Alþýðublaðið - 23.03.1963, Síða 3
pánn vill
flaugar
MADRID, 22. marz (NTB-AFP)______
Spánverjar hafa beðið um Mike-
Zeus cldflaugar og eitt eða tvö
flugvélaskip gegn því að fganda-
rikjamenn fái að hafa áfrain af-
not af flotastöðinni í Rota og flug
vellinum í Torrejon, að því er
liaft var eftir góðum heimildum
i Madrid í dag.
Óskir Spánverja — sem einnig
ná til annarra nýtízku liergagna og
aukinnar efnahagsaðstoðar —
koma fram í sambandi við samn-
ingaviðræður um endurnýjun her-
málasamnings Spánverja og Banda
ríkjamanna, sem rennur út í sept-
ember.
Bandaríkjamenn munu vera fús-
ir til að afhenda Spánverjum orr-
ustuþotuf af F-104 og F-102 gerð,
e'n þeir munu hafa hafnað beiðn-
inni um Nilte-Zeus eldflaugar og
flugvélaskip.
Formaður bandarísku hermála-
nefndarinnar á Spáni, Joseph D.
LONDON: Sendiherra Breta i
París, Sir Pierson Dixon, af-
henti utanríkisráðherra Frakka
Couve de Murville, af rit af
ræðu brezka utanríkisráoherr-
ans, Home lávarðar, í NATO-
ráðinu á fundi sem þeir áttu á
fimmtudag.
Caldara, hefur ekki þótt sýna
nægilega festu gagnvart kröfum
Spónverja, og er talið að hann
verði bráðlega leystur frá störf-
um. Hann ræddi í dag við Munoz
Grandes hershöfðingja, sem er
varaforsætisráðherra Spánar og
forseti herráðsins.
Bretar selja
Rússum stálrör
LONDON, 22. marz (NTB-AFP)--
Brezka stjórnin liyggst ekki leggj-
ast gegn útflutningi á brezkum
olíurörum til Sovétríkjanna. Af-
staða stjórnarinnar til þessa máls
er óbreytt, sagði formælandi verzl
unarmálaráöuneytisins í dag.
Fyrr í vikunni bannaði stjórnin
í Vestur-Þýzkalandi útflutning á
stálrörum til Sovétríkjanna. Neit-
að er því, að brezka stjórnin hafi
rætt við vestur-þýzk yfirvöld um
málið. Haft er eftir góðuni heimild
um, að stjórnin hafi hafnað tilmæl
um á fundi NATO-ráðsins í des-
ember til stjórna aðildarríkjanna
um að banna útflutning á stólrör-
um til kommúnistaríkja.
SAU EKKERI
NEMA BRAK
FLUGVÉL frá Flugfélagi ís
lands fór í gærmorgun til
að leita að mönnunum tveim,
sem ekki fundust eftir að
vélbáturinn Erlingur 4.
sökk. Með vélinni fórn fimm
starfsmenn Landhelgisgæzl-
unnar og tveir flugmenn frá
F.í. Smá bilun á olínkerfi
gæzluvélarinnar SIF olli því,
að ekki var hægt að fljúga
henni.
Flugfélagsvélin leitaði í
tæpar fimm kliikkustundir,
en fann ekkert nema brak,
Iestarborð og annað, sem flot
ið hefur upp. Á svæðinu, sem
er misvísandi 20 sjómílur suð
ur af Selvogsvita, voru 16
bátar að leita, og einnig varð
skipið Ægir. Sigldu skipin
þétt yfir svæðið, en urðu
ekki vör við neitt, nema brak.
1100 farast í
eldgosi á Bali
Djakarta, 22. marz
(NTB—Reuter)
RÚMLEGA 1100 manns hafa far-
izt í gloandi hraunflóði og ösku í
þorpunum við rætur eldfjallsins
Agung, að sögn lögreglustjórans í
þorpinu Denpasar á Bali í dag. —
Þrjú þorp eru algerlega einangr-
uð af glóandi hraunflóði. Lögregl-
an óttast að margir hinna 560
þorpsbúa hafi farizt.
Sukarno Indónesíuforseti hefur
lýst yfir neyðarástandi á eldgosa-
svæðinu. Hann hefur jafnframt
skýrt frá því, að U Thant, aðal-
ritari SÞ, hafi heitið aðstoð heims-
samtakanna.
Fjallið gaus aftur í dag, og
hraunflóðið rennur nú niður allar
hlíðar fjallsins. Engar samgöngur
eru við þorpin umhverfis eldfjall-
ið og björgunarsveitir verða að
, fara sjóleiðina. Þorpin eru aðeins
Gefa 100 krónur
af mjöltunnunni
5 kilómetra frá eldgígnum. Reynt
verður að telja íbúana á að flýja
áður en hraunið nær til þorpanna.
Þótt ekki sé vitað um fjölda
meiddra, er talið að hann sé mik-
ill. Þúsundir hafa flúið svæði, sem
eru í hættu austanmegin á Bali.
Yfirvöldin hafa gefizt upp við að
reikna út fjölda hinna flúnu, þar
eð margir snúa heim aftur til þess
að leita saknaðra strax og gosin
minnka.
Skýrt er frá því, að margir
þeirra, sem hafa farizt, séu böm,
sem ekki hefur tekizt að komast
út úr húsunum á undan hraunflóð-
inu. Flugvélar og skip frá Java
flytja mat, lyf og aðrar birgðir til
Bali.
URSTOFAN
Framh. af 16. síðu
Svo varð þó ekki, fyrr en löngu
síðar.
‘ Nú er flugið orðið mikilvæg at-
vinnugrein, og þýðing veðurfræð-
innar fyrir það hefur orðið meiri
og margþættari að sama skapi. —
Loftlagsfræðin gefur yfirlit um
veðurlag á flugvöllum, til dæmis
livaða vindáttir eru tíðastar, livaða
vindáttum fylgir oftast lélegt
skyggni og lág skýjahæð, og þar
af leiðandi við hvaða flugbrautir
helzt þarf að setja sérstök lending
artæki.
Flugvélar fara ekki milli landa,
án þess að flugstjórar þeirra hafi
fengið margskonar upplýsingar um
veðurhorfur á ákvörðunarstað og
væntanlegum varalendingarstöð-
um. Einnig fær flugstjórinn nokk
ur veðurkort, er sýna væntanlega
vinda í ýmsum flughæðum, og hvar
ísingar, kviku og annarra varhuga
/ Hæsto-
rétt aftur
„BLAÐ LÖGMANNA hefur ný-
Icga hafið göngu sína. í því er get-
ið margra ungra iögfræðinga, sein
liafa fengið héraðsdómslögmanns-
réttindi, og 12 sem hafa fengiö
liæstaréttarlögmannsréttindi. Með-
al þeirra er Guðlaugur Einarsson,
lögfræðingur, scm var sviptur
réttindunum meðan „morðbréfa-
málið“ stóð sem hæst, og frægt
var á sínum tírna.
verðra veðurskilyrði er helzt að
vænta. Eftir þessum upplýsingum
velur flugstjóri þá flughæð og
flugleið, sem öruggastar eru, og
leyfa sem mesta hleðslu vélar-
innar, miðað við kostnaðarliði,
flugtíma og eldsneytiseyðslu. —
Flugstjórar á flugleiðum innan
lands fá einnig svipaðar upplýs-
ingar. Að morgni hvers dags er
gert heildaryfirlit um veðurhorf
, ur á flugleiðum og lendingarstöð
um, sem síðan er endurbætt eft-
ir ástæðum er á daginn líður.
| 'VteðurþjóJaustan er ekkjl að-.
eins veitandi hvað flugið snertir,
heldur einnig þiggjandi. Daglega
berast veðurstofunni hundruð veð
urskeyta frá flugvélum á ýmsum
flugleiðum, og sem fljúga á
tveggja til tólf kílómetra liæð. í
skeytum þessum eru upplýsingar
um loftþrýsting vind og veður-
skilyrði í flughæð, ásamt lýsingu
á skýjafari í nánd við flugvélina.
Þessi skeyti komu að sjálfsögðu
flugveðurþjónustunni að mestu
gagni, en eru einnig þýðingarmik-
il fyrir hina almennu veðurþjón-
ustu.
Síðast en ekki sízt ber að nefna
þær veðurathuganir, sem gerðar
eru á vegum Alþjóðaflugmála-
s^ofnunarinnar (ICAO) og lcostað-
ar eru af nokkrum meðllmaríkj-
um hennar. Hér er um að ræða
veðurathuganir þar sem með eru
taldar háloftsathuganir á ís-
’andi. Grænlandi og stöðvarskip-
um á Norður Atlantshafi. Þessar
vcðurathuganir eru að sjálf-
söeðu mikilvægastar fyrir flug-
samgöngur á Norður Atlantshafi,
en hafa einnig ómetanlega þvð-
ingu fvrir almenna veðurþjónustu
í öllum nágrannalöndunum.
SILDARVERKSMIÐJAN á Vopna-
firði hefur gefið bændum 100 kr.
af hverri tunnu mjöls, og veitt
gjaldfrest á afganginum vaxtalaust
fram í apríl. Kaupfélag Vopnfirð-
inga hefur veitt 10% afslátt á öll-
um aðfluttum fóðurbæti.
Þessi aðstoð við bændur hefur
verið árangursrík og þykir mikil
og góð, en útlitið var ekki glæsi-
legt hjá mörgum bændum í haust,
eftir rysjótt sumar.
Eins og víðar á landinu heyjaðist
slælega í Vopnafirði í 6umar, sök-
um lélegrar sprettu eftir kalt vor.
Margir bændur voru því svartsýn
ir á veturinn, — en nú hefur hald
izt þar, sem víðar um land, ein-
dæma blíða í svo að segja allan
vetur, svo að útlit um búfjárhöld
er nú orðið dágott.
Hin mikla aðstoð, 6em síldar-
verksmiðjan og kaupfélagið hafa
veitt, er líka mikils virði og mikið
þökkuð af bændum, svo sem vert
er.
79°}o styðja
verkfallsmenn
PARÍS, 22. marz (NTB-Reuter). —
Alls telja 79% frönsku þjóðarinn-
ar, að kröfur verkamanna, sem eru
í verkfalli, séu réttlætanlegar, að
því er fram kemur í rannsókn,
sem franska skoðunarkjbnnfinar-
stofnunin hefur gert.
35% eru þeirrar skoðunar, að
almenn launahækkun muni hafa
óheillavænleg áhrif á jafnvægið
í efnahagsmálum landsins. En 39%
eru ekki á sömu skoðun.
Verkfall kolanámumanna, sem
nú hefur staðið í fjórar vikur —
hefur leitt til nokkurrar verkfalls
aðgerða í flestum atvinnugrein-
um hins opinbera og er fyrsta al-
varlega ógnunin við launastefnu
stjórnarinnar, síðan de Gaulle
komst til valda fyrir sex árum.
VÍN, 22. marz (NTR-Reuter). —L
Sakaruppgjöfin, sem Janos Kadar
fcrsætisráðherra skýrði frá í gær,
nær ekki til Joszef Mindzentys
kardinála, yfirmanns kaþólsku
kirkjunnar í Ungverjalandi. For-
mælandi ungverska utanríkisráðu
neytisins staðfesti þetta í dag.
Formælandinn bætti því hins
vegar við, að Mindzenty hefði réA
tii að sækja um sakaruppgjöf á
sama hátt og aðrir dæmdir af-
brotamcnn. Stjórnmálafréttaritar-
ar efast mjög um það, að Minzen-
ty muni notfæra sér þetta.
TILSONG-
NAMS YTRA
AKUREYSKI söngvarinn, Jóhann
Konráðsson, er farinn til Dan-
merkur til söngnáms. Hann mun
stunda nám hjá Stefáni íslandi í
Kaupmannahöfn, jafnframt því,
sem hann kynnir sér óperusöug
o. s. frv. Jóhann liyggst vera þrjá
ntánuöi í ferðinni, en ferðastyrk
fékk hann bæði hjá fjárveitinga-
nefnd alþingis og Akureyrarbæ.
Jóhann Konráðsson er löngu
landskunnur fyrir söpg, bæði með
karlakór á Akureyri og eins sem
einsöngvari.
Bsraelskir flugumenn í
Sviss verði framseidir
Bonn, 22. marz
(NTB-Reuter
Vestur-Þjóðverjar hafa beint
þeim tilmælum til Svisslendinga,
að tveim mönnum, sem talið er að
séu flugmenn ísraelsmanna og
grunaðir eru um að hafa reynt að
ínvrða vesturþýzkan eldflaugasér-
fræðing, verði vísað úr landi. For
mælandi vesturþýzka dómsmála-
ráðuneytisins skýrði frá þessu í
dag.
í Bern var haft eftir stjórninni,
að ósennilegt væri, að hún mundi
verða við tilmælunuin, að minnsta
kosti yrði tæplega rætt um þau
fyrr en á þriðjudag í næstu viku.
Síðastliðinn þriðjudag gáfu lög-
regluyfirvöld í bænum Lörrach í
Suður-Þýzkalandi út skipun um
handtöku flugumannanna, þeirra
Jósef Ben Gal og dr. Otto Joklik.
Báðir flugumennirnir, eins og tal-
ið er að þeir séu, hafa verið fang-
clsaðir og eru nú í yfirheyrslum í
Basel í Sviss.
Málavextir eru þeir, að þrír
menn réðust á dr. Hans Klein-
wachter, sem mun hafa starfað
fyrir Egypta á einkarannsóknar-
stofu sinni í Lörrach, þegar hann
var á leið heim til sín í bifreið.
Skotið var á hann, en skotin
liæfðu hann ekki. Handteknu
mennirnir tveir í Basel eru grun-
aðir um að hafa ætlað að nota 25
ára dóttur Kleinwachter, Paulti
Görcke, til þess að neyða föður
hennar að starfa ekki fyrir egypz-
ka ríkið. (
tsraelsstjórn hefur beint þeim
tilmælum til v.-þýzku stjórna^-
innar, að komið verði í veg fyrir,
að v.-þýzkir Sérfræðingar vinni við
eldflaugasmíði fyrir Egypta. —
Stjórnin í Bonn tilkynnti í gær, aff
hún mundi gera allt sem í hennar
valdi stæði til að koma í veg fyrii1,
að þýzkir sérfræðingar ynnu við
störf erlendis, er aukið gætu
spennu milli þjóða. i
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
23. marz 1963 3