Alþýðublaðið - 21.03.1963, Síða 14

Alþýðublaðið - 21.03.1963, Síða 14
Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug: Gullfaxi fer til Glasgow og Kaupm.hafnar kl. 08,10 í fyrramálið. Innan- landsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaða, Kópaskers, Vestm,- eyja og Þórshafnar. Á morgun ér áætlað að fljúga til Akureyr- ar (2 ferðir), ísafjarðar, Fagur- hólsmýrar, Hornafjarðar og Sauðárkróks. Loftleiðir h.f. Snorri Þorfinnsson er væntan Iegur frá New York kl. 08.00. Fer til Glasgow og Amsterdam kl. 09,30. Eiríkíur rauði er vænt ánlegur frá Helsingfors, Kaup- m.höfn og Oslo kl. 23,00. Fer til New York kl. 00,30. smp Eimskipafélag íslands h.f. Brúarfoss fer frá Rotterdam 20. 3 til Hamborgar og Rvíkur. Dettifoss fer frá New York 20. 3 til Rvíkur. Fjallfoss kom til Rvíkur 19. 3 frá Gautaborg. Goðafoss fór frá New York 19. 3 til Rvíkur. Gullfoss er í K- höfn. Lagarfoss fer frá Keflavík í dag, 20. 3 til Akraness og R- víkur. Mánafoss fór frá Rvík á hádegi í dag, 20. 3 til Akraness, Patreksfjarðar, Þingeyrar, Bol* ungarvíkur, Húsavíkur og það- an til Leith. Reykjafoss fer frá Hull 20. 3 til Rvíkur. Selfoss fer frá Rvík um hádegi á morgun, 21. 3 til New York. Tröllafoss fór frá Hafnarfirði 19. 3 til ísá- fjarðar, Akureyrar og Siglu- fjarðar og þaðan til Hull, Rotter dam og Hamborgar. Tungufoss fer frá Húsavík í dag, 20. 3 til Sigluf jarðar, Akureyrar, Sauðár króks, Skagastrandar, Flateyrar og Rvíkur. Skipaútgerð ríkisins. Hekla er væntanleg til Rvíkur í dag að vestan úr hringferð. Esja er á Norðurlandshöfnum á austurleið. Herjólfur fer frá Vestm.eyjum í dag til Horna- fjarðar. Þyrill verður á Faxa- flóahöfnum í dag. Skjaldbreið er á Norðurl.höfnum. Herðu- bi’eið er á Norðurlandshöfnum á Vesturleið. Skipadeild S. í. S. Arnarfell fer væntanlega 27. þ. m. frá Hull áleiðis til Rvíkur. Jökulfell er væntanlegt til R- ,Vikur í dag frá Goucester. Dís- arfell er í Gufunesi. Litlafell fór 19. þ. m. frá Fredrikstad áleiðis til Rvíkur. Helgafell los- ar á Austfjörðum. Hamrafell er í Batumi. Stapafell fór 20. þ. | m. frá Raufarhöfn áleiðis til ., Karlshamn. j m Jöklar h.f. Drangajökull er í Keflavík, \Jt fer þaðan í kvöld til Vestm.eyja. Langjökull er í Vestm.eyjum, fer þaðán í kvöld til Faxaflóa- hafna. Vatnajökull fór frá Lond on 19. 3 til Rvíkur. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f. Katla er á leið til Hull. Askja er á leið til Reyðarfjarðar. | SAIVmOI¥gyB3 Fíladelfía. Almenn samkoma í kvöld kl. 8,30. Kristín Sæm- unds talar og ungt fólk vitnar. Allir velkomnir. Minningaspjöld fyrir Heilsuhæl- issjóð Náttúrulækningafélags íslands. fást í Haínarfirði hjá Jóni Sigureeirssyni, Hverfis götu )3B Sími 50433. Minningarspjöld Blindrafélags ins fást í Hamrahlíð 17 og lyfjabúðum í Reykjavík, Kópa vogi oð Hafnarfirði. Minningarspjöld menningar- og minningarsjóðs kvenna fást k þessum stöðum: Bókaverzlun ísafoldar, Austurstræti 8, Hljóðfærahúsi Reykjavíkur, Hafnarstræti 1, Bókaverzlun Braga Brynjólfssonar Hafnar stræti 22, Bókaverzlun Helga fells Laugaveg 100 og skrif- stofu sjóðsins, Laufásveg 2. Minningarsjöld fyrir Innri- Njarðvíkurkirkju fást á eftir töldum stöðum: Hjá Vilhelm ínu Baldvinsdóttur Njarðvík urgötu 32, Innri-Njarðvík; Guðmundi Finnbogasyni, Hvoli, Innri-Njarðvík; Jó- hanni Guðmundssyni, Klapp arstíg 16, Ytri-Njarðvík. f LÆKNAH Kvöld- og næturvörður L. R. í dag: Kvöldvakt kl. 18,00—00,30. Á kvöldvakt: Magnús Þorsteins- son. Á næturvakt: Jón Harines- son. Neyðarvaktin sími 11510 hvern v’irkan dag nema laugardaga kl. 13.00 — 17.00. Slysavarðstofan í Heilsuvernd- arstöðinni er opin allan sólar- ringi . — Næturlæknir kl. 18.00—08.00. — Sími 15030. Hver er maðurinn? Þetta er Ólöf Jónsdóttir, rithöfundur. — Hún er þekkt af frásöguþáttum í barnalímum útvarpsins og hefur sent frá sér eina bók, Heimsókn, er kom út 1961. Von er á nvrri bók frá Ólöfu bráðlega. Húsmæðrafélag Reykjavíkur Hin vinsælu saumanámskeið félagsins byrja nú aftur. Kon ur sem ætla að sauma hjá okkur fyrir páska gefi sig fram sem fyrst í eftirtöldum símum, 14740, 33449 og 35900. SÖFN Þjóðminjasafnið og Llstasafn ríkisins eru opin sunnudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og la ig ardaga kl. 13,30—16,00. SPAKMÆLIÐ OKKUR langar ekki í hlut af því aff viff höfum fundiff skynsamleg rök fyrir þörfinni. heldur finnum viff skynsamleg rök fyrir þörfinni, af því aff okkur langar í hann. - Will Durant. KANKVÍSUR Kankvísur endurbættar í prentun. Viff prentun og prófarkalestur eru piltar, sem kunna sitt fag. Þeir breyta Kankvísum Kankvíss Kankvísum ætíff í hag. Já, finnst þeim vísan vera varla nógu góff, þá geta þeir fastbyggffri ferskeytlu breytt í formlaust atómljóff. v KANKVÍS. 14 21. marz 1963 — ALÞÝ3UBLAÐIÐ - Kennaraskólinn Framhald af 1. síðu. Elíasson, fræðslumálastjóri, dr. Símon Jóh. Ágústsson, prófessor og Sveinbjörn Sigurjónsson, skóla- stjóri. Þessi átta manna nefnd lauk störfum í september 1961 og skil- aði þá til menntamálaráðuneytisins frumvarpi til laga um Kennara- skóla íslands, ásamt greinargerð fyrir störfum sínum og frumvarp- inu sjálfu. Þegar menntamálaráðuneytið hafði haft þetta frumvarp til at- hugunar og gert á því ýmsar breyt- ingar, varð niðurstaðan sú, að leggja það ekki fyrir þing vetur- inn 1961—62, heldur fresta því til næsta þings og vinna að ýtarlegri undirbúningi málsins og athugun með sérstöku tilliti til framhalds- náms kennara og sambands Kenn- araskóians við Háskóla íslands. Til þessara athugana skipaði menntamálaráðherra 2. júlí 1962 sérstaka nefnd. í henni áttu sæti Birgir Thorlacius, ráðuneytis- stjóri, formaður, Ármann Snæv- arr, rektor Háskóla íslands, Helgi Elíasson, fræðslumálastjóri, Krist- inn Ármannsson, rektor Mennta- skólans í Reykjavík, og þáverandi skólfjstjóri Kennaraskólans, Frey- steinn Gunnarsson og dr Broddi Jóhannesson, sem varamaður hans. Hann tók fast sæti í nefndinni, eftir að hann var skipaður skóla- stjóri. Nefnd þessi ræddi málið og at- liugaði á allmörgum fundum og gerði ýmsar breytingar á frum- varpinu, og liggur það nú fyrir í þeirri mynd, sem hún gekk frá því. Þess skal getið, að nefndin fól þeim skólastjórum Kennaraskól- ans, fyrrverandi og núverandi, á- samt dr. Halldóri Halldórssyni, prófessor, og Guðmundi Arnlaugs syni, menntaskólakennara, að gera tillögur um námsefni prófkröfur, stundafjölda og annað fyrirkomu- lag væntanlegrar menntadeildar Kennaraskólans. Þá lagði rektor Háskóla íslands málið fyrir háskólaráð, sem ósk- aði að' leita álits einstakra deilda Háskólans áður en því yrði ráðið til lykta í háskólaráði. Að fengnu Bingó í Haínarfirði HIN vinsælu bingó Alþýðu flokksfélaganna í Hafnar- firði verður í kvöld 21. marz kl. 8,30. — Meðal vinninga má nefna: Úr, hrað- suðuketil, hægindastól, epla- kassa, straubretti o. fl. áliti deildanna, lét háskólaráð í té umsögn sína um frumvarpið og kvaðst í meginatriðum geta fallizt á þá tilhögun, sem í frumvarpinu felst, að því er varðar tengsl Kenn araskólans við Háskólann, en um- sögnin er látin uppi í trausti þess, að hið fyrsta verði stofnað til end- urskoðunar á menntaskólanámi í heild sinni. Háskólaárið tekur jafn framt undir breytingartillögur þær, sem lieimspekideild gerir við frumvarpið, og tók nefndin síðan þær tillögur flestallar til greina. Svo sem vænta mátti er álit há- skóladeildanna á máli þessu nokk- uð sitt á hvern veg. Til þess hefur heldur aldrei verið ætlazt, að stúdentspróf frá Kennaraskálan- um veiti aðgang að öllum deildum Háskólans, frekar en t. d. stúdents- próf úr máladeildum menntaskól- anna gera nú. í heild sinni verð- ur að telja' afstöðu Háskólans til málsins jákvæða, en þess skal get- ið, varðandi endurskoðun á menntaskólanámi í heild, að menntaskólaráðuneytið hefur hinn 7. marz 1963 skipað nefnd til þeirr ar endurskoðunar. ALÞÝDUBLADIÐ hafði sam band við flugturninn á Reykjavíkurflugvelli um mið nættið og innti fregna af leitinni að íslenzku flugvél- inni, sem saknað er. Ekki hafði leitin þá borið neinn árangur. Flugvél, er tók þátt í leitinni, var þá nýlent á Gandcr og hafði ekkert séð. Ekki hefur verið tilkynnt, að leitinni sé lokið og bjóst flug turninni í Reykjavík við því, að leitað yrffi áfram í dag, ef veður leyfði. Sauðburður Framhald af 1. síðu. hafinn, nema livað eitt fyrramáls lamb var fætt á öðrum bæ. Alþýðublaðið spurðist í gær fyrir um það á búnaðarmálaskrif- stofunni, hvort ekki væri alveg einstakt, að sauðburður hæfist svo snemma. Guðmundur Jósafats son frá Austurhlíð varð fyrir svör um. Hann taldi þetta stórfrétt, sagði að til þekktist, að ein og ein á bæri svo snemma árs, en að um 'nelmingur ánna væru bornar um þetta leyti, — væri ekki daglegt brauð. ]. Það er fleira en grænkan á Suð- í urlandi, sem kemur snemma í ár. Laus staða Staða framkvæmdastjóra flugöryggisþjónustunnar er laus til umsóknar. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist mér fyrir 15. apríl n.k. Reykjavík, 20. marz 1963. Flugmálastjórinn AGNAR KOFOED-HANSEN t

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.