykja vel konung-
legur og 6amhæfur dyggðarsnauðu i
fólki í hæstu trc/ppum mannfélags-
ins.
Vafalaust má finna smíöalýti á >
Dimmuborgum, enda er hér um að |
ræða fyrsta leikrit höfundar, eem J
kemur fyrir almenningssjónir. Þó J
að Dimmuborgir kurrni að hafa j
nokkra ávöntun eins og flest mann
anna verk, eru kostirnir því meiri.
Nafn leikritsins er fyrirtaks gott.
Leiktjaldið tengir saman nafn leiks
ins og viðburðaröðina á óvenju-
lega fullkominn hátt. Hver þáttur
leikritsins er gæddur innsýn í eðli
persóna á leiksviði mannlifsins. —•
Málfar höfundar er vandað. Þann-
ig talar greint og gott fólk í land-
inu, ef það hefur lesið sér til
gagns fornbókmennt, og það, sem
bezt er gert í ný íslenzkum skóld-
skap. Dimmuborgir Sigurðar Ró-
bertssonar bera vott um listræna
sköpunargáfu. Þaö er þakkarvert |
að þessi höfundur hefur gefið Þjóð
leikhúsinu og þjóðinni leikrit, sem
liefur marga eftirsóknarverða
kosti. Má vænta, að höfundur beri
gæfu til að rita fleiri góð leikrit
eða þá enn betri og fullkomnari
Haiin mun læra mikið af móttök-
um almennings, bæði í leikliúsinu
og á ritvellinum. Viðurkenning og
aðfinnslur eru nauðsynlegar hverj
um höfundi. — Hann lærir sína
mennt í áreynslu, bæði í skúrurn
og skini.
Þriðji Ljósvetningurinn, sem hér
ræðir um er leikkonan Briet Héð-
insdóttir. Hún starfar um þessar
mundir með mjög góðum árangri
við leikhús æskunnar og í Þjóð-
leikhúsinu. Að vísu er þessi leik-
kona ekki tengd við byggð Þor-
geirs goða með uppruna skírteini,
heldur ætterni og erfða-eiginleik-
um. Bríet er mjög efnileg'leikkona.
Yfirbragö hennar, gáfur, menntun
og lífsreynsla gefa vonir um að
hún muni fá sæti í fylkingu
snjallra kvenleikenda í Reykjavík.
Á undanförnum árum hefur verið
tilfinnanlegur skortur í Reykjavík
á leikkonum til að sinna erfiðum
störfum í leikmenntinni. — í
Dimmuborgum leikur Briet móður
vonda mannsins. Er gott eitt að
sfegja um hennar framgöngu við
það óþakkláta verk, þar sem van-
sæl móðir á vondan son.
í þessari greinargerð er Bríet
talin í sveit Ljósvetninga. Ber þar
margt til. Hún sýnir ótviræða leik
konu hæfileika. Aðstaða hennar er
þannig, að hún hefur ekki sér-
staka nauðsyn til að fást við leik-
list. Hún velur sér sýnilega störf
af áhuga fyrir málefninu. Þessi
leikkona er af landskunnri ætt. —
Faðir hennar, Héðinn Valdimars-
son og móðir hans, Bríet Bjarn-
héðinsdóttir, voru mikilhæf mæðg-
in, gædd eindregnum stjórnmála
áhuga, en ekki sérstakri listhneigð.
— Móðir Bríetar, leikkonu, er
Guðrún Pálsdóttir úr Ólafsfirði.
Sú ætt er öll sönghneigð svo að
af ber. Faðir Héðins, Valdimar, var
fæddur í Ljósavatnssókn og aljnn
upp í Þingeyjarsýslu. Hann var í
senn álitlegur fræðimaður, list-
hneigður, skáldhneigður og gædd-
ur óvenjulegum hæfileikum til að
skapa og stýra frjálslyndu og fjöl-
breyttu blaði, enda var hann
fyrsti ritstjóri þvílíks blaðs á
íslandi. Þátttaka Valdimars í gerð
og útgáfu Alþingisrímnanna er út
af fyrir sig merkilegur þáttur í
þjóðlegu bókmenntastarfi. Bríet,
leikkona, hneigist að ákveðnu
starfi móðurættarinnar og Valdi-
mars Ásmundssonar, listamanns,
úr Ljósavatnssókn. Þessvegna hef-
ur þótt við eiga í þessum línum að
tengja hana á listabrautinni við
byggð Þorgeirs goða. Maðurinn,
sem gerði kristindóminn að þjóð
trú íslendinga getur nú um óra-
vegu sögunnar séð þess merki, að
fjölþættir eprotar listagáfunnar
dafna í ættbyggð hans hjá ungum
Ljósvetningum.
Aðalfundur
Framh. af 3. síðu
róma endurkos|n svo og vara-
menn og endurskoðendur.
Stjórnina skipa, aðalstjórn: Al-
bert Guðmundsspn, formaður; Ein
ar Farestveit; Hjalti Pálsson, vara
formaður; Sigfús Bjarnason, gjald-
keri og Sigurliði Kristjánsson.
Varastjórn: Hilmar Fenger og
Kristján Jóhann Kristjánsson. ____
Endurskoðendur: Hans Þórðarson
og Sveinn Björnsson. — Til vara:
Sveinn Helgason.
Þegar kosningu var lokið,
klvaddi sér hljóðs Albert Guð-
mundsson, og þakkaði traust það,
sem sér og öðrum stjórnarmönn-
um hefði verið sýnt með þessu
endurkjöri.
Fundurinn var fjölsóttur og
rikti mikill einhugur með fundar-
mönnum.
f fermingarstúlkunnar
Alif í senn:
SKRIFBORÐ
SNYRTIBORÐ
KOMMÓÐA
Munið okkar
hagkvæmu
greiðsi uski imála.
Húsgapnaverzlun
Austurbæjar
Skólavörðustíg 16. — Sími 24620.
TSN A40
4—5 manna station bifreið, framleidd eingöngu úr hinum
þekkta Austin (qualitet) styrkleika.
★ Austin A40 er rúmgóð með góðu útsýni.
★ Austin A40 er falleg og nýtízkuleg.
★ Austin A40 er kraftmikil en spameytin.
★ Austin A40 kostar um 140 þús. kr. með
miðstöð.
GARÐAR GÍSLASON H.F.
BIFREIÐAVERZLUN
Aðalfundur pípu-
AÐALFUNDUR félags pípulagn-
ingameistara í Reykjavík var hald
inn í Þjóðleikhúskjallaranum 3. þ.
m. Auk venjulegra aðalfundar-
starfa var rætt um uppmælinga-
taxta fyrir félagið.
Frá þvi á miðju s. 1. ári, hefur
verið unnið að uppbyggingu tíma-
taxta á verk félagsmanna í sam-
vinnu við sveinafélag pípulagninga
manna undir stjórn Iðnaðarmála-
stofnunar íslands, en á vegum
hennar hefur Einar Eyfells, verkfr.,
starfað að þessum málum undir yf-
irstjóm Sveins Björnssonar, for-
stöðumanns stof;nunarinnar. Það
mun vera nýmæli hér á landi, að
tímataxti um ákvæðisvinnu sé fund
in undir eftirliti opinberra aðila og
má það teljast til fyrirmyndar og
eftirbreitni.
Ennfremur var rætt um aukna
tæknimenntun iðnema og nám-
skeið þau, er haldin hafa verið á
vegum iðnskólans undanfarlð. .—
Taldi fundurinn nauðsynlegt, að
slik kennsla við iðnskólann yrði
aukin til mikilla muna og það
sem fyrst.
Stjórn félagsins var öll endur-
kjörin, en hana skipa: — Grímur
Bjarnason, formaður; Tryggvi
Gíslason, varaformaður; Hallgrfm-
ur Kristjánsson, ritari; Haraldur
Salómonsson, gjaldkeri og Bergur
Jónsson, meðstjórnandi.
í fulltrúaráð Meistarasambands
byggingamanna var kosinn Grím-
ur Bjarnason og til vara Sighvat-
ur Einarsson.
ÍÞRÓTTIR
Framh. af 10 sáSn
4. Tryggvi Óskarss., HSÞ 9:38,2
5. Hauk. Engilb.s., UMSB 10:04,8
6. Þórir Bjarnason, UÍA 10:22,4
7. Vilhj. Björnsson, UMSE 10:29,0
8. Magn. Kristj.s., UMSB 10=33,2
9. Jóh. Halldórs., UMSE 10:34,2
10. Jón Gíslason, UMSE 10:38,2
11. Valur Guðm.s., KR 10:39,0
12. Helgi Kristj.s., UMSB 10:50,0
13. Magn. Jóseps., UMSB 11:35,0
14. Magn. Kristinss., UMSE 11:41,4
15. Björg. Einarss., USAH 12:06,6
ALÞÝÐUBLA0I0 - 17. marz 1963 13