Alþýðublaðið - 21.03.1963, Qupperneq 13
T ómstundavinna
Framh. úr opnu.
unnar, þarf engan að undra þótt
innan um leynist rótlausir og hvarfl
andi einstaklingar, sem fyrr en var
ir geta orði'ö vonarpeningur þjóðfé-
iagsins ef ekkert er að gert. At-
hafnaþörf æskiínnar og þrá er ætíð
Jiin sama. Æskan í dag er þróttmik-
il, djörf og athafnasöm, gengur ótta
laus og fagnandi mót nýjum tíma
og vefur andavaralaus sína æsku-
voð. Uppistaðan er góð, ívafið er
Jmökrótt og bláþærðir leynast víða.
Hvernig á annað að vera? Eru
.sjoppurnar, sorpritin eða vínveit-
ingastaðirnir holl uppeldismeðul?
Starfsemi sem eingöngu er byggð á
Jiagsmunalegum grundvelli lengur
j berhögg við allt það bezta í sál
æskunnar og rífur niður til grunna
það sem á að byggja upp.
. Ef álit manna og skoðanir um
þessi vandamál eru dregin í einn
brennipunkt, koma fram eftirfar-
andi kröfur:
1. Sjoppustarfsemi verði hætt með
öllu, — eða til vara, verði lokað
kl. 22 að kvöldi og að öll af-
greiðsla í þeim fari eingöngu
fram í gegnum lúguop, en verði
æskunni ekki snauðir dvalar-
eða sýkingarstaðir.
2. Prentað mál, annað en dagblöð,
verði einungis selt í bókaverzl-
unum, svo sem annað leslrarefni
S. Unnið verði gegn því, að æsku-
fólk, innan 21 árs sæki vínveit-
Inga^vaði, en siiuðoingur, —
svo sem eftirgjöf á skemmtana-
skatti o.fl. — veittur þehn
skemmtistöðum, sem ætla æsk-
unni rúm innan sinna veggja og
engar vínveitingar hafa.
4. Æskulýðs- og félagsheimili verði
reist og rekin sem mannbætandi
fræðslu og skemmtistaðir í um-
sjá hæfra leiðtoga, sem til þess
hafa hlotið eérstaka þjálfun
(samanber t.d. þjálfun íþrótta-
kennara).
Heimsstyrjöldin síðari fæddi af
sér mörg vandamál, er snerta æsk-
una á einn eða annan hátt, sem erf
itt reynist að leysa. Þrátt fyrir það
er ég ekki svartsýnn á framtið ís-
lenzkrar æsku, ef málið er krufið
til mergjar í ljósi staðreynda og
markvisst unnið samkvæmt því.
Þótt æskan falli á kné, rís hún aft-
ur á fætur, en — hún getur hlotið
þau sálræn meiðsl, er skilja eftir
ör, sem aldrei hverfa til fulls.
Við getum ekki steypt æskuna í
okkar mót og ekki víst að það sé
æskilegt, en leiðsögn er unnt að
veita — og hennar er sannarlega
þörf. Þá leiðsögn verða heimili og
skólar að annast, ef vel á að fara.
Aldrei fyrr hefur þjóðarátak til
verndar æskunni, verið jafn brýn
nauðsyn og nú. Góð heimili eru tví
mælalaust beztu uppeldisstöðvarn-
ar og ekkert veganesti betra ey
I það, sem góðir foreldrar gefa.
| En maðurinn er félagslynd vera
og æskan unir sér ekki til fulls
;án tengsla við félaga sína og jafn-
| aldra og þau tengsl verða varla rof
. in átakalaust. Það ætti því að vera
I hlutverk æskulýðs- og félgsheim-
j ila að tryggja henni aðlaðandi sama
! stað við holl félags- og tómstunda
j viðfangsefni, ofin tónum og lit-
um, sem hún skilur og þráir. Að
því ber að stefna. Á vissu aidurs-
skeiði eigum við traust æskumiar
allt og óskipt, bregðumst aldrei
því trausti. Leggjum öil hönd á
plóginn, svo íslenzk æska verði
rótföst í plógfari hins nýja tíma —
og nýtir þjóðfélagsþegnar erfi land
ið.
(Sveitarstjómarmál).
ist hermálastefnan þannig, að ætl
ast væri til, að Bandaríkjamenn
kæmu Evrópu enn einu sinni til
hjálpar, ef illa færi, þar eð hinn
litli kjarnorkuherafli Frakka gæti
ekki gert meira en draga Banda-
ríkjamenn inn til hjálpar.
Ennfremur bendir hann á, að
ekki sé'hægt að ætlast til, að nokk
ur Bandaríkjastjórn fari að taka
ábyrgð á Evrópu, ef hún hefur þar
engin áhrif á gang mála. Athyglis-
vert er það, sem Acheson segir um
skoðun de Gaulles, að í framtíðinni
kunni einhver Bandaríkjastjórn að
missa áhugann á að verja Evrópu.
Þessu svarar Acheson þannig, að
bezta vörnin gegn slíkri þróun
væri einmitt að styrkja Atlantshafs
bandalagið og binda þannig hendur
væntanl. Bandaríkjaforseta. Það
sem de Gaulle sé raunverulega að
gera, sé að skapa nákvæmlega það
ástand, eem hann þykist vera að
gera varúðarráðstafanir gegn.
Hins vegar eru tvö atriði: tvenns
konar ótti, sem orðið hefur vart og
ekki eru tekin til meðferðar í ræðu
Achesons, en nauðsynlegt verður
að ræða nákvæmlega, ef takast á
að lcoma á aftur öruggri samstöðu
vesturveldanna. Annað þessara at-
riða er óttinn um, að Bandaríkja-
menn kunni að gera samning við
Rússa á kostnað Evrópu. En hitt
er óttinn um, að Bandaríkjamenn
séu svo helteknir af „ideólógísku“
viðhorfi til kalda stríðsins, að
Evrópa verði að losa sig með það
fyrir augum að semja ein. — Þetta
|;eru tvö veigamikil atriði, og að því
jer virðist andstæð hvort öðru, en
raunveruleg engu að síður og því
mikil ástæða til að cæða þau.
Bifvélavirkjar, Vélvirkjar,
Járnsmiðir
■
Viljum ráða nú þegar bifvélavirkja, vélvirkja og járn-
smiði, eða menn vana slíkum störfum.
Upplýsingar í .síma 32360.
DIESELVÉLAR H.F.
RÚMAR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
KYNNIÐ YÐUR
MODEL 1S63
Sími 24204
fsSSSON & co P.O. BOX 1M4 - REYKlAVlK
Hauðungaruppboð
verður haldið að Þverholti 22 (húsakynnum Ölgerðarinnar
Egill Skallagrímsson) hér í borg, eftir kröfu Hilmars Garð-
ars hdl., föstudaginn 22. marz n.k. kl. 2 e. h.
Seldur verður stór kæliskápur (McCall), tilheyrandi Ella-
búð hér í borg. Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Acheson um de Gaulle
Frh. úr Opnu.
ástand sé ekki aðeins mjög slæmt
fyrir NATO, heldur líka fyrir allar
hugmyndir de Gaulies um að sann-
færa Evrópuþjóðirnar um, að hann
geti veitt eitthvert algjörlega
evrópsk heildaröryggi.
Ekki er rúm hér eða ástæða til
að rekja ræðu Acheons nánar, en
að bæta því við, að.hann telur, að
Bretum hafi aðallega verið neit-
að um inngöngu í EBE á þeirri
forsendu, að þeir væru eins konar
amerískur Trojuhestur. Og hann
telur stefnuna í varnarmálum
Evrópu nú vera rétta, og þó að ekki
beri að ganga framhjá Frökkum á
neinn hátt, þá ber að halda stefn-
unni með öðrum þjóðum, ef
' SAMEINAR MARGA KOSTt
FAGURT ÚTLIT. ORKU. TRAUSTLBKA
RÓMAÐA AKSTURSHÆFNI
OG LÁGT VEROj
TÉHhNESHA BIFREIÐAUMBOÐIÐ
VONARSTÍW.TI I2.SÍMIJ7SW
i Frakkar standi ekki við sitt eða
: tefji framkvæmdir um of.
j í lok ræðunnar benti hann á, að
atburðirnir í janúar ættu að sýna
Bandaríkjastjórn ljóslega þær áf-
leiðingar, sem það hefði haft fyrir
jsamskiptin við Þjóðverja, að hafa
ekki haldið fast við stefnuna í
Berlínarmálinu og sameiningu
Þýzkalands. Telur hann, að allt
frá „hinum skaðvænlega fundi í
Camp Davis“ (milli Eisenhowers
og Krjústovs) hefðu Þjóðverjar
verið áhyggjufullir yfir áframhald
andi eamningaumleitunum Banda-
ríkjamanna og Rússa vegna hótana
Rússa, sem Þjóðverjum virtist
beinast æ í áttina til enn meiri
viðurkennlngar á Austur-Þýzka-
landi. Og hann bætti við: „Daður
okkar við Moskvu, eins og svo
margt daður, sem engan alvarlegan
tilgang hefur, hefur aðeins borið
þann árangur að auk biturleika í
miklu löglegra sambandi. Það er
kominn timi til að binda endi á
þetta og setja afdráttarlaust fram
fyrirætlanir okkar.“
Þetta er í mjög stuttu máli helzfa
inntak ræðu Achesons. Hann bend
ir m.a. á, að stefna de GauUes í
efnahagsmálum leiði til stöðnunar
vegna of mikillar áherzlu á við-
skipti innan Evrópu, og hann bend-
ir á, að stefnan í stjórnmálum og
hermálum miði bókstaflega að því
að hrekja Bandaríkjamenn aftur
til einangrunarstefnu, og þó Virð-
sM \
M/'U'
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 21. marz 1963 |,3